Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.07.2005, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 14.07.2005, Qupperneq 18
Sú var tíð, og það er ekki ýkja langt síðan, að saga þjóðanna var í fyrsta og síðasta lagi stjórnmálasaga. Slíkt var ofríki stjórnmálanna í uppvexti þjóð- ríkjanna á rústum lénsveldis á 19. öld. Bergmál þessa ofríkis barst langt fram á 20. öld og fram á þessa og birtist með ýmsu móti. Barnaleikritin í Melaskólanum um og eftir miðja síðustu öld fjölluðu iðulega um kónga og drottningar og prinsa í álögum eins og ekkert væri sjálfsagðara. Fréttatímar út- varps og sjónvarps á okkar dög- um eru sama marki brenndir, þótt þeir hafi skánað talsvert frá fyrri tíð: hlutfall stjórnmála- frétta er ennþá langt umfram mikilvægi stjórnmála í lífi fólks- ins, eða svo sýnist mér. Ekkert rifrildi milli stjórnmálamanna er svo fáfengilegt, að frá því sé ekki sagt í smáatriðum eins og um stórtíðindi sé að tefla. Með líku lagi eru ævisögur stjórn- málamanna víða miklar fyrir- ferðar. Hér heima hafa þó til- tölulega fáir stjórnmálamenn hirt um að skrifa sjálfsævisögur, þótt undarlegt megi virðast, og aðeins þrír forsætisráðherrar fylla þann flokk: Stefán Jóhann Stefánsson, Emil Jónsson og Steingrímur Hermannsson, hin síðasta skráð af Degi Eggerts- syni lækni. Um nokkra aðra eru til ævisögur í fullri lengd, t.d. Hannes Hafstein og Ólaf Thors. Íslandssagan er fátækari fyrir vikið, því að góðar sjálfsævisög- ur þétta og fylla þjóðarsöguna. Sjálfsævisögur forsætisráð- herranna þriggja hafa ýmsa kosti hver á sinn hátt. En þær eru öðrum þræði samdar í sjálfsvörn eins og flestar aðrar slíkar sögur, og það kann að rýra gildi þeirra. Öðru máli gegnir um fyrri hluta sjálfævisögu Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrv. utanríkisráðherra (Tilhugalíf, 2002). Hún hefur þá sérstöðu meðal slíkra bóka, að hún er ekki skrifuð í sjálfsvörn, heldur ræðst höfundurinn þvert á móti harkalega gegn sjálfum sér fyr- ir að hafa vaðið í villu og svíma í stjórnmálum langt fram á miðj- an aldur með því m.a. að binda trúss sitt við rangan foringja, föður sinn. Þessi játning Jóns Baldvins vitnar um sjaldgæfan kjark og stórhug og lofar góðu um síðara bindið. Sem leiðir hugann að Hannesi Sigfússyni skáldi. En fyrst þetta. Látum það vera, hversu fáir stjórnmála- menn hafa hirt um að auðga Ís- landssöguna með endurminning- um sínum á prenti. Hitt er enn furðulegra, hversu fá íslenzk skáld hafa birt minningar sínar. Það hafa þó sum þeirra gert með miklum brag. Minningabækur Halldórs Laxness hafa m.a. þá sérstöðu í þessum flokki bóka, að þær eru alþekktar og mikið lesnar, og sumir telja þær meðal beztu bóka hans. Minningabæk- ur Hannesar Sigfússonar (Flökkulíf, 1981, og Framhaldslíf förumanns, 1985) fóru á hinn bóginn fyrir ofan garð og neðan í bókaheiminum, hefur mér virzt, fáir virðast nú kannast við þær. Hannes Sigfússon (1922- 1997) var atómskáld og skjól- stæðingur, aðdáandi og vinur Steins Steinarr, nema Steinn gat engum veitt nokkurt skjól, ekki heldur sjálfum sér. Hannes kvaddi sér hljóðs sem atómskáld með kvæðabókinni Dymbilvaka (1949) og birti fáeinar aðrar bækur næstu 30 árin og þýddi einar tuttugu og lét annars lítið fyrir sér fara, ól manninn í Nor- egi nokkurn hluta ævinnar og birti að leikslokum þessar líka skínandi endurminningar í tveim bindum, þar sem hann sallar sjálfan sig niður og dreg- ur ekkert undan. Bækurnar lýsa sviknum draumum, umkomu- leysi og ævilangri fátækt á fögru máli. Æviminningar Agnars Þórð- arsonar (Í vagni tímans, 1996, og Í leiftri daganna, 2000) eru af öðrum toga. Agnar hefur enga ástæðu til að taka sjálfan sig í gegn: hann er eitt helzta leik- skáld Íslendinga, enda þótt verk hans hafi ekki sézt á sviði í höf- uðborginni um nokkurt skeið. Það er skaði, því að t.d. Kjarn- orka og kvenhylli (Iðnó, 1955) er gott leikrit og á fullt erindi við nútímann, einnig Gauksklukkan (Þjóðleikhúsið, 1958); bæði eru til á prenti. Útvarpsleikrit hans, Víxlar með afföllum (1958), í níu þáttum, vakti svo mikla athygli á sinni tíð, að göturnar tæmdust, eða svo var sagt; útvarpið eyddi böndunum. Minningar Agnars Þórðarsonar vitna um höfund í stóru broti, skáld, sem lifir og hrærist í bókmenntum heimsins alls og hefur sitt á þurru, og þær búa yfir miklum og hóglátum þokka. Þetta eru minningabæk- ur af því tagi, sem stórskáld ann- arra þjóða skilja eftir sig: þær fjalla minnst um höfundinn sjálfan, mest um samferðamenn hans innan lands og utan og and- rúmið í kringum þá. Nafnaskrá- in að leiðarlokum telur um þús- und manns. ■ Síðastliðinn föstudag birtist frétt í Fréttablaðinu af þvíað Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að aug-lýsa breytingu annars vegar á skipulagi Barónsreits og hins vegar Skuggareits neðar við Skúlagötuna. Þessi litla frétt hvarf óneitanlega í skuggann af stærri atburðum – daginn eftir sprenguárásirnar í Lundúnum. Þótt fréttir af breyttu skipulagi í höfuðborginni skori ekki hátt á heimsatburðaskalanum voru þarna á ferðinni býsna mikil tíðindi fyrir borgarbúa. Og þá kannski sérstaklega íbúa við göturnar frá Hverfisgötu og upp Skólavörðuholtið því Skipulagsráð hefur sem sagt ákveðið að rétt sé að bæta fleiri háhýsum við þau sem þegar eru risin við Skúlagötuna. Hugmyndin er að bæta tveimur turnum, tólf og fjórtán hæða, við húsin sem verið er að leggja lokahönd á í svoköll- uðu Skuggahverfi, milli Klapparstígs og Frakkastígs. Í öðru lagi vill Skipulagsráð að reist verði þrjú háhýsi milli Barón- stígs og Vitastígs. Nú er ekkert að því byggja hátt, þvert á móti mætti gera meira af því að reisa há hús í Reykjavík í stað þess að teygja byggðina lárétt upp til heiða og fjalla. En að gera það á þess- um stað, við sjávarsíðuna, og svipta þar með allt fólkið sem býr upp með Skólavörðuholtinu fjallasýn og útsýni út sund- in blá, nær náttúrlega ekki nokkurri átt. Í öðrum löndum er leitast við að byggja hátt uppi á hæðum og hafa byggðina lækkandi niður að sjó. Nema auðvitað þar sem hraflað hefur verið upp húsum með hraði eins og víða hefur verið gert til dæmis við strendur Miðjarðarhafsins, unnendum arkitekt- úrs og öðru smekkfólki til lítillar ánægju. Hótelturnarnir í strandbænum Benidorm eru eitt hryggilegt dæmi sem margir Íslendingar þekkja vel til. Nú skal tekið fram að núverandi merihluti borgarstjórnar og Skipulagsráðs hlaut skipulag Skúlagötu í arf frá fyrri valdhöfum í borginni. Sjálfstæðismenn hljóta á sínum tíma að hafa haft sjónarhorn sæfarenda í huga þegar þeir lögðu grunn að háhýsabyggðinni við þennan hluta strandlengjunn- ar; borgarmyndin hefur væntanlega átt að vera stássleg frá sjó að sjá. En af hverju R-listinn hefur kosið að taka þetta skipulag upp á sína arma er erfitt að skilja. Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi R-listans og formað- ur Skipulagsráðs, segir að með þessum tillögum fáist heild- armynd á strandlengjuna, sem er vissulega rétt. En er það virkilega eftirsóknarvert þegar sú mynd er slæm og gengur á lífsgæði þeirra sem missa útsýni yfir þann fjólubláa draum sem Skarðsheiðin er á fallegum vorkvöldum í Reykjavík? Það er synd að þessar hugmyndir skuli vera hluti af ann- ars mjög tímabærum og metnaðarfullum áformum Dags og félaga um uppbyggingu á svæðinu í miðborginni og kringum Hlemm. ■ 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR SJÓNARMIÐ JÓN KALDAL Tillögur Skipulagsráðs um fleiri háhýsi við Skúlagötuna ganga á lífsgæði íbúa Skólavörðuholts. Benidorm nor›ursins FRÁ DEGI TIL DAGS Hringurinn 1400 km á 15 dögum! Söfnunarsímar: 907-2001 og skuldfærast þá 1000 kr. af símareikningi 907-2003 og skuldfærast þá 3000 kr. af símareikningi Bankareikningur söfnunarinnar er 513-14-606030 kt. 511083-0369. Það skiptir okkur öll máli www.hjartaheill.is Endurminningar Skammgóður vermir Sverrir Jakobsson, einn af innanbúðar- mönnum og hugmyndafræðingum Vinstri grænna, fjallar um R-lista viðræðurnar í pistli á vefritinu Múrnum í gær. Hann segir að ekki sé ljóst hvað það merki á mannamáli þegar viðræðunefndin talar um að fara í „nánari útfærslu og vinnu- ferli“. Hann sér engin merki um að þessi frestun „sé annað en skamm- góður vermir“. Það blasi við að „geti Samfylk- ingin ekki fallist á sanngjarnar tillögur um skipun á listann núna er ekki miklar líkur á því að hún muni gera það neitt frekar eftir tvo mánuði“. Fengu í magann Ástæðuna fyrir frestuninni telur Sverrir þá „að í vikunni birtust skoðanakannanir sem bentu til mikils fylgis Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Samfylkingin stjórn- ast af skoðanakönnunum og þær bentu til þess að þetta væri augljóslega ekki rétti tíminn til að slíta viðræðum. Mark- aðsmenn flokksins fengu í magann við tilhugsunina og ráðlögðu flokksforystunni að bíða með slitin fram í ágúst“. Hann telur að Samfylkingin ofmeti fylgi sitt: „Að flytja ímyndað fylgi á milli kosn- inga hljómar kannski vel þegar menn ætla að tala digurbarkalega á fundum, en rifjum nú upp fortíð sem ekki er beinlínis löngu liðin. Þegar Samfylkingin var stofn- uð var hún með 38% kjörfylgi sem átti að mynda grundvöllinn að yfirtöku krataklíkunnar á íslensku samfélagi. En það reyndist þrautin þyngri að flytja þetta fólk úr gömlum flokkum í nýjan, eins og hverja aðra hreppsómaga.“ Ekki bjartsýnn „Þannig að frestunin núna getur varla haft mikið að segja nema að tilgangurinn sé annað hvort að fresta sambúðarslitun- um þangað til skoðanakannanir séu hag- stæðari eða þá að Samfylkingin þurfi ein- faldlega nokkrar vikur í viðbót til að öðl- ast jarðsamband. Það er samt engin ástæða til bjartsýni. Núna er Samfylking- in aftur komin á þá skoðun að trúin á eigið ágæti geti flutt fjöll. Við ættum að vera búin að læra við hverju er að búast af flokknum í þeim ham,“ segir Sverrir Jakobsson. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL- SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA Í DAG SJÁLFSÆVISÖGUR STJÓRNMÁLAMANNA OG SKÁLDA ÞORVALDUR GYLFASON Hitt er enn fur›ulegra, hversu fá íslenzk skáld hafa birt minn- ingar sínar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.