Fréttablaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 14.07.2005, Blaðsíða 25
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 9 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er fimmtudagur 14. júlí, 195. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 3.38 13.34 23.27 AKUREYRI 2.51 13.18 23.42 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag María Sigrún Hilmarsdóttir sjónvarps- fréttakona er dálítið fatafrík og í fata- skápnum hennar er að finna ýmislegt sniðugt þó að einn kjóll standi upp úr. „Í fataskápnum mínum kennir ýmissa grasa en það er einn kjóll sem stendur upp úr sem mér finnst skemmtilegur. Það er sumarkjóll með vatnaliljum á sem ég keypti í Hennes og Mauritz í London fyrir tveim árum,“ segir María en það var ekki hlaupið að því að kaupa kjólinn. „Hann var ekki til í minni stærð. Það var einn til í númer 42 en ég nota yfirleitt númer 38. Ég keypti hann samt og fór með hann til saumakonu þegar ég kom heim sem minnkaði hann fyrir mig. Nú er hann eins og hann hafi verið saumaður utan um mig.“ „Ég nota kjólinn ekkert voðalega mikið enda er þetta kjóll sem maður notar á góð- viðrisdegi til að fara í garðveislu, brúð- kaup eða eitthvað þvíumlíkt,“ segir María sem er dálítið fatafrík. „Ég er frekar mikið fyrir föt en ég kaupi yfirleitt mikið í einu og mjög sjaldan. Ég er alls ekki mikið fyrir merki eða með dýran smekk. Þegar ég sé falleg föt þá kaupi ég þau – hvort sem það er á flóamarkaði eða einhvers staðar annars staðar.“ lilja@frettabladid.is Einn kjóll stendur upp úr tiska@frettabladid.is Sala falsaðrar hönnunar nam um það bil ellefu milljörðum punda á síðasta ári sem er mun meira en á síðustu árum. Glæpamenn nota nú netsíður eins og Ebay til að ná til sín viðskiptavinum. Falsaðar hönn- unarvörur seljast fyrir mörg hundruð dollara á Ebay og er margur kaupandinn afar svekktur þegar hann fær fölsuðu vöruna í hendurnar. Fatahönnuðurinn Valentino mun fá Superstar verðlaunin á 22. Fashion Group International Night of the Stars athöfninni sem fer fram 27. október. Valentino hefur klætt sumar fal- legustu konur heims eins og Juliu Roberts, Halle Berry, Jackie Onassis, Elizabeth Taylor og Gwen Stefani. Fata- hönnuðurinn Al- berta Ferretti mun líka fá verðlaun, sem og förðunar- fræðingurinn Pat McGrath. Óléttu poppstjörnuna Britney Spears langar mikið að setja á markað sína eigin meðgöngu- fatalínu. Spears, sem mun fæða sitt fyrsta barn í október á þessu ári, er með fullt af hug- myndum sem geta gert óléttu- kúluna mun tískulegri. „Það er fullt af ljótum fötum í verslun- um fyrir verðandi mæður. Ég skil ekki af hverju verslanir bjóða ekki upp á meira töff föt,“ segir Spears. Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur ráðið hinn fræga tísku- ljósmyndara Mario Testino til að taka myndir í væntanlegu brúðkaupi sínu þar sem hún mun giftast skrýtna rokkaran- um Pete Doherty. Parið hefur verið saman síðan í janúar á þessu ári og ætlar að ganga í það heilaga á heimili Moss í Glouchestershire í Englandi seinna á þessu ári. Mario tekur yfirleitt mörg hundruð pund fyr- ir myndatöku en gefur Moss vænan afslátt þar sem hún hefur unnið oft með honum áður. María notar uppáhaldskjólinn ekki mikið enda passar hann vel í brúðkaup eða garðveislur. LIGGUR Í LOFTINU í tísku FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP TÍSKA TILBOÐ o.fl. KRÍLIN Ég fékk fimm krónur til að fara með í kirkjuna en svo kostaði ekkert inn. Gullæði grípur um sig BLS. 5 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is Piero Fornasetti hann- aði matardiska sem eru geysivinsælir en andlit sömu konunnar kemur fyrir á þeim öllum í mis- munandi útfærslum. Einir heitustu matardisk- arnir á markaðnum í dag eru Fornasetti diskarnir sem eru eiginlega of flottir til að borða af. Þeir voru hannaðir af Pi- ero Fornasetti en hann not- aði andlit einnar konu á öll- um diskunum í mismunandi útfærslum og í dag eru til rúmlega 350 tegundir af diskum. Ekki allar gerðir af disk- unum eru í framleiðslu í dag en sonur Piero, Barnaba, tók yfir fyrirtæki föður síns er hann lést árið 1998 og hóf endurfram- leiðslu á vissum teg- undum. Hægt er að nálgast diskana og nánari upp- lýsingar um Fornasetti fyrirtækið á vefsíð- unni fornasetti.com og kosta þeir um sex þús- und íslenskar krónur stykkið. ■ ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is Heitustu matar- diskarnir í dag Piero notaði andlit sömu konunnar á alla diskana sína. Piero Fornasetti. Fyrir aftan hann má sjá diskana frægu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.