Fréttablaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 52
23. júlí 2005 LAUGARDAGUR
> Við furðum okkur á ...
... slakri frammistöðu Íslandsmeistaranna
Birgis Leifs Hafþórssonar og Ólafar Maríu
Jónsdóttur á Íslandsmótinu í golfi en bæði
eru atvinnumenn í greininni
og hafa verið að taka þátt
í evrópsku mótaröðinni í
ár. Birgir Leifur er sex
höggum á eftir efsta
manni og Ólöf María
þarf að vinna upp níu
högg á tveimur
síðustu dögunum.
Heyrst hefur ...
... að mörg ensk lið séu á eftir
Íslendingnum Hannesi Sigurðssyni sem
leikur með norska liðinu Viking. Hannes
hefur verið orðaður við úrvalsdeildarliðið
WBA og 1. deildarliðið Stoke en þau eru
ekki þau einu sem ætla sér að kræka í
framherjann sterka. Hannes hefur unnið
sér fast sæti í byrjunarliði Viking og lék
sína fyrstu A-landsleiki á árinu.
sport@frettabladid.is
34
> Við sendum hlýja strauma ...
.... til 18 ára landsliðsins í
körfubolta sem spilar í dag við
Finna klukkan 17.15 að
íslenskum tíma mikilvægan
landsleik í undanúrslitum
Evrópukeppninnar í Slóvakíu.
Með sigri koma íslensku
strákarnir 18 ára landsliðinu upp
í A-deild í fyrsta sinn í sögunni.
Dregi› var í undanúrslit í Visa-bikarkeppni karla og kvenna í gær. Tvö bestu li› Landsbankadeildar
kvenna, Valur og Brei›ablik, drógust saman en hjá körlunum keppa FH og Fram annars vegar og Valur
mætir Fylki í hinum leiknum.
Draumaúrslitaleikur í vændum?
FÓTBOLTI Bæði í bikarkeppni karla
og kvenna eru þrjú efstu lið
Landsbankadeildanna tveggja enn
með í keppninni. Það var því
nokkuð ljóst að tvö af toppliðun-
um þremur myndu mætast inn-
byrðis í undanúrslitum bikar-
keppninnar. Svo fór að efstu liðin
í Landsbankadeild kvenna dróg-
ust saman, Breiðablik og Valur, en
liðin mætast hinn 24. ágúst á
Kópavogsvelli. Á sama tíma tekur
KR á móti 1. deildarliði Fjölnis,
sem er nú í undanúrslitum bikars-
ins í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Hjá körlunum fengu toppliðin
tvö hvort sinn andstæðinginn,
Valur mætir Fylki og FH-ingar
etja kappi við Framara. Báðir
leikirnir fara fram á Laugardals-
velli, dagana 3. og 4. ágúst.
Valsmenn mæta einmitt Fylki í
deildinni á miðvikudaginn kemur
og mætast liðin því tvisvar á einni
viku. „Það er dæmigert að lenda á
móti sama liðinu í deild og bikar
með skömmu mililbili,“ sagði fyr-
irliði Fylkis, Valur Fannar Gísla-
son. „En ég átti mér enga óska-
mótherja, það er bara gott að vera
kominn svona langt í keppninni.
En við munum leggja allt í leikinn
enda er þetta eini titillinn sem við
eigum möguleika á.“
Fyrrum félagi Vals Fannars
hjá Fylki, Kjartan Sturluson,
stendur nú á milli stanganna í
Valsliðinu. „Jú, það er alltaf gam-
an að mæta gömlu félögunum og
þetta verður vissulega stórleikur.
En við ætlum okkur sigur þó svo
að Fylkisliðið sé sterkt. Ég býst
við hörkuleik en nenni varla í
framlengingu, enda þarf að ná
myndum úr leiknum í sjónvarps-
fréttirnar klukkan tíu,“ sagði
Kjartan í léttum dúr.
Heimir Guðjónsson, fyrirliði
Íslandsmeistara FH, sagði að
vissulega hefðu það verið mikil
vonbrigði að komast ekki áfram í
forkeppni Meistaradeildar Evr-
ópu en að sínir menn væru engu
að síður jákvæðir. „Persónulega
var mér sama á móti hverjum við
lentum. Við ætlum okkur að sjálf-
sögðu í úrslitaleikinn og þá þurf-
um við að vinna Fram rétt eins og
önnur lið. Fram undan er erfiður
leikur í Vestmannaeyjum þar sem
við mætum ÍBV í deildinni og við
getum ekki leyft okkur að vera
værukærir þrátt fyrir ágæta
stöðu í deildinni. Ég sé því fram á
skemmtilega baráttu,“ sagði
Heimir.
Helena Ólafsdóttir tók nýverið
við liði KR af Írisi Björk Eysteins-
dóttur, sem fór í barnseignarleyfi.
Hún hefur fylgst vel með KR-
stúlkum í sumar og segir að þær
eigi meira inni en þær hafi sýnt.
