Fréttablaðið - 06.06.2005, Blaðsíða 8
1Hver er forseti palestínsku heima-stjórnarinnar?
2Hvaða þjóð var hlutskörpust í Norð-urlandamóti í ökuleikni vagnstjóra?
3Hver skoraði síðara mark Íslendinga ílandsleiknum gegn Ungverjum?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 6. júní 2005 MÁNUDAGUR
Mjótt var á mununum í þjóðaratkvæðagreiðslu í Sviss:
Sviss ver›ur hluti af Schengen
GENF, AP Svisslendingar sam-
þykktu í gær Schengen-sam-
komulagið með naumum meiri-
hluta í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Evrópusambandið fékk því
styrk úr óvæntri átt á annars
erfiðum tímum í sögu sambands-
ins. Sviss hefur hingað til viljað
standa utan við flest það sem
hefur með Evrópusamvinnu að
gera og eru hvorki í Evrópusam-
bandinu né eiga þeir aðild að
evrópska efnahagssvæðinu.
Einnig var kosið um aukin
réttindi samkynhneigðra og er
það í fyrsta skipti sem þjóðarat-
kvæðagreiðsla á sér stað um þau
málefni í Evrópu. Um 58% kjós-
enda samþykktu að veita sam-
kynhneigðum stóraukin réttindi.
Meðal þeirra réttinda má telja
að samkynhneigð pör skulu hafa
sömu lagalegu stöðu og gagn-
kynhneigð hvað varðar skatt-
greiðslur og lífeyrisréttindi en
mega þó hvorki ættleiða né
gangast undir glasafrjóvgunar-
aðgerðir.
Niðurstöður kosninganna
þykja sýna að Svisslendingar
vilji gjarnan hafa meira við Evr-
ópusambandið að sælda. Samuel
Schmid forsætisráðherra sagði
niðurstöðurnar staðfesta gagn-
kvæman vilja um aukið sam-
starf. ■
Shoe Studio Group:
Stefnir a› skráningu í Kauphöllina
VIÐSKIPTI Don McCarthy, forstjóri
Shoe Studio Group, hefur áhuga á
því að skrá félagið í Kauphöll Ís-
lands næsta haust en þetta kom
fram hjá Sunday Express. Shoe
Studio rekur meðal annars tísku-
verslunarkeðjurnar Principles
and Warehouse auk þess að reka
skóverslanir.
Um 70 prósent hlutafjár eru í
eigu stjórnenda Shoe Studio en
Baugur Group, KB banki, Kevin
Stanford, Magnús Ármann og
Sigurður Bollason eiga minni
hluti.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins velta þessar hugmyndir
nokkuð á því hvaða viðtökur
Mosaic Fashions, sem hefur sölu
á nýju hlutafé til almennings í
dag, fær en Baugur Group og KB
banki eru meðal eigenda Mosaic.
Menn telja að eftirspurn sé eftir
félögum af þessari stærðargráðu
á Íslandi og því sé mun ákjósan-
legra að skrásetja félag á borð
við Shoe Studio hérlendis fremur
en í Bretlandi þar sem það gæti
„týnst“ meðal fjölmargra smá-
sölufyrirtækja. - eþa
Slökkvili›smenn
íhuga uppsagnir
ATVINNUMÁL Ólga er meðal starfs-
manna hjá Slökkviliði Akureyrar
eftir að einn reyndasti starfsmað-
ur stöðvarinnar var látinn taka
pokann sinn í kjölfar deilna við
slökkviliðsstjórann. Er óánægjan
svo megn að til tals hefur komið
að starfsmennirnir segi upp allir
sem einn í mótmælaskyni.
