Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 50

Fréttablaðið - 14.07.2005, Side 50
34 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR Saga Búlgakovs um örlagaeggin á talsvert erindi við okkur í dag. Sjálfsagt hefði hann sjálfan tæplega rennt grun í hver þróunin yrði á Vesturlöndum í fréttaflutningi og upplýsingamiðlun í upphafi tuttug- ustu og fyrstu aldar, en við sem lif- um á þessari túrbó-upplýsingaöld verðum áþreifanlega vör við afleið- ingar afbakaðs og misvísandi frétta- og upplýsingaflæðis nú á dögum. Hitt er svo annað mál hvort sýning þessa leikhóps sem komin er saman eftir sex ár til að endurskapa vel heppnaða sýningu frá stúdenta- árunum eigi jafnmikið erindi upp á leiksvið í atvinnuleikhúsi, þrátt fyr- ir að margir sem þar komu við sögu hafi sótt sér menntun í listinni. Fjörugt hugmyndaflug Ekki skortir hugmyndaflugið í þessa sýningu og leikstjórinn kann ýmislegt fyrir sér í því að finna flottar sviðslausnir – en að koma innihaldi verksins í ögrandi brenni- punkt og krefja áhorfendur um að taka afstöðu til innihaldsins er ekki það sem skiptir máli hér. Samtölin verða stefnulaus og drukkna oft í of miklum aðgerðum og líkamstilburð- um á sviðinu og þegar söngnúmerin bresta á þá er textaframburður svo óskýr að ekki skilst eitt einasta orð. Undanskilið er besta lag sýningar- innar sem sungið er af Esther Taliu í hlutverki Maríu en einmitt það verður alveg óskiljanlegt í ljósi þess að María þessi er utangátta í allri rás viðburðanna. Sömuleiðis var hljóðstjórnin ónákvæm og ljósin svo dauf að stundum sást ekki í leik- arana á sviðinu. Einhvern veginn var alltof mikið los á öllu og lopinn teygður svo að sýningin, eins löng og hún annars var, hélt ekki athygli áhorfandans við söguna. Misgóðir leikarar Leikararnir stóðu sig misvel en Ilm- ur Kristjánsdóttir sýndi það að hún er klassa leikkona, en mér virtist hún tapa stundum einbeitingu á þeirri sýningu sem ég var (2. sýn- ing) og mér fannst ég merkja þreytu á rödd hennar. Hún skilaði vönduðum leik engu síður. Tveir leikarar debútera í þessari sýningu, Ólafur Steinn og Aðalbjörg Þóra. Þau komust bæði vel frá sínu. Ólaf- ur vann áreynslulítið úr sínum karakter og gerði hann sympatísk- an en Aðalbjörg spilaði meira á kó- míkina í sínum leik. Maríanna Clara er prýðis gamanleikkona en það voru of miklar brotalamir í per- sónusköpuninni til að allt gengi upp. Slöpp persónusköpun Persónusköpun almennt var ábóta- vant í þessari sýningu og það gerði sitt til að gera áhorfandann sinnu- lausan gagnvart þeim sem lifðu at- burði sögunnar. Stefán Hallur og Sveinn Ólafur gengu af krafti í að túlka sína ýktu karaktera en þeir forseruðu of mikið og þar af leið- andi datt botninn úr öllu saman þótt þeir væru oft fyndnir. Sena ráðherr- ans snerist of mikið í kringum leiklausnina og þess vegna fór allt sem hann sagði fyrir ofan garð og neðan. Sólveig Guðmundsdóttir uppskar þó hlátur áhorfenda. Hall- grímur og Magnús áttu ágæta spretti sem hermennirnir en fram- sögn þeirra var á stundum ábóta- vant. Gott rokk Búningar og leikmynd voru hug- vitssamlega gerð og sama máli gegnir um hár og förðun. Höfuð- búnaður hermannanna var kostu- legur. Hreyfimyndirnar og annað sem varpað var á tjaldið kom vel út. Tónlistin er fyrir sinn hatt gott rokk en söngurinn var ærið misjafn og hljóðnemarnir ekki alltaf að virka. Það gætti ýmissa áhrifa en heildar- svipurinn skýr. Í heildina áhuga- verð sýning en hefði mátt skera og snyrta betur til. ■ Listin er fjöregg samtímans ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR Ilmur í hlutverki sínu sem prófessorinn í Örlagaeggjunum. Valgeir Skagfjörð segir leikkonuna sýna það í verkinu að hún er klassa leikkona. NIÐURSTAÐA: Ekki skortir hugmyndaflugið í þessa sýningu og leikstjórinn kann ýmislegt fyr- ir sér í því að finna flottar sviðslausnir – en að koma innihaldi verksins í ögrandi brennipunkt og krefja áhorfendur um að taka afstöðu til innihaldsins er ekki það sem skiptir máli hér. Garth Ennis er býsna hress og skemmtilegur myndasöguhöfund- ur sem kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að blóðsúthellingum og ofbeldi. Hann vakti fyrst at- hygli með margrómuðum sögum um The Preacher og kom svo hin- um refsiglaða Punisher til bjargar með hinni mögnuðu