Fréttablaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 14
Ví›tæk samsta›a
um heilsársveg yfir Kjöl
Nýr vegur um Arnarvatnsheiði og
Stórasand, eins og hugur Norður-
vegsmanna stefndi til í upphafi,
hefði stytt leiðina á milli Akureyrar
og Reykjavíkur um 81 kílómetra.
Heilsársvegur um Kjöl styttir leiðina
um 35 km.
Er það ásættanleg stytting?
Með tilliti til þess mótbyrs sem verk-
efnið fékk þá teljum við svo vera
auk þess sem þessi útfærsla styttir
leiðina á milli Norður- og Suður-
lands um fjórðung. Þar að auki
benda gögnin sem við höfum í
höndum til þess að þetta sé heldur
ódýrari leið og því góð sáttalausn.
Verður Kjalvegur þyrnir í augum
Blönduósbúa og Skagfirðinga?
Í Árnessýslu er um 20 þúsund
manna frístundabyggð og með góð-
um vegi um Kjöl tekur ekki nema
eina og hálfa til tvær klukkustundir
fyrir þetta fólk að skella sér norður í
Skagafjörð og Austur-Húnavatns-
sýslu. Heilsársvegur um Kjöl skapar
því ótal ný sóknarfæri fyrir ferða-
þjónustu í Skagafirði og á Blönduósi
og því á ég ekki von á öðru en
Skagfirðingar og Húnvetningar fagni
þessum áformum.
Hversu há verða veggjöldin?
Það liggur ekki fyrir en þó má gera
ráð fyrir að þau verði svipuð og í
Hvalfjarðargöngum eða um 1000
krónur fyrir staka ferð. Þeir sem
kaupa 10 eða 20 ferðir fá verulegan
afslátt og stórnotendur enn meiri af-
slátt. Sparnaður ökumanna verður
því umtalsverður kjósi þeir að nota
veginn. Framkvæmdin verður fjár-
mögnuð með lánsfé að stærstum
hluta og því ráðast veggjöldin að
hluta til af þeim kjörum sem banka-
stofnanir bjóða okkur.
ANDRI TEITSSON
stjórnarformaður Norðurvegar
Gó› málami›lun
HEILSÁRSVEGUR UM KJÖL
SPURT & SVARAÐ
14 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Sjaldan hefur verið jafn mikið rætt um að
setja vegaframkvæmdir í einkaframkvæmd og
nú um stundir. Þó að lítið hafi verið um slíkar
framkvæmdir hér eru um fjórir áratugir síðan
veggjald var fyrst innheimt á Íslandi.
Hvenær var veggjald fyrst innheimt?
Íslendingar þurftu fyrst að greiða veggjald
fyrst eftir að Keflavíkurvegurinn var innheimt-
ur. Þá var sett upp skýli nærri Straumsvík þar
sem veggjaldið var innheimt.
Hvar er veggjald innheimt nú?
Veggjald er aðeins innheimt á einum stað á
Íslandi í dag, í Hvalfjarðargöngum þar sem
stakar ferðir fólksbíla kosta þúsund krónur en
verðið fer niður í 270 krónur á ferð séu
hundrað ferðir keyptar í einu.
Hvaða hugmyndir eru um einkaframkvæmd?
Þeir sem talað hafa fyrir Vaðlaheiðargöngum
segja þau einu göngin á Íslandi, utan Hval-
fjarðarganganna, sem væri hægt að fjár-
magna með veggjaldi. Þó gera þeir ráð fyrir
aðkomu ríkisins með niðurfellingu virðisauka-
skatts og 500 milljóna framlagi. Hugmyndir
voru reifaðar um veg um Arnkötludal og
Gautsdal milli Hólmavíkur og Gilsfjarðar.
Einnig hefur verið talað um Norðurveg sem
stytti leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur
um allt að 80 kílómetra. Einnig hefur verið
orðað að byggja Sundabraut í einkafram-
kvæmd en enn hafa fáir ljáð máls á því að
innheimta veggjald þar.
