Fréttablaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 12
Þ að er ekki við Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúa að sakastað Framsóknarflokkurinn er í vanda í Reykjavík. Þess síð-ur er við Önnu Kristinsdóttur, hinn borgarfulltrúa flokks- ins, að sakast hvernig komið er, fylgið er nánast ekkert og fátt bendir til að það lagist áður en kosið verður til sveitarstjórna og enn ólíklegra er að nokkuð jákvætt gerist hjá Framsókn áður en sætaskipti verða ákveðin innan R-listans, verði að framboði hans á annað borð. Miklar væntingar framsóknarmanna um betri tíð með for- manninn sem forsætisráðherra hafa ekki ræst. Þær hafa orðið að hinu öndverða. Flokkurinn er í vanda staddur og ef fer sem horf- ir mun flokkurinn gjalda þess næsta vor, þegar kosið verður í sveitarstjórnarkosningum. Vandinn er ekki bara í Reykjavík, hann er um allt land. Hann er hins vegar sýnilegastur í Reykja- vík. Í nýju kjördæmi forsætisráðherra mælist fylgið minna en dugar til að fá einn borgarfulltrúa. Á meðan borgarfulltrúar hinna tveggja R-listaflokkanna sperra stélin fara framsóknarmenn með veggjum. Þeir segjast meira að segja vera tilbúnir til að gefa eftir stjórnarformennsku í Orkuveitunni verði það til að tryggja áframhaldandi líf R-list- ans, en framboðið er líftaug Framsóknar til að eiga fulltrúa í borgarstjórn. Í sérframboði er hætt við að flokkurinn fái engan kjörinn. Þessi er staða Framsóknarflokksins þegar vonir allra flokksmanna stóðu til þess að sókn með forsætisráðherra í stafni yrði flokknum til ómælds framdráttar. Kjarkinn vantar ekki í aðra. Árni Þór Sigurðsson, leiðtogi Vinstri grænna í Reykjavík, sem er nýkominn heim eftir að hafa dvalist á borgarinnar kostnað í Brussel í langan tíma, segir at- hugasemdir Össurar Skarphéðinssonar, alþingismanns og fyrrum formanns Samfylkingarinnar, heimskulegar. Össur benti á að Samfylkingin þurfi ekki Vinstri græna eða Framsókn til að bjóða fram R-listann. Óháðir dugi. Þetta hljómar heimskulegt í eyrum Árna, en ekki í allra eyrum. Stefán Jón Hafstein er heldur ekki hrifinn af Össuri. Hann kvartar og segir erfitt að þagga niður í honum, en með aðkomu sinni að framboðsmálum í Reykjavík hef- ur Össur heldur betur hrist upp í vonum og væntingum frambjóð- endanna, það er þeirra sem eiga eitthvað undir sér. Framsókn sit- ur hjá og bíður þess sem verða vill. Skyndikannanir eru gerðar hér og þar og Össur, sem segist ekki hafa hugleitt að sækjast eftir embætti borgarstjóra, fær meira fylgi þar en þeir sem sannanlega ganga með borgarstjór- ann í maganum. Það er ekki síst af þeim sökum sem aðkoma Öss- urar er sögð óþægileg og að erfitt sé að þagga niður í honum. Þetta segja þeir sem halda að framhald R-listans snúist um fram- bjóðendurna og það hver verði hvar. Hitt má ekki gleymast að fæst bendir til að vandi Framsóknar leysist með aðild að R-listanum. Þar er mikill ágreiningur og oft takmarkaður áhugi á áframhaldi. Þess vegna eru spennandi tím- ar framundan; verði R-listinn til áfram er það ekki vegna órofa stuðnings baklandanna í flokkunum. Vinstri grænir og Samfylk- ing þurfa að gefa mikið eftir til að endurnýja samstarfið en Fram- sókn gott betur, hún er tilbúin að gefa allt til að fá að vera með. ■ 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR SJÓNARMIÐ SIGURJÓN MAGNÚS EGILSSON Framsóknarflokkurinn er í vanda þegar innan við ár er til sveitarstjórnakosninga. Frá væntingum til vonleysis FRÁ DEGI TIL DAGS Vandast málið Tvær grímur eru runnar á þá sem voru orðnir sannfærðir