Fréttablaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 54
38 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR Lífið er eins og kassi af súkkulaðimolum, mað- ur veit aldrei hvaða mola maður fær, sagði Forrest Gump. Þetta er Disney- út- gáfan af lífinu; góð fyrir börn og heimskt fólk. Lífið er auðvitað ekkert eins og kassi af súkkulaðimolum (nema við séum að tala um einhvers konar variety pack með karrísúkkulaðivið- bjóð innan um góðu molana). Það er meira svona eins og ávaxtakarfa (mínus Birgitta og Jónsi) þar sem helmingurinn af ávöxtunum eru úldnir. Svo framarlega sem góðu ávext- irnir eru í meirihluta og maður deyr ekki úr næringarskorti þá er þetta svo sem allt í góðu. Það þarf ekki nema nokkur jarðarber til að lífga upp á tilveruna. En súkkulaðilík- ingin var ekki það eina sem Forrest klikkaði á. Hvaða gloría er í því að vita aldrei hvaða mola maður fær? Fyrir svona „control freaks“ eins og mig er þetta einstaklega slæmt mál. Ég vil fá að vita hvar jarðarberin eru og hvernig ég á að nálgast þau. Svo lendir maður stundum í því að standa frammi fyrir mörgum góðum kostum og þurfa að velja á milli þeirra. Valkvölin er sennilega það úldnasta í þessu öllu saman. Það er alveg hreint glatað að þurfa að fórna djúsí jarðarberi fyrir eitthvað annað, sérstaklega þegar maður veit aldrei hvort maður hefur valið rétt. Fyrir mér er lífið frekar eins og 10.000 bita púsluspil sem maður hefur enga fyrirmynd að. Er þetta mynd af kisu sem lætur sólina sleikja sig eða borgarmynd úr Fen- eyjum? Það getur verið fáránlega flókið að tjasla púsluspilinu saman, jafnvel þótt mann gruni hvert myndefnið er. Maður þarf að prófa sig endalaust áfram og að lokum er þrautseigja og einskær heppni það eina sem virkar. Forrest hafði samt rétt fyrir sér að súkkulaði er mikilvægt í lífinu. Mér sýnist ég vera búin að finna ástæðuna fyrir súkkulaðifíkn minni. Innst inni viljum við eintóma súkku- laðisæta hamingju, og til að fylla upp í tómið er ekkert hentugra en eitt stykki Draumur. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA RÓSA SIGNÝ GÍSLADÓTTIR GERIST SPEKINGUR Úldnu ávextirnir M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Nú þegar við erum komin ofan í, skulum við æfa okkur að búa til loftbólur undir vatninu. Jæja, krakkar! Hann meinti að búa til loftbólur með munninum, Kjartan! Við fáum ekki nógu há laun fyrir þetta. VOFF VOFFVOFF Endursent til sendanda. Tuttugu mínútur í leikhúsið.... Þrjár mínútur í garðinum. Tíu mínútur í röðinni. Níutíu mín- útur í að horfa á myndina. Tuttugu og þrjár mínútur til þess að komast heim. Það gera tvö þúsund kall fyrir fóstruna... sextánhundruð fyrir miða og fjögur hundruð fyrir popp og kók... Samkvæmt þessum tölum getum við annað hvort ráðið fóstru eða farið í bíó en ekki bæði. Ákvarðanir.... ákvarðanir.... Hei! Tóti! Þú ætlar að játa eitthvað fyrir Dóru. Já, Vala. Dóra! Ég svaf hjá mömmu þinni! ... Í þínum nærfötum! Hvað þá?! Ég ætla að drepa þig, gangsterinn þinn! Ó, guð! Nei! Nei! Og hér kemur mamma! Bella! Ég kláraði ostakök- una sem var í ísskápnum. Sjúki mað- ur! Þú sérð eftir þessu!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.