Fréttablaðið - 26.05.2005, Blaðsíða 1
Straumar og stefnur
í gar›rækt
SUMARIÐ ER KOMIÐ:
▲
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
HÚS OG GARÐAR
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
ÁLVER Stjórn Orkuveitu Reykjavík-
ur er margklofin í afstöðu til þess
hvort Orkuveitan eigi að taka þátt
í orkusölu til álversins í Helguvík.
Fulltrúi Samfylkingar mun að lík-
indum leggjast í lið með fulltrúa
Vinstri-grænna í afstöðunni gegn
álveri í Helguvík.
„Eftir eitt til tvö álver verður
þak Kyoto-samkomulagsins fyllt.
Ég hef sagt við mína félaga að við
eigum ekki að blanda Orkuveit-
unni í það kapphlaup sem getur
skapast vegna þeirra fram-
kvæmda sem falla innan þess
ramma sem samkomulagið gef-
ur,“ segir Stefán Jón Hafstein,
varamaður í stjórn Orkuveitunn-
ar. Hann segir að skoða verði
fleiri möguleika en Helguvík.
„Við viljum helst ekki taka þátt í
því að ákveða hvort eða hvar ál-
ver eigi að rísa,“ segir Stefán Jón.
Guðlaugur Þór Þórðarson, full-
trúi Sjálfstæðisflokks í stjórn
Orkuveitunnar, segir ekkert
ákveðið um afstöðu sjálfstæðis-
manna til málsins. „Við munum
skoða málið þegar og ef það kem-
ur upp á yfirborðið. Ég get ekkert
sagt til um afstöðu okkar á þessari
stundu,“ sagði Guðlaugur. - hb
Sjá síðu 20
Stjórn Orkuveitunnar margklofin í afstöðu til álvers:
Samfylking í li› me› Vinstri-grænum
Meðallestur
75%
53%
*Höfuðborgarsvæðið skv. fjölmiðlakönnun Gallup í maí 2005.
á tölublað*
25-49 ára konur
BJART MEÐ KÖFLUM Þykknar heldur
upp síðdegis og þá hætt við síðdegisskúr-
um. Hiti 5-12 stig að deginum.
VEÐUR 4
FIMMTUDAGUR
Michael Bolton
til Íslands
Hjartaknúsarinn,
rómantíkerinn og
maðurinn með
stóru röddina,
Michael Bolton,
mun halda tónleika í
Laugardalshöll í sept-
ember.
FÓLK 54
26. maí 2005 - 138. tölublað – 5. árgangur
ASÍ fer á kostum
Sveinn Andri Sveinsson segir Halldór Grön-
vold, aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ, fara
með dylgjur í garð verktaka sem sýknaðir
voru í héraðsdómi á í dögunum.
SKOÐUN 24
Gísli og Freyr
saman í út-
varpi
Þekktir fjölmiðlamenn
verða í KR-útvarpinu í
sumar. Útsending
númer 153 í kvöld.
FÓLK 54
Á heilan helling
af kjólum
YLFA LIND GYLFADÓTTIR:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● tíska ● ferðir ● heimili
VEÐRIÐ Í DAG
▲
FAGNAÐ ÁKAFT Stuðningsmenn Liverpool, sem saman komu á Players í gærkvöld, voru í skýjunum þegar pólski markvörðurinn Jerzy Dudek
varði vítaspyrnu Úkraínumannsins Andriy Shevchenko og tryggði Liverpool um leið sigurinn í Meistaradeild Evrópu. Sjá síðu 34
Kjarnorkuáætlun Írana:
Fallast á
kröfur ESB
SVISS, AP Fulltrúar Íransstjórnar
endurnýjuðu í gær heit sitt um að
stefna ekki að því að koma sér upp
kjarnorkuvopnum.
Evrópuríkin höfðu þrýst mjög á
Írana og í viðræðum tengslahóps
Evrópusambandsins, skipuðum ut-
anríkisráðherrum mestu þunga-
vigtarríkja þess, við fulltrúa Írans
í Genf í gær fékkst þessi niður-
staða, að því er breski utanríkis-
ráðherrann Jack Straw greindi frá.
