Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 42
14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
> Við biðlum til ...
... systur þeirra Ásthildar og Þóru B.
Helgadætra um að fresta brúðkaupi sínu
sem fyrirhugað er sama dag og íslenska
kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir því
Bandaríska hinn 24. júlí nk.
Hvorugar gefa kost á sér
vegna brúðkaupsins og
þarf ekki að fjölyrða um
hversu slæmt er fyrir lið
Íslands að vera án þeirra
systra gegn einu sterkasta
landsliði heims.
Heyrst hefur ...
... að handknattleiksmaðurinn Ólafur
Stefánsson hafi á sinn einstaka hátt náð
að týna lyklinum að fataskáp sínum í
búningsklefa Lauga þar sem hann
stundar nú æfingar af kappi yfir
sumartímann. Ólafur sást nýlega stumra
um gólf Lauga með stærðarinnar
járnklippur sem síðan voru notaðar til að
opna hengilásinn.
sport@frettabladid.is
26
> Við hrósum ...
.... Atla Eðvaldssyni, þjálfara Þróttar, fyrir að
mæta á leiki klæddur stílhreinum jakka-
fötum. Atli ber af öðrum þjálfurum
deildarinnar, en allir hafa þeir
gert að vana sínum að mæta á
völlinn í æfingagallanum eða í
þykkum úlpum merktum sínu
félögum.
Fyrirli›i Liverpool, Steven Gerrard skora›i öll mörk Liverpool í 3-0 sigri gegn
velska li›inu Total Network Solutions í 1. umfer› Meistaradeildarinnar í gær.
Gerrard betri en enginn
FÓTBOLTI Margir höfðu á orði í síð-
ustu viku að enginn gæti leyst
Steven Gerrard af hjá Liverpool.
Þá var hann á barmi þess að fara
frá félaginu en á síðustu stundu
ákvað hann að vera áfram og
skrifaði undir nýjan samning. Í
gær sýndi Gerrard og sannaði að
þeir sömu höfðu líklega rétt fyrir
sér.
Hefði ekki verið fyrir hinn
magnaða Gerrard er alls ekki víst
að Liverpool hefði unnið leikinn
gegn TNS í gær. Gerrard, sem að
sjálfsögu bar fyrirliðabandið,
sannaði heldur betur mikilvægi
sitt hjá liðinu með því að skora öll
þrjú mörk liðsins í leiknum –
hvert öðru glæsilegra.
Leikmenn TNS sýndu aðdá-
unarverða baráttu í 90 mínútur á
Anfield og gáfust aldrei upp þrátt
fyrir mikla yfirburði heima-
manna. Allir leikmenn Liverpool,
að Gerrard undanskildum, voru
gjörsamlega mislagðir fætur upp
við mark TNS og var greinilegt að
leikmenn eru langt frá því að vera
komnir í almennilegt leikform.
Flestir leikmanna Liverpool byrj-
uðu að æfa í síðustu viku og því
kannski ekki hægt að fara fram á
stærri sigur. Þriggja marka for-
skot fyrir síðari leik liðanna ætti
að vera feykinóg fyrir Evrópu-
meistarana í næstu viku.
Rafael Benitez, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, stillti upp
blönduðum hópi af lykilmönnum
og nokkrum yngri og óreyndari
leikmönnum og er líklegt að hann
tefli fram enn meira varaliði í
síðari leiknum. -vig
Robert Pires hjá Arsenal vill fá langtímasamning hjá félaginu:
FÓTBOLTI Forráðamenn tyrkneska
stórliðsins Galatasary segjast
vera mjög nálægt því að ná samn-
ingi við Robert Pires, franska
miðjumanninn hjá Arsenal.
Staðfest hefur verið að Pires
neitaði nýlega árs framlengingu á
samningi sínum við Arsenal sem
rennur út, að öllu óbreyttu, eftir
næstu leiktíð. Pires er í leit að
langtíma samningi sem forráða-
menn Arsenal eru tregir til að
veita honum, en Galatasary er
reiðubúið að semja við Pires til
fjögurra ára. Galatasary er ekki
eina liðið sem hefur áhuga á
Pires, en Valencia og önnur lið á
Spáni vilja ólm fá Pires í sínar
raðir.
Forráðamenn Arsenal eru
sagðir líklegir til að taka góðu til-
boði í Pires berist það nú, í stað
þess að eiga á hættu að missa
hann frítt frá sér næsta sumar.
Pires er sagður vilja bíða með að
taka ákvörðun um framtíð sína
þar til að komið er í ljós hvað
verður um Patrick Vieira, fyrir-
liða Arsenal, en sögusagnir um að
hann sé á leið til Juventus verða
sífellt sterkari. Að sögn ýmissa
fjölmiðla í Bretlandi er Pires ekki
mjög spenntur fyrir því að vera
áfram hjá Arsenal fari svo að
Vieira hverfi á brott, en allt velt-
ur þetta á því hvort forráðamenn
Arsenal sjá sér fært að bjóða
Pires langtímasamninginn sem
hann vill. -vig
Galatasary fylgist vel me› gangi mála
Klæðnaður Atla Eðvaldssonar, nýráðins
þjálfara Þróttar í Landsbankadeild karla,
vakti mikla kátínu á meðal Köttaranna,
stuðningsmannahóps Þróttar, í leikn-
um gegn ÍA í fyrradag. Minnti Atli
um margt á Jose Mourinho hjá
Chelsea, klæddur í dökkan og síðan
frakka yfir jakkafötin og er ekki
hægt að segja annað en að það
hafi verið eilítið meiri klassi yfir Atla
en hjá kollega hans hjá ÍA,
Ólafi Þórðarsyni, sem var
eins og venjulega klædd-
ur í æfingagalla Skaga-
liðsins.
„Við erum gríðarlega
ánægðir með Atla.
Hann er einstaklega
flottur,“ segir Halldór
Gylfason, leikari og
ein helsta driffjöður þeirra Köttara uppi í
stúku. Undir dyggri stjórn Halldórs
stærstan hluta leiksins sungu Köttararnir
í kór: „Óli í jakkafötin, Óli í jakka-
fötin“ en áttu þeir ekki eftir að
eiga erindi sem erfiði. „Við
vonuðumst eftir að sjá útlits-
breytingu á Óla í hálfleik en
hann fór ekki í jakkafötin eins
og við báðum hann um. En
það er mikill klassi yfir
Atla,“ segir Halldór
og bætir við að það
sé mun meiri stíll
yfir honum heldur
en Ásgeiri Elíassyni,
fyrrverandi þjálfara
liðsins.
Halldór segir ýmis-
legt til í samanburð-
inum við Mourinho en að Atli minni sig
þó frekar á annan frægan kappa. „Mér
finnst eins og við séum komnir með
Klaus Augenthaler Íslands. Atli er fágað-
ur og yfirvegaður á hliðarlínunni.“ Per-
sónulega segir Halldór að
hvorki jakkafötin né
æfingagallinn eigi við
sig. „Ef ég væri þjálfari
væri ég inni á vellin-
um. Spilandi þjálfari,“
segir Halldór, sem ótt-
ast ekki örlög Þrótt-
ara í ár. „Ég er
alveg sann-
færður um
að Atli nái
að halda
okkur
uppi.“
STUÐNINGSMENN ÞRÓTTARA: EINSTAKLEGA ÁNÆGÐIR MEÐ KLÆÐNAÐ ATLA EÐVALDSSONAR
fia› er mikill klassi yfir Atla sem fljálfara
Opna
BYKO mótið 2005
Keppnisgjald er 3.000 kr.
Skráning á www.golf.is
og í skála í s: 486 4495
Laugardaginn 16. júlí
Punktakeppni:
5 fyrstu sætin fá verðlaun
Önnur verðlaun:
Nándarverðlaun,
allar fjórar par 3 brautirnar
Allir fá glaðning á fyrsta teig
Dregið úr skorkortum
Opna BYKO
mótið verður
haldið í Golfklúbbi
Kiðjabergs
BYGGIR MEÐ ÞÉR
Glæsileg verðlaun:
Mótið er opið öllum kylfingum.
Punktakeppni + besta skor
Hæsta forgjöf er 24 fyrir karla
og 28 fyrir konur.
Án forgjafar:
3 fyrstu sætin fá verðlaun
Sami aðili getur ekki fengið verðlaun
bæði í punktakeppni og án forgjafar
N
ÝR
18 HOLU
G O L F V Ö L
L U
R18HOLUR
A-landslið kvenna valið fyrir leik gegn Bandaríkjunum:
Ásthildur og fióra ekki me›
FÓTBOLTI Jörundur Áki Sveinsson,
þjálfari A-landsliðs kvenna í
knattspyrnu, hefur valið lands-
liðshópinn fyrir vináttulandsleik
gegn Bandaríkjunum, en leikur-
inn fer fram hinn 24. júlí í Los
Angeles.
Athygli vekur að systurnar
Ásthildur og Þóra Helgadætur
eru ekki í hópnum. „Systir þeirra
giftir sig þessa helgi og þær verða
viðstaddar athöfnina og komast
því ekki með. Þeirra er að sjálf-
sögðu sárt saknað.“
Margar ungar stelpur, sem eru
lykilmenn í A-landsliðinu, verða
ekki með í þessari ferð þar sem
þær verða með U-21 landsliðinu í
Svíþjóð á sama tíma. „Það eru
margar stelpur sem hefði verið
gott að nota í A-landsleikinn, en
leikir U-21 landsliðsins skipta
miklu máli og þess vegna ákváð-
um við að nota flestar stelpurnar
sem gjaldgengar voru í yngra
liðið þar.“
Með yngra liðinu verða meðal
annarra Greta Mjöll Samúels-
dóttir og Margrét Lára Viðars-
dóttir, en þær hafa verið með
bestu leikmönnum Landsbanka-
deildar kvenna í sumar.
