Fréttablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 10
7. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR STJÓRNMÁL Utankjörfundar- atkvæðagreiðsla er hafin um skipulagsmál á Seltjarnarnesi en áhugahópur um betri byggð á Seltjarnesi stóð fyrir því að leit- að væri leiða til að bjóða upp á annan valkost en þann sem bæj- arstjórnin hafði samþykkt. Hópurinn er hins vegar óá- nægður með að bæjarstjórnin er aðeins búin að greina frá þeirri tillögu sem hún stendur að. „Við skiljum ekki hvernig atkvæða- greiðsla getur hafist um eitthvað tvennt þegar einungis annars kosturinn er þekktur,“ segir Þór Whitehead, félagi í áhugahópn- um. Skipulagsstofnun ríkisins neit- aði á sínum tíma að afgreiða til- lögu bæjarstjórnar. Í kjölfarið var komið á fót rýnihópi sem átti að starfa að því með skipulags- nefnd bæjarins að setja fram ann- an valkost og fá heildarsýn yfir skipulagsmál bæjarins þar sem aðalskipulag Seltjarness var út- runnið. „Báðar tillögurnar sem kosið verður um eru byggðar á vinnu rýnihópsins og hefur hvorug verið sett fram áður. Greint verð- ur frá þeim í þessari viku þegar kynningargögn eru tilbúin,“ segir Jónmundur Guðmarsson, bæjar- stjóri á Seltjarnarnesi. - ifv Kuldi og þurrkar miklir í maí samkvæmt Trausta Jónssyni veðurfræðingi: Maíve›ri› haft slæm áhrif á landbúna› LANDBÚNAÐUR „Það hefur verið við- loðandi norðaustanátt, þurrkar og sólskin. Það var ekki teljandi úr- koma nema við norðausturströnd landsins. Sérstaklega þurrt hefur verið suðvestanlands,“ segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, um veðurfar á Íslandi í maímánuði. Meðalhiti á landinu var rétt undir meðallagi. Þetta var kaldasti maímánuður í Reykjavík frá 1993 og kaldasti maímánuður á Akur- eyri frá 1995. „Vorið fór vel af stað, þetta leit vel út í aprílmánuði. Frost fór snemma úr jörðu og menn horfðu fram á gott sumar. En maímánuður var bæði þurr og kaldur auk þess sem mjög mikið var um nætur- frost,“ segir Ólafur Dýrmundsson, landsráðunautur hjá Bændasam- tökum Íslands. Ólafur segir að kornræktendur hafi miklar áhyggjur af því að korn sem sáð var í lok apríl og byrjun maí hafi skemmst vegna veður- farsins. Spretta er lítil á túnum, sem getur haft áhrif á heyfeng sumarsins, og í úthögum er einnig lítil spretta, sem þýðir að bændur þurfa að gefa sauðfé sjálfir með aukinni vinnu og tilkostnaði. „Eins og staðan er í dag er þetta með kaldari vorum,“ segir Ólafur. Gunnar Sæmundsson, bóndi á bænum Hrútatungu í Hrútafirði, segir svipaða sögu af veðrinu og Ólafur. „Það er ljóst að kornrækt og slætti mun seinka. Ég hef ekki trú á því að það verði neinn sláttur hér á svæðinu fyrr en fyrstu vik- una í júlí. Það þarf að fara að hlýna í veðri. Við eigum samt ekki að mála skrattann á vegginn strax,“ segir Gunnar. „Bæði frostið og þurrkarnir seinka öllu hjá okkur. Menn hafa ekki plantað út, því það er ekki gæfulegt að planta þegar það eru frostanætur. Veðurfarið kemur niður á allri útiræktun á grænmeti. Sólskinið í maí hefur hins vegar verið jákvætt fyrir ylrækt, ræktun á inniræktuðu grænmeti,“ segir Guðjón Birgisson, grænmetisfram- leiðandi og eigandi Íslensks græn- metis ehf. á Flúðum. ingi@frettabladid.is ÍSAFJARÐAR 5.099 kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og AKUREYRAR 5.199kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og flugfelag.is 8. - 14. júní EGILSSTAÐA 5.899 Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og kr. GRÍMSEYJAR 3.499 kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Akureyrar og VOPNAFJARÐAR/ ÞÓRSHAFNAR 4.499 Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Akureyrar og kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S F LU 2 86 34 0 6/ 20 05 Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum, greiða 1.940 kr. aðra leiðina. flugfelag.is DR. ÓLAFUR DÝRMUNDSSON Landsráðu- nautur hjá Bændasamtökum Íslands segir að veðurfarið í maí hafi aukið tilkostnað og vinnu bænda. TRAUSTI JÓNSSON Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir meðalhita á land- inu í maí hafa verið undir meðallagi og úr- komu litla nema á norðausturströnd landsins. Maí var hins vegar sólríkur mán- uður. SKIPULAGSMÁL Á SELTJARNARNESI Kosn- ingarnar 25. júní snúast aðallega um það hvort færa eigi knattspyrnuvöll frá Suður- strönd að Hrólfsskálamel. Í tillögu þeirri sem bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkti á sínum tíma átti að færa völlinn. Áhuga- hópur um betri byggð á Seltjarnarnesi er á móti því að völlurinn verði færður. Kosið um skipulag á Seltjarnarnesi: A›eins önnur tillagan kynnt

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.