„En Fjölnisstúlkur hafa verið að
standa sig vel og við höfum ekki
efni á að vanmeta neinn. Þær vilja
sanna sig og fara lengra enda í
fyrsta sinn í undanúrslitum bik-
arsins. Við erum þar að auki að
missa leikmenn úr okkar hópi sem
fara til útlanda í nám og gæti ég
trúað að um sé að ræða þrjá til
fjóra leikmenn,“ sagði Helena.
eirikurst@frettabladid.is
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
1. deild karla í fótbolta:
VÍKINGUR–ÞÓR AK. 4–0
Davíð Þór Rúnarsson 2, Andri Steinn
Birgisson, Björgvin Vilhjálmsson.
KA–FJÖLNIR 6–1
Jóhann Þórhallsson 3, Pálmi Rafn
Pálmason 2, Hreinn Hringsson – Pétur
Georg Markan.
STAÐA EFSTU LIÐA:
BREIÐABLIK 10 8 2 0 17–3 26
VÍKINGUR 11 6 4 1 25–6 22
KA 11 6 2 3 23–10 20
VÍKINGUR Ó.10 4 2 4 9–19 14
HK 10 3 4 3 12–11 13
Íslandsmótið í golfi:
EFSTU KARLAR EFTIR 2 DAGA
Heiðar Davíð Bragason, GKj (67–74) -3
Ólafur Már Sigurðsson, GR (71–72) -1
Sigurpáll Geir Sveinsson, GKj (74–70) 0
Hjalti Pálmason, GOB (69-75) 0
Björgvin Sigurbergsson, GK (74–71) +1
Ingi Rúnar Gíslason, GKj (70–76) +2
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (70–77) +3
Örlygur Helgi Grímsson, GV (74–73) +3
Sigmundur Einar Máss., GKG (78–69) +3
Kjartan Dór Kjartansson, GKG (73–74) +3
EFSTU KONUR EFTIR 2 DAGA
Þórdís Geirsdóttir, GK (74–74) +4
Tinna Jóhannsdóttir, GK (76–78) +10
Ragnhildur Sigurðard., GR (78–77) +11
Nína Björk Geirsdóttir, GKj (77–78) +11
Ólöf María Jónsdóttir, GK (80–77) +13
Anna Lísa Jóhannsdó., GR (79–82) +17
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
20 21 22 23 24 25 26
Laugardagur
JÚLÍ
■ ■ LEIKIR
14.00 KS fær Víking Ólafsvík í
heimsókn á Siglufjörð í 1.deild karla.
14.00 Breiðablik tekur á móti
Völsungi á Kópavogsvelli í 1.deild
karla.
■ ■ SJÓNVARP
10.50 Formúla 1 á RÚV.
12.10 Mótorkross á RÚV.
12.30 Strandblak á Sýn.
13.30 Motorworld á Sýn.
14.30 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn.
15.00 Íslandsmótið í golfi 2005 á
Sýn.
16.00 Íslandsmótið í golfi 2005 á
Sýn.
19.00 Spænski boltinn á Sýn.
20.40 Hnefaleikar á Sýn.
22.40 Hnefaleikar á Sýn.
Fyrrverandi leikmaður írska landsliðsins ekki ráðinn til Notts County:
FÓTBOLTI Steve Staunton, sem
spilað hefur meðal annars með
Liverpool, Aston Villa og
Coventry á ferli sínum, vildi
komast að hjá Notts County sem
þjálfari og leikmaður, en Guðjón
Þórðarson ákvað að ráða hann
ekki til starfa.
„Ég gat farið aðrar leiðir sem
mér fannst skynsamlegri. Ég
fékk hingað unga leikmenn sem
ég þurfti ekki að greiða fyrir, og
svo er ég með Mike Whitlow,
fyrrverandi samherja Guðna
Bergssonar hjá Bolton, en hann
mun aðstoða mig við þjálfun og
er þar að auki góður leikmaður.“
Guðjón segir undirbúnings-
tímabilið hjá Notts County hafa
gengið vel, en leikmenn félags-
ins hafa æft tvisvar á dag í
nokkrar vikur.
„Það er mikið leikjaálag í
neðri deildunum á Englandi, og
til þess að þola það verða leik-
menn að vera í góðu líkamlegu
ástandi. Æfingarnar ganga vel og
ég er farinn að hlakka til þess að
mótið hefjist.“
Leikmannahópurinn hjá Notts
County er ekki stór en Guðjón
vonast til þess að hann dugi á
komandi tímabili.
„Ég er með tuttugu og tvo
leikmenn núna, og það gætu
komið tveir leikmenn til viðbótar
en það er ekkert víst. Ég ætla
mér að nota þessa leikmenn sem
ég er með núna á tímabilinu og
þess vegna æfum við mikið
núna. Ég held að leikmenni taki
þessu æfingaálagi ágætlega því
þeir vita að þetta er nauðsynlegt.
Það er erfitt að spila fjörutíu og
sex deildarleiki á tímabili og
taka að auki þátt í þremur bikar-
keppnum. Þess vegna er ég á því
að æfingarnar þurfi að vera erf-
iðar á þessum tíma.“ - mh
Gu›jón ré› Staunton ekki til Notts
Mads Thunø Laudrup, sonur knatt-
spyrnumannsins Michael Laudrup sem
nú þjálfar Brøndby, er staddur hér á
landi að spila með FC København á
Rey Cup- mótinu í
knattspyrnu.
