Fréttablaðið - 14.07.2005, Síða 54

Fréttablaðið - 14.07.2005, Síða 54
Frægasta draugahúsamynd síð- ustu áratuga er án efa The Shin- ing eftir Stanley Kubrick en hún var byggð á samnefndri sögu hrollvekjumeistarans Stephen King. King sótti innblástur sinn til stallsystur sinnar, Shirley Jackson, en sígild draugasaga hennar, The Haunting of Hill House hefur verið kvikmynduð í tvígang. Robert Wise kvikmyndaði bókina með fínum árangri árið 1963 en Jan De Bont svo aftur með ömurlegum afleið- ingum árið 1999. Áður en Kubrick lét Jack Nicholson ganga af göflunum með öxi í yfirgefnu skíðahóteli í The Shining var The Amityville Horr- or draugahúsamynd númer eitt, tvö og þrjú og er enn lykilverk ásamt The Shining og The Haunt- ing of Hill House. Myndin kom í bíó árið 1979 og sló strax í gegn og rakaði saman milljónum dollara í miðasölunni. Alvöru hryllingur The Amityville Horror fékk slag- kraft sinn ekki síst frá þeirri stað- reynd að hún byggði á raunveru- legum atburðum en árið 1974 var heil fjölskylda myrt í svefni í gömlu húsi á Long Island. Ronald DeFeo yngri játaði svo skömmu síðar að hafa banað foreldrum sín- um og systkinum vegna þess að „raddir í húsinu“ sögðu honum að gera það. Nokkru síðar fluttu ung hjón í húsið án þess að vita nokk- uð um skelfilega fortíð þess. Illir andar hússins flæmdu þau út á um það bil tveimur vikum og þau máttu þakka fyrir að sleppa lif- andi frá draumaheimili sínu. Eiginmaðurinn virtist á þessum stutta tíma vera að missa vitið og ógnaði fjölskyldunni. Prestur sem reyndi að kveða óværuna niður beið þess aldrei bætur að glíma við myrkraöflin innan veggja heimilisins. The Amityville Horror naut mikilla vinsælda á Íslandi um það leyti sem mynböndin voru að festa sig í sessi og var þá leigð út í dönskum umbúðum og hét „Huset som Gud glemte“. James Brolin, sem er þekktast- ur fyrir leik sinn í sjónvarpsþátt- unum Hotel og í seinni tíð fyrir að vera eiginmaður Barböru Strei- sant lék húsbóndann sem myrti næstum fjölskyldu sína og Margot Kidder (Lois Lane í Superman) lék eiginkonuna. Rod Steiger setti hins vegar mestan svip á myndina í hlutverki prest- ins. Gæti gerst í Hlíðunum Framleiðendur nýju myndarinnar endurgerðu síðast myndina The Texas Chainsaw Massacre en sú tilraun þeirra tókst býsna vel og því vildu þeir eðlilega höggva tvisvar í sama knérunn. Þeir komust þó fljótt að því að það er lítið til af spennandi hryllings- handritum á sveimi um þessar mundir og þeir ákváðu því að halda endurvinnslunni áfram: „Texas Chainsaw Massacre sýndi okkur að fólk virðist frekar vilja hryllingssögur sem byggja á raunverulegum atburðum,“ segir Brad Fuller, einn framleiðend- anna, en hann ólst upp í grennd við Amityville-húsið og man enn eftir gæsahúðinni sem hann fékk þegar hann ók fram hjá því á árum áður. „Hryllingsmyndir sem eiga sér stoð í raunveruleikanum snerta fólk dýpra þar sem það trúir því að það sem það sér á tjaldinu geti komið fyrir það sjálft. Þess vegna fylgja þessar myndir fólki eftir löngu eftir að það yfirgefur bíósalinn,“ segir Fuller, sem hik- aði því ekki við að veðja á endur- vinnslu Amityville. Ný vínblanda á gömlum belg Gagnrýnendur virðast almennt sammála um að Fuller og félagar megi vel við una og að nýja mynd- in sé í raun og veru betri en sú upprunalega. Söguþræðir mynd- anna eru vitaskuld býsna áþekkir en hér er þó kafað dýpra í atburð- ina og ýmsu gefinn gaumur sem var sleppt í myndinni frá 1979. „Það erfiðasta við endurgerðir er að áhorfendur bera myndina strax saman við forverann og fólk hefur miklar meiningar um Amityville-hryllinginn og hvað raunverulega gerðist og hvað ekki,“ segir Fuller. „Þegar við ákváðum að gera þessa mynd vor- um við sammála um að best væri að þróa söguna með því að taka lykilatriðin úr gömlu myndinni og bæta þáttum úr málinu sem hafa ekki verið skoðaðir áður.