Fréttablaðið - 06.06.2005, Síða 74
Í aldarfjórðung hefur Helga
Steffensen skemmt ungum sem
öldnum á sumrin með dyggri að-
stoð Lilla og félaga. Hún heillað-
ist snemma af brúðuleikhúsi sem
listgrein og tók við Brúðubílnum
árið 1980 af upphafsmanni hans
Jóni E. Guðmundssyni.
Hún hefur farið á ýmis nám-
skeið bæði hér á landi og á Norð-
urlöndunum og viðað að sér
þekkingu. Hins vegar segir hún
reynsluna vera einn besta skól-
ann.
En hvað er svona heillandi við
brúðuleikhúsið? „Það inniheldur
allt. Fyrst semur maður leikritið,
býr til brúðurnar og leiktjöldin
og leikur,“ segir Helga auk þess
sem sérstök kúnst sé að stjórna
brúðunum. „Það þarf mikla æf-
ingu og ögun til að vera góður
brúðustjórnandi,“ segir Helga
sem hefur samið mikið af leikrit-
unum sem eru sýnd í brúðubíln-
um. Á hverju sumri kemur hún
með tvö ný leikrit og því má ætla
að þau séu orðin ansi mörg eftir
25 ár. Mörg leikritin tekur hún
upp úr sögum og breytir fyrir
brúðuleikhús. Þá hefur hún gam-
an af því að taka gamlar íslensk-
ar sögur eða kvæði eins og
Guttavísur.
Helga býr sjálf til brúðurnar í
bílinn og finnst það eitt
skemmtilegasta verkefnið þótt
það sé mikil vinna. Alltaf bætast
við nýjar brúður en sumar eru
vinsælar og eiga því fastan
samastað í Brúðubílnum. Sú
allra vinsælasta er án efa apinn
Lilli. „Hann á næstum jafnlangt
starfsafmæli og ég,“ segir Helga
og hlær hjartanlega. „En þetta
grey eldist ekkert og er alltaf
fimm ára,“ segir Helga sem
finnst börn ekkert hafa breyst í
gegnum tíðina. „Mér finnst þau
alltaf jafn sönn, yndisleg, rétt-
sýn og heiðarleg,“
Í sumar sýnir Helga leikrit
allt frá fyrstu árum leikhússins í
tilefni afmælisins. Það elsta er
Ungarnir og refurinn. „Ég býst
við að einhverjir foreldrar sem
komi með börnin sín í sumar
muni kannast við það frá því þeir
voru litlir,“ segir Helga sem til-
einkar þessa sýningu minningu
vinkonu sinnar Guðrúnar
Katrínar Þorbjörnsdóttur fyrr-
um forsetafrúar.
18 6. júní 2005 MÁNUDAGUR
JEAN PAUL GETTY (1892-1976)
lést þennan dag.
Lilli eldist aldrei
TÍMAMÓT: HELGA STEFFENSEN STJÓRNANDI BRÚÐUBÍLSINS Í 25 ÁR:
„Uppskrift að velgengni: Vaknaðu snemma,
leggðu hart að þér og finndu olíu.“
- J. Paul Getty var bandarískur auðjöfur sem stofnaði Getty-
olíufélagið. Hann var fyrsti maðurinn til að eiga einn milljarð
Bandaríkjadala.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Ingibjörg J. Rafnar
lögfræðingur er 55 ára.
Bubbi Morthens
tónlistarmaður er 49 ára.
Jakob Falur Garðarsson,
sendiráðsfulltrúi í Brussel, er 39 ára.
Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri dóms-
málaráðuneytisins, er 35 ára.
Baldvin A. Baldvinsson Aalen,
trommari í Sóldögg, er 31 árs.
Brynja Valdís Gísladóttir
leikkona er 32 ára.
BRÚÐUBÍLSGENGIÐ Helga ásamt þeim Vigdísi Másdóttur leikkonu og Birgi Ísleifi
Gunnarssyni bílstjóra Brúðubílsins.
Þennan dag árið 1944 réðust
bandamenn gegn nasistum í Norm-
andí við strendur Frakklands. Inn-
rásin er ein sú frægasta og afdrifa-
ríkasta í seinni heimsstyrjöldinni
þar sem hún olli miklum þáttaskil-
um í stríðinu og hefur innrásardag-
urinn verið þekktur undir nafninu
D-Day eða d-dagurinn allar götur
síðan.
Í byrjun árs 1944 var orðið ljóst að
Þjóðverjar væru að tapa heimsstyrj-
öldinni. Bandamenn töldu sig þurfa
að ráðast inn í Vestur-Evrópu þar
sem Þjóðverjar höfðu þó náð að
stöðva sókn þeirra upp Ítalíuskaga.
Ákveðið var að á fyrsta degi innrás-
ar skyldu tvær bandarískar, tvær
breskar og ein kanadísk herdeild
lenda á innrásarsvæðum sem náðu
frá Cotentin-skaga í Normandí allt
til borgarinnar Caen. Sömuleiðis
skyldu tvær bandarískar og ein
bresk fallhlífaherdeild lenda að baki
varnarliðinu þá um morguninn.
Óvissa og fát einkenndi fyrstu við-
brögð yfirmanna þýska hersins.
