Fréttablaðið - 06.06.2005, Page 78

Fréttablaðið - 06.06.2005, Page 78
6. júní 2005 MÁNUDAGUR Ashley Cole leikmaður Arsenal,óttast um framtíð sína hjá félag- inu eftir að hann varð uppvís af því að hafa rætt ólög- lega við Chelsea um að ganga til liðs við þá. Cole á ekki von á að geta leikið meira með Arsenal og segist alveg í rusli. „Ég vil hvergi leika annars staðar en hjá Arsenal, en nú sýnist mér ég ekki vera velkominn hjá félaginu lengur. Ég sé mig aldrei leika fyrir annað lið en Arsenal og ef ég þarf að fara héðan, vil ég fara frá Englandi,“ sagði Cole. Breski boxarinn Ricky Hatton barsigurorð af Kostya Tszyu í bar- daga um heimsmeistaratitilinn í veltivigt um helgina og í kjölfarið eru menn farnir að tala um hann sem besta veltivigtarmann í heimin- um. Bardaginn var frábær skemmt- un frá upphafi til enda og Bretinn ungi þótti sýna ótrúleg tilþrif og út- hald. „Ricky er á góðri leið með að verða besti boxari sem Bretland hef- ur alið af sér,“ sagði þjálfari hans eftir bardagann. Martin Jol, knattspyrnustjóriTottenham, biður aðdáendur liðsins að örvænta ekki þó að Frank Arnesen hafi stungið af frá félaginu og gengið í raðir Chelsea. „Það var súrt að missa Frank, en ég get lofað því að við munum ekki láta brotthvarf hans á okkur fá. Það eru spennandi tímar framundan hjá fé- laginu og við erum staðráðnir í að byggja á bættu gengi í fyrra. Við enduðum síðasta tímabil á jákvæðum nótum og munum taka það með okkur inn í næsta tímabil.“ Franski ökuþórinn Sebastien Loebá Citroen hélt áfram sigurgöngu sinni í heimsbikarkeppninni í ralli um helgina, þegar hann sigraði ör- ugglega í tyrkneska rallinu á sunnu- daginn. Heims- meistarinn sigraði á tíu af sautján sér- leiðum í keppninni og var með tæpri mínútu betri tíma en næsti maður, sem var Petter Sol- berg á Subaru. Loeb hefur þrettán stiga forystu á næsta mann í stigakeppni öku- manna það sem af er tímabilinu, en sigurinn um helgina var hans fjórði í röð. Shaquille O’Neal var tekinn áorðinu af ættingjum George Mikan heitins, en hann hafði lofað að greiða allan útfararkostnað goð- sagnarinnar, því hann heyrði að fjöl- skylda hans ætti við fjárhagserfiðleika að etja. Mikan var fyrsta stórstjarnan í NBA-deildinni og leit O’Neal mikið upp til hans. „Send- ið reikninginn bara til Miami-liðsins, það yrði mér sannur heiður að fá að greiða fyrir útförina, því án hans væri ég ekki það sem ég er í dag,“ sagði tröllið. Það er sjaldan lognmolla í kring-um lið Detroit Pistons og þeir komust í fréttirnar fyrir annað og meira en að vinna leiki. Önnur sprengjuhótunin á örfáum vikum skapaði nokkra ringulreið fyrir sjötta leikinn við Miami á sunnudags- kvöldið og þurfti að tæma húsið í kjöl- farið. Þetta reyndist þó vera gabb eins og í fyrra skiptið og sökudólgurinn var handtekinn í gær. Þá fékk Rasheed Wallace 20.000 dollara sekt fyrir að gagnrýna dóm- ara opinberlega og fyrir að nota ófagran munnsöfnuð í viðtölum við fjölmiðla, en hann gagnrýndi dóm- arana sem dæmdu fimmta leikinn við Miami harðlega. ÚR SPORTINU 22 LEIKIR GÆRDAGSINS 1. deild karla: KS–VÍKINGUR R. 0–0 www.toyota.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 28 19 1 0 5/ 20 05 Nú fæst hinn feikivinsæli RAV4 í sérstakri útfærslu með sportlegu yfirbragði. Aukahlutapakki að verðmæti 160.000 kr. fylgir. Pakkinn inniheldur sílsahlíf, krómgrind á afturljós, sportgrill, krómstút á púst, sílsarör og dráttarbeisli. RAV4 SPORT sameinar því þægindi, kraft, öryggi, sportlegt útlit og hagstæð kjör, en hann fæst frá aðeins 2.720.000 kr. Komdu og prófaðu RAV4 SPORT í dag. Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070 RAV4 SPORT. Fyrir allt sem í þér býr og meira til. Aukahlutapakki að verðmæti 160.000 kr. fylgir með. Verð frá 2.720.000 kr. Jafnt í borg sem til fjalla RAV4 SPORT Sportgrill Sílsarör Krómgrind á afturljós Sílsahlíf Krómstút á púst Dráttarbeisli Detroit jafnaði metin gegn Miami í NBA: Oddaleikur í kvöld KÖRFUBOLTI. Það verður sannkallað- ur stórleikur í NBA í nótt þegar Miami Heat og Detroit Pistons mætast í hreinum úrslitaleik um sæti í lokaúrslitunum, eftir að Detroit vann sjötta leik liðanna með gríðarlegum yfirburðum í fyrrinótt, 91-66. Miami lék án Dwayne Wade, sem er meiddur og horfir nú fram á erfiðan oddaleik þar sem svo gæti farið að aðalskorari Miami yrði ekki með. Jafnræði var með liðunum í fyrsta fjórðungnum í fyrrakvöld, en þá opnaðist fyrir allar flóðgáttir hjá Miami og í ljós kom hversu mikið lakara liðið er án Wade. Shaquille O’Neal lék ágætlega í leiknum og skoraði 24 stig og hirti 13 fráköst, en það dugði ekki til og sóknarleikur Mi- ami var vandræðalegur og tilvilj- anakenndur. Richard Hamilton var stigahæstur í liði Detroit með 24 stig og meistararnir hugsa sér gott til glóðarinnar í oddaleiknum í Miami í kvöld. „Mínir menn léku vel í kvöld og ég held að áhorfenda bíði sann- kölluð veisla í úrslitaleiknum. Þar vona ég að betra liðið vinni og ég er alveg viss um að Dwayne Wade verður til í slaginn þá,“ sagði Larry Brown, þjálfari Detroit. „Nú verðum við að gjöra svo vel og klára dæmið í næsta leik og þar duga engar afsakanir,“ sagði Shaquille O’Neal hjá Miami. „Nú er það bara að vinna eða hypja sig heim og það sem ég er ekki sér- lega mikið fyrir að veiða, verðum við einfaldlega að vinna oddaleik- inn á heimavelli,“ sagði Damon Jones, leikmaður Miami. -bb LYKILLINN Dwayne Wade verður að ná heilsu fyrir oddaleikinn ef Miami á að eiga mögu- leika gegn meisturunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.