“ thorarinn@frettabladid.is 38 14. júlí 2005 FIMMTUDAGUR The Amityville Horror Internet Movie Database 5,8 / 10 Rottentomatoes.com 22% / Rotten Metacritic.com 6,9 / 10 Madagaskar Internet Movie Database 6,3 / 10 Rottentomatoes.com 54% / Rotten Metacritic 6,8 / 10 Elvis has left the building Internet Movie Database 5,1 / 10 NÝJAR KVIKMYNDIR (DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM) [ SMS ] UM MYNDIRNAR Í BÍÓ Húsið sem Guð gleymdi „It’s not who I am under- neath, but what I do that d e f i n e s me.“ - Bruce Wayne hefur sínar sérstöku leiðir til þess að játa fyrir æskuástinni sinni að hann sé í raun og veru Leðurblökumaðurinn. bio@frettabladid.is Leikkonan Kim Basinger var á hátindi frægðar sinnar í níunda áratug síðustu aldar en hún skaust upp á stjörnuhimin- inn og stimplaði sig inn sem kyn- bomba í James Bond-myndinni Never Say Never Again árið 1983. Þar mætti Sean Connery ansi roskinn til leiks í hlutverki njó- snara hennar hátignar og heillaði Basinger upp úr skónum. Bas- inger lék svo á móti Robert Redford ári síðar í The Natural og síðan á móti leikaranum og leikskáldinu Sam Shepard í Fool for Love. Myndin byggði á verki Shepard og var leikstýrt af ekki minni manni en Robert Alt- man. Basinger hefur unnið undir stjórn margra merkra leikstjóra og árið 1986 lenti hún í klónum á Adrian Lyne sem gerði út á kynþokka hennar í erótísku myndinni 9 1/2 Weeks þar sem erótíkin kraumaði milli hennar og Mickey Rourke. Þetta sama ár lék hún á móti hjartaknúsar- anum Richard Gere í No Mercy en síðan hallaði undan færi í myndunum Blind Date þar sem Bruce Willis var að fóta sig í bransanum, Nadine, slappri gamanmynd með Jeff Bridges og síðast og allra síst hinni arfaslöku My Stepmother is an Alien. Basinger fékk gott tækifæri árið 1989 þegar Tim Burton fékk hana til að leika Vicky Vale í Batman þar sem Michael Keaton klæddist blökubúningn- um. Basinger náði ekki að fylgja Batman eftir og birtist næst í hinni langdregnu To Hot To Handle með þáverandi eigin- manni sínum Alec Baldwin. Næstu myndir, Final Analysis, Cool World. The Real McCoy, Wayne’s World 2, The Getaway og Prét -á- Porter, gerðu lítið fyrir feril hennar sem var á hraðri niður- leið þar til hún sýndi góða takta í L.A. Confidential árið 1997. Frammistaða hennar þar skilaði henni Óskarsverð- launum sem besta leikkona í aukahlut- verki en tilboð um bitastæð hlutverk létu samt á sér standa. Hún sýndi þó hvað í henni býr sem drykkfeld móðir Eminems í 8 Mile árið 2000 og sýndi þar að líf er eftir kynbombuárin. EKKI MISSA AF... ... hinni stórgóðu Voksne menn- esker eftir Dag Kára Pétursson. Myndin kemur í rökréttu fram- haldi af glæsilegu byrjendaverki Dags Kára, Nói albínói, og rétt eins og þar byggir hann frásögn- ina á persónum og stemningu frekar en rökréttum og klassísk- um söguþræði. Sýningum á myndinni fer fækkandi þannig að nú fer hver að verða síðastur að sjá hana í kvikmyndahúsi í Reykjavík. Voksne mennesker er mynd sem lætur engann ósnort- inn og synd að missa af henni. Kynbomba komin af léttasta skei›i Aðeins 599 kr. 5 690691 2000 08 Lífsreynslusaga • Heils a • • Matur • Krossgáturg•á~t 27. tbl. 67. árg., 13. júl í 2005. Aðeins 599 kr. Er mamma þín stjórnsöm? Hvað er til ráða? Óhrædd við frægðina! Kolbrún Björnsdóttir nýr stjórnandi morgunsjón- varps Það sem þú vissir ekki ... Sigmundur Ernir Hvað gera mömmur þegar skólarnir loka? Náttúrulæknir sem kann ráð við stressi Fjölmiðlakonur skemmta sér! Hvað segja stjörnumerkin um sumarið? Andlitslyfting heima hjá þér Systirin bjargaði lífi hans! Alvarleg veikindi Jóns Valgeirs Gunnarssonar kostuðu hann eiginkonuna 4 athafnakonur í Borgarbyggð 00 Vikan27. tbl.'05-1 1.7.2005 11:38 Pag e 1ný og fersk í hv erri viku Náðu í eintak á næsta sölustað Kvikmyndir þar sem Elvis-eftir- hermur koma við sögu hafa notið vinsælda meðal kvikmyndagerða- manna í Hollywood. Þær hafa margar hverjar ekki hlotið náð fyrir augum almennings nema ef vera skyldi Honeymoon in Vegas með Nicolas Cage. Elvis Has Left The Building segir frá snyrtivörusölukonunni Harmony Jones sem virðist vera tengd kónginum á einn eða annan hátt. Hún fæddist daginn sem Presley kom fram í frægum Ed Sullivan-þætti og móðir hennar, sem er bifvélavirki, gerði við Kadiljákinn hans. Örlögin haga málum hins vegar þannig að fyrir tilviljun drepur hún nokkrar Elvis-eftir- hermur og skilur eftir sig slóð dauðra kónga í suðvesturríkjum Bandaríkjanna. Kim Basinger leikur hina sein- heppnu Harmony Jones. John Corbert fer með hlutverk Elvis Gluffman í myndinni. Hann heill- aði margar konur upp úr skónum þegar hann lék Aidan Shaw í Sex and the City. ■ SIN CITY Er tvímælalaust svalasta mynd ársins og besta mynd sumarsins að mati gagnrýnanda Fréttablaðsins. Sin City „Undir allri þessari snilld kraumar svo eðaltónlist, menguð seiðandi saxófónleik, sem bindur alla þessa svart/hvítu dýrð saman í film noir í sinni tærustu mynd. Sin City er hátæknilistaverk og um leið óður til svart/hvítu reyfarana sem áttu sitt blómaskeið upp úr 1940.“ ÞÞ War of the Worlds „War of the Worlds er ekki léleg heimsendamynd en hún er heldur ekki það sem ég hélt að Spiel- berg og Cruise gætu gert.“ FGG Batman Begins „Svona á að gera Batman-myndir og okkar maður hefur aldrei verið betri og maður getur varla beðið eftir að fá að sjá meira af Bale í gervi svalasta myndasögutöffara allra tíma.“ ÞÞ Mr. and Mrs. Smith „Mrs. and Mrs. Smith er þvottekta sumarmynd; fyndin, spennandi, smart, töff og vel gerð og skart- ar tveimur skærustu kvikmyndastjörnum sam- tímans í aðalhlutverkum. Þetta nægir til þess að enginn ætti að verða svikinn af kynnum sínum við hjónin Pitt og Jolie.“ ÞÞ Draugahúsið er sígilt minni í hryllingsmyndum sem fjalla þá oftast um fólk sem flytur inn í gömul hús þar sem draugar fyrri eigenda ganga berserksgang. The Amityville Horror er frumsýnd í dag en hún er endur- gerð samnefndrar myndar frá árinu 1979. THE AMITYVILLE HORROR Sundrung fjölskyldunnar í einhverri mynd er kjarninn í nær öllum hryllingsmyndum með tilheyrandi freudískum undirtónum. Þessi mynd er engin undantekning en í þessu tilfelli hrynur fjölskyldan saman innan frá í tilraun sinni til þess að láta ameríska drauminn rætast í stóru einbýlishúsi. Feigir Elvisar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.