Málið er viðkvæmt, enda um
einn reyndasta slökkviliðsmann á
landinu að ræða, og átti hann
meðal annars sæti í stjórn Lands-
sambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna um hríð. Í þeirri
sömu stjórn er einmitt slökkvi-
liðsstjóri Akureyrar, Erling Þór
Júlínusson, en sá hefur oftar en
einu sinni lent upp á kant við und-
irmenn sína og þurfti í þessu til-
viki bæjarstjóri Akureyrar og
bæjarráð allt að skerast tvisvar í
leikinn. Í fyrra tilfellinu sagði Er-
lingur manninum upp varðstjóra-
stöðu að tilefnislausu. Þegar við-
komandi hótaði bænum lögsókn
vegna þess skárust bæjaryfirvöld
í málið og sátt náðist um að hann
kæmi aftur til greina í starfið.
Slökkviliðsstjórinn virti þá
ákvörðun þó ekki og skarst þá aft-
ur í odda með mönnunum tveim-
ur. Varð niðurstaðan sú að
slökkviliðsstjórinn hafði sitt fram
og gerður var starfslokasaming-
ur við undirmanninn. Skipti þar
mestu að bæjarstjórinn, Kristján
Þór Júlíusson, var á bandi
slökkvistjórans. Ekkert er þó um
þetta að finna í fundargerðum
bæjarins enda voru þær hörðu
umræður sem um málið urðu inn-
an bæjarráðs færðar í sérstaka
trúnaðarbók sem áhugasamir íbú-
ar Akureyar eða aðrir hafa ekki
aðgang að.
Slökkviliðsstjórinn hefur að
sögn heimildarmanna ekki látið
þar við sitja heldur notað áhrif sín
til að koma í veg fyrir að undir-
maðurinn fái starf í sama geira
annars staðar á landinu.
Fyrir hönd Landssambandsins
vildi Sverrir Björn Björnsson,
varaformaður, hvorki tjá sig um
hvers vegna reyndur félagsmaður
væri gerður útlægur með þessum
hætti né hafði hann áhyggjur af
því að ólga skyldi vera svo mikil
meðal annarra starfsmanna
Slökkviliðsins á Akureyri að þeir
íhuguðu í fyllstu alvöru uppsagnir.
„Þessu máli er lokið og ef eitthvað
hefur verið um það rætt innan
okkar raða gef ég ekkert upp um
það.“
Erling Þór Júlínusson vildi ekki
tjá sig þegar eftir því var leitað.
albert@frettabladid.is
Lögreglan ánægð:
Líti› um
óspektir
LÖGREGLUMÁL Þó að víða hefði ver-
ið erill hjá lögreglu um land allt
voru lögreglumenn almennt afar
ánægðir með helgina. Dansleikir
voru víða eins og ávallt fyrir sjó-
mannadaginn en það er af sem
áður var að kvíði væri í mönnum
vegna þess enda hefur þessi helgi
undanfarin ár verið með besta
móti.
Lítið var um pústra og slags-
mál á landsvísu og ekki voru fleiri
ölvaðir ökumenn teknir en á
venjulegri helgi Hafði enda einn
lögreglumaðurinn á orði að sjó-
mannadagshelgin væri orðin til-
hlökkunarefni. - aöe
KRAUMAR Í SLÖKKVILIÐSMÖNNUM Einum reyndasta slökkviliðsmanni landsins var gert að taka pokann sinn eftir deilur við yfirmann
sinn. Félögum hans hjá Slökkviliði Akureyrar sárnar meðferðin og hefur komið til tals þeirra í millum að segja upp störfum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Slökkvili›smenn á Akureyri eru afar ósáttir vi› framkomu slökkvili›sstjórans
gagnvart kollega fleirra sem enda›i me› flví a› vi› hann var ger›ur starfsloka-
samningur. Uppsagnir í mótmælaskyni hafa komi› til tals.
SKÓR Í KAUPHÖLLINA? Stjórnendur Shoe
Studio Group, sem er að hluta til í eigu ís-
lenskra fjárfesta, hafa hug á því að skrá fé-
lagið í Kauphöllina.
TALNINGAMENN AÐ STÖRFUM Svisslend-
ingar kusu í gær um gildistöku Schengen-
samkomulagsins og einnig um réttindi
samkynhneigðra.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI