Fréttablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 30
5. júlí 2005 ÞRIÐJUDAGUR > Við hrósum ... ... forráðamönnum FH fyrir þá herkænsku sem félagið hefur beitt í málum tengdum Davíð Þór Viðarssyni. Davíð, sem er uppalinn hjá FH, var keyptur til Lilleström fyrir fínan pening fyrir fjórum árum en á síðustu tveimur árum hefur hann eytt drjúgum tíma sem lánsmaður hjá Hafnfirðingum. Og nú hefur FH keypt Davíð Þór til baka fyrir mun minni pening en þeir fengu fyrir hann frá norska félaginu á sínum tíma. Fínn gróði hjá Íslandsmeisturunum þar... Heyrst hefur ... ... að félögum í Intersport-deildinni standi mikill uggur af Körfubolta- akademíu Íslands. Þá ekki aðeins vegna þess að sum þeirra munu missa einhverja af sínum bestu ungu leik- mönnum heldur ekki síður vegna þess að þau óttast að lið akademíunnar verði einfaldlega firnasterkt og mjög verðugur andstæðingur. sport@frettabladid.is 22 > Við hrósum ... .... 1. deildarliðum Víkings og Breiðabliks, sem sýndu með frammistöðu sinni í VISA-bikarnum gær að þau eiga fullt erindi í úrvalsdeildina að ári. Pálmi Haraldsson reyndist hetja ÍA í gærkvöld flegar hann skora›i sigurmark li›sins gegn Brei›ablik í VISA-bikar karla í framlengingu. Á›ur höf›u Skagamenn lent undir gegn toppli›i 1. deildarinnar. Skaginn marði sigur í háspennuleik FÓTBOLTI „Það var mjög ljúft að skora þetta mikilvæga mark, sérstaklega þar sem það er ekki svo oft sem maður setur hann,“ sagði mjög svo glaðbeittur Pálmi Haraldsson, miðjumaður Skaga- manna, við Fréttablaðið eftir að hafa skotið Skagamönnum í 8-liða úrslit VISA-bikarsins. Það var fyllilega sanngjarnt að Pálmi skuli hafa skorað fyrir ÍA því að þeir gulklæddu réðu ferð- inni lengst af í leiknum ef undan er skilinn fyrsti hálftíminn. Bæði lið höfðu fengið ágætis færi áður en Kristján Óli Sigurðsson kom taplausu liði Breiðabliks í sumar yfir með frábæru marki eftir hraða sókn. Blikar lögðu áherslu á varnar- leikinn í seinni hálfleik og Skaga- menn voru mun meira með bolt- ann og pressuðu frekar stíft á köflum. Dean Martin fékk gott færi um miðjan hálfleikinn en fast skot hans sigldi rétt framhjá markinu. Á 75.mínútu gerði Ólafur Þórð- arson skiptingu og setti Sigurð Ragnar Eyjólfsson inn, það skilaði árangri sjö mínútum síðar þegar Sigurður skoraði gott skallamark eftir aukaspyrnu. Eftir það gerð- ist fátt, leiktíminn fjaraði út og grípa þurfti til framlengingar. Það var síðan áðurnefndur Pálmi sem skaut Skagamönnum í átta liða úrslitin þegar þrettán mínútur voru liðnar af framleng- ingunni. Hann fékk boltann rétt við endamörk vítateigsins og skaut að marki. Boltinn fór af varnarmanni og þaðan framhjá Hjörvari Hafliðasyni markverði Breiðabliks og inn í markið. - egm LEIKIR GÆRDAGSINS Visa-bikar karla: VÍKINGUR–KR (3–3) 8–9 0–1 Garðar Jóhannsson (15.), 0–2 Gunnar Kristjánsson (27.), 1–2 Davíð Þór Rúnarsson (30.), 2–2 Egill Atlason (33.), 2–3 Grétar Hjartarson (50.), 3–3 Hörður Bjarnason (78.) VALUR–HAUKAR 5–1 1–0 Garðar Gunnlaugsson (18.), 2–0 Sigurður Sæberg Þorsteinsson (35.), 3–0 Baldur Aðalsteinsson (51.), 3–1 Rodney Parry (52.), 4–1 Garðar Gunnlaugsson (65.), 5–1 Garðar Gunnlaugsson (72, víti.), ÍA–BREIÐABLIK 2–1 0–1 Kristján Óli Sigurðsson (26.), 1–1 Sigurður Ragnar Eyjólfsson (85.), 2–1 Pálmi Haraldsson (103.). Landsbankadeild kvenna: FH–KEFLAVÍK 0–6 STAÐA EFSTU LIÐA: BREIÐABLIK 7 7 0 0 28–5 21 VALUR 7 6 0 1 33–9 18 KR 7 4 0 3 23–13 12 ÍBV 7 4 0 3 25–17 12 KEFLAVÍK 7 4 0 4 22–23 9 