Fréttablaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 23
ATVINNA
7
TVÆR STÖÐUR HEIMILISLÆKNA
Lausar eru til umsóknar tvær stöður Heimilislækna
við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.
Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið sérfræðiprófi í
heimilislækningum.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2005.
Annar læknirinn mun hafa aðsetur á Þórshöfn og
sinna f.o.f. Norður-Þingeyjarsýslu og er æskilegt að
hann geti hafið störf á vormánuðum 2006. Hinn hefur
Húsavík og Suður-Þingeyjarsýslu sem sína aðal starfs-
stöð og veitist sú staða frá 1. nóvember 2005.
Við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga starfa 9 læknar
ásamt ýmsum sérfræðingum sem koma reglulega til
að vinna í styttri tíma. Stofnunin þjónar öllum Þingey-
ingum austan Fnjóskadals. Reyndar kemur fólk alls
staðar að af landinu til aðgerða á Sjúkrahúsinu á
Húsavík.
Öflugt tölvu- og fjarfundakerfi tengir starfsstöðvar á
Þórshöfn, Raufarhöfn. Kópaskeri, Húsavík, Laugum og
í Mývatnssveit í eina heild. Mikill metnaður einkennir
allt starf innan stofnunarinnar og má nefna þróun raf-
ræns lyfseðils, rekstur reyksímans 800-60-30 síðustu
5 árin og Evrópuverkefni í endurhæfingu öryrkja sem
dæmi um ný verkefni sem ráðist hefur verið í. Frá ár-
inu 2001 hafa 2 læknar verið í framhaldsnámi í heim-
ilislækningum við stofnunina.
Hátt í 200 þúsund ferðamenn koma í Þingeyjarsýslur
á hverju ári og unnið hefur verið markvisst að því að
tengja saman ferðamennsku og heilbrigðisþjónustu á
svæðinu. Miklir möguleikar felast í því og það
ánægjulegasta sem gerst hefur í þeim efnum er opn-
un Jarðbaðanna í Mývatnssveit á síðasta ári. Þar er
frekari uppbygging heilsuþjónustu í samvinnu Baðfé-
lagsins og Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga í skoðun.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum og sambærileg
við það sem gerist á svipuðum stofnunum á lands-
byggðinni.
Áhugasömum er bent á heimasíðu stofnunarinnar
heilthing.is til að afla sér nánari upplýsinga um starf-
semina.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu stofnun-
arinnar heilthing.is og er hægt að senda þær rafrænt.
Eins er hægt að senda umsóknir í pósti til Heilbrigðis-
stofnunar Þingeyinga, Auðbrekku 4, 640 Húsavík, b.t.
Ásgeirs Böðvarssonar, framkvæmdastjóra lækninga.
Upplýsingar veita
Friðfinnur Hermannsson, framkvæmdastjóri 895-0525,
fridfinnur@heilthing.is,
Ásgeir Böðvarsson, framkvæmdastjóri lækninga 860-
7726, asgeir@heilthing.is
Sigurður Halldórsson, yfirlæknir N-Þing. 896-8109 og
899-8645 sighall@heilthing.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur
verið ákvörðun um ráðningu. Umsóknir geta gilt í 6
mánuði.
Laus störf í nýju og
spennandi umhverfi
Sölufulltrúar fasteigna
Hóll hefur frá upphafi verið frumkvöðull í
fasteignasölu og haft það að markmiði
að vera í fararbroddi í sinni starfsgrein.
M-þjónusta er ný deild innan Hóls sem
býður upp á nýjar og fullkomnar
þjónustuleiðir sem byggja á markvissri
gæða- og þjónustustjórnun.
Hóll-M leitast því eftir að ráða til sín
framúrskarandi starfsfólk og bjóða upp á
starfsumhverfi sem laðar fram það besta
í hverjum og einum til að hámarka
ánægju viðskiptavinarins.
Við trúum því að starfsánægja og efling
starfsfólks sé lykillinn að ánægðum
viðskiptavini, góðri þjónustu og árangri í
harðri samkeppni.
Við höfum meira að bjóða
Laus eru til umsóknar störf sölufulltrúa í nýrri þjónustudeild Hóls fasteignasölu. Helstu
verkefni sölufulltrúa snúa að þjónustu við núverandi viðskiptavini, sölu fasteigna,
fjármálaráðgjöf og öflun nýrra viðskiptavina.
Hæfniskröfur:
• Góð menntun og reynsla af störfum á fasteignasölu.
• Rík þjónustulund, þægilegt viðmót og mikil hæfni í mannlegum
samskiptum.
• Markviss vinnubrögð, sjálfstæði og skipulagshæfileikar.
• Metnaður og vilji til að ná árangri.
Þú kemur til með að vinna með samstilltum hópi einstaklinga sem hefur það að
markmiði að viðhalda góðu orðspori Hóls með framúrskarandi þjónustu og vandvirkum
vinnubrögðum.
Launakerfi er árangurstengt og býður upp á mikla tekjumöguleika
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Andri Skúlason framkvæmdastjóri Hóls-M í síma
595 9059
Umsóknir sendist í tölvupósti á gandri@holl.is fyrir 10. júlí n.k.
Hóll-M | Skúlagata 17 | Franz Jezorski lögg.fasteignasali
Fosshótel auglýsir eftir fólki með ástríðu
fyrir gestrisni til að starfa á Fosshóteli
Reykholti. Eftirtalin störf eru í boði:
Framreiðslumaður (framtíðarstarf):
Hæfniskröfur:
- Menntun eða reynsla af framreiðslustörfum
- Stjórnunarhæfileikar
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund og umhyggjusemi
- Gestrisni og sveigjanleiki
- Áhugi og dugnaður
- Vingjarnleiki
Almennt starf (sumarstarf):
Hæfniskröfur:
- Þjónustulund og umhyggjusemi
- Gestrisni og sveigjanleiki
- Áhugi og dugnaður
- Vingjarnleiki
- 18 ára lágmarksaldur
Fæði og húsnæði í boði. Umsóknareyðublöð má nálgast á
www.fosshotel.is Umsækjendur eru sérstaklega beðnir um að tilgreina
hvaða starf þeir sækja um og á hvaða hóteli. Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Hjartardóttir, hótelstjóri, í síma 435 1260 eða í gegnum tölvu-
póstfangið sigrun@fosshotel.is
vinalegri um allt land • www.fosshotel.is
Náttúruleikskólinn
KRAKKAKOT Álftanesi
Óskar eftir að ráða starfsfólk í eftirtaldar stöður:
Leikskólakennara eða leiðbeinendur.
Um er að ræða heilsdagsstörf og hlutastörf.
Umsóknarfrestur er til 12. júlí 2005.
Hægt er að sækja um störfin á heimasíðu
Sveitarfélagsins Álftanes,
alftanes.is/Stjónsýsla/umsóknir/umsókn um starf.
Nánari upplýsingar veita, eftir kl. 16 virka daga:
Erla Thomsen leikskólastjóri í síma 821-5006
og Hjördís Ólafsdóttir aðstoðarleikskólastjóri
í síma 692-6648.
Smiðir, járnamenn og
byggingaverkamenn
Vegna aukinna verkefna óskar JB Byggingafélag
eftir að ráða smiði, járnamenn og byggingaverkamenn.
Upplýsingar gefur Kristján Yngvason í síma 693-7005
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu félagsins
www.jbb.is
JB Byggingafélag býður uppá góða starfsaðstöðu og öruggt
starfsumhverfi. Næg verkefni eru framundan.
JB Byggingafélag, Bæjarlind 4, s: 544-5333