Fréttablaðið - 14.07.2005, Page 12
12 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Ganga okkar hringinn í kringum
landið er nú hálfnuð og rétt
rúmlega það. 24 dagar að baki
og 22 dagar eftir. Við erum því
farnir að telja niður sem er góð
tilbreyting frá því sem áður var.
Í gær gengum við upp á Möðru-
dalsöræfin og komum að Ár-
mótaseli upp úr hádegi. Veðrið
leikur við okkur, sól og blíða á
öræfunum og gott að vera hér.
Talsverð umferð er hér um slóð-
ir, og þarf ekki að undra að
ferðamenn komi hingað í stað
þess að kúldrast undir skýjun-
um á suðvesturhorninu.
Í Sæmundarseli fengum við
okkur kaffi og með því í gær og
er óhætt að mæla með lumm-
unum þar. Við gistum hins
vegar á Skjöldólfsstöðum því
þar er sundlaug. Við reynum
alltaf að gista þar sem laugarn-
ar eru svo við getum látið
þreytuna líða úr okkur fyrir
svefninn.
Á þriðjudag fórum við upp að
Kárahnjúkum og það var ein-
staklega gaman að berja þess-
ar miklu framkvæmdir augum
þrátt fyrir hvassviðri og mold-
rok.
Í dag göngum við frá Ármóta-
seli að Möðrudal og fikrum
okkur svo niður í Mývatns-
sveitina skref fyrir skref á
næstu dögum.
Kveðja, Guðbrandur og Bjarki.
Farnir a› telja ni›ur
HALTUR LEIÐIR BLINDAN: PÓSTKORT FRÁ BJARKA OG GUÐBRANDI
nær og fjær
„Mig langar til fless a›
færa landsmönnum
málverki› á n‡jan leik
og vil frekar mynda
tengsl vi› almenning
en listaelítuna.“
EINAR HÁKONARSON LISTMÁLARI Í
FRÉTTABLAÐINU.
„fia› hefur aldrei veri›
ætlun borgaryfirvalda
a› fara illa me› starfs-
konur sem hafa unni›
hjá okkur í tugi ára.
fiannig a› fletta er mis-
skilningur sem ver›ur
lei›réttur.“
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
BORGARSTJÓRI Í MORGUNBLAÐINU.
OR‹RÉTT„ “
Sú var tíðin að hver einasti karl-
maður sem kom nálægt viðskipt-
um af einhverjum toga bar bindi
um hálsinn. Sú tíð er liðin. Æ al-
gengara er að karlmenn gangi
bindislausir og þá jafnan með
efstu og jafnvel tvær efstu
skyrtutölurnar hnepptar frá.
Ásgeir Höskuldsson, kaup-
maður í herrafataversluninni Hjá
Andrési, segir áberandi hversu
karlar eru miklu frjálslegri í
klæðaburði en var og telur ekki
nokkra ástæðu til amast yfir þró-
uninni. „Það sem skiptir máli er
að maðurinn sé í heild sinni
smekklega klæddur,“ segir Ás-
geir. Hann þekkir það líka af
reynslunni að tískan gengur í
hringi; allt kemur aftur. „Bindin
koma aftur,“ segir Ásgeir sem
sjálfur er vanalega bindislaus í
vinnunni en hnýtir þau um hálsinn
við fínni tækifæri.
Guðbjörg Sigurðardóttir fylg-
ist vel með klæðaburði fólks og
hefur gagnrýnt buxna- og flís-
peysuklæðnað kvenna í Frétta-
blaðinu. Hún skilur karlana í við-
skiptunum vel. „Ég held að það sé
ósköp þægilegt fyrir þá að vera án
bindis,“ segir hún en leggur
áherslu á að henni þyki karlmenn
almennt fínni og virðulegri með
fallegt bindi um hálsinn.
„Mér þykja bæði Kári Stefáns-
son og Jón Ásgeir afskaplega
smart. Kári á bolnum undir jakk-
anum og Jón svona frjálslegur
með fráhneppta skyrtuna og síða
hárið,“ segir Guðbjörg.
bjorn@frettabladid.is
Bindin á útlei›
Þeim fjölgar sífellt körlunum í viðskiptalífinu sem
ekki nota bindi við dagleg störf sín. Ásgeir í herra-
fataversluninni Hjá Andrési segir tískuna ganga í
hringi og veit fyrir víst að bindin koma aftur seinna.
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON Forstjóri Iceland Group. Bindislaus og með hálsinn beran.
SKIL ÞÁ VEL Guð-
björg Sigurðardóttir
áhugakona um
klæðnað.
BINDIN KOMA
AFTUR Ásgeir
Höskuldsson kaup-
maður.
SEX KARLAR – EITT BINDI Frétt Morgunblaðsins
um nýja stjórn FL Group.
ÚTGEFANDINN Sigurður
G. Guðjónsson, lögmaður
og einn eigenda Blaðsins,
er jafnan bindislaus.
RAGNAR ÖNUNDAR-
SON Framkvæmdastjóri
Kreditkorts.
NORÐANMENN Baldur Guðna-
son, forstjóri Eimskips, og Þor-
steinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja.
BAUGUR ÁN BINDIS Jón Ásgeir
Jóhannesson forstjóri og Hreinn
Loftsson stjórnarformaður.
GAMLI OG NÝI TÍMINN
Feðgarnir Þórður Magnússon og
Árni Oddur Þórðarson.