Veggjald fyrst innheimt á Keflavíkurvegi
FBL-GREINING: VEGGJALD OG EINKAFRAMKVÆMD Í VEGAMÁLUM
fréttir og fró›leikur
ÓSKALISTINN Í VEGAMÁLUM
DÝRUSTU VERKEFNI SEM KALLAÐ ER EFTIR
1. Jarðgöng til Eyja 20-33 milljarðar
2. Sundabrautin 8-9 milljarðar
3. Norðurvegur 5-7 milljarðar
4. Norðfjarðargöng* 6 milljarðar
1 2 3 4
*Seyðisfjörður-Norðfjörður-Eskifjörður
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
Nor›lendingar hafa
horfi› frá umdeildum
áformum um hálendis-
veg yfir Stórasand en
ætla fless í sta› a› taka
höndum saman vi›
Sunnlendinga um ger›
heilsársvegar yfir Kjöl.
Veggjöld eiga a› standa
undir kostna›i vi› fram-
kvæmdina og líst sam-
göngurá›herra vel á
hugmyndina.
Hlutafélagið Norðurvegur ehf. var
stofnað í febrúar síðastliðnum með
að markmiði að undirbúa gerð heils-
árvegar yfir Arnarvatnsheiði og
Stórasand. Vegurinn hefði stytt ak-
leiðina á milli Akureyrar og Reykja-
víkur um 81 km og grófleg kostnað-
aráætlun hljóðaði upp á 5,5 mill-
jarða króna. Framkvæmdin átti að
vera í höndum einkaaðila, fjár-
mögnuð að mestu leyti með lánsfé
sem greitt yrði til baka með inn-
heimtu veggjalda.
Gerð nýs hálendisvegar um
Arnavatnsheiði og Stórasand var
ekki að skapi samgönguyfirvalda en
í samgönguáætlun er gert ráð fyrir
uppbyggingu fjögurra hálendis-
vega: Um Kaldadal, Sprengisand,
Fjallabaksleið nyrðri og Kjöl. Hug-
myndin mætti einnig andstöðu
Skagfirðinga og Blönduósbúa sem
töldu að ferðaþjónusta á svæðinu
missa spón úr aski sínum vegna
minni umferðar og eins þótti ýms-
um orka tvímælis að vegurinn átti
að liggja um Þjóðgarðinn á Þingvöll-
um. Í því sambandi benti sveitar-
stjórn Bláskógabyggðar á að í aðal-
skipulagi Þingvallasveitar komi
fram að hvers konar flutningar á
olíu, bensíni og öðrum mengandi
efnum séu ekki heimilaðir um þjóð-
garðinn. Sveitarstjórn Bláskóga-
byggðar skoraði því á norðanmenn
að endurskoða tilgang Norðurvegar
og skoða heldur þá kosti sem fælust
í heilsársvegi um Kjöl.
Taka höndum saman
Stjórn Norðurvegar mat svo að and-
staðan við Stórasandsveg væri of
mikil til að framkvæmdin yrði að
veruleika í náinni framtíð. Því hafa
norðanmenn og Sunnlendingar nú
tekið höndum saman; tilgangi Norð-
urvegar ehf. verður breytt í sept-
ember og félagið gert að undirbún-
ingsfélagi um gerð heilsársvegar
yfir Kjöl, sem fjármagnaður verði
með lánsfé og rekinn með veg-
gjöldum. Sunnlendingar, með Kjart-
an Ólafsson þingmann í fylkingar-
brjósti, eru að safna hlutafé á Suð-
urlandi sam lagt verður í Norður-
veg ehf. og líklega verður nafni fé-
lagsins breytt í Kjalveg ehf.
Stofnhlutafé Norðurvegar var 11
milljónir króna og er Kaupfélag Ey-
firðinga stærsti hluthafinn með
fimm milljónir króna. Þar á eftir
kemur Akureyrarbær með þrjár
milljónir króna og Hagar með tvær
milljónir króna en gert er ráð fyrir
að hlutafjárframlag Sunnlendinga
verði um 10 milljónir króna.
