Fréttablaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.07.2005, Blaðsíða 8
1Með hvaða körfuboltaliði leikur JónArnór Stefánsson næsta vetur? 2Hvað heitir stjórnarformaður Spari-sjóðs Hafnarfjarðar? 3Við hvers konar krabbameini hefurlyfið Herceptin reynst vel? SVÖRIN ERU Á BLS. 46 VEISTU SVARIÐ? 8 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR Enn er ráðist að erlendum diplótmötum í Írak: Sendirá›sstarfsmönnum rænt BAGDAD, AP Tveimur alsírskum sendiráðstarfsmönnum í Írak var rænt í Bagdad í fyrradag. Alsírsku diplómatarnir voru á leiðinni úr sendiherrabústaðnum í sendiráðið þegar byssumenn stöðvuðu bíl þeirra. Tvímenning- arnir voru dregnir ásamt bílstjór- anum út úr bifreið sinni og síðan var ekið á brott með þá. Fyrir tveimur vikum var þrem- ur sendiráðsstarfsmönnum rænt í Bagdad, meðal annars sendiherra Egyptalands. Hann fannst myrtur nokkrum dögum síðar. Bersýni- lega vakir fyrir mannræningjun- um að hræða önnur arabaríki frá því að eiga í stjórnmálasambandi við ríkisstjórnina í Bagdad. Súnníar neita enn að halda áfram þátttöku í stjórnarskrár- nefnd Íraks eftir að félagi þeirra var ráðinn af dögum í vikunni, þar sem þeir telja að öryggi sitt sé ekki lengur tryggt. Ákvörðun súnníanna setur samningu stjórn- arskrárinnar í uppnám en henni á að ljúka 15. ágúst næstkomandi. Afar mikilvægt er að súnníar beri ekki skarðan hlut frá borði í plagginu þar sem þeir eru þegar mjög ósáttir við sitt hlutskipti. ■ Olíufélögin eru tilbúin að kaupa olíu til baka: Fólk er vara› vi› a› geyma olíu LÖGREGLUMÁL Almenningur er var- aður við þeirri hættu sem af því getur skapast að geyma birgðir af dísilolíu í og við íbúðarhús segir í tilkynningu frá Ríkislögreglu- stjóra, Brunamálastofnun og Um- hverfisstofnun. Kemur tilkynningin tæpum mánuði eftir að ljóst er að fjöl- margir hömstruðu olíu áður en ný olíulög tóku gildi 1. júlí. Var það fyrirséð þar sem verðið hækkaði um helming á einni nóttu og vör- uðu meðal annars olíufélögin sjálf við því að þetta gæti átt sér stað löngu áður en breytingin tók gildi. Er í tilkynningunni bent á að ólöglegt sé að geyma birgðir af þessu tagi við ófullnægjandi að- stæður og öll slík meðferð í raun- inni ólögleg. Segir að olíufélögin séu reiðubúin að kaupa olíu til baka sé hún í sama ástandi og þeg- ar hún var keypt en hjá olíufélög- unum fengust þær upplýsingar að þá yrði boðið innkaupsverð eins og það var fyrir mánaðamót. -aöe Álversbryggjan á Reyðarfirði: Skemmdir óverulegar ÓHAPP Tjónið sem varð á nýju álversbryggjunni í Reyðarfirði þegar skutur Skaftafells, leiguskips Samskipa, rakst á bryggjuna síðastliðinn þriðju- dag er talið óverulegt. Sveinn Þórarinsson, hjá Verkfræði- stofu Austurlands sem hefur eftirlit með framkvæmdum við álvershöfnina, segir að tjónið hlaupi á hundruðum þúsunda króna en ekki milljónum. Skemmdirnar á Skaftafelli verða metnar í Reykjavík en þangað kom skipið í fyrra- kvöld. - kk EMILÍANA TORRINI Líkt og Kjarval varði Emilíana hluta af sinni æsku á Borgarfirði eystra. Borgarfjörður eystri: Tónleikahald í fiskverkunarhúsi SKEMMTUN Emilíana Torrini heldur tónleika ásamt hljómsveit sinni í Bræðslunni, gömlu fiskverkunar- húsi á Borgarfirði eystri, í dag en húsið hefur ekki áður verið nýtt til tónleikahalds. Tónleikarnir eru lið- ur í menningarhátíðinni Þakka þér fyrir að ég kom sem