Fréttablaðið - 23.05.2005, Page 75
Dagana 13.-25. júní býðst þér að setjast á skólabekk í Háskóla Íslands og taka þátt í
umræðum, tilraunum, vettvangsferðum og heilabrotum um flest milli himins og jarðar.
Hvað vekur áhuga þinn? Viltu vita meira? Skráning í Háskóla unga fólksins er hafin.
Líttu inn á www.ung.is og skoðaðu þig um.
Ertu á aldrinum 12-16 ára?*
*Háskóli unga fólksins er opinn unglingum fæddum á árunum 1989 - 1993.
HVER Á A‹ RÁ‹A?
Fundaröð um eflingu íbúalýðræðis
Reykjavíkurborg stendur þessa dagana fyrir fundaröð um
eflingu íbúalýðræðis þar sem öllum sem áhuga hafa á
íbúalýðræði er boðin þátttaka. Fundirnir eru haldnir í
IÐNÓ, 2. hæð og hefjast kl. 8:30 og lýkur kl. 10:00.
Aðgangur er ókeypis.
Fjórði og síðasti fundurinn verður haldinn
n.k. þriðjudag, 24. maí og er yfirskrift hans
Íbúalýðræði í skipulagsmálum
Dagskrá fundarins
verður sem hér segir:
Framsöguerindi:
„Allir hafa hugmyndir um betri borg“
Hanna Birna Kristjánsdóttir, fulltrúi í skipulagsráði
Viðbrögð við erindi Hönnu Birnu:
Salvör Jónsdóttir,
sviðsstjóri Skipulagssviðs
Erna Indriðadóttir,
framkvæmdastjóri Reykjavíkurakademíu
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir,
arkitekt
Dagur B. Eggertsson kynnir starf og tillögur starfshóps
Reykjavíkurborgar um eflingu íbúalýðræðis
Almennar umræður
Fundarstjóri: Eiríkur Hjálmarsson,
aðstoðarmaður borgarstjóra
Áhugasamir geta kynnt sér ‡mis gögn og komi› sko›unum
sínum á framfæri á heimasí›u Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is – sjá „Hver á a› rá›a?”
Britney Spears og eiginmaður
hennar Kevin Federline fóru sam-
an í viðtal í spjallþætti í fyrsta
sinn um daginn. Parið spjallaði
við hina stórfyndnu Ellen
DeGeneres um kosti og galla
hjónabandsins en þau hafa nú
verið gift síðan í september og
munu eignast sitt fyrsta barn
saman seinna á þessu ári. „Það
besta er að sættast eftir rifrildi.
Ég elska að eyða tíma með Britn-
ey því að hún er svo skemmtileg
og ljúf. Það er nauðsynlegt að
vera ekki alltaf grafalvarlegur og
hún getur verið svo hress. Lífið er
of stutt til þess að vera alltaf al-
varlegur,“ sagði Kevin, sem
einnig sagði frá sinni nýfundnu
frægð sem hefur látið á sér kræla
eftir að hann giftist Britney.
„Ég myndi ekki segja að þetta
væri rosalega erfitt en stundum
nær þetta til manns. Frægðin
hefur sína kosti og sína galla en
ég er umfram allt hamingjusamur
með Britney. Ég elska hana og
ekkert annað skiptir máli.“
DeGeneres var sjálfri
sér lík í þættinum og gerði
að gamni sínu. Hún grínað-
ist meðal annars með að
hún myndi verða guðmóðir
barnsins og auk þess gaf
hún hjónakornunum
kveðjugjafir í lok þáttar-
ins og var þar meðal ann-
ars að finna bleyjur með
áletruninni: „Oops... I did
it again“ sem vísar í einn
af mörgum slögurum
Spears.
Einnig gaf hún þeim
gjafir sem myndu hjálpa þeim
að forðast paparazzi-ljósmyndar-
ana og voru það hafnaboltahúfur
með áletrunum. Á húfu Britney
stóð: „Ég er ekki Britney
Spears“ og á húfu Kevins stóð:
„Ég er ekki Kevin Federline“.
Ófætt barn þeirra fékk líka
litla húfu sem á stóð: „Ég er
ekki barnið þeirra“. ■
Leikskólakennarar
teknir upp í stó›lífi
Kærasta Tom Cruise, KatieHolmes, hefur nú
verið orðuð við hlut-
verk í á móti Cruise í
þriðju Mission
Impossible-myndinni.
Scarlett Johansson
hefur þegar hafnað
hlutverkinu og ný-
lega sýndi Lindsay
Lohan því áhuga
og fór í prufu
fyrir hlutverkið.
Tökum hefur
verið frestað
vegna handrits-
og leikstjóravanda-
mála.
■ SKRÝTNA FRÉTTIN
Leikskólakennarar í Rúmeníu
voru gómaðir á myndband önn-
um kafnir í villtum kynlífsleikj-
um í herbergjum leikskóla í
Cisnadie. Á myndbandinu sést
hálfnakin kona íklædd búning-
um barna, reykjandi sígarettur í
vafasömum fullorðinsleikjum
með nokkrum körlum. Kynlífs-
veislan var haldin í leikskólan-
um eftir að börnin voru farin
heim síðdegis, eftir því sem
kemur fram í dagblaðinu Eveni-
mentul Zilei.
Skólayfirvöld í Cisnadie hafa
sett af stað lögreglurannsókn
eftir að myndbandið var sent
leikskólastjóranum. ■
HJÓNAKORNIN Britney og Kevin spjöll-
uðu við Ellen DeGeneres í spjallþætti henn-
ar og fór sú síðastnefnda víst á kostum og
gaf parinu meðal annars gagnlegar gjafir.
Spjöllu›u vi› DeGeneres
FRÉTTIR AF FÓLKI