Fréttablaðið - 23.05.2005, Page 78
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
30 23. maí 2005 MÁNUDAGUR
Lárétt: 1 baðar, 6 sár, 7 nafnorð, sk.st.,
8 tveir eins, 9 skordýraeitur, 10 drykkjar-
tegund, 12 sjó, 14 amboð, 15 pípa, 16
eldsneyti, 17 fugl, 18 mjólkurafurð.
Lóðrétt: 1 draga að, 2 tóm, 3 varðandi, 4
örlítil gola, 5 dá, 9 hluta sólarhrings, 11
lof, 13 geysist, 14 þvottaefni, 17 félaga-
samtök.
Lausn.
Vinsæll kennari
fannst látinn á
skólaslitunum
– hefur þú séð DV í dag?
Nemendur og kennarar Fjölbrautaskóla
Suðurnesja harmi slegnir
Stefán Pálsson verður
ekki dómari í spurn-
ingakeppninni Gettu
betur næsta vetur. Stef-
áni, sem hefur gegnt
starfinu undanfarin tvö
ár, fannst vera kominn
tími til að hætta og mun
hann snúa sér að öðrum
hlutum.
Ekki er búið að
ákveða hver tekur við
af Stefáni og ekki held-
ur hvort Steinunn Vala
Sigfúsdóttir heldur
áfram sem stigavörður.
Logi Bergmann Eiðsson
verður þó áfram í
spyrilshlutverkinu eins
og undanfarin ár.
Ýmsar vangaveltur
hafa verið uppi um arf-
taka Stefáns en forver-
ar hans í starfinu und-
anfarin ár eru Sveinn
Guðmarsson, Eggert
Þór Bernharðsson og Ár-
mann Jakobsson. Hvort
einhver þeirra mun endur-
taka leikinn næsta vetur
kemur í ljós á næstunni.
„Það hefur ekki verið tek-
in ákvörðun um þetta en
það verður í maí eða júní,“
segir Andrés Indriðason,
dagskrárgerðarmaður hjá
RÚV. „Forkeppnin byrjar
á Rás 2 í byrjun janúar en
það þarf að byrja að undir-
búa spurningarnar sem
fyrst. Sá sem semur
spurningarnar þarf að
taka sér sumarið í það,“
segir hann. ■
Stefán hættur sem dómari
STEFÁN PÁLSSON Leit er hafin
að arftaka Stefáns Pálssonar sem
dómara í Gettu betur.
Í kvöld verður rifjaður upp
merkilegur atburður úr íslensku
listalífi í þætti Evu Maríu Jóns-
dóttur, Einu sinni var. Það var
árið 1981 að gjörningagrúppan
Bruni BB var ákærð fyrir að af-
lífa hænur á tónleikum í Ný-
listasafninu og misnota grís,
ásamt því sem nafn hljómsveit-
arinnar þótti umdeilt því menn
töldu það vísun í brunann á
Þingvöllum þegar Bjarni Bene-
diktsson fórst ásamt eiginkonu
og barnabarni.
„Nafngift grúppunnar var
viðkvæmt, en sjálfir skilgreind-
um við nafnið aldrei. Okkur
þótti það bara flott án þess að
ræða það frekar,“ segir Björn
Roth, gítarleikari og rótari
hljómsveitarinnar, sem síðar
fékk dóm fyrir misnotkun á
svíni og hænsnum.
„Hænurnar keyptum við á
hænsnabúinu Reykjagarði en
grísinn fengum við lánaðan af
svínabúi á Kjalarnesi. Hann lék
sitt hlutverk hundrað prósent
því eftir að búið var að slátra
fiðurfénu og maður búinn að
kveikja í sér á sviðinu kom grís-
inn inn. Þá var tónleikagestum
virkilega nóg boðið og þeir
treystu sér ekki til í grísaslátr-
un líka. Ég man ekki betur en að
grísinn, syngjandi kátur, hafi
hrætt út helminginn af áhorf-
endum. Get ímyndað mér að
hefðum við komið með hest á
sviðið hefði salurinn tæmst. Það
var stígandi í konsertinum, hann
byrjaði rólega og stigmagnaðist
en allt varð vitlaust þegar grís-
inn kom inn og löggan í kjölfar-
ið til að stoppa samkvæmið,“
segir Björn brosmildur, en þeir
Brunamenn geymdu grísinn í
góðu yfirlæti á forláta klósetti
maulandi hamborgara frá
Brauðbæ.
„Margir voru teknir til yfir-
heyrslu, meðal annars
kjúklinga- og svínabændurnir.
Stofnanda Reykjagarðs fannst
þetta ógeðslegt og sagðist grun-
laus um hvaða ómannúðlega
meðferð hefði beðið hænsnanna,
en í sláturhúsum var hænum
hans slátrað í hundraðatali,
hangandi öfugar á færibandi.
Svínabóndinn var hins vegar
kátur enda kom grísinn heim
hreinni en þegar hann fór, vel
greiddur og fínn.“
Bruni BB lagði upp laupana
eftir málsmeðferð, en þeir fé-
lagar fengu málamyndasekt upp
á 2.000 krónur, sem uppreiknað í
dag væri 2.833 krónur, auk úr-
skurðar um að mega ekki halda
dýr um tíma. Verjandinn Ragn-
ar Aðalsteinsson varði tjáning-
arfrelsið og sýndi fram á að lík-
amsbygging gríss hamlaði dýr-
inu að svala meintum þorsta sín-
um í klósettskál.
„Að vissu leyti var synd að
við skyldum hætta því það hefði
verið gaman að halda áfram
með músíkina. Þetta voru
áhugaverðir hlutir. En það er
vesen að standa í svona konsert-
um og endurkoma útilokuð.
Þessir menn fást ekki til að
endurtaka leikinn, sumir alls-
berir, aðrir logandi og af-
hausandi hænur. Ég held það
gengi ekki alveg upp í dag,“
segir Björn hugsi um allt þetta
einkennilega mál.
thordis@frettabladid.is
HÆNSNASLÁTRUN Í NÝLISTASAFNINU Hér má sjá atriði úr kvikmyndinni Rokk í
Reykjavík sem tekið var upp á umdeildum tónleikum Bruna BB og sem síðar leiddi til
ákæru vegna dýramisnotkunar.
BRUNI BB HJÁ EVU MARÍU Í KVÖLD: SLÁTRUÐU HÆNSNUM Á TÓNLEIKUM
Áhorfendur treystu sér
ekki í grísaslátrun líka
Á miðvikudaginn varpa margar húsmæður landsins
öndinni í feginleik yfir að fótboltavertíð Evrópu lýkur
með úrslitaleik Liverpool og AC Milan í Meistaradeild
Evrópu, en íslenskir karlar hafa setið í þúsundatali
sem límdir yfir skjánum annað hvert kvöld síðan 5.
ágúst í fyrra.
„Ég geri nú ráð fyrir spennufalli hjá mörgum, en líka
meiri friðsæld á heimilum landsmanna því þetta tek-
ur óhemjutíma fyrir þá sem horfa á allt, og þeim fer
sífellt fjölgandi,“ segir Guðjón Guðmundsson,
íþróttafréttamaður á Stöð 2 og Sýn.
„Fótbolti er lífsstíll og þetta mikla framboð sem Sýn
hefur boðið upp á í fótboltanum hefur gert að verk-
um að Íslendingar eru orðnir galnir í fótbolta. Það
hafa allir skoðanir á boltanum, sem gerir hann
skemmtilegri fyri vikið.“
Guðjón er harður Liverpool-aðdáandi og sannfærður
um að liðið sitt sigri AC Milan á miðvikudag.
