Fréttablaðið - 10.04.2005, Side 50
22 10. apríl 2005 SUNNUDAGUR
Anna María Sveinsdóttir
varð Íslandsmeistari í
körfubolta í 12. sinn á ferl-
inum með Keflavík í vik-
unni. Tveir lykilmenn liðs-
ins voru ekki fæddir þegar
Anna María varð fyrst
meistari 1988.
„Þegar ég kom heim eftir leik-
inn beið mín skeyti frá Jóni Kr.
Gíslasyni. Þar stóð: Þú ert mesti
sigurvegari hópíþróttar sem Ís-
land hefur alið. Mér fannst frá-
bært að fá þetta frá mínum fyrsta
þjálfara og er rosalega stolt yfir
þessu,“ segir Anna María Sveins-
dóttir, 35 ára körfuknattleikskona
úr Keflavík sem á miðvikudaginn
varð Íslandsmeistari í tólfta sinn
á ferlinum.
Tvær ekki fæddar
Anna María hefur verið á
toppnum með Keflavík allar götur
síðan hún varð Íslandsmeistari í
fyrsta sinn í apríl 1988, fyrir
sautján árum síðan. Þær Bryndís
Guðmundsdóttir og María Ben
Erlingsdóttir, sem í dag spila með
Önnu Maríu inni í teig, voru hvor-
ug fædd þegar Anna María varð
fyrst meistari – fæddust báðar
seinna það ár.
„Eftir að við unnum í Grinda-
vík fannst mér þetta aldrei vera
spurning lengur. Það sást líka
strax í fyrsta leik hvort liðið var í
betra formi. Það var mjög sterkt
að klára annan leikinn í framleng-
ingu. Þar vorum við að gera það
sem við höfum verið að gera
seinni hluta vetrar eða allar götur
síðan Alex kom til okkar. Við
höfum verið að vinna þessa jöfnu
leiki. Við höfum verið mjög sterk-
ar í slíkum kringumstæðum í
vetur, sem er eitthvað sem við
höfum ekki verið þekktar fyrir í
gegnum árin,“ segir Anna María,
sem hefur lagt mikið á sig til að
halda sér í toppformi.
Sjaldan verið í betra formi
„Það hafa verið stífar og erfið-
ar æfingar hjá okkur í allan vetur
og slíkt skilar sér. Ég hef sjaldan
verið í betra formi en síðasta eina
og hálfa árið og það eru lyfting-
arnar sem eru að skila þar heil-
miklu. Þegar við stelpurnar fór-
um í lyftingasalinn í vetur horfðu
þær bara á mig og trúðu því ekki
að ég væri að gera þetta alltaf.
Þeim fannst þetta vera mikið sem
ég var að leggja á mig, því þær
voru alveg búnar eftir þetta. Ég
ætla að vona að þessar ungu stelp-
ur taki mínum ráðleggingum og
fari að lyfta meira sjálfar,“ segir
Anna María, sem segir sigurinn í
vetur vera einn þann sætasta á
ferlinum.
Misstu þrjá lykilmenn
„Við misstum þrjá sterka
landsliðsmenn í byrjun vetrar.
Erlurnar fóru til Grindavíkur og
svo meiðist Marín Rós Karlsdóttir
strax í upphafi tímabils. Þessi
vetur hefur sannað það enn og aft-
ur að þú kaupir þér ekki titil eins
og Grindavíkurliðið var að reyna
að gera. Þær náðu engan veginn
saman sem lið, þetta eru stelpur
úr öllum áttum sem þurfa örugg-
lega meira en eitt ár til að ná sam-
an.
Við erum hins vegar allar stillt-
ar inn á sömu blaðsíðuna og auð-
vitað var sigurinn sætari af því að
við misstum þrjá landsliðsmenn,
vitandi það að ekkert annað lið
hefði þolað það,“ segir Anna
María, en liðsheildin í Keflavíkur-
liðinu er eins og hún gerist best.
Engin með skotgræðgi
„Það er engin í liðinu með
neina skotgræðgi og það eru allar
í liðinu tilbúnar að gefa sending-
una fyrir næsta auðvelda skot.
