Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 6
6 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Persónuvernd vill að farið verði varlega í umfjöllun um einkamál:
Bla›amenn gæti me›alhófs
PERSÓNUVERND Stjórn Persónu-
verndar hefur sent frá sér álit um
meðferð persónuupplýsinga og
myndbirtingar á fréttamiðlum. Í
álitinu kemur fram að fréttamenn
skuli gæta meðalhófs í meðferð per-
sónuupplýsinga og hafa í huga
hvaða hagsmunum það þjóni að
fjalla um einkamálefni einstaklinga
án þeirra samþykkis.
Sérstaklega er einnig rætt um
svokallaðar „opinberar persónur“ í
áliti Persónuverndar. Þar er sagt að
þótt sumar persónur, svo sem
stjórnmálamenn, listamenn og aðrir
þeir sem mikið eru í sviðsljósinu
geti búist við því að meira sé fjallað
um þær í fjölmiðlum en aðra al-
menna borgara, þá sé álit Persónu-
verndar að hinar opinberu persónur
skuli njóta friðhelgi fjögurra
veggja heimilsins og eins utan
þeirra á ákveðnum stöðum, svo sem
eins og á skemmtistöðum, sundlaug-
um og líkamsræktarstöðvum.
Einnig er minnst á í álitinu að
þótt einhverjir einstaklingar geti
talist opinberar persónur þá eigi
það sama ekki við um fjölskyldur
þeirra, vini og aðra sem þeim tengj-
ast og hafa ekki valið að vera í
sviðsljósinu. - oá
Tekist á um gjaldtöku:
Ríki› var
s‡kna›
DÓMSTÓLAR Ríkið var í gær sýknað
af kröfum manns sem taldi sig hafa
orðið fyrir ólögmætri gjaldtöku, en
skattstjórinn í Reykjavík lagði á
hann iðnaðarmálagjald á árunum
2001 til 2004.
Maðurinn vísaði til þess að í
landinu væri félagafrelsi og því
ólögmætt að gera honum að greiða
félagsgjöld til Samtaka iðnaðarins.
Dómurinn vísaði til fyrri úrskurðar
Hæstaréttar frá árinu 1998 þar sem
ekki var fallist á að iðnaðarmála-
gjaldið gæti talist félagsgjald, en
tekjum af því mun varið til eflingar
iðnaði og iðnþróun. Manninum var
gert að greiða 300 þúsund krónur í
málskostnað. - óká
Mun R-listinn bjóða fram í
næstu borgarstjórnarkosning-
um?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að herða viðurlög við um-
ferðarlagabrotum?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
30%
70%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
ÍSLENSK DAGBLÖÐ Stjórn Persónuverndar segir opinberar persónur eiga að njóta friðhelgi
heimilisins og eins á skemmtistöðum, sundlaugum og líkamsræktarstöðvum.
Fyrrum íbúi Höfðaborgar lýsir ástandinu:
Höf›aborg er mor›höfu›borg
OFBELDI „Höfðaborg er morðhöf-
uðborg heimsins,“ sagði Stefán
Helgi Valsson, í Hádegisútvarpi
Talstöðvarinnar í umsjón Frétta-
blaðsins í gær. Stefán bjó í þrettán
ár í Höfðaborg.
„Morð eru daglegt brauð þarna
þó ekki sé mikið talað um það
núna þegar menn reyna frekar að
leggja áherslu á uppbyggingu í
landinu. Svo hefur Mandela gert
margt mjög gott fyrir landið og
menn beina frekar sjónum að því.
Því verður þó ekki breytt að töl-
fræðin segir að fyrir hverja hund-
rað þúsund íbúa eru 150 drepnir.
