Fréttablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 15
Braut Samkeppnisstofnun á Umfer›arstofu? Nú hefur samkeppnisráð komist að niðurstöðu í athugun ráðsins á réttmæti úrskurðar auglýsinga- nefndar Samkeppnisstofnunar frá 8. febrúar sl. þar sem sett var bann á birtingu þriggja auglýs- inga Umferðarstofu. Það er ekki ætlun mín að fjalla um réttmæti niðurstöðunn- ar sjálfrar, hvort ég sé sammála henni eða ekki. Hinsvegar sé ég mig knúinn til að fjalla um máls- meðferð Samkeppnisstofnunar sem ég leyfi mér að gera alvar- legar athugasemdir við. Það leið aðeins vika frá því að kvörtun barst frá Umboðsmanni barna þar til að auglýsinganefnd- in úrskurðaði bann við birtingu auglýsinganna. Í kjölfarið áfrýj- aði Umferðarstofa úrskurði aug- lýsinganefndarinnar til sam- keppnisráðs. Það tók ráðið hins- vegar u.þ.b. þrjá og hálfan mán- uð að komast að niðurstöðu í mál- inu – niðurstöðu sem hefði allt eins getað verið sú að auglýs- inganefndin hefði haft rangt fyr- ir sér og þar með valdið Umferð- arstofu ómældu tjóni sem ekki væri afturkræft. Augljóst vanhæfi nefndarmanns Það er eitt atriði sem nánast útilokar að samkeppnisráð geti komist að annarri niðurstöðu en auglýsinganefndin. Atli Freyr Guðmundsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, á sæti bæði í auglýsinganefndinni og samkeppnisráði sem úrskurðin- um var áfrýjað til. Auglýsinga- nefndin er ráðgjafanefnd sam- keppnisráðs og því líta sam- keppnisyfirvöld svo á að þau starfi á sama stjórnsýslustigi og þ.a.l. hafi stofnunin ekki brotið stjórnsýslulög nr. 37/1993 saman- ber 3. gr. 4. töluliður en þar seg- ir: „Starfsmaður eða nefndar- maður er vanhæfur til meðferð- ar máls: 4. Á kærustigi hafi hann áður tekið þátt í meðferð málsins á lægra stjórnsýslustigi. Það sama á við um starfsmann sem fer með umsjónar- eða eftirlitsvald hafi hann áður haft afskipti af málinu hjá þeirri stofnun sem eftirlitið lýtur að.“ Þrátt fyrir þessa túlkun Sam- keppnisstofnunar er það hverj- um heilvita manni ljóst að máls- meðferðin er líkust því að lög- reglumaður sem tæki að sér rannsókn tiltekins máls myndi á síðari stigum málsmeðferðar taka þátt í því að dæma málið. Slíkt getur ekki með nokkru móti talist eðlilegt. Í þessu máli er ljóst að brotið hefur verið á rétti Umferðar- stofu til hlutlausrar málsmeð- ferðar hjá samkeppnisyfirvöld- um. Atli Freyr Guðmundsson var vanhæfur til að fjalla um áfrýjun Umferðarstofu og hefði átt að víkja sæti úr samkeppnisráði þegar málefni Umferðarstofu var til meðferðar hjá ráðinu. Hunsaði Umferðarstofa tilmæli Samkeppnisstofnunar? Í úrskurði samkeppnisráðs kemur eftirfarandi fullyrðing fram: „ .., að Umferðarstofa hafi ekki orðið við tilmælum Sam- keppnisstofnunar um að ljúka málinu með því að hætta birtingu auglýsinganna og því telji ráðið nauðsynlegt að banna birtingu þeirra.“ Þetta er ekki rétt. Um leið og Samkeppnisstofnum fór fram á það að birtingu auglýsinganna yrði hætt var það gert. Ein af þessum auglýsingum var tekin úr umferð en hinsvegar var ákveðið af hálfu Umferðarstofu að breyta tveimur af þremur þessara auglýsinga þannig að þær sýndu ekki þau atriði sem lágu til grundvallar kæru Um- boðsmanns barna. Breyttar út- gáfur af auglýsingunum tveimur voru sýndar í sjónvarpi um þriggja vikna skeið og lauk sýn- ingu þeirra í byrjun mars. Engar kvartanir eða kærur bárust sam- keppnisyfirvöldum vegna aug- lýsinganna í breyttri mynd. 65,3% aðspurðra telja ekki of langt gangið Eftir sérhverja auglýsinga- herferð framkvæmir Gallup við- horfskönnun fyrir Umferðar- stofu þar sem almenningur er spurður um álit sitt á viðkomandi auglýsingum. Mörgum leikur ef- laust forvitni á að vita hvað al- menningi finnst um hinar bann- færðu auglýsingar. Aðspurðir hvort svarendur teldu boðskap auglýsinganna komast vel eða illa til skila sögðu tæp 77% að hann kæmist vel til skila. 4,8% sögðu hvorki né en 18,6% sögðu boðskapinn ekki skýran. Í sömu könnun kemur fram að 34,6% töldu auglýsing- arnar ganga of langt en 62,9% töldu þær ganga hæfilega langt og 2,4% sögðu ekki nægjanlega langt gengið. Af þessu má ljóst vera að mikill meirihluti fólks skildi boðskap auglýsinganna og taldi þær þjóna vel þeim tilgangi að vekja fólk til vitundar um al- varleika óábyrgrar hegðunar í umferðinni. Það er mjög brýnt að stofnun, sem gegnir jafn mikilvægu hlut- verki og Samkeppnisstofnun ger- ir, standi þannig að málum að úr- skurðir hennar séu hafnir yfir minnsta grun um óvandvirkni og rangfærslur. Höfundur er hugmyndastjóri Himins og hafs, auglýsingastofu sem sá um framleiðslu um- ræddra auglýsinga fyrir Umferðarstofu. 15ÞRIÐJUDAGUR 7. júní 2005 MAGNÚS GUÐMUNDSSON UMRÆÐAN SAMKEPPNISRÁÐ OG AUGLÝSINGAR UMFERÐARSTOFU

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.