Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.07.2005, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 14.07.2005, Qupperneq 24
Haraldur Ólafsson, prófessor í mannfræði, stefnir á æskuslóðir á afmælisdag sinn. „Ég ætla að fara vestur að Staðarhrauni þar sem ég ólst upp hjá fósturfor- eldrum og fara síðan austur í Stykkishólm þar sem ég fædd- ist,“ segir Haraldur sem hefur ekki haldið stórt upp á afmæli sitt síðan hann varð fimmtugur. Á sextugsafmæli sínu var hann í Svíþjóð hjá dóttur sinni og fyrir fimm árum hjá syni sínum sem var við nám í Frakklandi. „Það var mjög eftirminnilegt. Við fengum okkur að borða á litlum veitingastað í Suður-Frakklandi. Síðan gengum við út í kvöldið og það var fólksfjöldi á götunum og spilað og dansað og flugeldar enda þjóðhátíðardagur Frakka,“ segir Haraldur sem hlakkar til að geta loks eytt afmælisdegi sínum með báðum börnum sín- um og barnabörnum. Haraldur er nýlega hættur að kenna við Háskóla Íslands þar sem hann var við störf í hartnær þrjátíu ár. Enn er hann þó viðloð- andi háskólalífið og hefur dokt- orsnema sem hann fylgist með. Hann segir gífurlegar breytingar hafa orðið á síðustu áratugum. „Þegar ég kom að Háskólanum var verið að undirbúa Félagsvís- indadeild. Þarna voru örfáir nem- endur en góðir,“ segir Haraldur en Félagsvísindadeild er sú stærsta í Háskólanum í dag. „Stóra breytingin fyrir utan hina miklu fjölgun er meistara- og doktorsnámið sem hefur komið til á þessum árum og hefur þar verið lyft grettistaki af háskólayfir- völdum og stúdentum,“ segir Har- aldur sem telur Háskólann á mörgum sviðum vera fullgildan rannsóknarháskóla. Þó að Haraldur hafi alltaf haft gaman af því að kenna, sérstak- lega í smærri hópum, saknar hann þessi ekki. „Ég var orðinn dálítið leiður á að hlusta á sjálfan mig. Með árunum fer maður að taka eftir því að brandararnir fara að verða svolítið þunnir,“ segir Haraldur og hlær. Hann segir að hann og aðrir kennarar fyrstu árin hafi notið mikillar fjölbreytni. „Ég varð að kynna mér ýmsar greinar sem ég hafði litla þekkingu af,“ segir Haraldur sem telur að fyrstu árin hafi jafn mikill tími farið í lestur og hjá nemendum sínum. Haraldur vinnur núna heima, segist ætla að hreinsa burt gaml- ar syndir, ritgerðir og verk sem á eftir að klára. Þá vinnur hann að þýðingum franskra bókmennta og hver veit nema bókarkorn verði til á næstu árum. ■ 24 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR ANTON TSJEKHOV (1860-1904) lést þennan dag. HARALDUR ÓLAFSSON, PRÓFESSOR Í MANNFRÆÐI, ER 75 ÁRA Í DAG Leiddist að hlusta á sjálfan sig „Ef þú hræðist einmanaleikann skaltu ekki giftast.“ Anton Tsjekhov var ástsælt rússneskt leikritaskáld sem skrifaði meðal annars verkin Björninn, Ivanov og Þrjár systur. timamot@frettabladid.is PRÓFESSOR Í MANNFRÆÐI Haraldur var einn af fyrstu kennurum við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands og starfaði þar í hartnær 30 ár. Þennan dag í París árið 1789 réðust uppreisnarmenn inn í Ba- stilluna, konunglegt virki sem var notað sem fangelsi, einkum fyrir pólitíska andófsmenn. Bastillan féll í hendur alþýðunnar og var síðar lögð í rústir. Þetta markaði upphaf frönsku byltingarinnar sem einkenndist af áratugs upp- námi í stjórnmálum landsins og óttafengnum tíma þar sem Lúð- vík konungi sextánda var steypt af stóli og tugþúsundir manna, þar á meðal konungurinn og eig- inkona hans María Antonetta, voru líflátnar. Þessi dagur hefur ávallt gengið undir nafninu Bastilludagurinn og er þjóðhátíðardagur Frakka. Bastillan var byggð árið 1370 sem virkisveggur til að verjast ágangi