Fréttablaðið - 10.04.2005, Blaðsíða 52
24 10. apríl 2005 SUNNUDAGUR
LEIKIR GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Stórliðin Real Madrid og
Barcelona mætast í dag á Santi-
ago Bernabeau-leikvanginum í
Madríd. Gríðarleg spenna ríkir
fyrir þessum leik en Barcelona er
með níu stiga forystu á Real Ma-
drid á toppi deildarinnar. Það er
því að duga eða drepast fyrir leik-
menn Real Madrid, sem verða að
vinna ætli þeir sér að eiga mögu-
leika á titlinum.
Vanderley Luxemburgo, þjálf-
ari Real Madrid, stendur frammi
fyrir erfiðu vandamáli varðandi
framherja sína. Raúl hefur verið
skugginn af sjálfum sér þetta
tímabilið og líklegt þykir að
Luxemburgo láti Michael Owen,
sem hefur þegar allt kemur til alls
verið besti framherji Madrid-
arliðsins á tímabilinu, byrja inni á
við hliðina á Ronaldo.
Ronaldo hefur, líkt og Raúl,
ekki náð sér á strik í vetur og að-
eins skorað eitt mark í síðustu ell-
efu leikjum liðsins. Hann hefur þó
ekki miklar áhyggjur af því og
segir að mörkin muni koma á end-
anum.
„Ég hef skorað mörk allan
minn feril og þegar þetta marka-
leysi er á enda held ég áfram að
skora þau. Ég hef engar áhyggjur
af þessu markaleysi. Það eru
margir aðrir hlutir í heiminum
sem ég hef meiri áhyggjur af.
Þetta er bara íþrótt. Boltinn verð-
ur að fara yfir línuna og þegar það
gerist hverfur öll pressan. Ég
vona að það gerist fljótlega,“
sagði Ronaldo.
Ronaldinho, besti knattspyrnu-
maður heims á síðasta ári, verður
að öllum líkindum með en hann
hefur ekkert getað æft með
Barcelona vegna magakveisu að
undanförnu. Það mun mikið mæða
á kamerúnska framherjanum
Samuel Eto’o en hann var í eigu
Real Madrid áður en Barcelona
keypti hann.
„Ég hef engan áhuga á að hefna
mín á Real Madrid. Ef ég hefði
ekki verið seldur þaðan væri ég
ekki hjá þessu frábæra félagi.
Mér er nákvæmlega sama þótt ég
skori ekki í leiknum svo framar-
lega sem við vinnum. Ég hlakka
mikið til leiksins enda eru leikirn-
ir á milli þessara liða alltaf mikil
skemmtun,“ sagði Eto’o en hann
var aðalmaðurinn á bak við
sannfærandi 3–0 sigur Barcelona
á Real Madrid fyrr í vetur.
Leikurinn er í beinni útsend-
ingu á Sýn og hefst kl. 17.
oskar@frettabladid.is
Áhyggjulaus yfir markaleysinu
Brasilíski framherjinn Ronaldo segist ekki velta sér mikið upp úr þeirri stað-
reynd að hann hefur aðeins skorað eitt mark í síðustu ellefu leikjum Real.
DHL-deild karla
VALUR–HK 31–30
Mörk Vals (skot): Heimir Örn Árnason 6 (8),
Bladvin Þorsteinsson 6 (9), Brendan Þorvaldsson
5 (5), Kristján Þór Karlsson 4(7), Sigurður
Eggertsson 3 (4), Hjalti Þór Pálmason 3 (7), Elvar
Friðirksson 2/2 (2/2), Vilhjálmur Halldórsson 2
(8),
Varin skot: Hlynur Jóhannesson 13/1, Pálmar
Þór Pétursson 8.
Mörk HK (skot): Augustas Strazdas 7 (8), Elías
Már Halldórsson 6 (6), Ólafur Víðir Ólafsson 5
(9), Valdimar Þórsson 4/4 (12/5), Jón Heiðar
Gunnarsson 2 (2), Tomas Eitutis 2 (6), Alexander
Arnarson 1(1), Karl Grönvold 1 (3)
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 7, Hörður
Flóki Ólafsson 8.
Deildarbikar karla
KEFLAVÍK–HK 2–2
1–0 Hörður Sveinsson (37.), 2–0 Hörður
Sveinsson (41.), 2–1 Hörður Már Magnússon
(66.), 2–2 Stefán Jóhann Eggertsson (68.)
ÞÓR AK.–FYLKIR 1–0
1–0 Páll Viðar Gíslason (85.).
VÖLSUNGUR–ÞRÓTTUR 1–2
0–1 Daníel Hafliðason (55.), 0–2 Sævar Eyjólfs-
son (70.), 1–2 Guðmundur Steingrímsson (87.).
Deildarbikar kvenna
ÍBV–BREIÐABLIK 2–1
1–0 Bryndís Jóhannesdóttir (9.), 2–0 Olga
Færseth (25.), 2–1 Gréta Mjöll Samúelsdóttir
(45.).
Meistaradeildin í handbolta
BARCELONA–CELJE 31–26
Barcelona vann samanlagt, 62–60, og er komið í
úrslit meistaradeildarinnar
EHF-bikarinn í handbolta
MAGDEBURG–GUMMERSBACH 34–32
Sigfús Sigurðsson skoraði eitt mark fyrir
Magdeburg sem vann samalagt, 78–77, og er
komið úrslit EHF-bikarsins.
Sænska úrvalsdeildin
HELSINGBORG–HALMSTAD 3–0
Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom inn á sem
varamaður á 72. mínútu í liði Halmstad.
BRASILÍSKI FRAMHERJINN RONALDO Hefur aðeins skorað eitt mark fyrir Real
Madrid í síðustu ellefu leikjum liðsins.
BRENDAN ÞORVALDSSON Átti frábær-
an leik með Valsmönnum í gær.
DHL-deild karla í gær:
Valsmenn
áfram
HANDBOLTI Valsmenn eru komnir
áfram í undanúrslit DHL-deildar
karla í handbolta eftir sigur á HK,
31-30, í þriðja leik liðanna í átta
liða úrslitum í Valsheimilinu í
gær. Valsmenn mæta Haukum í
undanúrslitum en Haukar lögðu
FH-inga að velli í tveimur leikj-
um.
Valsmenn höfðu tögl og haldir
nær allan leikinn og leiddu með
átta mörkum í hálfleik, 21-13.
Sama var uppi á teningnum fyrstu
tuttugu mínútur síðari hálfleiks.
Valsmenn leiddu með sjö mörk-
um, 30-23, og ekkert virtist geta
komið í veg fyrir sigur þeirra. Þá
settu HK-menn hins vegar í flug-
gír, lokuðu vörninni og söxuðu
hressilega á forskot Valsmanna.
Þeir skoruðu sex mörk í röð og
náðu að minnka muninn niður í
eitt mark, 30-29. Þeir komust hins
vegar ekki nær og Valsmenn
hrósuðu sigri eftir æsispennandi
lokamínútur.
„Við spiluðum frábærlega í
fyrri hálfleik en síðan náðum við
ekki leysa vörnina hjá þeim í
seinni hálfleik. Mér fannst þeir fá
að spila allt of fast í vörninni,“
sagði Óskar Bjarni Óskarsson,
þjálfari Valsmanna, eftir leikinn.
- óhþ