Mads er einn af efnilegustu
leikmönnum Danmerkur og er
einn þriggja leikmanna FC Køben-
havn sem leika með U-17 ára
landsliði Danmerkur.
Jonny Larsen, þjálfari FC
København, segir Mads og
faðir hans Michael ekki líka
knattspyrnumenn, en er þó á
því að Mads verði framtíðar-
landsliðsmaður Dana. „Mads
hefur mikla hæfileika. Hann spil-
ar á miðjunni og er virkilega góð-
ur í að taka á móti bolta og hefur mjög
góðan leikskilning. Sendingar hans eru
góðar og staðsetningarnar einnig.
Michael var rosalega góður leikmað-
ur á sínum tíma, sá allra besti sem
ég hef séð, en Mads hefur þó alla
eiginleikana sem þarf til þess að
ná langt í atvinnumennsku í dag.
Hann hefur hraða, tækni og er
góður í vörn, betri en bræðurn-
ir Brian og Michael voru, en
þeir voru fyrst og fremst sókn-
armenn þegar þeir voru ung-
ir. Hann hefur mikla hlaupa-
getu og heldur einbeitingu
vel. Ég hugsa að hann eigi eftir að
verða atvinnumaður hjá stóru félagi í
Evrópu eins og pabbi hans.“
FC København spilaði gegn Þrótti
Reykjavík í sínum fyrsta leik og vann
eitt núll. „Það var erfiður leikur. Þróttur
spilaði ágætan fótbolta og strákarnir í
liðinu voru duglegir. Ég var ekki nógu
ánægður með þennan leik, en ég veit
að strákarnir eiga eftir að sýna hvað í
þeim býr. Þetta lið FC København er eitt
besta lið Danmerkur í þessum aldurs-
hópi.“
Erkifjendur FC København er lið
Brøndby, og því kom svolítið á óvart
þegar Mads skrifaði undir tveggja ára
samning við FC København, þar sem
faðir hans er þjálfari Brøndby. „Michael
var ánægður með hvernig við vorum að
haga málum í unglingaþjálfuninni og
sagði því syni sínum að halda áfram
hérna, því hann hefur tekið framförum
hjá okkur. Ég er fullviss um að Mads
verður einn af betri miðjumönnum
Danmerkur eftir fimm ár og jafnvel fyrr.“
SONUR MICHAEL LAUDRUP: KEPPIR Á REY CUP
Mads getur or›i› einn besti leikma›ur Danmerkur
EFST Heiðar Davíð Bragason og Þórdís
Geirsdóttir héldu forystunni eftir annan
dag á Íslandsmótinu í golfi.
Íslandsmótið í golfi í Leirunni
Halda bæ›i
forystunni
GOLF Heiðar Davíð Bragason úr
Kili og Þórdís Geirsdóttir úr Keili
halda forystunni á Íslandsmótinu
í golfi sem fer fram við frábærar
aðstæður í Leirunni.
Heiðar Davíð Bragason úr Kili
var 2 höggum yfir pari í dag og er
því þremur höggum undir pari í
heildina. Heiðar hefur nú tveggja
högga forustu á Ólaf Má Sigurðs-
son úr GR. Jafnir í þriðja sæti,
höggi á eftir Ólafi, eru síðan Sig-
urpáll Geir Sveinsson, Kili, sem
lék best á öðrum degi og Hjalti
Pálmason, Golfklúbbi Bakkakots.
Íslandsmeistarinn Birgir Leifur
Hafþórsson tapaði sex höggum á
fyrri níu í gær en náði að laga að-
eins skorið á seinni níu en er samt
sex höggum á eftir efsta manni.
Í kvennaflokki hefur Þórdís
Geirsdóttir úr Kili öruggt sex
högga forskot á félaga sinn úr
Keili, Tinnu Jóhannsdóttur. Þórdís
hefur leikið fyrstu 36 holurnar á
fjórum höggum yfir pari. Ragn-
hildur Sigurðardóttir úr GR og
Nína Björk Geirsdóttir úr GKj
koma næstar en Íslandsmeistar-
inn Ólöf María Jónsdóttir er
fimmta, níu höggum á eftir Þór-
dísi. Síðustu tveir dagarnir verða í
beinni útsendingu á Sýn. -óój
DRÓGU ANDSTÆÐINGANA Valur og Fram komu fyrst upp úr pottinum og voru því fulltrúar þeirra liða, Sigurbjörn Örn Hreiðarsson og
Framarinn Þórhallur Dan Jóhannsson, fengnir til að draga hvor sinn andstæðinginn í undanúrslitum bikarkeppninnar. Fréttablaðið/Páll
GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Íslenski knattspyrnustjórinn hjá Notts County býr lið sitt undir
komandi átök. Hann ákvað að ráða ekki Steve Staunton til félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI