Fréttablaðið - 06.06.2005, Síða 12
12 6. júní 2005 MÁNUDAGUR
Me› leyfi frá lágvöxn-
um Hraunsnefjungum
Fjárhúsið hjá bændunum á Hraunsnefi í Borgarfirði hefur heldur betur tekið
stakkaskiptum. Blaðamaður komst að því þegar honum var boðið í kaffi og með
því í gamla haughúsinu. Framkvæmdir gengu illa þar til leyfi fyrir þeim fékkst
hjá lágvöxnum Hraunsnefjungum.
FERÐAMENNSKA Hjónin Brynja
Brynjarsdóttir og Jóhann Harðar-
son ferðabændur á Hraunsnefi í
Borgarfirði hafa unnið að því hörð-
um höndum að umbreyta fjárhús-
inu í gistiheimili en frá og með 15.
júní næstkomandi, þegar fram-
kvæmdum lýkur og gistiþjónustan
opnar, verður hægt að leggja sig á
Hraunsnefi í tjaldi eða herbergi.
Einnig verður aðstaða til ráð-
stefnuhalda og gamla haughúsið
mun geta tekið við fimmtíu svöng-
um munnum.
En hjónakornin á Hraunsnefi
urðu þess fljótlega vör að þau voru
ekki einu ábúendurnir í þessari
sveit þegar þau fluttust þangað full
af framkvæmdagleði fyrir einu og
hálfu ári. Brynja útskýrir málið:
„Við fengum ekki deigan dropa úr
vatnskrananum né heldur hafði
neitt gengið að slétta úr hérna fyr-
ir ofan til að gera flatir fyrir tjald-
stæði. Þar að auki drapst alltaf á
slátturvélinni þegar við reyndum
að slá hérna fyrir neðan. Eftir
ábendingar frá Erlu Stefánsdóttur,
álfasérfræðingi, prófuðum við svo
að útskýra fyrir álfunum sem hér
kynnu að vera að við vildum ekkert
eyðileggja heldur aðeins snyrta til
og bæta og hvort þeir væru nú ekki
til í að leyfa okkur það; þá fór vatn-
ið að renna og slátturvélin í gang,“
segir hún og hlær.
Erla sem þekkt er fyrir álfa-
fræðin hefur nú kortlagt svæðið
og er engu líkara en íbúarnir á
Hraunsnefi séu fjölmargir. Ásamt
fjölmörgum álfasteinum á svæð-
inu er gamall blótsstaður neðar-
lega á túninu þar sem undarlegir
vættir halda til. Gestum á
Hraunsnefi mun standa til boða að
fara upp í hlíð og tóna þar frá álfa-
steini einum en það er orkufyllandi
athæfi að sögn þeirra sem reynt
hafa.
En framkvæmdaþróttur þeirra
hjóna er ekki á þrotum því þau ráð-
gera að reisa einskonar þorp í hlíð-
inni fyrir ofan þar sem gestir geta
valið sér hús til að búa í um stund-
arsakir. „Efst í byggðinni verður
svo bæjarstjórinn,“ segir Brynja í
glettni en er svo rokinn með ham-
arinn því von er á gestum 15. júni
og því þurfa Hraunsnefjungar að
hafa hröð handtök. jse@frettabladid.is
ÁRIÐ 2004 VORU 70 TOGARAR
SKRÁÐIR Á ÍSLANDI
Heimild: Hagstofan
SVONA ERUM VIÐ
Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleik-
stjóri er þessa dagana að berja sam-
an fjármagni fyrir nýrri mynd,
Óvinafagnaðinum. Handritið er skrif-
að eftir skáldsögu Einars Kárasonar
sem aftur er byggð á Sturlungasögu.
Friðrik segir að söfnunin gangi vel en
það hafi verið erfitt út af lágu gengi
dollarans. Til dæmis hafi upphafleg
fjárhagsáætlun hækkað um 3 millj-
ónir dollara vegna gengis en að sögn
Friðriks verður þetta 28 milljóna doll-
ara mynd. Megnið af því fjármagni
kemur erlendis frá.
Friðrik vonast til að geta hafið tök-
ur í lok september. Handritið er þeg-
ar tilbúið og að sögn Friðriks skot-
helt.
Friðrik sér ekki fram á mikið sum-
arfrí. Hins vegar ætlar hann að reyna
að komast í veiði enda forfallinn
veiðimaður. Hann ætlar að renna fyr-
ir fisk
í drottningu veiðiánna, Laxá í Að-
aldal, og skreppa stuttlega í
Hvítá. Hann segist vera mjög fisk-
inn og finnst fiskur mjög góður.
Sérstaklega sjóbirtingur sem Friðrik
matreiðir með því að skella á grillið í
eina og hálfa mínútu. „Þannig að
hann sé hrár inn við beinið, það er
besti matur í heimi,“ segir Friðrik
sem er á leiðinni á kvikmyndahá-
tíð í Seattle þar sem hann sit-
ur í dómnefnd. Þar mun
hann einnig reyna að fá
fólk til að fjármagna
Óvinafagnaðinn.
Safnar fyrir Óvinafagna›i
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON
BJARNI HARÐARSON
Vill ekki
flyngri dóma
MANSALSDÓMAR
SJÓNARHÓLL
TAK
TU
ÞÁT
T!
