Fréttablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 2
2 5. júlí 2005 ÞRIÐJUDAGUR Sáttatillaga framsóknarmanna vegna R-listans: Samfylking fær bestu bitana BORGARMÁL Ný tillaga framsókn- armanna vegna áframhaldandi samstarfs R-listans í Reykjavík gerir ráð fyrir að Samfylkingin fái fyrsta val um borgarstjóra, formann borgarráðs og forseta borgarstjórnar samkvæmt heim- ildum Fréttablaðsins. Í gær fór fram fundur meðal samstarfsnefndar Reykjavíkur- listans en þar voru ýmsar tillög- ur ræddar fram og aftur. Ágrein- ingur hefur verið með hvaða hætti hver flokkur skuli bjóða fram og einnig hvernig listinn í heild eigi að líta út fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Hefur Samfylkingin gert þar kröfur sem öðrum hefur litist miður á. Þorlákur Björnsson, Fram- sóknarflokki, segir enn töluvert í samkomulag milli flokkanna en á næsta fundi muni skýrast hvort Samfylkingin hafi í raun hug á að starfa áfram með hinum flokk- unum og boltinn sé hjá þeim. Margar tillögur hafa þegar verið lagðar fram en fundar- menn gefa sér nú eina viku fyrir næsta fund að ákvarða hvort sátt náist um hugmynd Framsóknar og standa vonir til að svo verði enda vilji flestra að klára þessi mál sem fyrst. Páll Halldórsson, fulltrúi Samfylkingar í samráðshópnum, sagði málin öll í réttum farvegi. „Það hafa komið fram gildar hugmyndir á öllum okkar fund- um og öll þessi vinna snýst um að ná samkomulagi um þær. Það tekur tíma að velta þeim hug- myndum á milli og kannski fæst vænleg niðurstaða og kannski ekki.“ Svandís Svavarsdóttir frá Vinstri grænum sagði fundinn hafa gengið bærilega en hún seg- ir að tíminn sé orðinn knappur. „Ég hefði viljað sjá þetta ganga hraðar fyrir sig enda nóg af öðr- um málefnum sem taka þarf til skoðunar.“ - aöe Eftirköst vatnsviðrisins á Austurlandi um helgina: Vi›ger›um hvergi nærri loki› VEÐUROFSI Viðgerðir eru í fullum gangi á vegum sem skemmdust í vatnsviðrinu á Austurlandi um helgina. Vegurinn um Fagradal milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða fór í sundur eftir skriðu og að sögn starfsmanna Vegagerðarinn- ar á Reyðarfirði gengur viðgerðin sæmilega. Í gær var enn mikið vatnsveður á Austurlandi sem gerði viðgerðarmönnum erfitt fyrir. Búist er við að bráðaviðgerð verði ekki lokið á veginum fyrr en seinna í vikunni og lengri tíma tekur að gera yfirborðið eins gott og það var. Á Fáskrúðsfirði eru bæjar- starfsmenn komnir á fullt með viðgerðir á skemmdum af völdum vatnsins. Tveir lækir flæddu þar úr farvegi sínum og skemmdu lóð- ir og götumannvirki. „Það tekur einhverja daga að gera við þetta en við erum byrjuð,“ segir Björg- vin Baldursson bæjarverkstjóri á Fáskrúðsfirði. Stærstu viðgerð- irnar eru á lóðum sem létu á sjá eftir vatnsmagnið og nefnir hann til dæmis að miklar skemmdir séu á skólalóðinni við grunnskólann. Björgvin vildi ekkert segja um áætlaðan kostnað á viðgerðunum „Við lögum þetta og svo sjáum við hvað það kostaði.“ ■ Helgi segir fleiri spurningar vakna Helgi Hjörvar segir fla› vekja upp spurningar a› Ker hafi skrifa› undir afsal a› flokksskrifstofum Framsóknar um fla› leyti sem Búna›arbanki var seldur ári› 2002. A›dróttanir úr lausu lofti gripnar segja framsóknarmenn sem keyptu húsi› 1997. STJÓRNMÁL Eignarhaldsfélagið Ker afsalaði sér húseigninni að Hverf- isgötu 33 í Reykjavík til tveggja félaga Framsóknarflokksins skömmu eftir að samþykkt var að ganga til viðræðna við S-hópinn um kaup á Búnaðarbankanum en Ker hf. leiddi þann hóp. Helgi Hjörvar, alþingismaður Samfylkingarinnar, hefur ritað Magnúsi Stefánssyni, formanni fjárlaganefndar Alþingis, bréf þar sem farið er fram á skýringar á því hvort rétt sé að þetta hafi verið gert á sama tíma og unnið var að gerð kaupsamnings vegna Búnaðarbankans og hver þáttur Halldórs Ásgrímssonar, forsætis- ráðherra, í ferlinu hafi verið. Í bréfi Helga til Magnúsar seg- ir Helgi ýmsu ósvarað varðandi þátt forsætisráðherra við sölu rík- isins á Búnaðarbankanum. Varpar hann fram þremur spurningum sem hann óskar svara við. Vill hann fá skýringar á fullyrðingum Ríkisendurskoðanda að enginn söluhagnaður hafi verið af við- skiptum Hesteyrar með bréf í Keri þegar svör Kauphallar Ís- lands benda til að verðmæta bréfa hafi hækkað meðan á einkavæð- ingarferlinu hafi staðið um hálfan milljarð króna. Helgi vill einnig fá skjalfest hvort eða hvenær Halldóri hafi verið kunnugt um kaup Skinneyjar- Þinganess í Hesteyri og kaup Hest- eyrar í Keri í kjölfarið en um það hefur forsætisráðherra verið tví- saga að mati Helga. Hefur hann óskað