Kjarvalsstofa á Borgararfirði stendur fyrir á morgun. Á meðal þess sem í boði verður á hátíðinni, auk tónleikanna, er gönguferð um slóðir Kjarvals, sýn- ingin Vættir í verkum Kjarvals og málþing um meistarann. -kk GEORGÍA VARPAÐI HANDSPRENGJU Maður sem var handtekinn í Georgíu þeg- ar George W. Bush var í heimsókn í landinu í maí síðastliðnum hefur viðurkennt að hafa hent hand- sprengju að forsetanum þar sem hann ávarpaði útifund í höfuðborg- inni Tbilisi. Sprengjan sprakk reyndar ekki enda hefði tilræðið þá eflaust vakið nokkru meiri athygli. SAMNING STJÓRNARSKRÁR Í UPPNÁMI Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra skoraði á súnnía að taka sæti sín á ný í stjórnar- skrárnefnd Íraks í gær. ÓFULLNÆGJANDI GEYMSLA OLÍU Þrjár ríkisstofnanir vara við geymslu á dísilolíu í og við heimili og við aðrar ófullnægjandi aðstæður tæpum mánuði eftir að ljóst er að hundruð hömstruðu mikið magn áður en breytingar urðu á olíugjaldinu um síðustu mánaðamót. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EL G I Minkastofninn á Íslandi allt a› sjötíu flúsund d‡r Fjöldi minka á Íslandi gæti veri› hvar sem er á bilinu 7.000 til 70.000. Kostna›ur vi› minkavei›ar hefur aukist jafnt og flétt sí›ustu ár án fless a› nokkur vitneskja liggi fyrir um árangur af vei›unum. VEIÐAR Þrátt fyrir stöðuga aukn- ingu minkaveiða hér á landi hefur stofnstærð minks aldrei verið metin. „Það skiptir öllu máli að vita hve stór stofninn er ef við eigum að halda honum niðri,“ segir Áki Ármann Jóns- son, forstöðumaður veiðistjórn- unarsviðs Umhverfisstofnunar. Kostnaður við veiðarnar hefur síðustu ár verið um fjörutíu milljónir á ári og farið vaxandi. Árleg veiði hefur verið rúmlega sjö þúsund dýr og þykir aukin veiði benda sterklega til þess að stofninn fari sístækkandi. Öðru gegnir um tófur, en þar er vitað að stofnstærð að vori er nálægt fjögur þúsund dýrum. Náttúrustofnun Vesturlands hefur síðustu ár stundað rann- sóknir á minkum. „Við erum að reyna að koma stofnstærðinni á hreint. Vonandi gefur það okkur einhverja betri hugmynd,“ segir Menja von Schmalensee sviðs- stjóri. „Við vitum að minkar deyja af mörgum öðrum or- sökum en veiði og stofninn gæti því verið stór.“ Síðustu árin hefur stofnunin unnið að því að handsama minka á Snæfellsnesi, merkja þá og sleppa þeim síðan aftur. Minka- veiðimenn skila síðan öllum veiddum minkum, merktum sem ómerktum, til stofnunarinnar til frekari rannsókna. Menja vill koma því á fram- færi að rannsóknir Náttúru- stofnunarinnar bitni alls ekki á veiðum á mink. „Við erum ekki að taka peninga frá veiði- mönnum.“ Hún segir fé stofnun- arinnar vera algerlega aðskilið því fé sem fer til veiða á mink- um, nema auðvitað að því leyti að um ríkisfé sé að ræða. Það komi bæði sjálfstætt af fjárlög- um og einnig úr vísindasjóðum sem styrki rannsóknir. „Aðal- markmið okkar með rannsókn- unum er að fá niðurstöður sem nýtast við stjórnun veiða. Það hljóta allir að vilja að peningarnir sem fara í veiðar séu nýttir á sem skilvirkastan hátt.“ Eftir nokkrar vikur er búist við því að stofnstærðin á Nesinu liggi fyrir og að á grundvelli hennar verði í kjölfarið unnt að reikna út stofnstærð minks um allt land. -grs MINKUR Í BÚRI Enn er nokkuð um að minkar sleppi úr búum og bætist við stofn villtra minka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.