Það skiptir okkur engu máli hver
er með 20 stig og hver er með 10
stig. Sverrir hefur líka kennt okk-
ur ýmislegt. Við lögðum mikla
áherslu á að fá Sverri síðasta vor
þegar við vissum að Siggi ætlaði
að þjálfa karlana. Hann er gífur-
lega áhugasamur og metnaðar-
fullur þjálfari og ég held að við
hefðum ekki getað verið heppn-
ari,“ segir Anna María, sem lék
mjög vel í úrslitaeinvíginu, skor-
aði 13,3 stig, tók 12,7 fráköst, stal
5 boltum og gaf 4,7 stoðsendingar
að meðaltali í leik.
Hlutverk hennar mikið breytt
„Mitt hlutverk í liðinu hefur
breyst mjög mikið. Ég er ekki
lengur aðalskorarinn í liðinu.
Fyrir nokkrum árum var maður
alltaf stigahæsti leikmaðurinn í
deildinni en það er löngu, löngu
liðið. Ég sætti mig alveg við mitt
nýja hlutverk. Það skiptir þannig
ekki máli hvort ég skora eða skora
ekki, bara ef ég hjálpa liðinu.
Mér finnst ég vera að skila
mínu á öllum sviðum og veit að það
er lykillinn að góðum árangri
hvers liðs að allir leikmenn liðsins
sætti sig við sitt hlutverk,“ segir
Anna María, sem er ekkert búin að
ákveða með framhaldið. „Ég ætla
bara að halda mér í formi í líkams-
ræktinni og svo verður það bara að
koma í ljós í haust hvort hungrið
verði enn til staðar. Ég ætla ekki að
spila með nema mig langi til.“
Anna María Sveinsdóttir hefur
verið á toppnum sem leikmaður í
öll þessi ár en hver er lykilinn?
„Þrotlausar æfingar og gífur-
legur metnaður númer 1, 2 og 3,“
segir Anna María um lykilinn að
velgengi sinni og bætir við.
Aldrei neitt hálfkák
„Ég hef alltaf lagt mig 100%
fram í öllu sem ég tek mér fyrir
hendur og aldrei farið á neina
æfingu með einhverju hálfkáki.
Ég hef fórnað öllu fyrir þetta og
körfuboltinn hefur alltaf verið
númer eitt. Svo eftir að ég eignað-
ist strákana eru það allir sem
hjálpast að og fjölskylda mín
hefur gert mér það kleift að halda
áfram,“ segir Anna María, sem á
tvo drengi með eiginmanni sínum
Brynjari Hólm Sigurðssyni; Haf-
liða (12 ára) og Sigurð (4 ára), sem
gerir sigurgöngu hennar að enn
meira afreki.
Tólf Íslandsmeistaratitlar og
tvö börn á 17 árum. Er hægt að
hugsa sér meiri sigurvegara?
ooj@frettabladid.is
ÍSLANDSMEISTARI Í TÓLFTA SKIPTIÐ
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > ANNA MARÍA SVEINSDÓTTIR
Þar stóð: Þú ert
mesti sigurvegari hópíþrótt-
ar sem Ísland hefur alið.
,,
Victor vinur minn er stoltur baski og aðdáandi Athletic
Bilbao. Hann verður alltaf jafn sár þegar ég spyr hann
hvað sé að frétta af slátraranum frá Bilbao, Andoni
Goikoetxea. Bæði finnst honum svekkjandi að harð-
jaxlinn gamli sé eiginlega eini leikmaðurinn úr sögu
Bilbæinga sem við útlendingarnir könnumst við og svo
þekkir hann Goikoetxea persónulega og segir kappann
séntilmenni sem óverðskuldað hafi fengið þetta blóð-
uga viðurnefni. En Goikoetxea var óneitanlega tákn
síðustu kynslóðar hinna dæmigerðu suður-
evrópsku slátrara ásamt Claudio Gentile,
heimsmeistara með Ítölum 1982.
Reglugerðarbreytingar hafa þrengt
mjög að harðjöxlum og slátrarar
eru deyjandi stétt. Þó ber svo til
um þessar mundir að
Spánverjar hafa
eignast tvo nýja
harðjaxla sem
vekja upp minn-
ingar um
gömlu
slátrarana; miðvarðapar Sevilla-liðsins þá Javi Navarro
og dr. Pablo Alfaro.
