Fréttablaðið - 06.06.2005, Page 10
FAGURT UMHVERFI Alþjóðadagur umhverf-
isins var haldinn hátíðlegur víða um heim
í gær, meðal annars í Brasilíu. Á
Corcovado-fjalli í Rio de Janeiro settu sam-
tökin World Wildlife Foundation upp stór-
an og mikinn vatnskrana.
10 6. júní 2005 MÁNUDAGUR
Annar hluti líbönsku þingkosninganna:
Hizbollah-samtökin sækja í sig ve›ri›
LÍBANON, AP Annar hluti þingkosning-
anna í Líbanon var haldinn í gær en
þá var kosið í suðurhluta landsins.
Kosningarnar gengu að mestu
vel fyrir sig en þó voru einhver átök
á milli drúsa og stjórnarhers í mið-
hluta landsins þar sem kosið verður
næsta sunnudag.
Fyrstu tölur bentu til að Hiz-
bollah-samtökin hefðu sigrað í kosn-
ingunum og jafnvel búist við að
samtökin hljóti öll 23 þingsætin sem
þessi hluti landsins hefur yfir að
ráða. Hizbollah á miklu fylgi að
fagna á meðal fátækra sjía en þeir
eru í meirihluta í Suður-Líbanon.
Samtökin hafa verið undir mik-
illi pressu frá alþjóðasamfélaginu
um að afvopnast og vinna í staðinn
að sínum pólitísku markmiðum á
friðsamlegan hátt.
Sýrlendingar hafa haft mikil ítök
í Líbanon síðan hernámi Ísraela
lauk en þeir fluttu herlið sitt fyrst
frá landinu nú í apríl. Í kosningun-
um í Beirút fyrir viku fengu and-
stæðingar Sýrlendinga yfirburða-
kosningu. Sjíarnir í suðrinu hafa
hins vegar notið verndar og velvild-
ar Sýrlendinga. Tvær andstæðar
fylkingar hafa þannig unnið sigra í
fyrsta og öðrum hluta líbönsku
kosninganna.
Næstu tvo sunnudaga verður
kosið í norður- og vesturhluta lands-
ins. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
ERILL Í KEFLAVÍK Lögregla í
Keflavík hafði í nógu að snúast í
fyrrinótt. Mikið var um ölvun og
pústra af þeim sökum. Upp komu
tvö fíkniefnamál í heimahúsum
og nokkrir voru teknir grunaðir
um ölvun undir stýri.
FERÐAMENN VELTU BÍL Franskt
par velti bílaleigubíl sínum á
Næfurholtsvegi skammt frá
Heklu rétt fyrir hádegisbil í gær.
Bíllinn er því sem næst ónýtur en
parið slapp með skrámur og fékk
að fara að lokinni skoðun á
heilsugæslustöð.
RÓLEGT Í HAFNARFIRÐI Ólíkt
grönnum sínum sunnar á Reykja-
nesskaga reyndist síðasta nótt
óvenju róleg fyrir lögregluna í
Hafnarfirði. Þar voru tveir öku-
menn teknir vegna ölvunar en að
öðru leyti var tíðindalaust með
öllu.
Göngum lokað:
Tveir létust í
eldsvo›anum
MODANE, FRAKKLAND, AP Frejus-
göngunum í Alpafjöllunum sem
tengja borgirnar Lyon í Fraklandi
og Tórínó á Ítalíu verður lokað um
óákveðinn tíma eftir slys sem átti
sér þar stað á laugardag.
Eldur kviknaði í vörubíl sem
flutti hjólbarða og urðu í það
minnsta þrjú önnur ökutæki eld-
inum að bráð. Tveir slóvenskir
vörubílstjórar létu lífið í slysinu.
Samgönguráðherra Ítalíu og
franskur starfsbróðir hans hittust
á slysstað og hrósuðu samvinnu
ítalskra og franskra slökkviliðs-
manna við þær erfiðu aðstæður
sem sköpuðust. ■
ALNÆMI Meira en 39 milljónir
manna um heim allan eru smitað-
ar af HIV-veirunni og á síðasta ári
létust meira en 3 milljónir úr al-
næmi. Mest fjölgun smita hefur
orðið í Austur-Asíu, austurhluta
Evrópu og í Mið-Asíu.
Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
ávarpaði ráðstefnu SÞ sem haldin
var í New York fyrir helgi og var
helguð alnæmisvandanum. Sagði
hann á fundinum að ef einhver
von ætti að verða til að ná þúsald-
armarkmiðum SÞ sem miða að því
að ná tökum á alheimsfaraldrin-
um fyrir árið 2015 þyrfti að stór-
auka fjárframlög til málaflokks-
ins. Hann tók einnig fram í ræðu
sinni að lykilatriði sé að uppræta
alnæmi til að hægt verði að efla
heilsu og.jafnrétti í heiminum.
Kofi Annan lofaði Brasilíu-
menn sérstaklega fyrir að hafa
staðið sig vel í baráttunni við al-
næmi og minntist einnig á Taíland
og Kambódíu en yfirvöld eru talin
hafa náð góðum árangri í forvörn-
um gegn sjúkdómnum. Margar
þjóðir eiga þó enn eftir að gera að-
gerðaáætlun.
Einungis 12 prósent af þeim
íbúum þróunarlanda sem eru
smitaðir hafa aðgang að þeim lyfj-
um sem til eru til að halda sjúk-
dómnum niðri. Fjölmargir þeirra
smituðu vita ekki einu sinni að
sjúkdómurinn sé til, hvað þá að
þeir sjálfir séu smitaðir.
Eins og staðan er í dag eru um
25 milljónir smitaðar af HIV-
veirunni í Afríku og er því spáð að
á næstu 20 árum smitist 90 millj-
ónir Afríkubúa til viðbótar, um tíu
prósent af íbúum álfunnar. Sam-
einuðu þjóðirnar áætla að um
13.000 milljarða króna þurfi til að
hefta útbreiðslu veikinnar en um
520 milljörðum króna er nú varið
árlega í málaflokkinn.
Undanfarin ár hefur smitum
fjölgað hlutfallslega mest í fátæk-
um löndum í Austur-Asíu, astur-
hluta Evrópu og í Mið-Asíu þar
sem yfirvöld virðast hafa sofnað
algjörlega á verðinum. Annað sem
veldur áhyggjum er það að íbúar
Vesturlanda virðast sumir hverjir
halda að vandamálið sé ekki til
staðar þar. Bandarískir HIV-smit-
aðir unglingar virðast til að
mynda sýna mun óábyrgari kyn-
hegðun nú en áður en auk þess
láta margir hjá líða að taka lyf
samkvæmt læknisráði.
oddur@frettabladid.is
M
yn
d/
AP
FREJUS-GÖNGIN Um 4/5 hlutar allra við-
skiptasamgangna á vegum milli Frakklands
og Ítalíu fara um göngin.
M
yn
d/
AP
Faraldurinn magnast
Á sí›asta ári létust fleiri úr alnæmi í heimnum en nokkru sinni fyrr. Á rá›-
stefnu á vegum Sameinu›u fljó›anna sem haldin var fyrir helgi vi›urkenndu
rá›amenn a› ekki liti út fyrir a› flúsaldarmarkmi› um a› ná tökum á faraldr-
inum fyrir ári› 2015 næ›ist.
ÁSTANDIÐ ER VÍÐA SLÆMT Þótt mest fjölgun HIV-smitaðra á síðasta ári hafi orðið í Asíu
er ástandið samt verst í Afríku. Í sumum löndum álfunnar er ríflega þriðjungur íbúanna
smitaður og eru allmörg börn þar á meðal.
FERÐAÞJÓNUSTA Fyrirtæki í ferða-
þjónustu berjast í bökkum vegna
hás gengis krónunnar.
Bjarnheiður
H a l l s d ó t t i r ,
framkvæmda-
stjóri Kötlu-
DMI, sem selur
Þ j ó ð v e r j u m
ferðir til Ís-
lands, segir að
f y r i r t æ k i n
verðleggi þjón-
ustu sína meira
en ár fram í
tímann. Því var
verðskrá fyrir-
tækjanna kynnt
í fyrrasumar
þegar gengi evrunnar var miklu
hærra en nú.
„Þessi mismunur er það sem fyr-
irtækin þurfa að þola. Þau fá minni
tekjur en reiknað var með þegar
verðskrárnar voru gefnar út,“ segir
hún.
„Þetta hefur alvarlegar afleið-
ingar. Það er ekki mikil arðsemi í
þjónustu og það er lítið svigrúm í
verðlagningu til að skapa arð,“
sagði hún þegar hágengið og afleið-
ingar þess voru til umræðu í Hádeg-
isútvarpinu á Talstöðinni á föstu-
dag.
„Það er ljóst að hágengið mun
hafa mjög alvarlegar afleiðingar
fyrir mörg fyrirtæki í ferðaþjón-
ustu,“ bætti hún við og kvaðst telja
ástandið nú hafa áhrif til verðhækk-
unar á næsta ári ef svo fer fram
sem horfir. Það gæti aftur leitt til
fækkunar ferðamanna. - ghs
BJARNHEIÐUR
HALLSDÓTTIR Fyrir-
tæki í ferðaþjónustu
eru í kröggum þessa
dagana vegna há-
gengisins og sjá ekki
fyrir endann á þreng-
ingunum.
Hágengið hefur áhrif á ferðaþjónustuna:
Ver›hækkanir a› ári
fyrirsjáanlegar
Áætlun sett í salt:
Íranar s‡na
sveigjanleika
TEHERAN, ÍRAN, AP Ríkisstjórnin í
Íran sagðist á sunnudag reiðu-
búin til að fresta umdeildri
kjarnorkuáætlun sinni þar til í
lok júlí til þess að gefa sátta-
semjurum Evrópusambandsins
tíma til þess að að útbúa tillögu
sem er Írönum meira að skapi.
Með tilkynningunni skapast
stund á milli stríða í umræðun-
um um kjarnorkuaætlun Írana.
Eftir sex mánaða umræður
hefur ekki náðst samkomulag
um helsta deiluatriðið sem er
krafa Írana um rétt sinn til að
auðga úran og andstöðu Evrópu-
sambandsins við þá kröfu.
Íranar segjast áskilja sér
rétt til að auðga úran enda sé
vinnslan einungis í
friðsamlegum tilgangi. Ýmis
ríki Vesturlanda, sér-staklega
Bandaríkin, gruna hins vegar
klerkastjórnina um græsku. ■
Á KJÖRSTAÐ Eftirlitsmaður frá Evrópusambandinu fylgist með framkvæmd kosninganna í
suðurhluta Líbanon.