Englendinga. Henni var síðar breytt í fangelsi og fengu fæstir fanganna réttarhöld heldur var kastað þangað undir beinni skipun frá konungi. Þessi stóra og ógnandi bygging varð því nokkurs konar ták fyrir harðstjórn konungsættarinnar. Í sumarbyrjun árið 1789 stefndi Frakkland hraðbyri að byltingu. Mikill matarskortur jók þá reiði sem þegar beindist að stjórnar- háttum Lúðvíks sextánda. Árið 1792 var konungsveldið afnumið og konungur og drottning háls- höggvin fyrir landráð ári síðar. Bastillan var rifin að skipun nýrrar stjórnar uppreisnarmanna og 6. febrúar árið 1790 var síðasti steinninn afhentur þjóðinni. 14. JÚLÍ 1789 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1099 Kristnir riddarar ná yfirráð- um í Jerúsalem í fyrstu krossferðinni. 1839 Skírnarfontur sem Bertel Thorvaldsen gaf Dómkirkj- unni í Reykjavík er vígður. Við athöfnina er drengur skírður í höfuðið á lista- manninum. 1958 Hópur írakskra hermanna fremja valdarán og velta Faisal konungi úr stóli en talið er að hann hafi látist í árásinni. 1974 Vegurinn yfir Skeiðarársand er opnaður og þar með lýkur gerð hringvegarins um landið. Byggðar voru tólf brýr sem samanlagt voru um tveir kílómetrar. 1999 Örn Arnarson verður Evr- ópumeistari unglinga í 200 metra skriðsundi á móti í Moskvu. Bastillan fellur í hendur alfl‡›unnar Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, Kristmundur Jóhannesson bóndi að Giljalandi, Haukadal, Dalasýslu er lést aðfaranótt 6. júlí sl. verður jarðsunginn frá Stóra-Vatns- hornskirkju laugardaginn 16. júlí kl. 14. Sigríður Bjarnadóttir Sigurbjörg Kristmundsdóttir Pétur Guðsteinsson Bjarni Kristmundsson Áshildur Eygló Björnsdóttir Hallur Kristmundsson Aðalheiður Hanna Björnsdóttir Jóhanna Gísladóttir Fernand Lupion afabörn og langafabarn Hjartans þakkir til allra þeirra sem á einn eða annan hátt sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall elsku pabba okkar, tengdapabba, afa, langafa, bróður og mágs, Jóhanns Páls Ingólfssonar Uppsölum, Eyjafjarðarsveit, Sérstakar þakkir fær starfsfólk lyfjadeildar Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri fyrir frábæra umönnun. Lilja Jóhannsdóttir Örn Tryggvason Ásdís Jóhannsdóttir Örn Arason Inga Jóhannsdóttir Rúnar Arason Jóhann Jóhannsson Hjördís Henriksen Halla Jóhannsdóttir Ragnar Torfi Geirsson Ingólfur Jóhannsson Matthildur Ásta Hauksdóttir Bergur Ingólfsson Regína Pétursdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar og tengdamóðir, Ásta Einarsdóttir frá Reykjadal, andaðist á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 8. júlí sl. Jarðsett verður frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 16. júlí kl. 14. Elín Gréta Kortsdóttir Sigurður Sigurðsson Guðbjörg Júlía Kortsdóttir Grímur Jóhannesson Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, Hjálmar Vagn Hafsteinsson Túngötu 18, Sandgerði, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 15. júlí kl. 14.00. Sigrún Ásgeirsdóttir Hafsteinn Oddsson Sonja Hafsteinsdóttir Halldór Þorvaldsson Ásgerður Hafsteinsdóttir Díana Hafsteinsdóttir Aleksandrs Mavropulo og frændsystkini. Þakkir Hjartanlegar þakkir færi ég öllum þeim sem glöddu mig með nærveru sinni að Árbliki þ. 5.júní sl. í tilefni 80 ára afmælis míns. Einnig þakka ég öllumþeim sem sendu skeyti og hringdu. Sérstaklega þakka ég barnabörnunum mínum, Sigurdísi og Denna, fyrir framúrskarandi hjálp við veitingar. Kærar þakkir allir sem komu þar að. Lifið heil og Guð blessi ykkur öll. Lilja Sveinsdóttir • N – Hundadal, Dalasýslu. www.steinsmidjan.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.