Doktor dauði
Rétt eins og Goikoetxea er dr. Pablo Alfaro mikið
séntilmenni utan vallar, lærður kvensjúkdómalæknir
og vinsæll fyrirlesari og viðmælandi í spjallþáttum. Á
leikvelli er hann hins vegar grófasti leikmaður síðari
ára og enginn núspilandi hefur af jafnmörgum rauð-
um spjöldum að státa. Alfaro er leikmaður sem jafnvel
Madrídarjaxlinum Michel Salgado (sem af samherjan-
um David Beckham er sagður harðasti maður á
plánetunni) þykir ganga lengra en sæmandi er. Á síð-
asta tímabili vann hann sér til frægðar að stinga fingri
upp í endaþarm andstæðings sem svo skemmtilega
vill til að ber nafnið Toché, en honum hefur eflaust
mislíkað „tötsið“, jafnvel þótt þar færi fær læknir al-
vanur slíkum skoðunum. Toché karlinn fór alveg úr
sambandi við þetta en Alfaro, sem ber viðurnefnið „Dr.
dauði“ komst á forsíður allra helstu blaða. Bæjarpress-
an í Sevilla snerist gegn honum og hörmuðu að í stað
hins fræga „rakara í Sevilla“ væri nú frægasti maður
borgarinnar þessi nútíma arftaki Goikoetxea, „slátrar-
inn í Sevilla“. Doktorinn lét sér fátt um finnast og not-
aði tímann til að mennta lærlinginn Javi Navarro, sem
á þessari leiktíð hefur farið langt fram úr lærimeistara
sínum í fautaskap.
Fleiri grófir
Í leik gegn Real Mallorca nýverið braut Navarro svo illa
á Venesúelamanninum Juan Arango að sá endaði á
gjörgæsludeild í tvo sólarhringa með kjálkabrot og
heilahristing og sauma þurfti 47 spor í andlit hans.
Brotið var kannski ekki það grófasta sem sést hefur en
Navarro fór ansi hraustlega í Arango og hefði verð-
skuldað eitthvað meira en gula spjaldið sem slakur
dómari leiksins veifaði. Enda fór pressan á Spáni ham-
förum og endaði það með því að Navarro var dæmdur
í nokkurra leikja bann. Arango hefur jafnað sig að
mestu en á eftir að fara í nokkrar heimsóknir til lýta-
lækna.
Sevilla-menn hafa löngum gengist upp í að leika fast
og þykir mörgum það miður, ekki síst í ljósi þess að
liðið er léttleikandi og hefur náð stórgóðum árangri
eins og sést á því að það berst nú um sæti í Meistara-
deildinni. Fleiri lið eru svo sem þekkt fyrir að vera
býsna föst fyrir, t.d. Valencia, en þar verður þó enginn
af hinum grjóthörðu varnarmönnum sakaður um að
vera grófur. Ásamt Sevilla-tvíeykinu hafa hins vegar
skotið upp kollinum fleiri svartir sauðir nýverið. Pablo
Garcia hjá Osasuna þykir allsvakalegur en tölfræðilega
er Alberto Lopo hjá Espanyol verstur, með 17 gul
spjöld og 4 rauð á síðasta tímabili, en hefur eitthvað
róast þessa leiktíðina.
Ný kynslóð spænskra slátrara
EINAR LOGI VIGNISSON: SKRIFAR UM BOLTANN Í SUÐUR-EVRÓPU Á HVERJUM SUNNUDEGI
TIL MINJA UM 500. LEIKINN
Eftir þriðja og síðasta leikinn fékk
Anna María Sveinsdóttir sérstaka
viðurkenningu fyrir að hafa spilað
500. leikinn fyrir Keflavík. Hér sést
hún með uppskeru kvöldsins.
Fréttablaðið/Víkurfréttir
Evrópuhandboltinn:
Stefán og
Gunnar
dæma ekki
HANDBOLTI Handknattleiks-
dómararnir Stefán Arnalds-
son og Gunnar Viðarsson
munu ekki dæma seinni
undanúrslitaleik franska
liðsins Montpellier og
Ciudad Real, liðs Ólafs Stef-
ánssonar, í meistaradeildinni
í Frakklandi í dag eins og ráð
var fyrir gert.
Gunnar hefur barist við
veikindi að undanförnu og
því hafa þeir félagar ekkert
dæmt.
Ciudad Real vann fyrri
leikinn með sex marka mun
en Frakkarnir eru þekktir
fyrir að vera sterkir á heima-
velli. Leikurinn byrjar kl. 15
og er í beinni útsendingu á
Sýn. ■