Fréttablaðið - 23.07.2005, Side 1
Fegur›in hefur alltaf
veri› eftirsóknarver›
SJÚKLEG ÚTLITSÁRÁTTA
▲
LÍFSSTÍLL
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
BONGÓBLÍÐA Bjartviðri víða um land
en skýjað og sumstaðar þokuloft á
annesjum fyrir norðan og austan. Hiti 12-22
stig, hlýjast til landsins sunnan og vestan til.
VEÐUR 4
LAUGARDAGUR
23. júlí 2005 - 197. tölublað – 5. árgangur
Upp úr flatneskjunni
Á dögunum kynnti Skipulagsráð
Reykjavíkur hugmyndir um nýtt skipu-
lag á gamla Slippsvæðinu við Mýrar-
götu. Hrafni Gunnlaugssyni leist ekki á
þá framtíðarsýn sem þar birtist og hef-
ur aðrar hugmyndir að skipulagi
svæðisins. Hann vill þjappa þremur
húsum saman í eitt svo útsýni myndist
til hafs ofan úr hverfinu.
SKIPULAGSMÁL 24
Stefnir í draumaúrslitaleik
Tvö efstu liða Landsbankadeildarinnar
drógust ekki saman í
undanúrslitunum
VISA-bikars karla og
því stefnir í drauma-
úrslitaleik á milli
FH og Vals í
september.
ÍÞRÓTTIR 36
Alsæll me›
pallbílinn
JÓN PÉTURSSON:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● bílar ● ferðir
▲
V I R K S A M K E P P N I
af nammibarnum
á laugardögum
50 %
afsláttur
VEÐRIÐ Í DAG
Næsti
útvarpsstjóri?
Samstarfsmenn Páls
Magnússonar hafa
yfirleitt látið vel af
honum. Sagt hann
þægilegan en
kröfuharðan
yfirmann, glöggan og
vel tengdan.
MAÐUR VIKUNNAR 44
ÞEIR SEM REYNA MEST UPPSKERA MINNST
34-35
15-90%
Afsláttur
ÚTSALA
vi› Smáralind
í fullum gangi
BRETLAND, AP Lögregla í Lundúnum
handtók í gærkvöld mann í
Stockwell í suðurhluta borgarinnar í
tengslum við rannsóknina á hinum
misheppnuðu sprengjutilræðum í
jarðlestum og strætisvagni á
fimmtudag.
Óljóst var af fyrstu fréttum af
handtökunni hvort hún tengdist at-
viki sem varð á Stockwell-jarðlest-
arstöðinni í gærmorgun, en þá eltu
óeinkennisklæddir lögreglumenn
mann í gegnum stöðina, sneru hann
niður inni í lestarvagni og skutu til
bana fyrir augunum á agndofa veg-
farendum. Lögreglan staðfesti hins
vegar að aðgerðirnar væru í beinum
tengslum við rannsóknina á
sprengjutilræðunum í almennings-
samgöngukerfi borgarinnar.
Vitni sögðu manninn, sem hljóp
upp í lest á Stockwell-stöðinni í suð-
urhluta Lundúna rétt eftir klukkan
níu í gærmorgun að staðartíma,
hafa litið út fyrir að vera af suður-
asískum uppruna. Eitt vitnið sagð-
ist hafa séð víra standa út úr mitt-
isbeltinu sem maðurinn bar. Lög-
reglumennirnir sem króuðu hann
af skutu hann tvisvar í höfuðið og
þrisvar í brjóstið, að sögn vitna.
Sir Ian Blair, lögreglustjóri
Lundúna, sagði aðgerðina „í bein-
um tengslum við hryðjuverka-
varnaaðgerðina sem stendur yfir
og fer vaxandi“. Hann sagðist
verða að taka skýrt fram að öll
dauðsföll bæri að harma, en maður-
inn hefði neitað að hlýða fyrirmæl-
um lögreglu.
Blair lét fjölmiðlum enn frem-
ur í té myndir úr eftirlitsmynda-
vélum af fjórum mönnum sem
taldir eru hafa staðið að hinum
misheppnuðu sprengjutilræðum
sem framin voru í þremur jarð-
lestum og einum strætisvagni í
fyrradag.
