Fréttablaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 44
Undir lok fyrri hálfleiks var brotið gróflega á leikmanni ÍBV, Adolfi Sigurjónssyni, upp við víta- teigshorn Fylkismanna en dómari leiksins sá ekkert athugavert. Ad- olf lá eftir og þurfti að fara af leikvelli en hann er talinn hafa farið úr axlarlið. Seinni hálfleikur byrjaði ró- lega og voru Eyjamenn ívið sterk- ari og átti Steingrímur frían skalla að marki sem Bjarni í marki Fylkis varði glæsilega. Á 58. mínútu fékk Páll Hjarðar að líta sitt annað gula spjald eftir að hann fór of hátt með sólann og þar með rautt. Þá var ljóst að róður Eyjamanna yrði erfiður enda kom það á daginn því stuttu síðar komust Fylkismenn í tveggja marka forystu þegar Viktor Bjarki smellhitti boltann fyrir utan teig og sendi hann í netið framhjá Birki. Eyjamönnum var fyrirmunað að skora því þegar um stundar- fjórðungur var til leiksloka fengu þeir þrjú tækifæri í sömu sókn- inni á því að minnka muninn en það tókst ekki. Þess í stað bættu Fylkismenn við þriðja markinu á lokamínútunum þar sem aftur var að verki Björgólfur, en hann var mjög frískur í liði Fylkis í gær og besti maður vallarins. Leikurinn var í heild sinni ekki mikið fyrir augað en þó sáust skemmtileg tilþrif inn á milli. Fylkismenn voru sterkari og áttu sigurinn skilinn þó að hann hafi kannski verið helst til of stór miðað við gang leiksins. Björgólfur spilaði mjög vel sem og Bjarni í markinu. Þá var Valur Fannar sterkur í vörninni. Eyjamenn verða að spýta í lóf- ana ef ekki á illa að fara en það virðist sem falldraugurinn sé þegar farinn að hreiðra um sig í herbúðum þeirra. Ekkert virðist ekkert ganga upp og boltinn fellur einfaldlega ekki með þeim. Að vanda var það Birkir sem stóð fyrir sínu og eins voru þeir Atli og Ian Jeffs sterkir á miðjunni. -tó HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 30 1 2 3 4 5 6 Sunnudagur JÚLÍ ■ ■ SJÓNVARP  11.30 Formúla 1 á RÚV.  15.00 Hnefaleikar á Sýn.  15.50 Bikarkeppnin í sundi á RÚV.  17.05 Gillette sportpakkinn á Sýn.  17.35 Kraftasport á Sýn.  18.05 Bandaríska mótaröðin í golfi á Sýn.  19.00 PGA golf á Sýn.  21.55 Helgarsportið á RÚV.  22.00 NBA körfuboltinn á Sýn. Glæsimörk glöddu augað í Eyjum 3. júlí 2005 SUNNUDAGUR Fylkismenn ger›u gó›a fer› til Eyja í Landsbankadeild karla í gær og unnu 3-0 sigur á slökum heimamönn- um. Me› sigrinum styrktu Fylkismenn stö›u sína í fjór›a sæti deildarinnar en ÍBV er enn flá næst ne›st. FÓTBOLTI Leikurinn í gær fór ró- lega af stað en þó voru Eyjamenn meira með boltann fyrsta kortert- ið og sköpuðu sér tvö ágæt færi. Fljótlega náðu Fylkismenn betri tökum á leiknum og jafnaðist hann nokkuð. Þegar um 20 mínút- ur voru liðnar af leiknum komst Björgólfur inn fyrir vörn ÍBV en Birkir varði með góðu úthlaupi. Um 10 mínútum seinna varði Páll Hjarðar á línu eftir þunga sókn Fylkismanna og ljóst í hvað stefndi. Gestirnir komust loksins yfir á 35. mínútu þegar Björgólfur Takefusa átti skot að marki eftir góða sókn og hafnaði boltinn í fjærhorninu, óverjandi fyrir Birki. Vegmúli 2 108 Reykjavík sími 568 0510 www.bailine.is Nýtt á Íslandi Fyrir konur 18 ára og eldri. Bailine opnar 4. júlí 2005 Þúsundir kvenna víðsvegar um heiminn hafa náð frábærum árangri með Bailine vaxtarmótunarmeðferð. Tímapantanir í síma 568 0510. Þú hefur engu að tapa nema sentimetrum. Bailine byggir á 3 grundvallaratriðum Leiðbeiningum um mataræði Líkamlegri þjálfun Andlegri þjálfun Tölvustýrt þjálfunartæki Mótar, styrkir, þjálfar, grennir, nuddar Eykur brennslu Eykur orku og almenna vellíðan Kynntu þér opnunartilboð okkar. Við bjóðum þig velkomna í fríann prufutíma og vaxtargreiningu á meðan þú slakar á í notalegu umhverfi. > Við hrósum ... ... þeim fjölmörgu íslensku atvinnumönnum sem eru staddir heima á Íslandi í sumarfríi um þessar mundir en halda sér í formi sjálfir með því að stunda líkamsræktar- stöðvarnar af krafti. Í Laugum er ávallt margt um manninn en síðustu vikur hafa meðal annarra fótboltakapparnir Gylfi Einarsson og Hermann Hreiðarsson, handboltatröllið Sigfús Sigurðsson og bræðurnir Ólafur og Jón Arnór Stefánssynir sést daglega. Heyrst hefur ... ... að enska 1. deildarfélagið Watford, hið sama og Heiðar Helguson lék með í fimm ár áður en hann skipti yfir í Fulham fyrir skemmstu, sé í leit að öflugum miðverði og horfi hýru auga til íslenska U-21 árs landsliðsmannsins Sölva Geirs Ottesen, leikmanni Djurgarden, í því samhengi. 