Fréttablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 12
12 7. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Angar alþjóðlegrar
glæpastarfsemi eru farn-
ir að tengjast mansals-
málum sem upp koma
hérlendis í auknum
mæli. Alvarlegt er ef Ís-
land fer að verða eftir-
sóknarverður stökkpall-
ur brotamanna sem í
þessum geira starfa.
Á undanförnum árum hefur man-
sal og glæpir því tengdu skapað
sér rúm í íslensku samfélagi. Al-
þjóðlegir glæpahringir sem
skipuleggja flutninga á fólki, aðal-
lega frá fátækustu héruðum Asíu
og Austur-Evrópu, hafa verið
staðnir að verki hér á landi, þar
sem þeir millilenda á leið sinni
með fórnarlömbin í nauðungunar-
vinnu sem bíður þeirra víðast
hvar. Nýlega var maður frá
Singapúr dæmdur í sex mánaða
fangelsi fyrir að taka þátt í þess
háttar smygli.
Fórnarlömbin flest ungar konur
Umsvif mansals hefur aukist
mikið á síðustu tíu árum, og er nú
svo komið að aðeins vopnasala er
gróðavænlegri innan glæpaiðn-
aðarins. Enginn þáttur skipu-
lagðrar glæpastarfsemi hefur þó
ómanneskjulegri hvatir að baki
en mansalið, þar sem fólk gengur
kaupum og sölum milli landa og
jafnvel heimsálfa eins um hluti
sé að ræða. Vændi er út-
breiddasta atvinnugrein þeirra
sem eru seldir mansali og eru fá-
tækar, ungar stúlkar algengustu
fórnarlömbin.
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Íslandsdeildar Am-
nesty International, segir alþjóð-
legt starf gegn mansali orðið mik-
ið innan mannréttindasamtaka.
„Það hefur verið mikið rætt um
vandann sem tengist mansali und-
anfarin ár. Við leggjum áherslu á
velferð fórnarlambanna í þessum
málum og teljum mikilvægt að
þau hljóti réttmæta málsmeð-
ferð“.
Mansalið teygir sig til Íslands
Landfræðileg staða Íslands kem-
ur betur í veg fyrir að jafnalvar-
legt ástand og í Evrópu skapist.
Hér er tiltölulega auðvelt að hafa
eftirlit með ferðum til og frá land-
inu og því er vandinn sem hér
kemur upp á yfirborðið svolítið
annars eðlis en víða annars staðar.
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, segir
mansalið vera erfitt viðureignar
og Ísland sé í flestum tilfellum
ekki endastöð þeirra sem að fólks-
flutningunum standa. „Ísland er
yfirleitt stökkpallur til annarra
landa. Glæpamennirnir reyna að
búa til leiðir sem eru líklegar til
þess að heppnast. Ísland er ekki
ofarlega á lista í áhættugreiningu
flugs og því álykta glæpamennirn-
ir sem svo að flug frá Íslandi á
hugsanlega endastöð sé vænlegur
kostur.“
Guðrún Jónsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Stígamóta, segir flutning
ungra stúlkna til þess að vinna á
nektarstöðum hér á landi vera á
mörkum þess að vera brot. „Þótt
ástandið hafi batnað mikið við það
að einkadansinn hafi verið bann-
aður í Reykjavík og á Akureyri, og
Klasakokkar eru algengar spítalabakterí-
ur og eru meðal algengustu sýkingar-
valda í mönnum. Sýkingar af völdum
bakteríunnar geta verið mjög misalvar-
legar, allt frá einföldum húðsýkingum,
upp í lífshættulegar blóðsýkingar. Þrátt
fyrir þetta er algengt að fólk beri hana á
húð eða í nefi án nokkurra einkenna.
Þaðan getur hún borist í sár eða í við-
kvæma einstaklinga og valdið lífshættu-
legum sýkingum. Hún berst oftast milli
manna með snertingu og er handþvott-
ur þýðingarmesta aðgerðin til þess að
hindra dreifingu bakteríunnar. Við sér-
stakar aðstæður getur einnig verið um
loftborna dreifingu að ræða.
