Fréttablaðið - 03.07.2005, Side 24

Fréttablaðið - 03.07.2005, Side 24
8 ATVINNA Verksvið: Umsjón með félagsmiðstöðvarstarfi fyrir unglinga á vegum Ársels. Skipulagning starfs í samráði við unglinga og starfsfólk stöðvarinnar. Samskipti og samstarf við foreldra og annað starfsfólk sem kemur að starfi með unglingum. Ýmiss konar upplýsinga-, forvarnar- og kynningarstarf. Hæfniskröfur: Háskólamenntun á sviði uppeldis og/eða sambærilega menntun. Reynsla af vinnu með börnum og unglingum. Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, frumkvæði og framtakssemi. Almenn tölvukunnátta auk skipulags- og stjórnunarhæfileika. Hlutastarf í félagsmiðstöð Um er að ræða 33% hlutavinnu seinni hluta dags og á kvöldin við undirbúning og framkvæmd félagsstarfs fyrir unglinga á vegum miðstöðvarinnar. Starfið er tilvalið fyrir fólk sem vill afla sér reynslu á þessu sviði. Umsækjendur þurfa að vera orðnir tvítugir, vera góðir í mannlegum samskiptum og hafa frumkvæði og hugmyndaauðgi. Nánari upplýsingar er að fá í Árseli í síma 567-1740. Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí n.k. Umsóknum skal skilað til Frístundamiðstöðvarinnar Ársels, Rofabæ 30– 110 Reykjavík. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Spennandi lausar stöður í Frístundamiðstöðinni Árseli Frístundamiðstöðin Ársel, v/Rofabæ 110 Reykjavík • sími: 567 1740 • www.arsel.is 2 verkefnastjórastöður (Félagsmiðstöðin Ársel og í Ingunnarskóla) Um er að ræða fjölbreytt 100% starf í skemmtilegu umhverfi. Frístundamiðstöðin Ársel var stofnuð haustið 1981 og er rekin af Íþrótta- og tómstundarsviði Reykjavíkur. Ársel hefur umsjón með starfssemi tveggja félagsmiðstöðva og sex frístundaheimila í Árbæjarhverfi, Grafarholti og Norðlingaholti. Miðstöðin skipuleggur fjölbreytt tómstundanámskeið í grunnskólum, sumarnámskeið fyrir börn ásamt því að vera virkur þátttakandi í fjölbreyttu hverfasamstarfi. Hjá Árseli starfa að jafnaði um eitt fimmtíu starfsmenn og er sérstök áhersla lögð á jákvæðan starfsanda og góða liðsheild. • • • • • • • • Starf í útkeyrslu Vegna góðrar verkefnastöðu vantar okkur hjá Steypustöðinni starfsmenn með meirapróf í út- keyrslu á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Starfið felst í akstri steypubíls og afhendingu á steypu. Umsóknir ásamt ferillýsingu sendist fyrir föstudaginn 1.júlí 2005 á skrifstofu til eftirfarandi aðila: Höfuðborgarvæðið. Sendist á Malarhöfða 10, Reykjavík eða í tölvupósti á netfangið : sveinn@steypustodin.is. Sveinn svarar fyrirspurnum í síma 840-6810. Suðurland. Sendist á Hrísmýri 8, Selfoss eða í tölvupósti á net- fangið : snorri@steypustodin.is. Snorri svarar fyrir- spurnum í síma 840-6882. Umsækjandi þarf að hafa vilja til að taka þátt í þróttmikilli og metnaðarfullri starfssemi okkar þar sem þjónusta, öryggi og vörugæði eru í fyrirrúmi. Vinnutími getur bæði orðið langur og breytilegur. Starf í framleiðslu Steypustöðin Járn & Lykkjur óskar að ráða starfs- mann í framleiðslu. Starfið felst í afgreiðslu járna- pantana, vinna við tölvustýrða beygjuvél á fram- leiðslu úr kambstáli, vinna við suðu á kambstáli og umsjón með járnalager. Leitað er að ábyrgum, samviskusömum einstaklingi sem er röskur, nákvæmur og samstarfslipur með frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Vinnutími er frá kl. 8-18 virka daga. Umsóknir ásamt ferillýsingu sendist fyrir föstudaginn 1.júlí 2005 á skrifstofu á Malarhöfða 10, Reykjavík eða í tölvupósti á netfangið : ingi@steypustodin.is. Steypustöðin ehf. er framsækið þjónustu og fram- leiðslufyrirtæki sem skapar ásamt viðskiptavinum sínum verðmætar gæðalausnir. Hólmgeir Hólmgeirsson starfar sem lána- fulltrúi hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Þar tekur hann á móti viðskiptavinum og veitir þjónustu og upplýsingar um allt sem snýr að lánum. „Starf mitt er í raun mjög víðtækt og snýr að allri þjónustu varðandi þá vöruflokka sem við erum með. Við bjóðum til dæmis upp á fast- eignalán, bílalán, sumarhúsalán og nýbygginga- lán og öllu þessu fylgir heilmikil þjónusta,“ seg- ir Hólmgeir aðspurður um hlutverk lánafulltrú- ans. „Ég tek á móti fólki og reyni að þjónusta það frá a til ö. Veiti ráðleggingar og upplýsingar um hvað er í boði, aðstoða við greiðslumat, skulda- bréf og alls konar umsóknir og pappíra. Þetta er í raun alhliða fjármálaþjónusta sem snýr að öllu sem lýtur að lánum,“ segir Hólmeir, sem er rekstrarfræðingur og hefur unnið hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum frá árinu 1999. Hólmgeir segir að almennt sé fólk vel upplýst um lánamöguleika og fáir taki lán án þess að hafa hugleitt það vel. „Auðvitað er misjafnt hvað fólk veit og við fáum alls konar spurningar. Ég held samt að flestir hafi skoðað þessi mál áður en þeir leita til okkar. Það er mikil samkeppni á lánamarkaðnum en það sem við græðum á er það að fólk þarf ekki að binda sig í viðskiptum hjá okkur. Þeir sem taka lán hjá okkur geta ver- ið með bankaviðskipti hvar sem er.“ Hólmeir vinnur langan vinnudag og það er alltaf nóg að gera. „Við opnum klukkan níu en ég reyni að mæta klukkan átta og nota tímann vel áður en viðskiptavinirnir fara að streyma inn. Það þarf að skipuleggja daginn og fara í gegnum ýmsa pappírsvinnu sem ekki gefst tími til yfir daginn. Oftast vinn ég til klukkan hálf fimm eða fimm en þegar mikið er að gera þarf ég að vera hér lengur,“ segir Hólmgeir, sem er ánægður í starfinu. „Þetta er stórkostlegur vinnustaður og vinnufélagarnir eru eiginlega orðnir bestu vinir manns. Það sem er skemmtilegast við starfið er það að maður er alltaf að hitta nýtt og nýtt fólk. Þótt verkefnin séu þau sömu er þetta langt frá því að vera staðnað því allir viðskiptavinirnir eru ólíkir.“ Hólmgeir viðurkennir að stundum geti starfið verið erfitt enda sé alltaf leiðinlegt að þurfa að neita fólki. „Maður vill geta hjálpað en það er ekki alltaf hægt. Stundum þarf maður nauðugur að neita fólki um lán en það eru alltaf góðar ástæður fyrir því. Oft er líka hægt að bjóða upp á aðra möguleika eða eitthvað slíkt. Flestir sem koma hingað eru mjög ánægðir og við fáum reglulega jákvæðan tölvupóst frá ánægðum viðskiptavinum.“ Þessa dagana er Frjálsi fjárfestingarbankinn að flytja í nýtt húsnæði í Lágmúla og segir Hólmgeir þær breytingar spennandi. „Þarna verður allt sérhannað og nýtt þannig að þessi góði vinnustaður verður eflaust enn betri.“ thorgunnur@frettabladid.is Skemmtilegast að kynnast nýju fólki Hólmgeir segir að starfið sé lifandi og skemmtilegt. Hann hittir mikið af fólki í gegnum starfið og segir vinnufélagana góða vini. Handlaginn húsvörður óskast í 50% starf Samskipti ehf. leitar að starfsmanni til að sjá um fasteignir fyrirtækisins og annað þeim tengdum. Fjölbreytt verkefni fylgja með. Okkur vantar góðan liðsfélaga sem er hress, laghentur, vandvirkur og sjálfstæður í vinnu- brögðum. Upplýsingar um starfið fást hjá Ragnari í síma 580 7813 eða 693 7813.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.