Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.05.2005, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 23.05.2005, Qupperneq 70
FÓTBOLTI „Tryggvi er framlínumað- ur og það er hans hlutverk að skora mörk. Á meðan hann gerir það er ég sáttur,“ sagði Ólafur Jóhannes- son, þjálfari FH, við Fréttablaðið og setti þannig afrek Tryggva Guð- mundssonar í einfalt samhengi. „Mörkin eða markatalan skipta mig engu máli. Við stefndum að því að fá sex stig frá Suðurnesjunum í þessum tveimur fyrstu umferðum. Það gekk eftir og ég get ekki annað en verið sáttur við það,“ bætti Ólaf- ur við. Það tók lærisveina Ólafs nokkurn tíma að komast í gang í Grindavík í gær. Liðið spilaði undan miklum strekkingsvindi í fyrri hálfleiknum í gær og réðu leikmenn liðsins illa við þann vind framan af leik. Heimamenn áttu í fullu tré við Íslandsmeistara þrátt fyrir að vera með vængbrotið lið með þrjá fastamenn frá vegna meiðsla. Sinisa Kekic var reyndar kominn aftur í öftustu vörn eftir að hafa misst af fyrsta leiknum gegn Val og gefur nærvera hans leik Grindavíkur ákveðið öryggi. Það var ekki fyrr en Tryggvi hafði skorað fyrsta markið sem FH-ingar fóru fyrst að spila sinn leik. Þeir náðu öllum tökum á vell- inum og rétt fyrir hálfleik bætti Allan Borgvardt við öðru marki og gerði hann það með glæsilegri hælspyrnu eftir hornspyrnu. Milan Jankovic gerði rétt með því að færa Kekic í fremstu víg- línu í síðari hálfleik enda hafði liðið engu að tapa. Kekic átti eftir að reynast sóknarleik liðsins mjög vel og sóttu Grindvíkingar hart að marki gestanna framan af síðari hálfleik. En brotthvarf hans úr vörninni átti eftir að vega þungt. Án hans fór allt jafnvægi úr vörn- inni og eftir að Tryggvi hafði bætti við þriðja markinu úr fyrstu alvöru sókn FH í síðari hálfleik datt allur botn úr leik Grindvíkinga og þeir hreinlega gáfust upp. FH-ingar gengu á lag- ið og bættu við tveimur mörkum áður en yfir lauk en Ian Paul McShane náði að skora eitt sára- bótarmark í lokin. „Þetta er spurning um heppni. Það féll allt þeirra megin í dag og það átti eftir að skipta miklu,“ sagði Óli Stefán Flóventsson, leik- maður Grindavíkur, við Fréttablað- ið í leikslok. Hlutskipti Óla og fé- laga hans er ekki öfundsvert – liðið er neðst með markatöluna 1-8 og þarf sannarlega að hysja upp um sig buxurnar ef leiðin á ekki að liggja beint niður í 1. deild að ári. „Við verðum bara að þjappa okkur saman og hugsa um næsta leik. Þetta er erfitt en andinn í lið- inu er fínn þrátt fyrir allt mótlætið. Við vitum alveg nákvæmlega hvað við getum en við verðum að koma þessu inn á völlinn. Ég hef fulla trú á að það gerist fljótlega,“ sagði Óli jafnframt. Öðruvísi horfir við hjá FH-ing- um. Þeir eru á toppnum með átta mörk skoruð í tveimur leikjum þrátt fyrir að hafa spilað töluvert undir getu og ljóst að liðið er gríð- arlega sterkt. Lið sem getur leyft sér að skilja menn á borð við Ár- mann Smára Björnsson og Jónas Grana Garðarsson utan hóps, eins og raunin var í gær, er líklegt ís- landsmeistaraefni og með Tryggva og Borgvardt í stuði eins og í gær hafa fá lið, ef nokkur, burði til að stöðva FH. vignir@frettabladid.is FÓTBOLTI Keflvíkingar sóttu þrjú dýrmæt stig til Vestmannaeyja í dag þar sem þeir sigruðu slaka Eyjapeyja 3–2 í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Keflavíkur- liðið byrjaði með miklum látum og var búið að koma knettinum í netið hjá ÍBV eftir aðeins 6 mín- útna leik en þar var að verki Hörður Sveinsson. Hann renndi knettinum í hornið framhjá Birki Kristinssyni, markverði ÍBV, sem átti eftir að sækja boltann oftar í netið þennan daginn. Eyjamenn settu aðeins í gír eftir markið og þeirra besti maður, Atli Jóhanns- son, var nálægt því að jafna metin á 16. mínútu þegar hann átti skot í slá langt utan af velli. Stangirnar reyndust Keflvíkingum líka erfið- ar