Fréttablaðið - 05.07.2005, Page 8
1Hverjir gera heimildarmynd um tón-listarhátíðina Reykjavík Rocks?
2Hvað heitir talsmaður neytenda?
3Hvað táknar G8?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 5. júlí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Átak til að fjölga íbúum Súðavíkur:
Ló›ir gefins og gjaldfrjáls leikskóli
LEIKSKÓLAMÁL Gjaldfrjáls leik-
skóli frá næsta hausti, fríar
byggingarlóðir og byggingar-
framlag að upphæð 17.500 krón-
ur á fermetrann er hugmynd
sveitarstjórnarinnar í Súðavík
til að fjölga íbúum bæjarins um
fjörutíu næstu fimm árin.
Gangi áætlunin eftir fjölgar
íbúunum Súðavíkur um nær
átján prósent á tímabilinu.
Einnig er stefnt að því að störf-
um fjölgi um tólf í bænum. Þrjá-
tíu íbúar af 235 mættu á fund
sveitarstjórnarinnar á laugar-
dag þegar hún kynnti stefnu-
mótunarvinnu sína.
Ómar Már Jónsson, sveitar-
stjóri Súðavíkurhrepps, segir að
með fríum lóðum og byggingar-
framlaginu sé verið að koma til
móts við fólk sem vilji byggja,
því byggingarkostnaður sé
meiri úti á landi en markaðs-
verð fasteigna sem þar eru. Að
auki sé frír leikskóli fyrir barn-
margar fjölskyldur ein mesta
tekjuaukning sem fólk geti
fengið.
„Við erum með þessu að bregð-
ast við þeirri fækkun sem verið
hefur. Við ætlum að gera það á
myndarlegan
hátt því við
viljum efla
samfélagið
eins og við
m ö g u l e g a
g e t u m , “
segir Ómar.
- gag
Sparkað í höfuð liggjandi manns:
Tvíkjálkabrotinn fær bætur
DÓMSMÁL Ungir bræður voru fyrir
helgi dæmdir í hálfsársfangelsi í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
fyrir að berja mann og sparka ít-
rekað í höfuð hans þar sem hann
lá þannig að hann tvíkjálkabrotn-
aði og hlaut önnur meiðsl. Árásin
átti sér stað á tjaldstæðinu við
Þórunnarstræti á Akureyri, að-
faranótt 17. júní í fyrra.
Fórnarlambið fékk hins vegar
sjö mánaða fangelsisdóm fyrir að
hafa, fyrr sama kvöld, slegið
yngri bróðurinn, þá aðeins 16 ára,
tvisvar í andlitið, fyrst kinnhest
og svo aftur fastar. Með því rauf
hann skilorð dóms fyrir brot á
fíkniefnalöggjöf. Dómar allra
voru skilorðsbundnir í þrjú ár, en
horft var til ungs aldurs bræðr-
anna og þess að þeir höfðu ekki
áður hlotið dóma.
Árás bræðranna er í dómnum
engu að síður sögð ófyrirleitin, sér-
staklega fast lokaspark með til-
hlaupi í andlit liggjandi ósjálf-
bjarga manns, með alvarlegum af-
leiðingum. Bræðurnir voru dæmd-
ir til að greiða manninum tæpar
663.000 krónur í bætur. -óká
Getur sk‡rt uppruna sólkerfa
PASADENA, AP Þann 12. janúar var
geimfarinu Deep Impact skotið á
loft í átt að halastjörnunni Tempel
1 sem er á braut um sólina. Mark-
mið leiðangursins var að safna
gögnum sem hugsanlega geta
varpað ljósi á uppruna sólkerfis
okkar. Í gær skall svo farkostur á
halastjörnunni á sjálfum þjóðhá-
tíðardegi Bandaríkjanna.
Leiðangurinn, sem minnir um
margt á Hollywood-bíómynd, hef-
ur í alla staði heppnast vel hingað
til. Efasemdamenn vildu margir
meina að nær ómögulegt væri að
hitta á halastjörnuna þar sem vís-
indamenn höfðu litla stjórn á
skeytinu frá því að því var sleppt
frá geimfarinu um sólarhring fyr-
ir áreksturinn. En vegna vel
heppnaðra tilrauna, prófana og
líkana gekk allt eins og í sögu og
370 kílóa þungt skeytið skall á
Tempel 1á ógnarhraða og mynd-
aði risastóran gíg. Aflið sem losn-
aði úr læðingi við áreksturinn er á
við sprengkraft fimm tonna af
dínamíti.
Geimfarið sjálft nálgaðist hala-
stjörnuna og flaug samhliða henni í
viku áður en skeytinu var skotið að
henni. Við áreksturinn sjálfan var
geimfarið um 8000 kílómetra frá
halastjörnunni og sendi myndir af
árekstrinum til jarðar. Eftir árekst-
urinn flaug farið að halastjörnunni
og myndaði hana úr einungis um
500 kílómetra fjarlægð.
Þegar rykið sest á Tempel 1
vonast vísindamennirnir til að
geta séð með myndavélum inn í
kjarna halastjörnunnar. Gangi
vonir þeirra eftir getur það
orðið til að varpa einhverju ljósi
á uppruna sólkerfisins okkar.
Tilraunin er einstök í vísinda-
sögunni.
oddur@frettabladid.is
Rannsóknarnefnd flugslysa:
fiorkell Ágústs-
son í forstö›u
Þorkell Ágústsson hefur verið
skipaður forstöðumaður Rann-
sóknarnefndar flugslysa frá 1.
september 2005.
Hann var áður aðstoðarfor-
stöðumaður Rannsóknarnefnd-
arinnar en fyrir gildistöku
nýrra laga um nefndina, eða frá
2002 til 2004, var Þorkell vara-
formaður nefndarinnar.
Þorkell er menntaður verk-
fræðingur en hefur einnig hlotið
þjálfun við rannsóknir flugslysa
og sótt ýmis hagnýt námskeið
sem nýtast munu í starfinu, að
því er segir í fréttatilkynningu
samgönguráðuneytisins. ■
NÝJA SETTJÖRNIN Settjarnirnar við Elliðaár
eru nú orðnar fimm en sú nýjasta var tekin
í gagnið í júní.
Mengunargildrur við Elliðaár:
Hreinsa
yfirfallsvatn
„Þetta eru mengunargildrur, sett-
jarnir sem sía yfirfallsvatn áður
en það rennur í árnar,“ segir Stef-
án Jón Hafstein borgarfulltrúi um
settjarnir sem búið er að gera við
Elliðaárnar í Reykjavík. Hann
segir að uppsetning tjarnanna sé
mikið framfaraspor í umhverfis-
málum borgarinnar. „Til dæmis
var einu sinni klórmengun frá Ár-
bæjarsundlaug þegar vatn frá
henni rann í ána, en nú gæti það
ekki gerst,“ segir Stefán. Yfir-
borðsvatn og vatn úr ræsum fer í
grunnar settjarnirnar og síast í
sérhönnuðum malarbotni áður en
það er leitt fram hjá ánum eða
veitt hreinsuðu í þær. -rsg
SÚÐAVÍK Í SÓKN Ómar Már Jónsson sveitarstjóri hef-
ur ásamt sveitarstjórninni í Súðavík lagt línurnar fyrir
bæinn næstu fimm árin. Gjaldfrjáls leikskóli fyrir börn-
in. Fríar byggingarlóðir og byggingarframlag fyrir þá
sem þar vilja búa.
Mikill viðbúnaður lögreglu og
leitarfólks í Grafarvogi í gær
Ellefu ára guttar
hjóluðu fram á
lík við Gullinbrú
ÁREKSTURINN VIÐ HALASTJÖRNUNA Þessi
mynd var send NASA frá brautarfarinu
þegar áreksturinn varð milli Tempel 1
halastjörnunnar og geimfarsins.
Deep Impact geimfari› skaut í gær fari a› halastjörnunni Tempel 1. Fari› hitti og var› flar me› fyrsti
mannger›i hluturinn sem lendir á halastjörnu. Vonast er til fless a› s‡ni og myndir af halastjörnunni
varpi ljósi á uppruna sólkerfa.
TJALDSTÆÐIÐ VIÐ ÞÓRUNNARSTRÆTI Þarna börðu ungir bræður mann aðfaranótt sautj-
ánda júní í fyrra, en fyrr um nóttina hafði sá slegið annan bróðurinn. Seinni árásin var
hrottaleg, en maðurinn tvíkjálkabrotnaði, þurfti að gangast undir tvær aðgerðir og leita
læknis ítrekað vegna sýkinga.
Óvenjuleg flugeldasýning
Í gær varð Deep Impact árekstrarfarið fyrsti manngerði hluturinn til
að lenda á yfirborði halastjörnu. Gögn frá árekstrinum bárust til jarð-
ar nánast á rauntíma. Vonast er til þess að leiðangurinn sem kostaði
333 milljónir bandaríkjadala varpi ljósi á uppruna sólkerfisins okkar.
Deep Impact
Leið
Deep Impact
Brautfar
Árekstrarfar
Sleppt sólarhring
fyrir áreksturinn og
fjarstýrt frá jörðu.
Sjálfstýring tók
svo við tveimur
tímum fyrir áreksturinn.
Aflið sem losnaði úr læðingi við áreksturinn var á við 5
tonn af dínamíti. Gígurinn sem myndaðist við áreksturinn
gæti verið á stærð við fótboltavöll og tugir metra á dýpt.
Fáeinum mínútum eftir áreksturinn var brautarfarið
einungis í um 500 kílómetra fjarlægð frá
halastjörnunni. Þá hafði það um 15 mínútur til
stefnu til að ná myndum áður en ryk úr
halastjörnunni skyggði of mikið á.
370 kílógrömm
Var í um 8.000
kílómetra fjarlægð
frá halastjörnunni
við áreksturinn.
Myndavél með
meðalupplausn
Myndavél með
hárri upplausn
Geimfari skotið á
loft 12. janúar
Tempel 1 fer hring
um sólina á um
það bil fimm og
hálfu ári.
Áreksturinn í gærmorgun
Sporbaugur jarðar
Sólin
Loftnet
Sólflaga
Halastjarna
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
JK