Taktu þátt þú gætir unnið: Meet the fockers
Lemony Snicket´s A Series Of Unfortunate Events
• Meet the parents SE • Aðrar DVD myndir
Kippur af Coke og margt fleira!
D3
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
HA HA HA
HA HA!
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
HRAUNSNEFJUNGAR Í FRAMKVÆMDAHAM Þau Brynja Brynjarsdóttir og Jóhann Harðarson fyrir framan fjárhúsið sem verður end-
anlega orðið að gistiheimili þann 15. júní. Þau eru glöð í bragði enda hafa framkvæmdir gengið vonum framar eftir að lágvaxnir
Hraunsnefjungar gáfu grænt ljós á þær.
FERÐAMENNSKA Þeir sem álíta lands-
byggðina fulla af fólki sem berjist í
bökkum og bíði tækifæris til að
komast suður gætu orðið hissa ef
þeir kynntust Hirti Árnasyni og
konu hans Unni Halldórsdóttur en
þau reka Shell söluskálann í Borg-
arnesi. Þau hjúin eru gamlir Reyk-
víkingar en Hjörtur var rekstrar-
stjóri hjá Skeljungi en Unnur fram-
kvæmdastjóri Landssamtakana
Heimili og skóli.
„Mörgum þótti það óðs manns
æði þegar við ákváðum svo að
kaupa reksturinn á Shell-sjoppu úti
á landi,“ segir Hjörtur brosandi.
„Vinir okkar voru hálfáhyggjufull-
ir enda er sjoppan við túnfótinn hjá
samkeppnisaðilanum sem er hund-
rað sinnum stærri en við. Ég hafði
þó alltaf trú á þessu,“ bætir Hjört-
ur við. Hann reyndist sannspár
enda hafa viðskiptin verið í blóma
sérstaklega eftir að Hvalfjarðar-
göngin opnuðu.
En þau hjú hafa ekki látið staðar
numið og nú er verið að leggja
lokahönd á fyrsta gólfhótelið á
landinu við golfvöllinn að Hamri í
Borgarfirði en það hótel er í eigu
þeirra hjóna. „Þetta verður fullbú-
ið þriggja stjörnu hótel með 30 her-
bergjum og verður opnað 20. þessa
mánaðar,“ útskýrir Hjörtur og hef-
ur tröllatrú á að örlögin verði hon-
um hliðholl líkt og þegar hann sló
til og keypti rekstur söluskálans.
En skyldi þessi athafnamaður
ekki sakna borgarinnar? „Nei,
þeim mun oftar sem ég fer til
Reykjavíkur þeim mun fegnari er
ég yfir því að hafa farið,“ segir
hann og útbýr eina með öllu fyrir
ferðalang úr borginni. – jse
Athafnamaður lætur til sín taka í Borgarfirði:
Reisir fyrsta golfhótel landsins
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
HJÖRTUR ÁRNASON Hjörtur segir að mörgum hafi þótt það óðs manns æði þegar
hann sagði upp í góðu starfi fyrir sunnan og keypti rekstur söluskála úti á landi. Hann er
enn að ögra slíkum röddum því innan skamms verður hann eigandi fyrsta gólfhótelsins á
landinu.
Sumir telja að taka þurfi á málum sem
tengjast mansali af meiri festu og
þyngja þurfi dóma til að senda þau
skilaboð að ekki sé ákjósanlegt að
flytja fólk um Ísland.
Bjarni Harðarson, ritstjóri Sunn-
lenska, er ósammála þessu. „Ég er al-
mennt á móti þungum refsingum,“
segir Bjarni sem telur vafamál að refs-
ingar beri árangur, heldur séu oftar en
ekki hluti af keðjuverkun sem viðhald-
ið sé með refsingum.
Hann segir að auðvitað séu sum
mansalsmálanna andstyggileg, hins
vegar trúi hann því að oft séu þau á
mörkum þess að vera mansal og teng-
ist frekar tilraunum þriðja heims íbúa
til að komast til Vesturlanda. „Mansals-
vandamálið er að stærstum hluta til-
komið vegna þess hve Vesturlönd hafa
lokað sínum löndum fyrir íbúum þriðja
heimsins,“ segir Bjarni sem vill opna
landamæri miklu meira.
Nýlunda á veitingahúsi í Taívan:
Bor›a upp úr
klósettum
Sú nýlunda hefur verið tekin upp
á veitingahúsi í Taívan að þar
borða gestir ekki af hefðbundnum
diskum heldur úr líkönum af vest-
rænum og austrænum klósettum.
Maturinn sem borinn er fram á
veitingahúsinu líkist um margt
því sem venjulega lendir ofan í
klósettunum, brúnir karríréttir og
súkkulaðiís er meðal þess sem
finna má á matseðlinum.
Viðskiptavinir veitingahússins
hafa tekið þessari nýjungagirni
eigandans Eric Wang vel og iðu-
lega er fullt út úr dyrum. Við-
skiptavinirnir gera jafnvel meira
úr subbuskapnum sjálfir og
hræra í matnum þangað til hann
lítur nákvæmlega eins út og þegar
gleymist að sturta niður í klósett-
um og spæna svo í sig gúmmelað-
ið með bestu lyst. - oá
KLÓSETTDISKAR Réttirnir á veitinga-
staðnum líkjast því sem oft lendir ofan í
klósettum, brúnir karríréttir og súkkulaðiís.