Fréttablaðið - 06.06.2005, Side 19
3MÁNUDAGUR 6. júní 2005
Bætt líðan
með betra lofti
Nánari upplýsingar á www.ecc.is og í síma 511 1001
Skúlagötu 63 - 105 Reykjavík
Hreinsar lof t ið | Eyðir lykt | Drepur bakter íur
NÝTT! LOFTHREINSITÆKI
!
"""
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Sólpallar í görðum
Pallar og skjólveggir við hús njóta
mikilla vinsælda enda nauðsyn-
legir á vindasömu landi þar sem
oft er ekki hægt að njóta sólar
nema í góðu skjóli. Afar sniðugt er
að setja upp pall við íbúðir á jarð-
hæð í fjölbýlishúsum en leita þarf
leyfis áður en hafist er handa.
Þegar búið er að smíða pall með
góðum skjólvegg er hægt að koma
sér upp heitum potti, auk þess sem
gott skjól er fyrir alls konar gróð-
ur. Jafnvel er hægt að gróðursetja
rósarunna í stór ker eða blóm-
strandi klifurjurtir sem geta
klifrað upp eftir skjólveggnum, og
sameina þannig garð og pall.
Bæklingar liggja fyrir á flest-
um stöðum sem selja efni í palla
og gefa góðar hugmyndir, auk
þess sem fjöldinn allur er til af er-
lendum garðatímaritum sem hægt
er að glugga í. Sniðugt er að leita
til landslagsarkitekts ef hugmynd-
irnar eru flóknar, en einfaldur fer-
hyrndur pallur með skjólvegg
virkar oft best.
Veitir skjól gegn veðri og vindum
Góð ráð frá Byko:
Þegar sólpallur er byggður er gjarnan notuð 50x150 mm gagnvarin fura í dregara
sem hafðir eru með 150 til 200 sm millibili. Ef jarðvegur er moldarkenndur og gljúp-
ur er nauðsynlegt að grafa holur og steypa undirstöður fyrir dregarana með u.þ.b.
200 sm millibili. Dýpt á holum er gjarnan um 80 sm. Ef jarðvegur er frostlaus og
fastur fyrir getur verið gott að nota METPOST-stólpa fyrir undirstöður, 100x100 mm.
Af vefsíðunni www.byko.is
Jarðvegurinn undirbúinn. Grafa þarf fyrir
pallinum og fjarlægja allan gróður.
Jarðvegurinn sléttaður og þunnu lagi af
sandi dreift yfir.
Grind er reist og viður lagður ofan á hana.
Fura er lögð á pallinn og stólpar reistir fyrir
skjólvegg.
Pallurinn er glæsilegur og býður upp á
góðar stundir í góðu skjóli.
Gosbrunnar með gjálfur og nið
GOSBRUNNAR OG FLEIRI SKREYTINGAR SEM
TENGJAST VATNI Í GÖRÐUM VERÐA SÍVIN-
SÆLLI, ENDA HEFUR VATN RÓANDI ÁHRIF.
Gosbrunnar skapa rómantískan nið í garðin-
um. Reyndar þarf ekki nema lítið port til að
setja upp gosbrunn ásamt blómum og garð-
húsgögnum. Þá fær fólk á tilfinninguna að
það sé statt í paradís með vatnsnið í bak-
grunni!
Fyrirtækið Steinasteinn sem til húsa
er á Eyjaslóð í Reykjavík hefur ýmsar
lausnir í sambandi við gos-
brunna. Steinnin í gos-
brunnunum er náttúruleg-
ur og stenst íslenska veðr-
áttu vel árið um kring. Ker
í miklu úrvali fást þar líka.
Í takt við tímann
NÝTT EINTAK AF TÍMARITINU SUMARHÚSIÐ OG GARÐURINN ER KOMIÐ ÚT,
FULLT AF BIRTU OG YL EINS OG VERA BER Á ÞESSUM ÁRSTÍMA.
Meðal efnis í nýjasta blaði
af Sumarhúsinu og garðin-
um er heimsókn í hlýlegt
hreiður Eddu Níelsar og fjöl-
skyldu í Hveragerði, flottar
myndir úr framandi garði
Margrétar Frímannsdóttur
og steinasafni Petru á
Stöðvarfirði. Víðigreinar eru
eitt af því sem flestir henda
en í blaðinu eru bráðs-
niðugar hugmyndir um nýt-
ingu þeirra. Frumleg stétt úr
sandi, steinum og tré er á
Þórshöfn á Langanesi og
eru myndir af henni í blað-
inu. Ýmsum golfvöllum á
landinu sem liggja nærri
sumarhúsabyggðum eru
sömuleiðis gerð góð skil.
Fjölmargt fleira forvitnilegt
efni er í blaðinu.