en Guðmundur Steinarsson, besti maður vallarins, skaut bæði í slá og stöng áður en Steingrímur Jóhannesson náði að jafna leikinn fyrir ÍBV talsvert gegn gangi leiksins. Eyjamenn náðu hins veg- ar ekki að fylgja markinu eftir og á 34. mínútu kom Guðmundur Steinarsson Keflavík í 2-1 þegar hann slapp einn inn fyrir vörn ÍBV og kom boltanum framhjá Birki. Keflavík sóttu stíft fram að leikhléi og voru óheppnir að bæta ekki við fleiri mörkum. Keflvíkingar hófu seinni hálf- leikinn eins og þann fyrri og Ingvi Rafn Guðmundsson skoraði þriðja mark liðsins á 50. mínútu. Eftir markið virtist allur vindur vera úr Eyjamönnum, sem náðu lítið að skapa sér af færum. Guðlaugur Baldursson, þjálfari ÍBV, bætti í sóknina en Keflavíkurvörnin hélt allt þar til á lokamínútu leiksins, þegar Andri Ólafsson minnkaði muninn fyrir Eyjamenn. Það mark kom hins vegar of seint. Lewis Dodds, leikmaður ÍBV, fékk að líta rauða spjaldið á 88. mínútu fyrir gróft brot á Hólmari Erni Rúnarssyni en Páll Þorvald- ur Hjarðar hefði átt að fá að líta sama litinn þegar hann braut gróflega á Ingva Rafni Guð- mundssyni, sem þurfti að yfirgefa völlinn í kjölfarið. -jiá 22 23. maí 2005 MÁNUDAGUR -Stærsti fjölmiðillinn Fréttablaðið er leiðandi 0 5 10 15 20 25 30 35 40 37% 11% Lestur á leiðarasíðu Íslendingar 18-49 ára Tölurnar tala sínu máli. Mun fleiri Íslendingar lesa leiðarasíðu Fréttablaðsins en leiðarasíðu Morgunblaðsins. Mælingin er byggð á meðallestri á leiðarasíðu Fréttablaðsins þriðjudaga, miðvikudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga og lestri á leiðarasíðu Morgunblaðsins á fimmtudögum. Fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005 Keflvíkingar sóttu sigur til Eyja Keflvíkingar innbyrtu sín fyrstu stig í sumar me› gó›um 3–2 útisigri á ÍBV. Eyjapeyjar voru slakir og er útliti› svart í Eyjum. *BESTUR Á VELLINUM ÍBV 4–3–3 Birkir 5 Bjarni Hólm 5 (30. Lewis Dodds 4) Páll Þorvaldur 4 Einar Hlöðver 4 (80. Pétur –) Bjarni Geir 4 Andri 5 Atli 6 Magnús Már 5 Ian Jeffs 5 (55. Platt 4) Andrew Sam 5 Steingrímur 6 KEFLAVÍK 4–4–2 Ómar 6 Milicevic 6 Johansson 7 O’Callaghan 6 Guðjón 6 Gestur 7 Jónas Guðni 6 Ingvi Rafn 7 (54. Baldur 6) Hólmar 6 Guðmundur 8 (80. Ásgrímur –) Hörður 7 (90. Atli Rúnar –) 2–3 Hásteinsv., áhorf: 250 Kristinn Jakobsson (8) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 8–10 (3–4) Horn 4–7 Aukaspyrnur fengnar 15–15 Rangstöður 3–4 0–1 Hörður Sveinsson (6.) 1–1 Steingrímur Jóhannesson (24.) 1–2 Guðmundur Steinarsson (34.) 1–3 Ingvi Rafn Guðmundsson (50.) 2–3 Andri Ólafsson (90.) ÍBV Keflavík Tryggvi skoraði þrennu FH-ingar s‡ndu mátt sinn og megin flegar fleir gjörsigru›u Grindavík á útivelli í gær, 5-1. Tryggvi Gu›mundsson skora›i flrennu í leiknum og er flá búinn a› skora fjögur mörk í fyrstu tveimur umfer›unum. 1-5 Grindav., áhorf: 820 Egill M. Markússon (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 5–18 (1–6) Horn 2–12 Aukaspyrnur fengnar 7–13 Rangstöður 2–4 0–1 Tryggvi Guðmundsson (33.) 0–2 Allan Borgvardt (43.) 0–3 Tryggvi Guðmundsson (63.) 0–4 Tryggvi Guðmundsson (76.) 0–5 Baldur Bett (77.) 1–5 Paul McShane (85.) Grindavík FH *BESTUR Á VELLINUM GRINDAVÍK 4–5–1 Savic 5 Óðinn 5 Kekic 7 Óli Stefán 5 Eyþór Atli 4 Nistroj 5 Eysteinn 5 Óskar Örn 6 Jóhann Helgi 4 (85. Andri Hjörvar –) McShane 5 Ahandour 5 (85. Emil Daði 5 FH 4–3–3 Daði 6 Guðmundur 7 Auðun 7 Nielsen 5 Freyr 6 Heimir 5 (77. Siim –) Ásgeir 6 (69. Baldur 7) Davíð Þór 5 Jón Þorgrímur 5 (75. Ólafur Páll 6) Tryggvi 8 Borgvardt 7 4 MÖRK Í 2 LEIKJUM Tryggvi Guðmundsson hefur skorað fjögur mörk í fyrstu tveimur deildarleikjum sínum með FH en hann skoraði þrennu í Grindavík í gær. Tryggvi hefur nú skorað í átta leikjum í röð í úrvalsdeildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURJÓN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.