Þegar undirmenn Hitlers báru hon-
um loks fréttirnar af innrásinni var
hann ófús til að senda bryndeildir
til Normandí því hann taldi að þetta
væri blekkingarinnrás.
Strandhögg bandamanna þann 6.
júní tókst þrátt fyrir gríðarlega mót-
spyrnu. Hins vegar stóð baráttan
um Normandí fram í ágúst.
6. JÚNÍ 1944
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1584 Prentun Guðbrandsbiblíu á
Hólum í Hjaltadal lýkur.
Bókin var gefin út í 500
eintökum.
1800 Alþingi er afnumið með
konunglegri tilskipun.
1914 Bifreið er notuð í fyrsta sinn
hér á landi til að aka brúð-
hjónum til vígslu.
1938 Sjómannadagurinn er hald-
inn hátíðlegur í fyrsta sinn.
1966 James Meredith, fyrsti svarti
Bandaríkjamaðurinn til að
fara í háskóla í Mississippi,
er skotinn.
1984 Um 300 látast þegar ind-
verski herinn ræðst inn í
gullna hofið í Armitsar sem
var í haldi herskárra sjíta.
D-dagur í Normandí
Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og
jar›arfarir í smáletursdálka hér á sí›unni má senda á
netfangi› timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á auglysingar@frettabladid.is
e›a hringja í síma 550 5000.
!"
# $"
!
$% &
' (
)!*
+
$* *
* & ,'%
-./0
% )
!"
!&! -$&!!" % )
!
+
&"1
,! 2 13
4!")
* 5$
6
&
5&6$ ! "1
7
) '
)(!
&
*"*8"!3
&*&
!
6
&
" *()
!
,&*
*
$*,'"9"
*
&*
"
5$
&*
1
&:"2 1-./0+
&"1'
5&6$1 ;""* !"& " 6
< &
< &
6!
&")3
53
=
& "!
&
!
&
*
" ! " (9
"
"/
"!!&
!1
"2)"
!>9
3! "
?,"!!
$"
*&!!"& !!
7"
&!
7"!
& "!
->?$"
<" < 7
23
!(&
"=< 7
)
@3&! &
"
7
A!!"
0&
""!! "
!"#
2)"
!B
!!$"
09
"
$* 5$ !
B
!
C !"
7"!! @""
,"*"
7 &!D,1
"
"
!&
&*
$*
,"!"
" *" &
*
* D#
") "
!"
! ! "'"D#D"*
&
$*
)!"D
)
"
-)""
!&
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
H
EL
G
AD
Ó
TT
IR
„Fyrsta starfið sem ég fékk
greitt fyrir að inna af hendi var
þegar ég var sendill í hverfis-
búðinni í Laugarneshverfinu,“
segir Sævar Karl Ólason, klæð-
skeri og kaupmaður í Banka-
stræti. Sævar kynntist vinnu
snemma og var sendur í sveit
sex ára gamall.
Þegar hann var tólf ára
komst hann inn undir hjá kaup-
manninum í hverfisversluninni
í Laugarnesinu. „Ég átti heima í
Laugarnesi 62 og hverfisversl-
unina rak maður að nafni Gunn-
ar. Verslunin hét Vitinn og ég
held að það sé verslað með gler-
vöru þar í dag. Fyrir Gunnar
hjólaði ég með kókkassa og því
um líkt heim til fólks og fékk
pening fyrir. Mig minnir að
þetta hafi nú ekki verið mikið,
en launin voru eflaust drjúg í
augum tólf ára hnokka.“
Sævar segir það hafa verið
sér mikils virði að fá tækifæri
til að vinna sér fyrir skotsilfri
og hefur verið sívinnandi síðan,
þótt hann hafi ekki ílengst í
sendilstarfinu. „Ég fór á á tog-
ara þegar ég var fjórtán ára.
Réð mig sem háseta á hálfum
hlut. Tíðarandinn var sá að það
þótti ekki tiltökumál þótt dreng-
ir á fermingaraldri færu á sjó.
Það unnu allir sem vettlingi
gátu valdið.“
FYRSTA STARFIÐ:
Hjóla›i me› kókkassa
í Laugarnesinu
SÆVAR KARL ÓLASON
FÆDDUST fiENNAN DAG
1799 Alexander Púskín
rithöfundur.
1875 Thomas Mann
rithöfundur.
1935 Dalai Lama
fjórtándi.
1946 Lasse Hallström
leikstjóri.
1956 Björn Borg
tennisleikari.
ANDLÁT
Jón Hallgrímsson, áður til heimilis á
Kleppsvegi 28, Reykjavík, andaðist á Víf-
ilsstöðum að kvöldi fimmtudagsins 2.
júní.
Guðmundur Bergsteinn Jóhannsson,
Birkigrund 2, Selfossi, lést sunnudaginn
29. maí.
JAR‹ARFARIR
13.00 Erla Ingibjörg Vilhjálmsdóttir,
Hvannalundi 5, Garðabæ, verður
jarðsungin frá Vídalínskirkju í
Garðabæ.
13.00 Sigurlín (Eva) Andrésdóttir,
Skjóli, áður Furugerði 1, verður
jarðsungin frá Grensáskirkju.
13.00 Lára Sigurbjörnsdóttir, Ási, við
Sólvallagötu, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni.
15.00 Sveinbjörn Sigurðsson bygginga-
meistari, Miðleiti 7, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni.