Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 16

Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 16
Innipúkinn 2005 16 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Íslendingar keyptu sér vörur og þjón- ustu með debetkortum á síðasta ári fyrir tæpa 165 milljarða króna sam- kvæmt tölum Reiknistofu bankanna. Kemur margt forvitnilegt í ljós þegar rennt er yfir umræddar tölur. Algeng- ast er að fólk noti debetkort sín til að greiða fyrir upphæðir frá þúsund krón- um og upp í 2.500 krónur. Aðeins rúm tólf prósent allra færsla eiga við um hærri upphæðir en fimm þúsund og ljóst að við dýrari kaup en það nýta flestir sér kreditkort og dreifa þannig greiðslum eða staðgreiða vörur með peningum. Athyglisvert er einnig að töluverður fjöldi notar debetkort til að greiða fyrir vörur sem kosta minna en hundrað krónur. Reyndust tæp 265 þúsund slíkar færslur færðar til bókar hjá RB á síðasta ári eða samtals rúmar 20 millj- ónir króna. Að sama skapi voru 107 þúsund færslur vegna hærri kaupa en hundrað þúsund og nam heildarupp- hæð þeirra viðskipta alls rúmum 41 milljarði árið 2004. -aöe Keypt fyrir 165 milljar›a GRÍÐARLEG NOTKUN DEBETKORTA HJÁ LANDANUM:ÞJÓÐHAGSLEGUR SPARNAÐUR PRÓSENT AF VERGRI LANDSFRAMLEIÐSLU 1960-2006 og hagur heimilanna Útihátí›ir a› renna sitt skei›? 35 30 25 20 15 10 1960 20001970 1980 1990 Heimild: HAGSTOFA ÍSLANDS OG SEÐLABANKI ÍSLANDS Aðeins 24 fyrirtæki í landinu nota leiðbeinandi skilaréttarreglur þær sem Iðnaðar- og við- skiptaráðuneytið setti á fyrir tæpum sex árum. Voru reglurnar settar til að samræma verk- lagsreglur um skilarétt viðskiptavina verslana og þjónustu og gerðar í samvinnu við marga aðila. Taka þær til skilaréttar, skilafrests, gjafamerkja- og bréfa, útsöluvöruskila og inneign- arnótna og eiga að tryggja að heiðarleiki og ábyrgð séu í fyrirrúmi. Skuldbinda til að mynda þær verslanir sem þátt taka sig til að taka mót ógölluðum vörum sé þeim skilað innan fjórtán daga frá kaupum. Ekki hefur átakið borið ávöxt að ráði samkvæmt lista sem Neytendasamtökin halda saman um þau fyrirtæki sem þátt í því taka en um 24 fyrirtæki er að ræða. * Adams Smáralind * BT * Blanco y negro * Bókabúð Máls og menningar * Penninn-Eymundsson * Daman * Debenhams * Dressmann * Exit * Griffill * Hagkaup * Iljaskinn * Jack & Jones * Kokka * Office1 * Rammagerðin * Selected * SonyCenter * Shoe Studio * Topshop * Útilíf * Vero Moda * Vila * Zara Fáir fylgja reglum um vöruskil GÚMMÍKENND DEBETKORT Oft er talað um að vegna gríðarlegrar neyslu margra Íslendinga séu kort þeirra orðin mjúk og gúmmíkennd af notkun. Á síðasta ári notuðu Íslend- ingar debetkort alls 45 milljón sinn- um eða sem nemur rúmlega 160 færslum á hvert mannsbarn í landinu. Einstaklega heppileg hátíð fyrir þá höfuðborgarbúa sem vilja skemmtun um Verslunar- mannahelgina án þess að eiga á hættu að vakna í roki og rigningu og einhvern í svefn- pokanum sem þú kannast ekki við. Dagskráin er inni sem er galli ef veðurguðir sýna sitt rétta ljós. Þess utan eru þær hljóm- sveitir sem stíga á stokk afar misjafnar og ólíklegt að þær hitti allar í mark hjá öllum. Aðalnúmer: Mugison, Singapore Sling, Trabant, Hjálmar. Verð báða dagana: 3.900 Sjá nánar: innipukinn.com Þjóðhátíð í Eyjum 2005 Það vita þeir sem reynt hafa að stemmningin í Eyjum er mögnuð þegar best lætur. Fjölbreytt dagskrá að vanda fyrir alla fjölskylduna. Það vita einnig margir sem reynt hafa að ekki er hlaupið að því að pakka saman og koma sér á braut ef veður setur slæmt strik í reikninginn. Einnig má gera ráð fyrir að reikningur fyrir því að komast til og frá Eyjum auk miðaverðs sé vart undir 20 þúsundum króna. Aðalnúmer: Bubbi