Klasakokkastofnum sem eru ónæmir
fyrir mörgum sýklalyfjum hefur fjölgað
mjög og þeir náð fótfestu um nær allan
heim. Þessir stofnar draga nafn sitt af
ónæminu, það er meticillín ónæmur
Staphylococcus aureus: MÓSA. Oft er
um mjög fá sýklalyf að velja við með-
höndlun þessara sýkinga.
Ísland er eitt fárra landa heims þar sem
MÓSA-bakterían hefur ekki náð fótfestu
og er til mikils að vinna að svo verði
áfram. Þróunin hér hefur hins vegar ver-
ið til verri vegar, því tilfelli í ár eru þegar
orðin helmingi fleiri heldur en þau voru
á öllu árinu í fyrra.
Nú er sérfræðingahópur á Norðurlönd-
unum, sem unnið hefur að könnun á
vanda er stafar af fjölónæmum bakterí-
um, orðinn uggandi um mikla fjölgun
nýrra tilfella. Eftir árið 2004 stóð Finn-
land langverst í þessum efnum með
1468 ný tilfelli, Næst kom Svíþjóð með
712, Þá Danmörk með 577, Noregur
með 221 og loks Ísland með 8.
Sérfræðingahópurinn hefur sent niður-
stöður sínar til heilbrigðisyfirvalda á öll-
um Norðurlöndunum. Sérfræðingarnir
vilja að meiri fjármunum verði varið til
varnar þessum bakteríum, í stað þess
að láta fjölgunina halda áfram, eins og
gerst hefur í Evrópulöndum. Í Bretlandi
er tíðni MÓSA-tilfella til dæmis mjög
há, og kostar samfélagið gríðarlega fjár-
muni í aukinni hjúkrun, fleiri legudög-
um á spítölum og öðru sem fjölónæm-
um bakteríum fylgir.
Stuðst við vefsíðu LSH.
Hefur ná› fótfestu um nær allan heim
FBL - GREINING: FJÖLÓNÆMA BAKTERÍAN, MÓSA:
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-
lista í Reykjavík, telur það mikilvægt að
sameina sveitarfélögin sjö á höfuð-
borgarsvæðinu. Hann gefur lítið fyrir
tillögur sjálfstæðismanna um byggð í
eyjunum í Kollafirði.
Í hverju felast tillögur F-listans um
betri byggð í Reykjavík?
Að íbúðarhverfi, atvinnusvæði og um-
ferðarmannvirki taki mið af öllu höfuð-
borgarsvæðinu þannig að fjármunir og
landgæði séu nýtt með sem hag-
kvæmustum og skynsamlegustum
hætti í þágu allra íbúa höfuðborgar-
svæðisins.
Hvað finnst þér um tillögur sjálf-
stæðismanna?
Tillögur sjálfstæðismanna gera ráð fyrir
því að áfram verði sjö sveitarfélög á
höfuðborgarsvæðinu og þar með land-
þrengsli sem ekki væru fyrir hendi ef
raunveruleg framtíðarsýn og heildar-
hagsmunir réðu ferðinni með samein-
ingu sveitarfélaganna.
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON
Ósáttur vi›
íhaldi›
SPURT & SVARAÐ
ÞAÐ ÞARF 70 BLÓÐGJAFIR Á DAG. GEFUM BLÓÐ REGLULEGA.
ERTU MEÐ ÞETTA Í BLÓÐINU?
BLÓÐ
BJARGAR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
84
26
06
/2
00
5
SÝKINGAR
Loka varð hluta hjartadeildar Landspítalans
ekki alls fyrir löngu vegna MÓSA.
SKIPULAGSMÁL
REYKJAVÍKURBORGAR:
KÍNVERSK FÓRNARLÖMB MANSALS Hrikaleg eymd bíður oftar en ekki þeirra sem
verða fyrir mansalsbrotum. Það vekur óhug að glæpamenn sem að þessu starfa skuli
horfa á Ísland sem eftirsóknarverðan stökkpall fyrir starfsemi af þessu tagi.
MAGNÚS HALLDÓRSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
MANSAL – ÞRÆLAHALD
NÚTÍMANS
Mansal teygir sig til Íslands