um að Páll Magnús- son hefði bak við tjöldin tryggt sér embætti útvarpsstjóra ríkisins áður en hann sagði upp sem sjónvarpsstjóri Stöðvar tvö. Á lista yfir umsækjendur, sem birtur var síðdegis á fimmtudag, er nefnilega nafn sómakonunnar El- ínar Hirst, fréttastjóra Sjónvarpsins. Hana prýða ekki færri kostir en Pál, hún þykir fagmaður fram í fingurgóma, en svo hefur hún það sér til ágætis að vera kona á tímum þegar mikil eftirspurn er eftir kvenkyninu til forystustarfa í þjóðfélag- inu. Enginn gæti af neinni sanngirni gagnrýnt Þorgerði Katrínu ef hún veldi hana. Vel tengd Ekki þykir svo spilla fyrir Elínu Hirst gagnvart veitingarvaldinu að hún mun vera í ágætu talsambandi við þá menn í Sjálfstæðisflokknum sem eru krónískt önugir út í Ríkisútvarpið, og draga víg- línuna í þjóðfélaginu gjarnan við þann ágæta en svolitið rauðleita útvarpsþátt, Spegilinn. Þessir sömu menn munu ekki vera með öllu áhrifalausir þegar spurt er hvað sé þóknanlegt Flokknum. Svo eru hagkvæmnisrök Elínu í hag: Maður hennar, Friðrik Friðriksson, sem lengi var forstöðumaður breiðbands- þjónustu Símans, mun nú kominn til starfa hjá hinni ríkissjónvarpsstöðinni, Skjá einum. Samstarfs- og sameining- arviðræður gætu þá farið fram heima í eldhúsi þeirra hjóna. Ekki afskrifa Ekki er þó ástæða til að afskrifa Pál Magnússon með öllu. Allra síst eftir að fréttist að hann hefði á dögunum verið að veiðum í Svartá með sjálfum utan- ríkisráðherranum, fráfarandi formanni Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddssyni. Sameiginlegur góðvinur þeirra er Kári Stefánsson sem ætla verður að leggi sínum gamla blaðafulltrúa inn gott orð auk vísindalegra sannana fyrir góðum genum. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Eins mikið og ég vil trúa því að opinber umræða muni geta af sér opið, fjölbreytt og lýðræðislegt samfélag þá verð ég að viður- kenna að oft er erfitt að halda trúnni. Hvað hefur til dæmis ver- ið mikið rætt um fjölmiðla á Ís- landi undanfarin tvö ár eða svo? Og hver er mælieiningin? Þúsund tonn? Milljón metrar? Billjón bull eða trilljón tuð? Þrátt fyrir allan þennan pappír, allan þennan út- sendingartíma, allt þetta tal og allt þetta erfiði – öll þessi mannár í tjáningu og mannaldir í lestur og hlustun – þá sé ég ekki að umræð- an hafi þokast neitt áfram. Við erum á eilífum byrjunarreit. Og snúum auk þess vitlaust. En þetta er svo sem ekki skrít- ið. Fjölmiðlar á Íslandi eru sér- deilis skakkir, saga þeirra sérstök og allt umhverfi þeirra undarlegt. Það er leiðinlegt að vera sífellt að minna fólk á hversu vanþróað samfélag okkar er; en það er engu að síður nauðsynlegt. Það eru inn- an við 19 ár síðan einkaaðilar fengu að opna útvarpsstöð eða reka sjónvarp. Þótt það séu bráð- um 30 ár síðan dagblað án tengsla við stjórnmálaflokka hóf göngu sína eru aðeins rúm fjögur ár síð- an annað slíkt blað leit dagsins ljós. Við þurfum að minna okkur á þetta í hvert sinn sem við metum íslenska fjölmiðla. Við verðum að vara okkur á sögunni. Ef við mið- um aðeins við það sem við erum vön – eða það sem við ólumst upp við – erum við í raun að kalla eft- ir fjölmiðlum sem valdatæki eða framlengingu annars valds, en ekki sem veitendum sjálfsagðrar þjónustu. Og fjölmiðlar eru lítið annað en einmitt þetta; veitendur þeirrar þjónustu að safna saman og afhenda okkur helstu fréttir dagsins og dágóðan skammt af skemmtan og fróðleik. Ef við hefðum ekki fjölmiðlana þyrfum við sjálf að leggjast í símann að afla frétta. Svipað og ef enginn væri kaupmaðurinn