Frá Reykjavík verður ekið um
núverandi veg um Hellisheiði og
Hveragerði, upp í Grímsnes, fram
hjá Gullfossi og inn á Kjöl en þar
er nú þegar vegur sem opinn er
yfir sumartímann. Sumarvegurinn
verður byggður upp og gerður að
7,5 metra breiðum heilsársvegi
með bundnu slitlagi og hann tengd-
ur hringveginum með nýjum vegi
frá Blöndulóni að þjóðvegi 1 í botni
Skagafjarðar, nærri Silfrastöðum.
Kjartan Ólafsson segir Selfyss-
inga og uppsveitamenn mjög
áhugasama um gerð heilsársvegar
yfir Kjöl. „Vegurinn tengir saman
Suður- og Norðurland og styttir
leiðina á milli Selfoss og Akureyr-
ar um 110 kílómetra; úr 420 kíló-
metrum í 310 kílómetra. Kjalvegur
hefur nú þegar verið byggður upp
að sunnan og norðanverðu en eftir
á að endurbæta innan við 100 km
kafla. Við höfum látið verktaka
gera kostnaðaráætlun og sam-
kvæmt henni kostar uppbygging
þess vegarkafla 1,2 milljarða
króna og vegurinn í heild ekki
nema ríflega þrjá milljarða króna.
Hæst fer vegurinn hátt í 700 metra
yfir sjávarmál og því nauðsynlegt
að skoða vel veðurfarsgögn með
tilliti til snjóalaga en staðkunnugir
telja að snjóþyngsli verði ekki al-
varlegt vandamál,“ segir Kjartan.
Afstaða samgönguyfirvalda
Einkaaðilar ráðast ekki í gerð heils-
ársvegar um Kjöl nema með vilyrði
ríkisins. Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra var ekki hrifinn af
áformum Norðurvegar um veg yfir
Stórasand og Arnarvatnsheiði en
honum líst betur á heilsársveg yfir
Kjöl. „Hugmyndin hefur lauslega
verið kynnt fyrir mér og þó svo ég
eigi eftir að sjá frekari gögn þá líst
mér mjög vel á það sem ég hef séð
og er tilbúinn að ræða við þá aðila
sem að þessu máli koma. Hugmynd-
in er í samræmi við samgönguáætl-
un og ég tel ekki ólíklegt að af fram-
kvæmdinni geti orðið. Stjórnvöld
hafa hins vegar ekki tekið neina af-
stöðu til þess hvort þau komi að
fjármögnun framkvæmdarinnar og
ekki er gert ráð fyrir að settir verði
fjármunir í þetta verkefni á næstu
fjórum árum,“ segir Sturla.
Að mati Kjartans Ólafssonar
styrkist ferðaþjónusta og verslun á
Suðurlandi með tilkomu heilsárs-
vegar yfir Kjöl en Helga Halldórs-
dóttir, forseti bæjarstjórnar Borg-
arbyggðar, segist ekki hafa miklar
áhyggjur þó umferð minnki um
Borgarfjörð. „Í aðalskipulagi fyrir
Borgarnes er gert ráð fyrir því að
núverandi vegur verði fluttur út
fyrir byggðina og þó sú fram-
kvæmd sé ekki tímasett þá er hún
fyrirsjáanleg. Verslun og ferða-
þjónusta í Borgarbyggð byggir að
stærstum hluta á frístundabyggð í
Borgarfirði og umferð vestur á
Snæfellsnes og um Vestfirði,“
segir Helga. ■
LANGJÖKULL
VARMAHLÍÐ
SAUÐÁRKRÓKUR
HOFSJÖKULL
BLÖNDUÓS
GEYSIR
1
KJALVEGUR Heilsársvegur verður byggður þar sem nú er sumarvegur um Kjöl en nýr
vegur byggður frá Blöndulóni að þjóðvegi 1 í botni Skagafjarðar.
STURLA BÖÐVARSSON Var ekki hlynntur
gerð nýs hálendisvegar yfir Stórasand en líst
vel á hugmyndir um heilsársveg yfir Kjöl.
KJARTAN ÓLAFSSON Sunnlendingar eru
mjög áhugasamir um gerð heilsársvegar
yfir Kjöl.
KRISTJÁN J. KRISTJÁNSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
VEGUR UM KJÖL