Fréttablaðið - 23.05.2005, Síða 64

Fréttablaðið - 23.05.2005, Síða 64
Algjör snilld! Ég fór á frumsýningu nýjustu myndar Dags Kára um daginn og varð svona líka ofsaglaður með okkar mann. Það er örugg- lega erfitt að fylgja eftir vel- gengni Nóa albinóa, væntingar fólks hljóta að setja mikla pressu á ungan leikstjóra og auðvelt að ímynda sér hvernig slík pressa gæti haft neikvæð áhrif. Það var því mikill léttir að heyra fólk hlæja og klappa á mörgum stöðum í myndinni og stöðugt lófaklapp eftir sýning- una gaf til kynna ánægju fólks, allan tímann sem tók að fá að- standendur myndarinnar upp á svið eins og venja er klappaði fólk látlaust og flautaði. Það var líka greinilegt að Dagur nýtur mikillar virðingar meðal samstarfsmanna sinna sem ég ræddi við í frumsýning- arpartíinu, það skipti ekki máli við hvern maður talaði, leikara eða aðra sem unnu að gerð myndarinnar, allir voru á einu máli um að Dagur væri einfald- lega snillingur sem næði að virkja alla með sér með sínu hægláta fasi og tilgerðarleysi. Myndin fjallar um ungan mann sem lifir á því að spreyja ástarjátningar á veggi borgar- innar fyrir ástsjúka kærasta og besti vinur hans er aðeins of þungur svefnrannsakandi sem langar mikið að verða fótbolta- dómari. Inn í myndina blandast svo hinir ýmsustu karakterar og heildin er svona líka helvíti góð. Ég las svo dómana í dönsku blöðunum daginn eftir og tvö stærstu blöðin gáfu fjórar stjörnur af fimm og eitt fimm af fimm. Í frumsýningarpartýinu var mikið spurt um Ísland og ég sem Íslendingur fékk ótal marg- ar spurningar um landið og landann. Þarna kom það skýrt fram hvað bíómyndir hafa mik- ið gildi varðandi landkynningu, þó að myndin hafi verið tekin hér í Danmörku og leikarar og flestir aðstandendur myndar- innar hafi verið Danir. Þetta endaði sem sagt í mikilli gleði og eftir nokkrar kampavínsflöskur og nokkra Cohiba-vindla fór ég glaður heim og ætlaði sko að panta far til Cannes daginn eftir til að vera viðstaddur sýningu mynd- arinnar þar. Ég varð að fresta förinni en er búinn að ákveða að fara næst og er þess fullviss að næsta mynd Dags verði valin til sýningar þar einnig. Ég get þá tékkað við Cannes á „been there, done that“ listanum mín- um yfir það sem ég ætla að vera búinn að gera áður en ég drepst. Allir í bíó. HÚSIN Í BÆNUM FRIÐRIK WEISSHAPPEL Vídalínskirkja Vídalínskirkja er í Garðaprestakalli í Kjalarnesprófasts- dæmi. Kirkjan ber nafn Jóns Vídalín (1666-1720), sem var prestur í Görðum á Álftanesi áður en hann varð biskup í Skálholti. Fyrsta skóflustungan að kirkjunni var tekin árið 1990 af Svein- birni Jóhannessyni, bónda á Hofsstöðum í Garðabæ, en hann gaf lóðina undir kirkjuna. Arkitekt var Skúli Norðdahl. Hornstein að kirkjunni lagði þáverandi sóknarprestur og prófastur Kjalarnessprófastsdæmis, séra Bragi R. Friðriksson. Kirkjan var vígð 30. apríl 1995 af þáverandi biskupi Íslands, herra Ólafi Skúlasyni. Kirkjan tekur 300 manns í sæti og er opnanlegt milli kirkjuskips og safnaðarheim- ilis og rúmast þá 600 manns í kirkjunni. Sóknarprestur er séra Hans Markús Haf- steinsson. SPURNING VIKUNNAR á fasteignavef Visis Hefurðu hug á að stækka við þig á árinu? 75% Nei Já SPURNING SÍÐUSTU VIKU: Langar þig að eiga sumarhús? 25% SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU* *Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins. 0 50 100 150 200 250 300 FJÖLDI 18/3-24/3 239 25/3-31/3 124 8/4-14/4 229 15/4-21/4 190 29/4-5/5 132 6/5-12/5 188

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.