Þannig var ástandið í það minnsta
þegar ég bjó þar en ég flutti fyrir
fimm árum.“
Stefán fór ekki varhluta af of-
beldinu meðan hann bjó í Höfða-
borg en þrisvar sinnum var brot-
ist inn í bíl hjá honum og tvívegis
varð nágranni hans fyrir barðinu
á innbrotsþjófum. Í annað skiptið
var konu nauðgað. „Þetta er bara
daglegt brauð í Höfðaborg, því
miður,“ segir Stefán sem bar
Suður- Afríkubúum vel söguna og
sagði þá yndislegt fólk upp til
hópa þó ástandið í landinu hefði
þessar hræðilegu afleiðingar. ■
ÖRYGGISGÆSLA Í HÖFÐABORG Stefán seg-
ir að þeir efnuðu í Höfðaborg verði að
verja sig því morð og glæpir séu daglegt
brauð í borginni. Ástæðuna segir Stefán
helst vera hið gríðarlega bil milli efnaðra
og fátækra í landinu.
MORÐMÁL Desireé Oberholzer, 43
ára gömul kona, sem handtekin
var í tengslum við morðið á
Gísla Þorkelssyni, 54 ára göml-
um Íslendingi búsettum í Suður-
Afríku, játaði í gær aðild að mál-
inu. Einnig situr í haldi vegna
málsins 28 ára gamall maður að
nafni Willie Theron. Þau voru
leidd fyrir dómara í Boksburg í
Suður-Afríku í gær, en réttað
verður í máli þeirra 22. ágúst.
Fólkið er sakað um morð, þjófn-
að, fjársvik og um að hindra
framgang réttvísinnar.
Nafn Gísla var gert opinbert í
gær eftir að haft var samband
við hans nánustu ættingja, en
hann á fjögur eldri systkini og
uppkominn son, búsettan á Ís-
landi. Vinkona Gísla í Jóhannes-
arborg bar í gærmorgun kennsl
á lík hans í líkhúsinu í Germi-
ston, en lögregla hafði óttast að
það tæki langan tíma vegna þess
hve rotnun líksins var langt á
veg komin. Það var falið í rusla-
tunnu sem fyllt hafði verið með
steypu þannig að aðeins sást í
fæturna og hafði verið þar í um
fimm vikur. Tunnan var geymd í
bakgarði leigusala Willies Ther-
ons í norðurhluta Boksburg, út-
hverfi Jóhannesarborgar. Sá
fann líkið fyrir tilviljun þegar
hann færði til tunnuna.
Ekki hefur enn verið skorið
úr um hvernig parið myrti Gísla
en Andy Pieke, talsmaður lög-
reglu, segir standa til að krufn-
ing fari fram í dag.
Gísli er sagður hafa kynnst
konunni fyrir nokkru síðan en
þegar parið sem grunað er um
að hafa myrt hann var handtekið
höfðu þau meðal annars selt bíl
hans. Þá höfðu þau reynt að
komast yfir peninga á banka-
reikningi Gísla en ekki tekist.
Smári Sigurðsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn á alþjóða-
deild Ríkislögreglustjóra, sagði
málið alfarið vera á könnu lög-
regluyfirvalda í Suður-Afríku.
Embættið hafi engu síður haft
fregnir af rannsókn málsins frá
lögreglu þar. „Ekkert formlegt,
heldur bara í síma,“ segir hann
og taldi lögreglu ytra furða sig
nokkuð á athyglinni sem málið
vekti hér heima.
„Þeir fá sennilega jafnmörg
mál á dag og við á nokkrum
árum.“
olikr@frettabladid.is
Kona játar a›ild a›
mor›i á Íslendingi
Tvennt er í haldi lögreglu vegna mor›sins á Gísla fiorkelssyni í Su›ur-Afríku,
28 ára gamall ma›ur og 43 ára gömul kona. Rétta› ver›ur í máli fleirra í lok
ágúst. Dánarorsök Gísla eru enn ókunn en hann ver›ur krufinn í dag.
BETLAÐ Á GÖTU Í JÓHANNESARBORG Fátækt er mikil og glæpir tíðir í Jóhannesarborg í
Suður-Afríku. Myndin er tekin fyrr á árinu á götu í borginni. Sjá má hvernig götubetlarar
fara á milli bíla í von um að einhver gauki að þeim peningum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/M
YN
D
/A
FP