Fréttablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 5. júlí 2005 23 Alex Ferguson, knattspyrnustjóriManchester United, hefur lagt blessun sína yfir stefnuskrá sona Malcoms Glazer og biður stuðnings- menn liðsins að hafa sig hæga svo allir geti einbeitt sér að knattspyrnu. Ferguson átti fund með bræðrunum um helgina og segir ljóst að þeim sé mikið í mun að styðja við bakið á félaginu í því sem það hyggst taka sér fyrir hendur. „Þetta hefur verið erfiður tími fyrir alla sem að liðinu koma, en nú er kominn tími til að einbeita sér að því sem skiptir máli í þessu, fótbolt- anum sjálfum,“ sagði Ferguson. Strigakjafturinn Craig Bellamy hjáNewcastle mun ekki hefja æfing- ar með félögum sínum í liðinu í vik- unni, heldur hefur honum verið veittur vikufrestur til að finna sér annað félag til að leika með á næstu leiktíð. Uppúr sauð milli hans og fyrirliðans Alan Shearer á síð- ustu leiktíð, eftir að Bellamy sendi Shearer háðsglósur vegna aldurs hans með SMS skilaboðum eftir einn tapleikinn hjá Newcastle, en þá eru líka litlir kærleikar milli hans og knattspyrnustjórans Graeme Souness og því virðist sem hann eigi sér enga framtíð hjá félaginu. ÚR SPORTINUGerrard er á lei› frá Liverpool FÓTBOLTI Struan Marshall, um- boðsmaður Stevens Gerrard, fyrir- liða Liverpool, olli miklu fjaðrafoki í gær þegar hann lýsti því yfir í viðtali við breska ríkisút- varpið að samningaviðræður milli Gerrards og Liverpool væru komnar í ógöngur og myndu lík- lega ekki halda áfram. Rafael Benitez, knattspyrnu- stjóri Liverpool, hélt strax í kjöl- farið blaðamannafund þar sem hann lýsti því yfir að hann vildi endilega halda Gerrard hjá félag- inu, þrátt fyrir orðróm þess efnis að þeir hefðu rifist heiftarlega á æfingasvæði félagsins um helgina. „Ég hef alltaf sagt að ég vilji halda Gerrard hjá Liverpool. Ég vonast til þess hann verði þjálfari hér þegar hann hættir að leika. Síðan væri fínt ef hann yrði aðstoðar- stjóri og jafnvel knattspyrnustjóri þegar ég hætti. Ég er að reyna að byggja upp lið hérna sem getur unnið titla og ég vil einfaldlega gera allt til þess að halda Gerr- ard.“ Á fundinum tilkynnti Benitez um kaup á fjórum nýjum leik- mönnum. „Þessir fjórir leikmenn munu styrkja leikmannahóp fé- lagsins mikið. Ég stefni einnig á að fá til mín tvo til þrjá leikmenn í næstu viku.“ Þessir nýju leikmenn eru José Reina, fyrrum markvörður Villar- eal; miðjumaðurinn Mark Gonza- les, landsliðsmaður Chile; Antonio Barragan, vinstri bakvörður sem kemur frá Sevilla, og Hollending- urinn Boudewijn Zenden sem kem- ur frá Middlesbrough. Benitez var óánægður með yfir- lýsingar umboðsmanns Gerrards og sagði þær ótímabærar. „Ég hef þrisvar sinnum reynt að hefja samningaviðræður við Steven Gerrard en hann hefur alltaf sagt okkur að bíða . Núna ætlum við að reyna semja en þá kemur þessi yf- irlýsing frá umboðsmanninum. Þetta kemur töluvert á óvart.“ Chelsea og Real Madrid reyna nú að lokka Gerrard til sín en lík- legt er talið að félögin þurfi að greiða yfir þrjátíu milljónir punda fyrir leikmanninn. -mh HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 19 20 21 22 23 24 25 Sunnudagur MAÍ ■ ■ LEIKIR  19.15 Grindavík mætir Fylki á Grindavíkurvelli í VISA-bikarkeppni karla.  19.15 HK tekur á móti Keflvíking- um á Kópavogsvelli í VISA-bikar- keppni karla.  19.15 ÍBV mætir Njarðvík í Eyjum í VISA-bikarkeppni karla.  19.15 FH tekur á móti KA á Kaplakrikavelli í VISA-bikarkeppni karla.  19.15 Þór fær Fram í heimsókn til Akureyrar í VISA-bikarkeppni karla.  18.00 ÍA tekur á móti ÍBV í Landsbankadeild kvenna.  20.00 Valur fær Breiðablik í heimsókn í Landsbankadeild kvenna.  20.00 Stjarnan mætir KR í Garðabænum í Landsbankadeild kvenna. ■ ■ SJÓNVARP  18.25 Ofurhugaleikar á Sýn.  19.20 Strandblak kvenna á Sýn.  22.30 Toyota-mótaröðin í golfi á Sýn. Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea: FÓTBOLTI Það fer ekki á milli mála að undirbúningstímabilið í ensku knattspyrnunni er að byrja, því Jose Mourinho, knatt- spyrnustjóri Chelsea, er byrjað- ur að gefa út yfirlýsingar. Í samtali við enska fjölmiðla um helgina sagði Portúgalinn að hann teldi mesta eyðslutímabilið afstaðið hjá félaginu og segir að framvegis verði mun minni um- svif í leikmannamálum. Þá tjáði hann sig um komu sína inn í ensku úrvalsdeildina í fyrra og viðurkenndi að stór- karlalegar yfirlýsingar sínar hefðu allt eins getað komið hon- um í bobba og sagðist hann í raun heppinn að herbragð hans hefði virkað. „En við náðum frábærum ár- angri í fyrra og mér finnst töl- urnar tala sínu máli þegar ég segi að við séum besta lið í sögu úrvalsdeildarinnar,“ sagði Portúgalinn. - bb Vi› erum besta li› sögunnar FÓTBOLTI FH hefur keypt Davíð Þór Viðarsson af Lilleström í Noregi, en hann hefur verið á lánssamn- ingi frá norska félaginu í sumar. Davíð, sem er uppalinn hjá FH, var búinn að vera samningsbund- inn Lilleström í á fjórða ár. Guðmundur Árni Stefánsson, formaður knattspyrnudeildar FH, var ánægður með að kaupin væru gengin um garð. „Þetta eru ánægjuleg tíðindi fyrir FH og mun styrkja lið félagsins til langs tíma.“ Davíð æfði vel með Lilleström á undirbúningstímabilinu, en í ljós kom að hann gat ekki byrjað að spila með norska félaginu fyrr en eftir fyrsta júlí þar sem ekki var gengið frá félagsskiptum hans frá FH, þar sem hann spilaði sem lánsmaður í fyrra, til Lil- leström í tæka tíð. - mh Á FÖRUM Samningaviðræður milli Stevens Gerrard og Liver- pool sigldu í strand um helg- ina, en talið var að Gerrard myndi fyrr en seinna skrifa undir langan samning við fé- lagið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES Knattspyrnufélögin Chelsea og Real Madrid reyna nú allt sem í fleirra valdi stendur til fless a› fá Steven Gerrard, fyrirli›a Liverpool, til sín. Landsbankadeild karla: FH búi› a› kaupa Daví› KÖRFUBOLTI Landsliðsmaðurinn Darrel Lewis, sem undanfarin ár hefur leikið með liði Grindavíkur í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, hefur skrifað undir samning við ítalska liðið Cimberio Novara, sem leikur í annarri deild þar í landi. Lewis hefur um allnokkurn tíma verið að leita sér að liði og vildi helst reyna sig á erlendri grundu eftir nokkur ár í úrvals- deildinni á Íslandi. Ljóst er að hjá ítalska liðinu fer hann í mikið sterkari deild en hér heima, þar hittir hann fyrir Donte nokkurn Mathis sem lék nokkra leiki fyrir Skallagrím fyrir tveim- ur árum, en hefur verið hjá Novara í tvö ár. Liðið hafnaði í fimmta sæti deildarinnar í fyrra og eygir því eflaust möguleika á að komast upp um deild í ár. - bb Körfubolti: Lewis farinn til Ítalíu Aðrir leikir í VISA-bikarnum í gærkvöld: FÓTBOLTI Kristján Finnbogason varði tvær vítaspyrnur fyrir KR í dramatískri vítakeppni gegn Vík- ingum í gærkvöld og var að öðr- um ólöstuðum maðurinn á bak við sigur KR í henni. Hinn 18 ára gamli Gunnar Kristjánsson sýndi stáltaugar þegar hann skoraði úr sjöundu spyrnu KR í vítakeppn- inni en áður höfðu liðin skorað og klúðrað á víxl. Það var mikið fjör í Víkinni í gær og höfðu fjögur mörk litið dagsins ljós á fyrsta hálftíma leiksins. Gestirnir byrjuðu betur og komust í 2-0 með mörkum frá Garðari Jóhannssyni og Gunnari. En með miklu harðfylgi náði 1. deildarlið Víkings að koma sér aftur inn í leikinn. Fyrst minnkaði Davíð Þór Rúnarsson muninn og aðeins þremur mínútum síðar jafnaði Egill Atlason, fyrrum KR- ingur, metin. Grétar Hjartarson kom KR-ingum aftur yfir en Hörður Bjarnason jafnaði á 78. mínútu og því varð að framlengja. Í henni voru Víkingar mun sterk- ari aðilinn en þeir náðu ekki að skora og því varð að grípa til víta- spyrnukeppni þar sem KR-ingar fóru að lokum með sigur eins og áður segir. Eins og við var að búast áttu Valsmenn ekki í teljandi erfiðleik- um með Hauka á heimavelli sín- um og fóru með öruggan 5-1 sigur af hólmi. KR vann eftir vítaspyrnukeppni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.