Fréttablaðið - 06.06.2005, Qupperneq 81
Heimasíða Classic fm hélt könnun
meðal lesenda sinna um það hvaða
kvikmynd innihéldi bestu frum-
sömdu tónlistina. Þúsundir kusu
og fékk tónskáldið John Williams
flest verkefni sín inn á topp 50,
alls átta, en Howard Shore hamp-
aði fyrsta sætinu fyrir ógleyman-
lega tónlist úr Lord of the Rings.
John Williams er eitt þekktasta
tónskáld samtímans. Hann hefur
samið fyrir margar af frægustu
myndum kvikmyndasögunnar þar
á meðal Star Wars-myndirnar, Ju-
rassic Park, E.T. og Indiana Jones.
Hann er afkastamikið skáld með
fleiri en hundrað kvikmyndir á
ferilskránni en það hefur ekki
bitnað á gæðum tónlistarinnar því
hann hefur fengið flestar Óskar-
stilnefningar núlifandi mann-
eskju. Honum tókst frábærlega að
fanga viðkvæmt andrúmsloftið í
Schindler's List og hvert manns-
barn getur raulað stefið sem not-
að er við Svarthöfða í Star Wars.
Til gamans má geta að Williams
hefur samið tónlistina við allar
Spielberg-myndirnar nema eina.
Howard Shore fékk Óskarsverð-
launin fyrir tónlistina úr Lord of
the Rings en hann hefur samið
tónlist fyrir meira en sextíu kvik-
myndir, til dæmis Silence of the
Lambs, Philadelphia og Seven.
Hann er einn af upphafsmönnum
Saturday Night Live og sá um tón-
listina í þáttunum þegar þeir hófu
göngu sína. Kvikmyndatónlist er
oft vanmetið fyrirbæri. Vel
heppnuð tónlist getur gert góða
kvikmynd frábæra en eins getur
óheppileg tónlist drepið niður alla
stemmningu. Tónlistin er
ómissandi viðbót við túlkun leik-
ara og getur hún gert áhorfendur
spennta, æsta eða sorgbitna, allt
eftir því hvernig hún er sett fram.
25MÁNUDAGUR 6. júní 2005
STÓRA SVIÐ
99% UNKNOWN - Sirkussýning
CIRKUS CIRKÖR frá SVÍÞJÓÐ
Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20,
Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar
25 TÍMAR
Dansleikhús / samkeppni LR og Íd í samstarfi
við SPRON. Fi 9/6 kl 20 - 2.500,-
Einstakur viðburður
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 12/6 kl 14 UPPS,
Su 12/6 kl 17, Lau 18/6 kl 14,
Su 19/6 kl 14 - UPPS., Su 26/6 kl 14,
Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14, Su 17/7 kl 14,
Su 24/7 kl 14
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Fi 9/6 kl 20, Fö 10/6 kl 20 - UPPS.,
Lau 11/6 kl 20, Þri 14/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20,
Lau 17/6 kl 20, Su 18/6 kl 20
Síðustu sýningar
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Meðlimir Bjargræðiskvartetts-
ins hafa látið undan miklum
þrýstingi, óskum og hvatningu
frá aðdáendum sínum og sett
saman nýja söngdagskrá. Allt eru
þetta lög sem hafa notið mikilla
vinsælda víða um heim, en nokk-
ur þeirra hafa ekki áður heyrst í
flutningi Bjargræðiskvartetts-
ins. Að vanda eru þau útsett af
meðlimum kvartettsins og
þarafleiðandi bæði vönduð og
skemmtileg.
Kvartettinn skipa Húsvíking-
urinn Aðalheiður Þorsteinsdóttir,
Reykvíkingurinn Anna Sigríður
Helgadóttir, Patreksfirðingurinn
Gísli Magnason og Hafnfirðing-
urinn Örn Arnarson.
Bjargræðiskvartettinn hefur
því sömu kynjaskipan og ABBA-
flokkurinn forðum, eða tvennt af
hvoru kyni, allir syngja og allir
spila á alls konar hljóðfæri.
Kvartettinn verður með tón-
leika í kvöld í sal FÍH við Rauða-
gerði. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20 og má fastelega
reikna með því að þeir seljist
upp.
Kvartett gengur aftur
BJARGRÆÐISKVARTETTINN Þessi vinsæli kvartett er mættur til leiks á ný og verður með tónleika í kvöld.
Bestu kvikmynda-
tónverk sögunnar
1. The Lord of the Rings
Höfundur: Howard Shore
2. Schindler's List
Höfundur: John Williams
3. Gladiator
Höfundar: Hans Zimmer/Lisa Gerrard
4. Star Wars
Höfundur: John Williams
5. Out of Africa
Höfundur: John Barry
6. Dances with Wolves
Höfundur: John Barry
7. Lawrence of Arabia
Höfundur: Maurice Jarre
8. The Mission
Höfundur: Ennio Morricone
9. Jurassic Park
Höfundur: John Williams
10. Pirates of the Carribean
Höfundur: Klaus Badelt
GLADIATOR Í Gladiator blandast saman
nýaldartónlist Gerrards og hasartónlist
Zimmers.
LORD OF THE RINGS Bestu kvikmynda-
tónlist allra tíma er að finna í Lord of the
Rings að mati lesenda classicfm.com.