Morthens, Skítamórall, Í svörtum fötum Miðaverð: 8.500 í forsölu, 9.900 annars Sjá nánar: dalurinn.is Álfaborgarsjéns 2005 Fámennt en góðmennt. Þetta agnarlitla bæjarfélag tekur stökkbreytingum yfir Verslunarmannahelgina enda þarf ekki mikið til að allt iði af lífi og fjöri. Langt að fara. Borgarfjörður eystri er ekki beinlínis í leiðinni fyrir marga enda hefur raunin oftar en ekki verið sú að brottfluttir heimamenn nota þetta tækifæri til að koma aftur og lyfta sér ærlega upp. Aðalnúmer: Gestirnir sjálfir Miðaverð: Greitt fyrir gistingu og á dansleiki Sjá nánar: engin heimasíða Ein með öllu 2005 Akureyri er jafnan góð heim að sækja og ekki versnar það þegar margs konar viðburðir eru í boði fyrir gesti og gangandi fyrir utan það sem bærinn hefur venjulega upp á að bjóða. Ölvun og sóðaskapur. Ölvun hefur verið mikil síðari ár í miðbænum og sóðaskapur áberandi í kjölfarið. Verið gæti að þetta breyttist enda hafa bæjaryfirvöld hert á reglum um þá sem gista á tjaldstæðum bæjarins. Aðalnúmer: Fékkst ekki uppgefið Miðaverð: Greitt fyrir gistingu og á sérstaka viðburði Sjá nánar: engin heimasíða Bindindismótið í Galtalæk 2005 Áningarstaður þeirra sem vilja skemmta sér í vímuefnalausu umhverfi. Öll dagskrá fyrir yngri kynslóðina jafnan góð og margvísleg tækifæri. Sé einhverjum enn létt í skapi þegar aðrir ganga til náða verður sá hinn sami að hafa sig hægan ellegar er viðkomandi vísað frá svæðinu. Fremur kostnaðarsamt miðað við lítið úrval hljómsveita. Aðalnúmer: Love Guru Allstars, Hæsta hendin Miðaverð: 5.800 í forsölu Sjá nánar: galtalaekur.is Neistaflug 2005 Afar metnaðarfull dagskrá og mikið um að vera miðað við stærð bæjarfélagsins. Golfmót og hjólareiðakeppni fyrir þá sem eru fyrir heilbrigða lífshætti. Stórdansleikir og tónleikar á vægu verði með landsþekktum hljómsveitum. Töluverður spotti að fara nema um Austfirðinga sé að ræða. Aðalnúmer: Sálin hans Jóns míns, Papar Miðaverð: Allt frítt nema 2.300 krónur á hverja tónleika Sjá nánar: neistaflug.is Síldarævintýrið á Siglufirði Hægt er að svala fortíðarþránni rausnarlega með heimsókn á Siglufjörð. Góð söfn á staðnum, margt og mikið í boði sem tengist sjávarútvegi og mörgu öðru sem Íslendingar hafa fengist við gegnum tíðina. Hátíðin hefur verið með svipuðu sniði í nokkur ár og lítið nýtt þar að sjá nema fyrir þá sem ekki hafa upplifað síldarstemmningu áður. Aðalnúmer: Gestirnir sjálfir Miðaverð: Frítt að mestu Sjá nánar: siglo.is Nú styttist í mestu ferðahelgi ársins um Verslunarmannahelgina sem er í fyrra laginu þetta árið. Minna hef- ur farið fyrir auglýsingum vegna viðburða og útihátíða sem fram fara en oft áður enda er það mat margra að þeim fari fækkandi sem sækja slíkar samkomur sérstaklega. Þetta árið er hefðbundið að flestu leyti. Stóru samkomurnar fjórar verða allar haldnar aftur. Ein með öllu á Akureyri, Neistaflug á Neskaupsstað, bindindismótið í Galtalæk og Þjóðhátíð í Eyjum auk fjölmargra minni víða um land. Sér- stakur aðgangseyrir er innheimtur í Galtalæk og í Eyjum en annars stað- ar greiða gestir aðeins fyrir að sækja tónleika eða aðra stærri við- burði. Sé litið til þess hve eldsneyt- isverð hefur hækkað undanfarið er líklegt að fleiri líti til þess en áður. Hér er lausleg úttekt á nokkrum af hátíðum helgarinnar. Margar aðrar hátíðir eru haldnar víða um land þótt með öðru umstangi sé. Hæst ber þar unglingalandsmót í Vík í Mýrdal. Tvær kristilegar hátíðir verða haldnar á landinu en þær hafa verið vel sóttar. Einnig má búast við gestafjölda á Skaga- strönd, Sólheimum, Flúðum, Hellu, við Úlfljótsvatn og í Úthlíð. + – – + – + – + – + – + – +

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.