Fréttablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 28
Gestir í fertugsafmæli Gunnars Guðbjörnssonar óperusöngvara eiga von á góðu í dag því mat- maðurinn mikli og kona hans, Ólöf Breiðfjörð, voru komin í eldhúsið klukkan tíu í gærmorg- un til að undirbúa veisluna. „Það verður einhvers konar pinnamatur en þó nokkuð mat- mikill. Alla vega verður ekkert kjúklingafæði,“ segir Gunnar og hlær. Hann viðurkennir fúslega að honum þyki gott að borða og hann er sjálfur duglegur við matseldina. „Ég er sífellt eld- andi, bæði hér heima og þegar ég er í útlöndum.“ Gunnar ferðast mikið starfs síns vegna og dvelur við söng í útlöndum í allt frá nokkrum dög- um upp í vikur og jafnvel mán- uði í senn. Þegar stoppin eru lengri reynir hann að fá íbúðir til afnota frekar en að búa á hót- elum og eldar þá ofan í sig sjálf- ur enda finnst honum einmana- legt að fara einn á veitingahús. Gunnar á von á um fjörutíu gestum í afmælið, vinum sínum og ættingjum. „Það verður smá „fonn“, eins og sagt var í gamla daga,“ segir hann. Þegar blaða- maður hváir við að heyra orðið fonn segir Gunnar að það hafi verið notað af fólkinu hans og sé sjálfsagt ættað úr dönsku. Gunnar og fjölskylda eru ný- komin úr fríi í Frakklandi og þangað heldur hann bráðlega á ný til að syngja. Hann sér svo fram á að vera á Íslandi í ágúst og lungann úr haustinu þegar hann syngur í Íslensku óper- unni. Líf atvinnusöngvarans er ekki alltaf dans á rósum, sam- keppnin er hörð og fer enn harðnandi. „Maður þarf að halda sér við efnið og markaðs- setja sjálfan sig,“ segir Gunnar sem er nokkuð sáttur við sína stöðu. Einn af lyklunum að vel- gengni er að geta brugðið fyrir sig mörgum tungumálum, þannig stækkar markaðssvæði söngvarans. Þar er Gunnar vel í sveit settur því hann talar sjö tungumál og getur sungið á enn fleirum. „Ég var í máladeild í Verslunar- skólanum á sínum tíma og átti reyndar í hálfgerðum vandræðum með stærðfræðina,“ segir Gunnar sem telur litla stærðfræðiþekkingu ekki há sér alvarlega. „Maður getur reiknað út hvað maður fær í kaup og hvernig maður á að eyða því. Reyndar er alltaf auðveldara að finna út hvernig maður á eyða,“ segir Gunnar hlæjandi. ■ 20 5. júlí 2005 ÞRIÐJUDAGUR CECIL RHODES (1853-1902) fæddist þennan dag. Það verður smá „fonn“ GUNNAR GUÐBJÖRNSSON ÓPERUSÖNGVARI ER FERTUGUR Í DAG. „Mundu að þú ert Englendingur og hefur því unnið fyrstu verðlaun í happdrætti lífsins.“ -Cecil Rhodes var breskur heimsvaldasinni sem kenndi Afríkulandið Rhodesíu (þekkt í dag sem Simbabve) við sjálfan sig. timamot@frettabladid.is ANDLÁT Þóra Guðlaug Þorsteinsdóttir, Lokastíg 18, Reykjavík, lést á Landspítalanum 30. júní. Tómas Magnússon, Stóru-Sandvík, Sel- fossi, lést föstudaginn 1. júlí. JAR‹ARFARIR 13.00 Séra Ágúst Kolbeinn Eyjólfsson, prestur í Berge í Þýskalandi, verð- ur jarðsunginn frá Kristskirkju, Landakoti. 13.00 Halldór Sturla Friðriksson, Haða- landi 20, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju. 14.00 Ásta Laufey Haraldsdóttir frá Reyni, Krókatúni 18, Akranesi, verður jarðsungin frá Akranes- kirkju. 14.00 Einar Torfason frá Haga, Horna- firði, verður jarðsunginn frá Hafn- arkirkju. 15.00 Séra Ragnar Fjalar Lárusson verður jarðsunginn frá Hallgríms- kirkju. FÆDD fiENNAN DAG Sesselja Sigmundsdóttir á Sólheimum fæddist 1902. GUNNAR GUÐBJÖRNSSON „Það verður einhvers konar pinnamatur en þó nokkuð matmikill. Alla vega verður ekkert kjúklingafæði.