Talsmenn lögregluyfirvalda
greindu annars frá því í gær að
sprengjurnar sem notaðar voru í
tilræðum fimmtudagsins hefðu
verið gerðar úr heimatilbúnu
sprengiefni, en þær hefðu aðeins
sprungið að hluta. Blair lögreglu-
stjóri sagði tilræðunum „svipa til“
tilræðanna 7. júlí, sem kostuðu 52
menn lífið auk sjálfsmorðs-
sprengjumannanna fjögurra.
audunn@frettabladid.is
Lögregla í London
sk‡tur mann til bana
Lundúnalögreglan handtók í gær mann í tengslum vi› rannsókn tilræ›anna á
fimmtudag og skaut annan sem s‡ndi grunsamlega heg›un.
EFTIRLÝSTIR Lögregla birti í gær þessar myndir úr eftirlitsmyndavélum af mönnunum fjórum sem grunaðir eru um tilræðin á fimmtudag.
Lífslíkur karla og kvenna:
Íslenskir karlar
lifa lengst
JAPAN, AP Íslenskir karlmenn lifa
lengst karlmanna í heiminum, en
lífslíkur þeirra eru 78,8 ár. Jap-
anskir karlmenn eru í öðru sæti
með 78,64 ár.
Japanskar konur hafa slegið
nýtt heimsmet í lífslíkum fólks
því þær geta átt von á því að lifa í
85,59 ár. Japanskar konur hafa átt
metið í tuttugu ár. Lengi vel voru
lífslíkur íslenskra kvenna hæstar
á veraldarvísu en eru nú í sjötta
sæti. Talið er að mikil neysla fisks
og fitusnautt mataræði séu lykill-
inn að langlífi. ■
Hert gæsla í Danmörk:
Handtekinn
vegna brandara
DANMÖRK, AP Danskur maður gæti
átt fangelsisdóm yfir höfði sér eftir
að hafa sagt í gríni við starfsmann á
Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn
að hann væri með sprengju í fórum
sínum. Hluti af flugstöðinni var
rýmd í stuttan tíma þegar maður-
inn, sem var að fara í gegnum ör-
yggiseftirlit, sagði að það væri
sprengja í handfarangri hans.
„Þetta er slæmur tími til að grín-
ast svona þegar viðbúnaðurinn
[vegna árásanna í London] er svona
mikill,“ sagði Carsten Holder yfir-
lögreglustjóri. Maðurinn gæti hlotið
kæru fyrir hótanir og sætt fangelsi
í allt að tvö ár. ■
SAMEINAÐI LÍFEYRISSJÓÐURINN Fjár-
málaeftirlitið gerir alvarlega at-
hugasemd við að stjórn Sameinaða
Lífeyrissjóðsins hafi ekki verið
kunnugt um starfslokakjör Jóhann-
esar Siggeirssonar fyrrum fram-
kvæmdastjóra og fellst ekki á þá
skoðun stjórnarinnar að formaður
og varaformaður hafi haft umboð til
að gera viðauka við samninginn.
Segir fjármálaeftirlitið það vera
skýrt í lögum um starfsemi lífeyris-
sjóða að það sé stjórn sjóðsins sem
ákveði kjör framkvæmdastjóra.
Ekki verður þó gripið til aðgerða
þar sem fyrningarfrestur er liðinn.
„Við erum búin að gera það
sem við þurfum að gera,“ segir
Þorgeir Jósefsson stjórnarfor-
maður Sameinaða Lífeyrissjóðs-
ins. Hann segir að starfsloka-
samningurinn við Jóhannes verði
efndur, en samkvæmt honum fær
hann full laun í þrjátíu mánuði
eftir starfslok, en hann hætti
störfum í febrúar á þessu ári.
„Við höfum samþykkt nýjar og
skýrar verklagsreglur um allt
sem lýtur að ráðningu fram-
kvæmdastjóra sem koma í veg
fyrir að mál af þessu tagi endur-
taki sig.“ - grs
Starfslokasamningur Sameinaða lífeyrissjóðsins:
Fjármálaeftirliti› gerir athugasemdir
JÓHANNES SIGGEIRSSON Fékk ríflegan
starfslokasamning án þess að stjórn lífeyr-
issjóðsins hefði verið með í ráðum.
Slys á vegleysu:
Féll í hver
SLYS Erlendur ferðamaður slasaðist
illa á fótum þegar hann féll í hver
um klukkan þrjú í gær í Reykjadal
sem er fyrir ofan Hveragerði.
Slysstaðurinn er á vegleysu og
því tók það björgunarsveitamenn
Árborgar tæpa klukkustund að
komast á vettvang. Ekki var annað
að gera en að kalla til þyrlu varnar-
liðsins því þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var í annari björgunaraðgerð
þegar þetta slys varð. Að sögn Jóns
Gunnarssonar framkvæmdastjóra
Landsbjargar tókst björgunin afar
vel. -jse