Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,63 64,93
114,12 114,68
78,71 79,15
10,55 10,61
9,98 10,03
8,39 8,44
0,58 0,58
94,19 94,75
GENGI GJALDMIÐLA 13.07.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
110,13
4 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Sakborningarnir nefndir í eyru prófessors löngu áður en ákærur voru birtar:
Óska› rannsóknar á leka
BAUGSMÁLIÐ Gestur Jónsson,
hæstaréttarlögmaður og verjandi
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í
Baugsmálinu, hefur sent Boga
Nilssyni ríkissaksaksóknara bréf
þar sem óskað er eftir rannsókn á
upplýsingaleka í Baugsmálinu.
Málavextir eru þeir að 7. júlí
ritaði prófessor Þorvaldur Gylfa-
son pistil í Fréttablaðið sem hann
nefndi „kannski tuttugu manns“. Í
pistlinum lýsti prófessorinn því
að vel tengdur virðingarmaður ís-
lensks atvinnulífs hefði sest sér
við hlið í flugvél og greint frá því
að gefin yrði út ákæra á hendur
sex einstaklingum sem hann
nefndi alla með nafni. Þorvaldur
kvaðst í pistlinum aldrei hafa
heyrt þrjá þeirra nefnda. Þetta
hefði rifjast upp fyrir honum
þegar Ríkislögreglustjóri birti
sömu aðilum ákærur.
Gestur segir í bréfinu til ríkis-
saksóknara að nauðsynlegt sé að
fá svar við því hvort „vel tengdir“
virðingarmenn hafi átt aðgang að
upplýsingum um rannsókn máls-
ins meðan á henni stóð. „Sé rétt
með farið virðist ákvörðun um
ákæru á hendur „sexmenningun-
um“ hafa verið tekin áður en
rannsókn málsins var lokið hjá
Ríkislögreglustjóra,“ segir jafn-
framt í bréfinu.
- jh
Áhyggjur mó›ur komu
lögreglunni á spori›
Leitin a› sprengjumönnunum í Lundúnum fór a› bera árangur eftir a› mó›ir
eins fleirra l‡sti eftir honum. Tali› er a› forsprakkarnir gangi enn lausir.
BRETLAND, AP Símhringing örvænt-
ingarfullrar móður kom bresku
lögreglunni á sporið í leitinni að
þeim sem frömdu sprengjutilræð-
in í Lundúnum fyrir viku.
Svarið við eftirgrennslan henn-
ar reyndist annað og verra en hún
átti von á – sonur hennar er einn
þeirra fjögurra manna sem grun-
aðir eru um að hafa sprengt
sprengjur í þremur jarðlestum og
einum strætisvagni og banað að
minnsta kosti 52 manns.
Lýsing móðurinnar á fötum
sonarins kom heim og saman við
þau sem voru á líki sem var svo
illa farið að talið er að það sé af
manninum sem sprengdi sjálfan
sig í loft upp í tveggja hæða
strætisvagni við Tavistock-torg,
að því er dagblaðið The Times
greindi frá í gær. Þrettán manns
fórust í þeirri sprengingu.
Maðurinn, sem var 19 ára og
hét Hasib Hussain, sást ásamt
þremur öðrum mönnum á upp-
töku öryggismyndavélar á Kings
Cross-lestarstöðinni, en upptakan
var frá því kl. 8.30 á fimmtudags-
morguninn, um 20 mínútum áður
en sprengjurnar sprungu. Menn-
irnir eru allir af pakistönskum
uppruna en fæddir og uppaldir í
Bretlandi.
Lögreglan vissi að rannsóknin
var keppni við tímann, þar sem á
reið að finna hverjir staðið hefðu
að tilræðunum; annars væri hætta
á að þeir létu aftur til skarar
skríða. Þótt sprengjumennirnir
hafi sjálfir farist í árásunum er
talið líklegt að samverkamenn
þeirra eða hugsanlegur for-
sprakki gangi enn lausir.
Sá forsprakki gæti verið
tengdur alþjóðlegu hryðjuverka-
neti eins og al-Kaída og að sögn
sérfræðinga er vel hugsanlegt að
hann hafi komið til Bretlands til
að leita nýrra liðsmanna í hinu
„heilaga stríði“ og útvega þeim
sprengiefni. „Ég trúi því einfald-
lega ekki að verknaður eins og
þessi geti verið einkaframtak
þessara fjögurra ungu manna,“
hefur AP eftir Paul Wilkinson,
sem starfar við hryðjuverkarann-
sóknamiðstöð St. Andrews-
háskóla í Skotlandi.
audunn@frettabladid.is
Hæstiréttur:
Var›hald
fellt úr gildi
DÓMSMÁL Hæstiréttur felldi í gær
úr gildi úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur frá 8. júlí þess efnis að
meintur kynferðisglæpamaður
skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 15.
júlí.
Komst rétturinn að því að sókn-
araðili hefði ekki fært haldbær rök
fyrir varðhaldi enda brot hans
framin fyrir alllöngu síðan. Sóknar-
aðili byggði mál sitt á að ætla mætti
að hinn ákærði reyndi að torvelda
rannsókn málsins ef hann yrði lát-
inn laus fyrir þann tíma enda væri
rannsókn lítt á veg komin og
skýrslutöku af þeim tveimur stúlk-
um sem hann er grunaður um að
hafa misnotað ekki lokið. -aöe
Leeds-búar af
pakistönskum
uppruna
Eftirfarandi upplýsingar hafa
komið fram um þá sem frömdu
sprengjutilræðin í Lundúnum
hinn 7. júlí. Þeir eru allir af
pakistönskum uppruna en
fæddir og uppaldir í Englandi.
- Shahzad Tanweer, 22 ára.
Sótti Leed Metropolitan-há-
skóla, þar sem hann lagði stund
á íþróttafræði og sýndi krikket
sérstakan áhuga. Hann á yngri
bróður og tvær systur og bjó
alla ævi í Beesten-hverfi í
Leeds á Norður- Englandi. Faðir
hans er frá Pakistan og rekur
„fisk-og-flögu“-skyndibitastað.
Tanweer fór til Lahore í Pakist-
an í tvo mánuði fyrr á þessu ári
til að nema íslömsk fræði. Rétt-
arlæknisfræðileg gögn tengja
Tanweer við sprenginguna sem
varð í jarðlest nærri Aldgate-
stöðinni.
- Hasib Hussain, 19 ára. Bjó
hjá fjölskyldu sinni frá fæðingu
í Holbeck, útbæ Leeds. Frá
september 1998 til júlí 2003 var
hann nemi við Matthew
Murray-menntaskólann. Hann
varð trúaður múslimi fyrir um
tveimur árum, eftir því sem lög-
regla hefur eftir nágrönnum
hans. Ökuskírteini og bankakort
hans fundust í braki strætis-
vagnsins sem var sprengdur við
Tavistock-torg.
- Mohammed Sidique Khan,
30 ára. Fæddist í Pakistan, á
átta mánaða gamla dóttur. Hann
bjó áður í sama hverfi í Leeds
og Tanweer, en flutti til Dews-
bury í Vestur-Yorkshire fyrir
tæpu hálfu ári. Hann vann við
gæslu fatlaðra barna, að sögn
nágranna. Skilríki Khans fund-
ust í braki lestarinnar sem
sprengd var nærri Edgware
Road-jarðlestarstöðinni.
- Nafn fjórða tilræðismanns-
ins hefur ekki komið fram.
Hann er talinn hafa verið vinur
hinna þriggja og hafa búið í
Leeds. - aa
HÚSLEIT Múslimi í Thornhill-hverfi í Dews-
bury á Norður-Englandi, þar sem flestir
íbúarnir eru af pakistönskum uppruna, tal-
ar við lögreglukonu í gær, er gerð var hús-
leit þar.
Múslimar áhyggjufullir:
Bretar s‡ni
stillingu
HRYÐJUVERK Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, kallaði í gær eftir
hertri löggjöf og alþjóðlegu átaki til
að uppræta þá „illu“ hugmynda-
fræði sem liggi á bak við hryðju-
verkin í London fyrir viku.
Blair og fleiri stjórnmálamenn
hvöttu Breta til að sýna stillingu og
dæma ekki alla múslima vegna
ódæðisverka manna sem láta
„brenglaða og eitraða mistúlkun“ á
íslamstrú stjórna gerðum sínum.
Talsmenn múslima tala um nauðsyn
þess að foreldrar verndi börn sín
fyrir heilaþvottartilraunum öfga-
manna. Tilkynnt hefur verið um
fleiri en 100 hefndarárásir frá því
tilræðin voru framin. - aa
VEÐRIÐ Í DAG
ÞORVALDUR GYLFASON PRÓFESSOR
Nokkur tími er liðinn frá því samtal hans
og „virðingarmannsins“ átti sér stað.
SAKNAÐ Veggspjöld með myndum af fólki sem er saknað eftir sprengjutilræðin sjást hér í grennd við Kings Cross-lestarstöðina í Lundún-
um. Gefin hafa verið upp nöfn fjórtán þeirra 52 sem staðfest hefur verið að létu lífið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Hryðjuverkin í Lundúnum:
Lítil áhrif
á flugi›
HRYÐJUVERK Hryðjuverkin í Lund-
únum á fimmtudag, þar sem að
minnsta kosti 52 biðu bana og fjöldi
særðist, hafa lítt eða ekki dregið úr
áhuga fólks á að ferðast til borgar-
innar.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir áhug-
ann á borginni meiri nú en á sama
tíma í fyrra.
Birgir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Iceland Express, segir ein-
staka farþega hafa seinkað för sinni
um nokkra daga eða vikur. - bþs