“ Þennan dag árið 2000 fór fram ein stærsta björgunaraðgerð villtra fugla í Suður-Afríku. Yfir átján þúsund afríkumörgæsir höfðu þá verið fluttar í skjól en varpsvæði þeirra á Dassen-eyju, um fimmtíu mílur frá Höfðaborg, voru í hættu vegna olíubrákar. Björgunaðgerðirnar hófust viku fyrr þegar tankskipið Treasure frá Panama sökk úti fyrir Góðrar- vonahöfða með um 14 þúsund tonn af olíu innanborðs. Afríkumörgæsin er eina mör- gæsategundin í Afríku og er talin í útrýmingarhættu. Slysið kom á versta tíma en mökunartímabilið stóð yfir auk þess sem einn þriðji alls stofnsins lifði á sýkta svæð- inu. Í ágúst höfðu um 23 þúsund fuglar verið handsamaðir og þrifnir og sautján þúsund í viðbót verið fluttir frá svæðinu. Í október hafði öllum fuglum verið skilað aftur út í náttúruna. Þúsundir sjálfboðaliða frá Suður-Afríku og um hundrað sérfræðingar frá öll- um heimshornum störfuðu um sextán tíma á dag til að geta þrif- ið um 500 fugla dag hvern en hálftíma tekur að þrífa einn fugl. Kostnaðurinn var gífurlegur en án þeirrar hjálpar er talið að stofninn hefði dáið út fyrir árið 2010. Talið er að um 95 prósent þeirra fugla sem var bjargað hafi lifað af. 5. JÚLÍ 2000 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1080 Ísleifur Gissurarson, fyrsti biskup Íslands, andast. 1811 Venesúela hlýtur sjálfstæði frá Spáni fyrst allra Suður- Ameríkulanda. 1930 Sólheimar í Grímsnesi, fyrsta heimilið hér á landi fyrir þroskahefta, tekur til starfa. 1954 BBC hefur sendingar á sjónvarpsstöð sem ein- göngu sýnir fréttir. 1975 Arthur Ashe sigrar á Wimbledon-tennismótinu. Hann var fyrsti svertinginn til þess. 1983 George Bush, þáverandi forseti Bandaríkjanna, kemur í opinbera heim- sókn til Íslands. 1991 Frakkar framkvæma kjarn- orkutilraunir á Muruora- eyjum. fiúsundum mörgæsa bjarga› FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A AFMÆLI Ólafur Sigurvinsson Hátúni 10 b, er 70 ára. Garðar Halldórsson arkitekt er 63 ára. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, er 61 árs. Jón Stefánsson söngstjóri er 59 ára. Valdimar Örn Flygenring leikari er 46 ára. Í dag ætlar Kristian Guttesen, framkvæmdastjóri skákfélagsins Hróksins, að bjóða bækurnar sínar til sölu við útitaflið í Lækjargötu í Reykjavík. Kristian fetar þar með í fótspor Hrafns Jökulssonar, forseta félagsins, sem seldi sínar bækur á síðasta ári. Líkt og þá rennur ágóði bókasölunnar til starfsemi skákfé- lagsins sem fyrst og síðast snýst um útbreiðslu skáklistarinnar og kynn- ingu hennar fyrir æsku landsins. Bókamarkaður Kristians hefst klukkan tólf á hádegi og verða ýms- ar uppákomur í boði. Til dæmis ætl- ar Henrik Danielsen stórmeistari og skólastjóri Hróksins að tefla við gesti og gangandi og Valdimar Tóm- asson bókasafnari ætlar að veita áhugasömum upplýsingar og fróð- leik um bækur Kristians. Viðbúið er að margt í bókasafni Kristians eigi eftir að fanga hug og hjörtu fólks enda er hann bókelskur í meira lagi. Og hann hefur ekki ein- asta lesið bækur um ævina heldur skrifað þær líka enda var hann í hópi ungskálda um árabil. ■ www.steinsmidjan.is Víkurbraut 46, Grindavík Sími 426 7711 Fax 426 7712 www.es.is Eignamiðlun Suðurnesja Sigurður V. Ragnarsson, löggiltur fasteignasali Snjólaug Jakobsdóttir, sölumaður Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbæ Sími 421-1700 Víkurbraut 46, Grindavík Sími 426 7711 Fax 4 6 7712 www.es.is Sérlega glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum, auk bílskúrs, alls 350 fm. Á eh er stofa, borðstofa, snónvarpshol og 4 svefnherbergi. Á nh eru tvær fullbúnar studio íbúðir. Allar stéttar steyptar og stimplaðar með snjó- bræðslukerfi. Frábær staður, mikið útsýni. Verð 48.000.000.- HEIÐARBAKKI 12, KEFLAVÍK 533 4300 564 6655 Salómon Jónsson lögg. fasteignasali Vilhjálmur Bjarnason lögg. fasteignasali Fallegt vel viðhaldið ca 189,2 fm endaraðhús í Hvömmunum í Hafnarfirði. Bjart og rúmgott hús m. stóru eldhúsi. Rúmgott fjölskyldurými við eldhús. Innangengt í bílskúr, stórir sólballar báðu megin við húsið. Eign í sérflokki. Verð 35.7m. Raðhús Hafnarfirði KRISTIAN GUTTESEN Selur bækurnar sínar við útitaflið í Lækjargötu í dag. BÓKSALA VIÐ ÚTITAFLIÐ: FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Bækur fyrir skák

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.