60 SEKÚNDUR Hvaða liði myndirðu aldrei spila með? No comment. Hver er erfiðasti andstæðingurinn? Ég sjálf. Auðveldasti andstæðingur? Hrefna í KR. Kók eða pepsí? Pepsí Max. Kaffi eða te? Kaffi. Sóma eða júmbó samlokur? Hvor- ugt. Er glasið hálffullt eða hálftómt? Hálffullt. Íslenski boltinn er ... fallegasta knattspyrna í heimi. Besta knattspyrnukona heims? Silke Rottenberg, þýski landsliðs- markmaðurinn Besti samherjinn? Ólína í Breiðablik. Danmörk eða Bandaríkin? Dan- mörk. Jörundur Áki eða Helena? Bæði. Kemst kvennalandsliðið einhvern tímann á stórmót? Já, ef rétt er haldið á spöðunum. Grænt eða svarthvítt? Grænt. MEÐ EDDU GARÐARSDÓTTUR sport@frettabladid.is GENGUR LÍTIÐ Guðlaugur Baldursson, þjálfari Eyjamanna, á í erfiðleikum með að stilla strengi síns liðs þessa dagana. Heimavöllurinn hefur verið aðall liðsins það sem af er Íslandsmótinu en í gærkvöld steinlá liðið á Hásteinsvelli gegn Fylki. 20 > Við hrósum ... .... Björgólfi Takefusa, sóknarmanni Fylkis, hann hélt uppteknum hætti gegn ÍBV í gær og fór á kostum. Björgólfur hefur skorað í öllum leikjunum sem hann hefur tekið þátt í gegn ÍBV frá því að hann hóf að leika í efstu deild. Alls sjö mörk í fimm leikjum. Robinho og Real hafa komist að samkomulagi: A›eins undirskriftin er eftir FÓTBOLTI Fátt getur komið í veg fyrir að brasilíski knattspyrnu- maðurinn Robinho, sem sló svo eftirminnilega í gegn á nýaf- staðinni Álfukeppni, gangi til liðs við Real Madrid. Að sögn Emilios Butragueno, yfirmanns knattspyrnumála hjá Real, er þegar búið að ná samkomulagi á milli leikmannsins og félagsins og á Robinho aðeins eftir að skrifa undir samninginn. „Robinho er búinn að vera at- hyglisverðasti leikmaðurinn á síðasta ári og við erum mjög ánægðir með að hafa klófest jafn efnilegan leikmann og hann er. Þrátt fyrir að vera ungur að árum trúum við að hans framlag á næsta ári geti fært Real spænska meistaratitilinn á næstu leiktíð,“ sagði Butragu- eno og bætti við að Wanderley Luxemborgo, þjálfari liðsins, væri í skýjunum með að eiga möguleika á að stilla Robinho upp í sínu liði á næstu árum. Robinho nánast kvaddi aðdá- endur Santos í sjónvarpsviðtali að loknum úrslitaleiknum í álfu- keppninni og tilkynnti þá að hann langaði að fara til Madrid. Í fyrradag skrópaði hann síðan á æfingu Santos, félagsins í Bras- ilíu sem hann er enn samnings- bundinn, og gefur það enn frek- ar í skyn að Robinho sé hættur hjá félaginu og þegar farinn að huga að framtíð sinni hjá Real. 0-3 Hásteinssvöllur, áhorf: 312 Erlendur Eiríksson (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 7–10 (5–7) Varin skot Birkir 4 – Bjarni 5 Horn 7–6 Aukaspyrnur fengnar 17–15 Rangstöður 2–5 0–1 Björgólfur Takefusa (35.) 0–2 Viktor Bjarki Arnarsson (64.) 0–1 Björgólfur Takefusa (88.) ÍBV Fylkir LEIKIR GÆRDAGSINS Landsbankadeild karla: ÍBV–FYLKIR 0–3 STAÐAN: FH 9 9 0 0 26–5 27 VALUR 9 7 0 2 20–5 21 KEFLAVÍK 9 4 3 2 16–19 15 FYLKIR 9 4 2 3 17–14 14 KR 8 3 1 4 8–11 10 ÍA 8 3 1 4 7–11 10 GRINDAVÍK 9 2 3 4 10–16 9 FRAM 9 2 2 5 10–12 8 ÍBV 9 2 0 7 6–21 6 ÞRÓTTUR 9 1 2 6 11–17 5 Wimbledon-mótið í tennis: Venus vann TENNIS Venus Williams frá Banda- ríkjunum bar sigur úr býtum í kvennaflokki á Wimbledon- mótinu í tennis í gær. Venus sigraði löndu sína Lindsey Davenport í úrslitaleiknum, 2-1, þar sem síðasta settið endaði 9-7. Davenport sigraði fyrsta settið mjög örugglega en Venus sýndi frábæra baráttu og náði að koma aftur og sigra. Þetta var í þriðja sinn sem Venus sigrar þetta stærsta mót hvers árs en áður hafði hún unnið 2000 og 2001. ÞÆR BESTU Venus og Lindsay taka á móti verðlaunaskjöldunum eftir leikinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.