Fréttablaðið - 06.06.2005, Side 20
6. júní 2005 MÁNUDAGUR
Fossaleyni 8 · 112 Reykjavík
Sími 577 2050 · www.formaco.is
Gluggar
10 ára ábyrgð
„Það breytist reyndar voðalega
lítið milli ára hvaða blóm eru vin-
sælust. Stjúpurnar eru alltaf vin-
sælar og standa fyrir sínu. Við
seljum þær í alls konar litum og
ég get ekki bent á neinn einn lit
sem er vinsælastur. Sólboði er
blóm sem er tiltölulega nýlega
orðið vinsælt og selst mjög vel
núna. Það er í lilluðum litum og
bleikum. Svo eru það
petúníur og
margarítur sem
eru alltaf vin-
sælar á hverju
sumri,“ segir
Steinunn I.
Stefánsdóttir
hjá Blómavali.
„Hefðbundin
blóm eins og
flauels-
blóm,
skrautnál, fjóla og silfurkambur
eru líka talsvert vinsæl,“ segir
Steinunn og greinilegt er að
margir eru frekar hefðbundnir
þegar kemur að görðunum.
„Yngra fólk er ekki að grauta
saman tvílitum stjúpum eins og
var mjög vinsælt fyrir nokkrum
árum hjá eldra fólki. Yngra fólk
eru miklu duglegra að prófa sig
áfram, bæði í litum og nýjum
plöntum. Stíllinn hjá yngra fólki
er mun einfaldari og þar er skær-
bleiki liturinn mjög áberandi.
Eldra fólk kýs frekar að skreyta
garðinn með gulum blómum,“
Nokkuð annað er upp á ten-
ingnum hjá Gróðrarstöðinni
Mörk þó að klassísku blómin selj-
ist alltaf vel þar. „Í ár eru það
snædrífan og milljón bjöllur
sem eru heitustu blómin
en þetta eru bæði
hengiblóm. Snædríf-
an er tiltölulega ný
á markaðnum.
Hún blómstrar
smáhvítum
blómum, er
mjög blóm-
viljug og
blómfög-
ur. Milljón
bjöllur blómstra rauðbleikum
klukkum og eru afar vinsælar
núna,“ segir Sigríður Helga Sig-
urðardóttir, eigandi stöðvarinnar.
„Stjúpurnar eru auðvitað
alltaf vinsælar því þær skila
sínu. Þær eru til í mörgum litum
og fólk veit að þær þola íslenska
veðráttu. Sólboði, margarítur og
cosmos eru líka vinsæl í miðju
potta því þau eru aðeins hærri og
þá plantar fólk gjarnan lægri
blómum í kringum þau,“ segir
Sigríður sem finnur mikinn mun
á blómakaupum yngra og eldra
fólks. „Eldra fólk er mest í stjúp-
unum því það þekkir þær. Yngra
fólkið tekur meiri sénsa og velur
fjölbreyttari blóm og liti. Mér
finnst rosalega gaman að sjá
hvað fólk er duglegt að planta og
hafa fallegt í kringum sig. Það er
líka svo gaman á sumrin að hafa
garðinn litríkan og fallegan. Það
hefur vissulega aukist með palla-
menningunni því nú er fólk meira
úti.“
En hverjir ætli séu heitustu
litirnir í ár? „Það er eins misjafnt
og mennirnir eru margir en ég
myndi segja bleikt, rautt, hvítt og
appelsínugult,“ segir Sigríður.
lilja@frettabladid.is
Það er notalegt að hafa skjól fyr-
ir vatni og vindum á veröndinni.
Hrein fjárfesting flytur inn vand-
aðar markísur frá Noregi sem
henta vel fyrir íslenskt veðurfar.
Sveinn S. Antonsson hjá
Hreinni fjárfestingu segir að
markísur rokseljist um þessar
mundir. „Við byrjuðum með þetta
árið 1999 og síðan þá hefur salan
aukist smátt og smátt. Þá vorum
við einir á markaðnum en nú hafa
fjölmargir bæst í hópinn. Markís-
urnar okkar eru frá Noregi og
henta því vel fyrir veðurfarið hér.
Þetta eru til dæmis einu markís-
urnar sem eru seldar hér á landi
sem bjóða upp á mismunandi
hallastillingu sem kemur sér vel
þegar vindáttin er breytileg,“
segir Sveinn.
Markísurnar eru tilvaldar fyr-
ir veröndina heima í garði eða
sumarbústaðinn í sveitinni enda
alltaf gott að geta setið í skjóli.
„Við mætum að kostnaðarlausu
heim til fólks og mælum út fyrir
markísunum svo setjum við þær
líka upp enda skiptir máli að fá
fagfólk í verkið sem kann á vör-
una,“ segir Sveinn.
Markísurnar endast í allt að 20
ár og eru því góð fjárfesting. Dúk-
inn þarf hins vegar að endurnýja
á um 10 ára fresti.
Hægt er að stilla hallann á markísunum eftir veðri og vindum.
Markísur verða sífellt vinsælli
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Sigríður, eigandi Gróðrastöðvarinnar Markar, finnst gaman að sjá hvað
fólk er duglegt að planta blómum.
Stjúpur, sólboði og
snædrífa vinsælar í sumar
Nú er sumarið komið og sólin skín skært nánast upp á hvern einasta dag. Nú nýta margir frítímann í garð-
inum og gróðursetja falleg sumarblóm. En hvaða blóm ætli séu í tísku í ár?
,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
S á k ið f i k di bö
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Su arnámskeið
Keramik fyrir alla
Vinsælu barnanámskeiðin
eru að hefjas .
Ein vika, allt innifalið
kr. 8900.-
BLÓMAVAL Í Blómavali er nóg að gera þessa dagana enda fólk byrjað af hörku að
skreyta garðinn. Sólboði
Milljón bjöllur, eða Million Bells
Petúníur