og enginn bóndinn og við þyrftum að elta uppi kýr að mjólka. Samskipti okkar við fjölmiðlana eru á engan hátt ólík viðskiptum okkar við kaupmanninn og bóndann; ef mjólkin er súr leitum við annað. Þegar horft er til eldri miðla verður þessi þjónustuhugmynd næstum byltingarkennd. Er Ríkis- útvarpið ekki líkara kirkju en kaupmanninum á horninu? Og er Mogginn ekki frekar kaupfélags- stjóri en bóndi? Auðvitað líða þessir gömlu miðlar fyrir að hafa verið stórveldi á hinum eldri tím- um þegar fjölmiðlum var stýrt af stjórnmálaflokkum og voru hluti af valdabatteríi þeirra. En þótt ýmsum virðist hægt ganga munu bæði Moggi og RÚV ná áttum og koma sterkari út úr tímabærri og hollri sjálfsmyndarkreppu. En þótt sjá megi batamerki á miðlunum er umræðan alltaf jafn vitlaus. Í gusu vikunnar af fjöl- miðlatali mátti greina nokkur við- tekin rangindi undanfarinna miss- era. Einna mest áberandi var heit sannfæring fyrir því að fjölmiðla- rekstur væri varasamur bisness – nánast garanteraður taprekstur. Þetta er dálítið skrítin skoðun. Ég man að þegar við á Fréttablaðinu vorum að hefja samkeppni við Moggann var talað um Árvakur af heldur meiri virðingu en ríkis- sjóð. Ef einhver þessara erlendu lánshæfnisfyrirtækja hefðu vitað að Árvakur væri til er ég viss um að þau hefðu skellt á Moggann þreföldu A-i og bætt við öllum þeim plúsum sem þau eiga. Eins er það í útlöndum; þar eru æði mörg stöndug fjölmiðlafyrirtæki sem óþarfi er að vorkenna. Auðvitað er það svo að mörg- um fjölmiðlafyrirtækjum gengur illa á Íslandi. Ríkisútvarpið nær til dæmis aldrei endum saman þrátt fyrir veglega meðgjöf frá almenningi og nokkur einkafyrir- tæki eru í bölvuðu basli. En það sama má segja um verktaka- bransann, kaupmennina og út- gerðina. En við höfum fyrir löngu lært að afskrifa ekki verk- töku, verslun og útgerð þótt sum- ir í þessum greinum standi í stappi. Samkvæmt áætlunum sem 365 hafa lagt fram í Kaup- höllinni ætlar það fyrirtæki að skila afgangi af rekstri sem nem- ur 2 til 2,5 milljónum króna á dag á þessu ári. Samkvæmt uppgjöri fyrstu þrjá mánuði þessa árs var afgangurinn í efri mörkum þessa markmiðs. Fyrirtækið mun opin- bera uppgjör næstu þriggja mán- aða í byrjun ágúst og síðan koll af kolli á þriggja mánaða fresti á meðan fyrirtækið er skráð í Kauphöllinni. Það skiptir því litlu hvernig menn helst vildu hafa hlutina eða hverju þeir vilja trúa; það er mjög auðvelt að afla sér upplýsinga um hvort – og þá hvernig – hægt er að reka fjöl- miðla sem eðlilegan og arðbæran bisness. En ef til vill hentar þessi staða ekki öllum – ekki þeim sem vilja hafa fjölmiðlana veika og vesæla; þurfalinga á ríkissjóði og háða vernd og velvilja stjórnmála- flokkanna. Einu sinni var útgerðin í þessari stöðu, verslunin og verk- takarnir, og stjórnmálahöfðingj- arnir höfðu öll ráð í hendi sér, gátu gefið einum líf og drepið annan. Við sem munum átökin við að losa aðrar atvinnugreinar und- an pilsfaldi ríkisvaldsins látum hitann í umræðunni um fjölmiðl- ana ekki koma okkur á óvart. Það sem er hins vegar skrítnara er að sumir fjölmiðlamenn virðast sakna hins gamla tíma og þrástag- ast á vesöld fjölmiðla og volæði eins og það sé órjúfanlegur hluti sjálfsmyndar þeirra að eiga allt sitt undir hlýlegu augnatilliti ráðamanns og traustvekjandi klappi á öxlina. ■ Hin ljúfsára vesöld LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA GUNNAR SMÁRI EGILSSON Í DAG SKRIFAR UM SKRÍTNAR HUGMYNDIR FJÖLMIÐLA- MANNA UM FJÖLMIÐLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.