þessara upplýsinga sem fyrst og segir mikilvægt að sann- leiksgildið sé kannað til hlítar. Hvorki náðist í Halldór Ás- grímsson né Magnús Stefánsson þegar eftir var leitað og Sigurður Þórðarson, ríkisendurskoðandi, vildi ekki tjá sig. Framsóknarflokkurinn sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöld þar sem segir að flokkurinn hafi keypt húsið 1997 og flokkurinn flutt skrifstofur sínar þangað 1998. Dráttur hafi hins vegar orð- ið á að gengið hafi verið frá afsali að eigninni en í millitíðinni hafi Framsóknarflokkurinn borið allan kostnað af rekstri hússins. Því séu aðdróttanir um að kaupin á Hverf- isgötu 33 tengist sölu Búnaðar- bankans algjörlega úr lausu lofti gripnar. albert@frettabladid.is Verðhækkun hjá olíufélögunum: Dísilolía d‡rari en bensín NEYTENDUR Dísilolía er nú orðin dýrari en bensín eftir síðustu hækkanir olíufélaganna Olís, Esso, og Skeljungs í gær en þá hækkaði verð á dísilolíu um eina krónu á hvern lítra. Ástæðan er hækkandi heims- markaðsverð en aðeins eru fjórir dagar síðan breytingar urðu á skattlagningu dísilolíu sem áttu að leiða til þess að almenningur keypti dísilknúna bíla í stað bensín- bíla. Hefur Geir H. Haarde sagt að það hafi aldrei verið fyrirséð að verð á hvern lítra dísilolíu yrði dýrari en bensínlítri en það er orð- ið staðreynd. - aöe MARGIR UM HITUNA Eftirspurn eftir lóðum fer ekkert minnkandi. Þvert á móti virðist hún aukast víða á landinu en þó mest suðvestanlands. Lóðaúthlutun við Elliðavatn: Mikil örtrö› LÓÐAÚTHLUTUN Miklar annir voru hjá bæjarskipulagi Kópavogs í gær en þá rann út frestur til að skila inn umsóknum vegna úthlut- unar byggingaréttar fyrir íbúðir í fyrirhuguðu Þingahverfi við El- liðavatn. Ekki lá nákvæmlega fyrir hversu margar umsóknir bárust í heildina áður en frestinum lauk en talið er að um tvö til þrjú þús- und hefðu borist áður en yfir lauk. Það er í samræmi við fyrri úthlut- anir en gríðarleg eftirspurn virð- ist vera á stærri lóðum eins og þeim sem til stendur að byggja á í Þingahverfi. - aöe LAUGAVEGI 87 • SÍMI 511 2004 Vegna sameiningar Dún og fiður hreinsunar og Dún og fiður sérverslunar bjóðum við frítt með hverri sæng sem kemur í hreinsun; Nýtt ver utan um koddan SPURNING DAGSINS Gísli, ertu neytönd? Ætli ég sé ekki frekar neytörn því ég á að vaka yfir hagsmunum og réttindum neyt- enda. Landsmenn allir eru neytendur og er Gísli Tryggvason nýtekinn við nýju embætti talsmanns þeirra. KOMIÐ TIL RAUFARHAFNAR Gott veður var þegar Kjartan kom til Raufarhafnar í síð- ustu viku en hann segist vindbarinn eftir strekking síðustu daga. Hringróðurinn: Í vandræ›um af völdum ve›urs STYRKTARRÓÐUR Kjartan Jakob Hauksson, róðrarkappinn sem er að róa hringinn í kringum landið til styrktar Sjálfsbjörgu, ætlaði í gær að freista þess að róa fyrir Langa- nes. Stefnan var sett á Bakka- eða Vopnafjörð en hann átti von á að gista í fjörunni á sunnanverðu Langanesi í nótt. „Veðrið hefur ver- ið slæmt undanfarna daga og á laugardaginn lá við að ég lenti í ógöngum en ég náði landi við Heið- arnes á norðanverðu Langanesi,“ segir Kjartan. - kk Hvalarannsókn: Vei›a má 39 hrefnur HVALVEIÐAR Veiða má allt að 39 hrefnur í ár samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins. Náist það verður búið að veiða hundrað af tvö hundruð hrefnum sem veiða á samkvæmt hvalarann- sóknaáætlun Hafrannsóknastofn- unar. 25 hrefnur voru veiddar í fyrra og 36 árinu áður. Veiðarnar hafa verið smærri í sniðum en upphaf- lega var gert ráð fyrir. Auk hrefn- anna á að veiða tvö hundruð lang- reyðar og hundrað sandreyðar.- bþg SKEMMDIR Á FÁSKRÚÐSFIRÐI Bæjarstarfsmenn á Fáskrúðsfirði eiga mikið verk fyrir hönd- um í viðgerðum á götum og görðum sem fóru illa út úr flóðum um helgina. Enn rigndi á Austurlandi í gær og gerði veðrið viðgerðarmönnum erfitt fyrir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H JA LT I S TE FÁ N SS O N HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Helgi Hjörvar telur ýmsu ósvarað varðandi þátt forsætisráðherra í bankasölumálinu. Nýjar upplýsingar sem Ríkisendurskoðandi hafði ekki vitneskju um benda til að fleiri félög tengd forsætisráðherra hafi átt í viðskiptum við Ker hf. þegar einkavæðing bankanna stóð yfir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R TÖLUVERÐ VINNA ENN EFTIR Fundir flokk- anna sem standa að R-lista samstarfinu ganga bærilega en það gæti skýrst í næstu viku hvernig framboðsmálum listans fyrir næstu borgarstjórnarkosningar verður end- anlega háttað.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.