Körfuboltaakademía Íslands, sem ný- lega var stofnuð á Selfossi, er nýr kostur fyrir efnilega leikmenn hér á landi sem vilja stunda íþrótt sína af miklum krafti, meðfram námi í framhaldsskóla, en akademían verður tengd skólastarfi Fjöbrautaskóla Suðurlands. Athygli vekur að strákarnir sem valdir verða í akademíuna munu keppa sam- an sem lið, en ekki með liði íþróttafé- laganna sem þeir æfðu hjá áður. Þess- ari hugmynd svipar mikið til þess kerfis sem notast er við í Bandaríkjunum, Frakklandi og víðar, þar sem leikmenn æfa hjá skólaliðum og keppa fyrir hönd skólans í mótum. Ólafur Rafnsson, formaður Körfuknatt- leikssambands Íslands, fagnar því að þessi kostur sé í boði. „Almennt séð er sambandið hlynnt nánum tengslum á milli náms og ástundun körfuknattleiks. Lið sem keppir í Íslandsmóti verður að vera skráð hjá félagi innan Íþróttasam- bands Íslands, þannig að skólalið verða að vera skráð með þeim hætti inn í mót. KKÍ er þess vegna ekki tengt þessu verkefni með beinum hætti, þótt Brynjar Karl Sigurðsson, upphafsmaður hugmyndarinnar, hafi kynnt þetta vel fyrir okkur.“ Það færist í vöxt hér á landi að tengja saman nám og íþróttaiðkun og er það afar jákvæð þróun að mati Ólafs. „Það er gott að vita til þess að samstarf um metnaðarfullt nám og íþróttaiðkun sé að aukast. Íþróttaskólinn í Reykjanesbæ verður líka ánægjuleg viðbót, en þar verður námið á háskólastigi. KKÍ hefur ávallt brýnt það fyrir körfuknattleiks- mönnum hér á landi, sem hafa áhuga á því að reyna fyrir sér með bandarískum háskólaliðum, að velja sér skóla sem leggur mikið upp úr því að bjóða upp á metnaðarfullt nám meðfram körfu- boltaiðkuninni. Það er gott til þess að vita að nú bjóðist efnilegum körfuknatt- leiksleikmönnum að gera þetta strax á fram- haldsskólaaldri hér á landi. Vonandi á þetta verkefni eftir að ganga vel.“ ÓLAFUR RAFNSSON FORMAÐUR KKÍ: JÁKVÆTT AÐ TENGJA SAMAN NÁM OG IÐKUN ÍÞRÓTTA Körfuboltaakademían sendir li› til keppni Eskivellir 9 A og B eru tvö samliggjandi stigahús með lyftu, annars vegar með 30 íbúðum og hins vegar með 24 íbúðum, á 6 hæðum. Húsið er steinsteypt á hefðbundinn hátt, einangrað og klætt að utan með báruformaðri álklæðningu þannig að viðhaldskostnaður er lágmarkaður á komandi árum. Íbúðunum verður skilað fullbúnum að utan sem innan, án gólfefna. Baðherbergin eru sérlega glæsileg, flísalagðir veggir og gólf með vönduðum flísum, hornbaðkar með nuddi og innbyggðum hitastýrðum blöndunartækjum og sturtu út úr vegg. Gólf í þvottahúsum verða einnig flísalögð. Vandaðar innréttingar frá MODULIA og öll tæki að vandaðri gerð. Lóð og sameign fullfrágengin. Sjá einnig: www.fmh.is 3ja herbergja 79,9 til 90,6 fm, verð frá 15,9 millj. 4ra herbergja 86,0 til 127,3 fm, verð frá 18,1 millj. 5 herbergja 138,9 fm til 142,1 fm, verð frá 23,4 millj. 22 stæði í bílakjallara Annað: Sérlega stórar svalir (16,2 til 21,9 fm) Stór sérafnotaflötur á jarðhæð (28,0 til 37,5 fm) Stutt í leik- og grunnskóla Traustur verktaki Fagtak ehf. Allar nánari upplýsingar veita sölumenn. Glæsilegar íbúðir að Eskivöllum 9 Hafnar f. 517 9500 Stærðir og verð Eiður Arnarson lögg. fasteignasali Sigursveinn Jónsson Geir Þorsteinsson Sonja MagnúsdóttirViggó Jörgensson Strandgötu 41 - 220 Hafnarfjörður - www.fmh.is Opið virka daga frá kl: 9:00 – 17:00 Á SÍÐUSTU STUNDU Pálmi Haraldsson fagnaði með stæl eftir að hann hafði skotið Skagamönnum í 8-liða úrslit VISA- bikarsins. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.