og hrottalegu sögu Born. Sögur Ennis af The Punisher, sem koma svo í fram- haldinu, eru það hressilegasta sem sést hefur af þessu haus- kúpuskreytta bófabana og kær- komin vítamínsprauta fyrir blóð- þyrsta aðdáendur kappans. Ennis er á Punisher-nótum í sögum sínum um The Rifle Briga- de, harðsnúnustu sérsveit sem sögur fara af. Sögurnar gerast í seinni heimsstyrjöldinni og fjalla um ævintýri sex manna hersveit- ar undir stjórn hins eitilharða Hugo Darcy kafteins. Þessir kón- ar taka að sér, með bros á vör, vonlaus verkefni sem eru ávísun á skelfilegan dauðdaga og eru oft- ast handan við víglínu óvinanna. Þetta gengi minnir mest á 12 rudda úr samnefndri bíómynd nema hér eru ruddarnir aðeins sex og helmingi bilaðari en hópur- inn sem Lee Marvin leiddi á hvíta tjaldinu. Persónusköpunin er ekki upp á marga fiska en hver hermaður sérhæfir sig í ákveðnum drápsað- ferðum en leggja ekki mikið til málanna að öðru leyti. Tröllið Sergeant Crumb segir til dæmis aldrei annað en „EY-OOP!“ á milli þess sem hann drepur þýska her- menn með berum höndum, Geez- er liðþjálfi gargar ekkert nema „YER AHT OF ORDAH!“ og eini Ameríkaninn í hópnum, Hank the Yank, er sérfræðingur í meðferð sprengiefna og heyrist aldrei segja annað en „GAWD DAMMIT“. Skoski sekkjapípu- leikarinn The Piper lætur sér svo nægja að drepa menn með skelfi- legum hljóðfæraleik sínum en er þögull sem gröfin þess á milli. Það er því Darcy sem er óum- deild aðalpersóna sagnanna og að- altöffarinn en undirmaður hans, Cecil „Doubtful“ Milk, gerir honum stundum lífið leitt með því að tjá honum ást sína á viðkvæm- um augnablikum. Þessir skrattakollar gera Hitler og hans hyski margar skrá- veifur og skemmta lesendum um leið með frábærum fantaskap. Þetta verður þó óneitanlega svo- lítið einhæft til lengdar en þegar maður er um það bil að fá nóg af blóðslettum og fjúkandi útlimum nær Ennis góðu flugi í sögunni Operation Bollock en þar þurfa Darcy og félagar að komast yfir annað eista Adolfs Hitler sem er þeirri náttúru gætt að sá sem ber það í formalínkrukku er ósigr- andi. Sagan minnir um margt á Raiders of the Lost Ark en sjúkur húmorinn gerir það af verkum að hún verður ógleymanlegur uppá- snúningur á ævintýri Indiana Jo- nes. Þórarinn Þórarinsson Ráni› á t‡nda eistanu ADVENTURES IN THE RIFLE BRIGADE HÖFUNDUR: GARTH ENNIS TEIKNARI: CARLOS EZQUERRA NIÐURSTAÐA: Persónusköpunin er ekki upp á marga fiska en hver hermaður sér- hæfir sig í ákveðnum drápsaðferðum en leggja ekki mikið til málanna að öðru leyti. Ofbeldi og groddahúmor er aðal- málið og þegar ruddaskapurinn fer að verða full einhæfur kemur Ennis með geggjaðan og ógleymanlegan uppásnún- ing á Riders of the Lost Ark. [ MYNDASÖGUR ] UMFJÖLLUN Forsýningar í kvöld kl. 19 örfá sæti laus Forsýning fös. 15/7 kl. 19 örfá sæti laus Frumsýning sun. 17/7 kl. 16 örfá sæti laus Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 5/7, 11/7, 12/7, 13/7 kl. 14-18 6/7, 7/7, 8/7, 14/7, 15/7, 17/7, 22/7, 28/7 kl. 14-20 10/7, 17/7 kl. 12-18 LOKAÐ 18/7 - 21/7, 23/7-27/7, 29/7-11/8 KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren • Í samstarfi við Á þakinu Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14, Su 17/7 kl 14 ÖRLAGAEGGIN-SÖNGLEIKUR 2. sýning 9/7, 3. sýning 14/7, 4. sýning 15/7, 5. sýning 16./7, 6. sýning 22/7, 7. sýning 24/7 og lokasýning 28/7 LEIKLIST VALGEIR SKAGFJÖRÐ Örlagaeggin Borgarleikhúsið, Reykvíska Listaleikhúsið. Söngleikur byggður á sögu Míkaíl Búlgakov. Sýnt á Litla sviðinu. Leikgerð: Höskuldur Ólafsson Tónlist: Pétur Þór Benediktsson og Höskuldur Ólafsson Leik- mynd: Elma Backman Búningar: Björg Guð- mundsdóttir Dansar: Halla Ólafsdóttir Hár og förðun: Eva Guðjónsdóttir Hreyfimyndir: Hlynur Magnússon Hljóð og raftónlist: Steini Plastik Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson Leikarar: Ilmur Kristjánsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Ólafur Steinn Ingunnarson, Esther Talía Casey, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Aðalbjörg Þóra Árna- dóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Sólveig Guð- mundsdóttir, Hallgrímur Ólafsson og Magnús Guðmundsson. Föstudagur 15. júlí Örfá sæti Föstudagur 22. júlí Fimmtudagur 5. ágúst

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.