Fréttablaðið - 05.07.2005, Page 32

Fréttablaðið - 05.07.2005, Page 32
24 5. júlí 2005 ÞRIÐJUDAGUR Mér finnst grænmeti vont og ávextir enn verri. Það tekur mig sennilega svona hálft ár að ná þeim fimm skömmt- um af ávöxtum sem fólk á að borða á dag. Þessi matvendni þykir ekki smart, nú á tímum heilsuræktaræðisins, og hef ég gert margar atrennur að grænmetis- og ávaxtaskúffunni en ávallt lotið í lægra haldi – með óbragð í munninum. Þrátt fyrir að vera alin upp á heimili þar sem alltaf var boðið upp á salat með matnum, þá er bara eitthvað við þennan hluta matarpíramídans sem bragðlaukarnir mínir geta ekki sætt sig við. Það er lýsisbragð af gúrkum og tómatarnir eru beisk- ir og slepjulegir. Mér hefur aldrei tekist að klára heila appelsínu eða heilan banana og flest er þetta svo súrt að ég hristist þegar ég reyni að koma því niður. Miðað við afrek mín á ávaxtaáti held ég að mér sé ekki viðbjarg- andi hvað þá varðar. Hins vegar sá ég þó eitt sinn vonarglætu með grænmetið en hún var fljótt aftur tekin. Þá var ég stödd á grískri eyju, fékk að smakka grískt salat og var himinlifandi að komast að því að mér fannst það gott. Það var allt annað bragð af kálinu og tómöt- unum en heima á Íslandi og fljót- lega fór ég að panta mér salat í öll mál. Eftir nokkurra dag át fór mér þó að líða hálfskringilega. Munnur- inn á mér bólgnaði upp og ég gat ekki hreyft tunguna. Það var auð- vitað hringt á næturlækni og eftir að hafa skoðað mig skamma stund sagði hann: „já, þú er með ofnæmi fyrir einhverju grænmeti eða ávexti. Sennilega tómötum.“ Það var einmitt það, og þar með lauk því ævintýri. Nú hef ég ágætis afsökun þegar ég afþakka salat í matarboðum en ætla samt ekki að gefast upp í stríði mínu við þetta heilsufæði. Sá dagur mun koma að ég get fengið mér epli án þess að halda niðrí mér andanum og banana án þess að kúgast. STUÐ MILLI STRÍÐA SÓLEY KALDAL ÞARF AÐ FINNA SINN INNRI GRASBÍT. Sættist ekki við grænmeti og ávexti M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Bbbbrrrrrruuu! Yfir hverju ert þú að kvarta!?! Þú ert í vetrarfeldi! Ég týndi vettlingun- um mínum. Ugla sat á kvisti, átti börn og missti, eitt tvö þrjú og það varst þú! Mamma-sagði-mér-að- velja-það-sem-mér- finnst-best-og-það-er- þetta-eða-kannski- þetta-ég-veit-ekki- hvort-ég-vil-því-bæði- er-gott-og-ég... Mér heyrist að Solla hafi erft bæði rauða háralitinn OG ákvörð- unar-hæfileika föður síns. Hvað finnst þér? Ætti ég að vera með brúna bindið eða brúnleita bindið? Ég ætla bara að fara og púðra á mér nefið. Tími til að sparsla í götin! Þér veitti nú ekki af smá sparsli núna! Ég get svo svarið það. Eins gott að ég hleypi þessum ekki út á almannafæri. Hver er að sjóða kál? Miðasala í Skífunni, á event.is og í 575-1522

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.