Til viðræðnanna var kallað með
því fororði að féllust Íranar ekki á
kröfurnar varðandi kjarnorkuvæð-
ingaráætlun þeirra yrðu þeir látnir
svara til saka fyrir Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna, sem hefur
vald til að dæma ríki til að sæta
viðskiptaþvingunum. ■
Einkavæðing Símans:
Kvennahópur
vill kaupa
VIÐSKIPTI Hópur kvenna í atvinnu-
lífinu sem nefnir sig D8 býður í
Símann með erlendum samstarfs-
aðilum. Einn forsvarsmanna hóps-
ins, Dagný Halldórsdóttir fyrrver-
andi aðstoðarforstjóri Íslandssíma,
vildi í gær ekki gefa upp hverjir
aðrir stæðu að félaginu.
Alls munu tólf hópar fjárfesta
fá tækifæri til að bjóða í hlut ríkis-
ins í Símanum. Í helmingi hópanna
er íslensk fyrirtæki, en hóparnir
hafa möguleika á því að starfa
saman að bindandi tilboði. Bind-
andi tilboðum þarf að skila fyrir
júlílok. hh/þk
Sjá síðu 4
Boris Spasskí á fund
Fischers á Íslandi
Boris Spasskí kom til Íslands í gær og fór beint á fund Fischers. Tali› er a› fleir
séu a› skipuleggja stórvi›bur› í skákinni, flar sem teflt yr›i eftir fleim reglum
sem Fischer hefur bo›a›. Slíkt mót gæti veri› haldi› hér á landi.
SKÁK Boris Spasskí sem háði
heimsmeistaraeinvígið við Bobby
Fischer í Reykjavík árið 1972 kom
til landsins klukkan fjögur í gær-
dag og fór hann rakleiðis á fund
Bobby Fischer á Hótel Loftleiðum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins voru þeir að ræða hugsan-
legan stórviðburð þar sem teflt
yrði eftir hinni svokallaðri
random-aðferð en eins og kunnugt
er hefur Fischer haldið þeirri teg-
und taflmennsku á lofti þar sem
hann telur hefðbundna skák hafa
gengið sér til þurrðar, hún sé orðin
of kerfisbundin og fyrirsjáanleg.
Líklegt er talið að þessi viðburður
verði hér á landi ef af honum verð-
ur. Frekari fregna er að vænta
snemma í dag en Spasskí mun
halda af landi brott síðdegis.
Með Spasskí í Íslandsförinni
er Joel Lautier, stofnandi At-
vinnusambands stórmeistara, en
hann á það sameiginlegt með
Fischer að hafa gagnrýnt Al-
þjóðaskáksambandið harkalega.
Af viðtölum við Lautier verður
ekki annað séð en að hann sé
Fischer sammála um að illa sé
fyrir atvinnutaflmennskunni
komið.
„Þeir eru bara að spjalla og
endurnýja kynnin,“ sagði Einar S.
Einarsson sem tók á móti Spasskí
og fylgdi honum á fund Fischers
en þeir Spasskí og Fischer hafa
ekki sést í ellefu ár.
Einar segir að Spasskí hafi
verið hress við komuna til lands-
ins og að hann hafi lýst ánægju
sinni með framtak Íslendinga við
frelsun Fischers en hann taldi
nokkuð víst að dauðinn hefði beð-
ið skákmeistarans ef hann hefði
verið framseldur til Bandaríkj-
anna.
„Það er skondið að sjá kyn-
slóðamuninn því við sem eldri
erum vitum allt um Boris Spasskí
en öðru máli gegnir um yngra
fólkið, það sá ég greinilega þegar
afgreiðslustúlka á hótelinu bað
hann vinsamlegast að stafa nafnið
sitt,“ sagði Einar kankvís.
Einnig kom Alex Titomirov,
stjórnarformaður líftæknifyrir-
tækisins Informax, með þeim
Spasskí og Lautier en hann er ann-
álaður skákáhugamaður. Helgi
Ólafsson stórmeistari var einnig á
fundi með köppunum á Hótel
Loftleiðum í gær. - jse
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Sigur gegn Skotum
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu gerði góða
ferð til Skotlands og
lagði heimamenn 2-0 í
gær. Valsstúlkan Dóra
María Lárusdóttir skoraði
bæði mörkin.
ÍÞRÓTTIR 34
STRAW OG ROWHANI Jack Straw, utanríkis-
ráðherra Bretlands, og Hassan Rowhani,
erindreki Íransstjórnar, ávarpa blaðamenn
eftir viðræðurnar í Genf í gær.