Tveir nýliðar eru í A-landslið-
inu, þær Björk Gunnarsdóttir og
Sandra Sigurðardóttir. -mh
Íslandsmótið í hestaíþróttum:
Hör› keppni
framundan
HESTAR Íslandsmótið í hestaíþrótt-
um hefst í dag á Kjóavöllum, reið-
velli hestamannafélagsins And-
vara í Garðabæ.
Sigurður Sæmundsson lands-
liðsþjálfari í hestaíþróttum er
viss um að keppni verð hörð.
„Heimsmeistaramót íslenska
hestsins fer fram í Svíþjóð í næsta
mánuði og enn eru laus sæti í
landsliðinu. Ég ætla mér að velja
hópinn eftir þetta mót og á von á
því að margir keppendur berjist
um landsliðssætin.“
Hundrað tuttugu og níu knapar
eru skráðir á mótið, en keppni
hefst í dag klukkan átta að
morgni, og er stíf dagskrá alveg
fram á laugardagskvöld. -mh
SIGURÐUR SÆMUNDSSON Það eru enn þá
laus sæti í íslenska landsliðinu í hesta-
íþróttum, sem keppir á heimsmeistarmóti
íslenska hestsins í Svíþjóð í næsta mánuði.
. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURÐUR
ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR Fyrirliðans í ís-
lenska landsliðinu verður sárt saknað í
leiknum gegn Bandaríkjunum, sem eiga
eitt besta lið í heiminum.
UPPGJÖR EYJANNA Eyjamenn taka á móti
færeyska liðinu B36 í Evrópukeppninni á
Hásteinsvellinum í Eyjum í kvöld.
Evrópuleikir ÍBV og Keflavík:
Sögulegur leik-
ur í Eyjum
FÓTBOLTI Eyjamenn og Keflvíking-
ar spila í dag fyrri leik sinn í 1.
umferð undankeppni Evrópu-
keppni félagsliða. ÍBV tekur á
móti færeyska liðinu B36 á Há-
steinsvellinum í Vestmannaeyjum
en Keflvíkingar leika á útivelli
gegn FC Etzella í Lúxemborg.
Það verður söguleg stund í
Vestmannaeyjum því þetta er í
fyrsta sinn sem íslensk og færeysk
félagslið mætast í Evrópukeppni
en leikur liðanna hefst klukkan
18:00. B36 er nú í þriðja sæti fær-
eysku deildarinnar en liðið endaði í
öðru sæti á síðasta tímabili sjö
stigum á eftir meisturum HB.
Markahæsti leikmaður liðsins á
þessu tímabili var einmitt Alan
Mörköre en lék hann með ÍBV frá
1999 til 2000. Auk þessa leika með-
al annars með liðinu Fróði Benja-
minsen sem lék með Fram í fyrra
og Pól Thorsteinsson sem lék í
Valsvörninni í 1. deildinni 2000.
Leikur VISA-bikarmeistara
Keflavíkur fer fram á Stade du
Deich leikvanginum í Ettelbrück
og hefst klukkan 16:30 að íslensk-
um tíma. Þetta er í þriðja sinn sem
íslenskt lið mætir liði frá Lúxem-
burg og í bæði skiptin höfðu ís-
lensku liðin betur. Valur sló út Jeu-
nesse d’Esch út úr Evrópukeppni
meistaraliða 1967 og á fleiri mörk-
um skoruðum á útivelli og fyrir tíu
árum sló síðan KR lið Greven-
macher út úr Evrópukeppni bik-
arhafa. -óój
Opna breska golfmótið:
Nicholas kve›ur
á St. Andrews
GOLF Einn frægasti og sigursæl-
asti golfari allra tíma, Jack Nick-
laus, kveður á 134. opna breska
meistaramótinu sem hefst á St.
Andrews -golfvellinum í dag.
Þetta verður 164. og síðasta
stórmótið sem kappinn tekur þátt
í en fyrsta var fyrir 46 árum
síðan. Nicholas hefur unnið 18
stórmót á ferlinum og endaði 19
sinnum í öðru sæti eitthvað sem
engum öðrum hefur tekist. -óój
STEVEN GERRARD Spilaði
frábærlega í gær og var algjör
yfirburðamaður á vellinum,
þrátt fyrir að hafa að undan-
förnu gengið í gegnum
erfiðasta tíma ævi sinnar, að
eigin sögn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES