Fréttablaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 1
Í fótbolta fyrir fjölskylduna
Landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson
varð fyrir skemmstu fimmti íslenski
leikmaðurinn sem er til
mála hjá liði í ensku
úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Frétta-
blaðið hitti Heiðar
að máli þar sem
farið var yfir feril-
inn og fjölskyldu-
lífið í boltanum.
ÍÞRÓTTIR 22
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
TÓNLEIKAR Í gær tóku þjóðir um
allan heim höndum saman og
héldu tónleika í níu borgum til að
vekja athygli á neyð þróunarland-
anna og safna pening þeim til
styrktar. Tónleikarnir hófust í
Tokýó, en einnig voru haldnir tón-
leikar í London, París, Róm,
Moskvu, Fíladelfíu, Berlín, Barrie
í Kanada og í Jóhannesarborg.
Björk kom fram á tónleikum í
Tokýó þar sem tíu þúsund manns
voru saman komnir. Höllin sem
tónleikarnir fóru fram í rúmar þó
tvöfalt meiri fjölda en það. Björk
talaði til fjöldans og sagði meðal
annars: „Það að átta sig á því að
vandamálið er til staðar er mjög
mikilvægt skref“.
Tónleikagestir í London fengu
mikið fyrir sinn snúð en U2 og
Paul McCartney voru fyrstir á
svið og sungu þeir saman sérstaka
útgáfu af laginu Sgt. Pepper's
Lonely Heart Club Band en rúm-
lega tvö hundruð þúsund manns
mættu á tónleikana. „Ég trúi að
viðburður eins og þessi geti virki-
lega skipt sköpum. Þessi kynslóð
með sinni rödd, sínum atkvæðum,
sínum dugnaði, getur virkilega út-
rýmt fátækt,“ sagði Kofi Annan,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna á tónleikunum í London.
Skipuleggjendur áætla að um
tvær milljónir manna hafi sótt
tónleikana um allan heim og að
um það bil 85 prósent mannkyns
hafi aðgang að þeim í sjónvarpi,
útvarpi eða interneti. Bob Geldof
lét þau orð falla þegar þrír tímar
voru liðnir af tónleikunum að þrír
milljarðar manna um allan heim
væru að fylgjast með.
-bog
Live 8 tónleikarnir í níu borgum:
Milljónir fylgdust me›
STÍF NORÐAUSTAN ÁTT á leið yfir
landið með rigningu víða um land, fyrst
suðaustan og austan til en svo víðar þegar
líður á daginn. Hiti 8-15 stig, hlýjast syðra.
VEÐUR 4
SUNNUDAGUR
3. júlí 2005 - 177. tölublað – 5. árgangur
15-70%
Afsláttur
ÚTSALA
Meik hjá Mugison
Mugison sló í gegn á Hróarskeldu-há-
tíðinni sem lýkur í dag. Hann var fyrst-
ur á svið á föstudag, hreif áhorfendur
með sér og endaði á Wild Thing við
mikinn fögnuð. FÓLK 30
Ríkisstjórn ríkir yfir þingi
Sigurður Líndal segir að ríkisstjórn sé
orðin eins og
önnur deild
Alþingis. Skilin
milli
löggjafarvalds og
framkvæmdarvalds
séu orðin óljós eða
óglögg.
STJÓRNARSKRÁIN 14
LIVE 8 Björk opnaði tónleikana í Tókýó í gær. Hún var hápunktur tónleikanna og kom fram í fyrsta sinn opinberlega í tvö ár. Björk var
glæsileg í samfestingi með fiðrildamynstri. „Fólk er tilbúið til að leggja sitt af mörkum því þetta er hlutur sem skiptir miklu máli,“ sagði
hún meðal annars á blaðamannafundi fyrir tónleikana.
Jón Gerald í mei›-
yr›amál vi› Jónatan
Jónatan fiórmundsson lagaprófessor stendur vi› hvert atri›i álitsger›ar sinnar um rann-
sókn Ríkislögreglustjóra á málefnum Baugs Group. Í álitsger›inni vísar Jónatan til Jóns
Geralds Sullenberger, sem ætlar í mei›yr›amál vi› Jónatan vegna ummæla hans.
BAUGSMÁLIÐ „Ég hafði ekki séð
ákæruna þegar ég vann álitsgerð-
ina, bara þau skjöl málsins sem
voru tiltæk hinn 8. júní og var það
nægilegt til þess að meta málsat-
vik. Ég stend við hvert orð sem
stendur í álitsgerðinni og vil ekki
tjá mig frekar um málið því ég ætl-
ast til þess að það fari fram fyrir
dómsstólum en ekki í fjölmiðlum,“
segir Jónatan Þórmundson laga-
prófessor um álitsgerð sem hann
samdi að beiðni Baugs Group.
