Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 31

Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 31
Mikið lagt í tískuviku hérlendis Iceland Fashion Week hefst í dag en þar leggja sextán ungir hönnuðir verk sín í dóm gesta – sem meðal annars eru Hollywoodstjörnur og fulltrúar erlendra fjölmiðla. FIMMTUDAGUR 14. júlí 2005 Á meðan sumartíska þessa árs er enn á útsölu kynna tískuhúsin tísk- una fyrir næsta sumar en herratískusýningunum fyrir sumar 2006 lauk í síðustu viku hér í París. Að vanda er margt forvitnilegt að sjá en þeir herrar sem ætla sér að fylgja tískunni næsta sumar að hætti John Galliano eða Jean Paul Gaultier ættu að byrja á magaæfingun- um núna. Karltýpa næsta sumars er nefnilega „ultra sexy“, gengur í skærum litum og gegnsæjum, fráhnepptum skyrtum með bert á milli laga. Því þarf skíðabrettið að vera á sínum stað. John Galliano er ekki bara hönnuður Dior tískuhússins heldur á hann sitt eigið merki, John Galliano, þar sem hann hannar meðal annars karlmannaföt. Sýningin var í anda jarðafarargöngu svert- ingja í New Orleans þar sem djasshljómsveit fylgir kistunni og föt- in svört en svo færðist fjör í leikinn og sýningin fór yfir í Hari kristna stemningu, með stórum trommum og appelsínugula litnum sem einkennir föt þeirra sem aðhyllast Hari kristna. Þarna mátti sjá flottar bútasaumsgallabuxur með útsaumi og allar fyrirsæturnar með nærbuxunar upp úr buxunum, auðvitað merktar hönnuðinum með hans gotneska letri. Sama má segja um sýningu Dolce og Gabbana í Mílanó, litir, gallabuxur með alls kyns skreytingum eins og smellum, götum, þröngir bolir og opnar skyrtur. Hedi Slimane, hönnuður karllínu Dior, heldur áfram með mjónutískuna sína sem minnir helst á Twiggy í karlútgáfu, fölir og mjóir, ungir strákar, sem líta út fyrir að vera þrettán og hálfs árs er ímynd Herra Dior! Á mörkum hvort hægt er að kalla stílinn sexý fyrir vikið. Buxurnar verða áfram á hælunum næsta sumar. Auðvitað eru tískuhús sem eru á klassískari línum og fara var- lega með litina svo sem Prada sem býður næsta sumar upp á línu sem samanstendur af ljósgráum jökum og buxum, bláu með örlitlu af grænum peysum í bland. Reyndar er herralína Prada 2006 óvenju litlaus og Miuccia Prada hefur ekki farið langt til að finna upp hjól- ið að þessu sinni. Stefano Pilati, hönnuður Yves Saint Laurent, leitar að vanda í smiðju gamla meistarans, lítil áhætta tekin þar. Pilati virðist þó ná betri tökum á herratískunni en kvenhönnun sinni og í þetta sinn er það uppáhaldsland gamla Saint Laurent, Marokkó, sem er uppspretta innblásturs Pilati. Næsta sumar verða herraskórnir með hlébarðamunstri. En ístr- an er algjörlega úti næsta vor og sumar þannig að nú eru um 330 dagar til stefnu. Ef allt bregst verður fitusog síðasta hálmstráið. Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS „ L’homme ultra sexy “ er maður næsta sumars NÝ SENDING Kjólar – Toppar Jakkar – Skór Tískuhátíðin Iceland Fashion Week stendur fram á mánudag og að sögn Láru Guðrúnar Ævars- dóttur kynningarfulltrúa er mikið lagt í tískuvikuna og erlendir gestir farnir að streyma til lands- ins. „Tískusýningin sjálf verður á Vegamótastíg á laugardaginn og þar munu stíga á stokk íslenskar fyrirsætur klæddar hönnun eftir sextán unga hönnuði sem koma hvaðanæva að úr heiminum. Þess- ir hönnuðir eru að kynna sig og sína fatalínu fyrir alþjóðlegum fjölmiðlum og kaupendum,“ segir Lára. Fjölmargir erlendir fjölmiðlar munu fjalla um sýninguna í ár, meðal annars Vogue Italia og Paris, Fashion Television Paris, Wireimage.com, Robb Young frá Clifton House og Diane Pernet, framleiðandi og dálkahöfundur fyrir Vogueparis.com. British Fashion Council sendir einnig fulltrúa sinn á sýninguna. „Í dag verður mátun og val á fyrirsæt- um í Vetrargarðinum í Smára- lind,“ segir Lára, „og fróðlegt og skemmtilegt fyrir fólk að koma og fá forsmekkinn þar.“ Iceland Fashion Week er hald- in í samstarfi við MAC, Toni & Guy, Óliver, Vegamót, Lögregluna í Reykjavík , FM 957, Og Vodafo- ne, Íslandspóst, Karon, Smára- lind, Allrahanda og Miðbæjar- samtökin. Frekari upplýsingar um dagskrána er að finna á IcelandFashionWeek.is. edda@frettabladid.is Þessi sérstaki rauði kjóll settur blómum er eftir sænska hönnuðinn Alice Lodge. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A R U N N EV AD ER 50-70% afsláttur af öllum útsöluvörum. Erum að taka upp nýjar vörur. Enn meiri verðlækkun! Kringlunni • Sími 533-2290 Nýjar vörur á útsölunni Nýtt kortatímabil Meiri verðlækkun allt að 50% ÚTSALA ÚTSALA 30-80% AFSLÁTTUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.