„Ég hef verið sannfærður um það í allan vetur að
Liverpool fari alla leið í keppninni. Yfir heilt er AC
Milan með sterkara lið, en það hefur verið að gefa
svolítið eftir síðustu vikur, sem er hættumerki fyrir
Liverpool. Hins vegar hefur eitthvað unnið með
Liverpool í þessari keppni og ég býst hiklaust við
sigri,“ segir Guðjón, sem er af Bítlakynslóðinni eins
og margir Liverpool-aðdáendur.
„Liverpool á sterkar rætur á Íslandi og ekkert lið í
heiminum á jafn marga stuðningsmenn hér heima.
Þetta byggist á velgengni þess hér
áður fyrr og skemmir ekki fyrir að
liðið er úr Bítlaborginni. Það helst
í hendur.“
Að sögn Guðjóns mun Lands-
bankadeildin fylla tómarúm fót-
boltaáhugamanna í sumar. „Áhugi
fyrir íslenskri knattspyrnu er
alltaf að aukast og æ fleiri
mæta á leiki og fylgjast
með í sjónvarpi. Mér finnst
fótboltinn vera orðinn fjöl-
skylduvænn. Síðan byrjar
boltinn aftur að rúlla í
Evrópu í byrjun ágúst og
þá fara menn að hlamma
sér í sófann til að fylgjast
með bestu félagsliðum
heims.“
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR TELUR LIVERPOOL MUNU STANDA UPPI SEM EVRÓPUMEISTARA.
SÉRFRÆÐINGURINN
Spennufall fram undan
...fær fræga og „feita“ fólkið sem
mótmælti viðhorfi stjórnvalda
gagnvart Lilju Sæmundsdóttur
sem fær ekki að ættleiða barn
vegna þess að hún er of þung að
mati yfirvalda. Meðal frægra og
„feitra“ mótmælenda í DV á föstu-
dag voru Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Helga Braga Jónsdóttir, Gaui litli,
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Guðjón A.
Kristjánsson, Herdís Storgaard og
Ylfa Lind Gylfadóttir.
HRÓSIÐ
Blaðið fagnar um þessar mundirtíu daga afmæli sínu. Karl Garð-
arsson, sem er einn eigenda ásamt
Sigurði G. Guðjónssyni og Steini
Kára Ragnarssyni, hefur setið í rit-
stjórastóli Blaðsins frá byrjun en fyrir
liggur að hann muni stíga úr honum
áður en langt um líður. Miklar
vangaveltur hafa verið uppi um hver
taki við af Karli en sagan segir að
nafni hans Karl Th. Birg-
isson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar,
muni taka
við. Karl Th.
er alls ekki
óvanur
blaðamað-
ur en hann
var meðal
annars rit-
stjóri
Press-
unnar
sálugu.
Samkvæmt opinberri heimasíðutónlistarhátíðarinnar í Amsterdam
mun íslenska krúttsveitin Múm spila
á einstökum tónleikum ellefta júní
næstkomandi. Mun sveitin verða á
sviði með kammersveit hollenska
útvarpsins sem stjórnað verður af
einum fremsta hljómsveitarstjórn-
anda Hollendinga, Peter Eötvös.
Mun dagskráin vera tileinkuð
franska tónskáldinu Iannis Xenakis.
Útrás íslenskra tónlist-armanna er því ekki
síðri en íslenskra við-
skiptamanna því eins
og greint var frá í
Fréttablaðinu á
föstudaginn spilar
hljómsveitin Ske
á Spot 11 hátíð-
inni í Árósum
og Brúðar-
bandið og
Mugison á
Hróarskeldu.
Lárétt: 1laugar, 6aum,7no,8ðð,
9ddt,10tab,12glæ,14orf, 15æð,
16mó,17ari,18osta.
Lóðrétt: 1laða,2auð,3um,4andblær,
5rot,9dag,11hrós,13æðir, 14omo,
17aa.
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Ágúst Ólafur Ágústsson.
Tyrkland.
Íslensk olíumiðlun ehf.
FRÉTTIR AF FÓLKI