Álitsgerðin fjallar um rannsókn
Ríkislögreglustjóra á málefnum
fyrirtækisins en ákæra í 40 liðum á
hendur sex manns tengdum Baugi
var gefin út á föstudag.
Í álitsgerðinni segir Jónatan
litlar líkur á því að sexmenning-
arnir verði sakfelldir vegna auðg-
unarbrota en líklegt sé að Baugur
blási til málssóknar á hendur rík-
inu og rökstyður Jónatan þá skoðun
sína í þremur liðum og eru helstu
rökin að óeðlilega mikið samkrull
hafi verið milli rannsóknar- og
ákæruvalds við rannsókn málsins.
Auk þess segir Jónatan í álits-
gerðinni að við upphaf rannsóknar
á Baugsmálinu hafi allt byggst „á
heiftúðugri og ótrúverðugri kæru
eins einstaklings, sem bersýnilega
bar keim af hefndaraðgerð.“ Þessi
ummæli Jónatans vísa til Jóns Ger-
alds Sullenberger sem lagði fram
kæru á hendur Baugi í ágúst 2002.
Í kvöldfréttum Ríkissjón-
varpsins í gær kom svo fram að
Jón Gerald ætlar að höfða mál á
hendur Jónatani vegna þessara
ummæla. Áður hafði Jón Gerald til-
kynnt að hann ætlaði í skaðabóta-
mál við forstjóra Baugs, Jón Ás-
geir Jóhannesson, vegna rofs Jóns
Ásgeirs á samkomulagi um fjöl-
miðlabindindi sem þeir gerðu sín á
milli á meðan rannsókn á mál-
efnum Baugs stæði yfir.
Jónatan Þórmundsson vildi ekki
tjá sig um á hvaða upplýsingum
hann byggði efnistök álitsgerðar-
innar eða ummæli sín um Jón
Gerald. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er Jón Gerald ekki
búinn að ráða sér lögmann vegna
þessara mála.
ingi@frettabladid.is
M
YN
D
/G
ET
TY
VEÐRIÐ Í DAG
Rokksveitin Foo Fighters heldur sína a›ra tónleika hér á landi næst-
komandi flri›judag. Nate Mendel, bassaleikara sveitarinnar, ræ›ir um
sí›ustu Íslandsfer› sveitarinnar og komandi tónleika.
TÓNLIST 18
HEIMILDARMYND
Reykjavíkurrokk fest á filmu
FÓLK 32
FOO FIGHTERS
Spjalla› vi› fólk
á bak vi› tjöldin
Frönsk kona:
Víg›i sig
til prests
TRÚMÁL Frönsk kona tók þá áhættu á
að verða gerð útlæg úr kaþólsku
kirkjunni með því að vígja sjálfa sig
til prests. Genevieve Beney og
nokkrar aðrar konur héldu litla at-
höfn á báti í þeim tilgangi að draga
athygli að reglu kaþólsku kirkjunn-
ar að banna konum að vera prestar.
Vatíkanið hefur ekki látið skoðun
sína á athæfi konunnar í ljós en hef-
ur þó tekið það skírt fram að enginn
grundvöllur sé fyrir því að íhuga að
leyfa konum að gerast prestar.
Beney telur að tími sé kominn til
þess að kirkjan breyti reglunum.
„Við lítum á okkur sem kaþólskar
konur en við erum ekki sammála
þessum reglum sem banna konum
að gerast prestar,“ sagði hún. -bog
Sjálfsmorðsárás í Írak:
Tuttugu og
sex létust
BAGDAD, AP 26 létust og 50 slösuðust
í sjálfsmorðsárásum í Bagdad og
Hillah í Írak í gær. Einn sprengju-
mannanna sprengdi sig í loft upp í
hópi áhorfenda og lögreglu sem
hafði safnast saman þar sem annar
hafði sprengt sig nokkru áður.
Fyrsta sprenginginn varð í
Bagdad fyrir utan starfsmiðstöð
írösku lögreglunnar. Að minnsta
kostu 16 létust og 22 slösuðust. Al-
Kaída í Írak lýsti verknaðinn á
hendur sér í tilkynningu sem birtist
á vefnum. Aðrar sprengingar urðu í
Hillah, suður af Bagdad.
Herstöðin á Miðnesheiði:
Ekkert ákve›i›
VARNARMÁL James I. Gadsden
segir í viðtali við Fréttablaðið að í
viðræðulotunni um varnarmál
sem hefjast í næstu viku verði
einkum rætt um skiptingu rekstr-
arkostnaðar flugvallarins, en
Bandaríkjamenn vilja að Íslend-
ingar greiði meira til hans.
-shg / Sjá síðu 15
ÁTTU YNDISLEGAR STUNDIR Á ÍSLANDI
JÓNATAN ÞÓR-
MUNDSSON
JÓN GERALD
SULLENBERGER