Fréttablaðið - 23.07.2005, Síða 4

Fréttablaðið - 23.07.2005, Síða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 64,24 64,54 112,52 113,06 78,06 78,5 10,46 10,522 9,795 9,853 8,252 8,3 0,5789 0,5823 93,51 94,07 GENGI GJALDMIÐLA 22.07.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 109,1079 4 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR Ódrukkinn en óvenju æstur maður: Hætta flegar ma›ur ók inn Vallarstræti LÖGREGLAN Karlmaður á fimm- tugsaldri ók heldur óvenjulega leið um miðbæ Reykjavíkur á fimmtudagskvöldið, en þá fór hann frá Ingólfstorgi inn á Aust- urvöll eftir göngugötunni. Veit- ingastaðirnir Thorvaldsen bar og Cafe París voru enn að afgreiða fólk utandyra og skapaðist hætta því fólk sat við flest borðin. Bíll- inn staðnæmdist að lokum fyrir utan Cafe París þar sem lögregla hafði afskipti af manninum. Engar skemmdir urðu á veit- ingahúsunum, en maðurinn mun þó hafa ekið utan í staura á leið sinni og einnig urðu einhverjar skemmdir á bílnum. Eitthvað virðast nærstaddir hafa verið ósáttir við háttarlag mannsins og einn þeirra gerði sér ferð upp á húdd bílsins og sparkaði í framrúðu hans þannig að hún brotnaði. Lögreglan segir að maðurinn hafi ekki verið undir áhrifum áfengis, en að hann hafi verið æstur í skapi. - grs Ma›ur hrapa›i ni›ur 150 metra í skri›um Um fjörutíu björgunarsveitarmenn tóku flátt í björguninni. fiyrla Landhelgis- gæslunnar flutti manninn illa lemstra›an til Akureyrar en fla›an var hann flutt- ur me› sjúkraflugi til Reykjavíkur. Ekki fengust frekari fregnir um lí›an hans. SLYS Fertugur maður slasaðist þeg- ar hann féll um það bil 150 metra niður skriðu um miðjan dag í gær við Hvalvatnsfjörð sem er á nesinu milli Skjálfanda og Eyjafjarðar. Maðurinn var á göngu í Bjarn- arfjalli ásamt fleira fólki þegar slysið varð og tillkynnti ferðafé- lagi Neyðarlínunni um slysið. Björgunarsveitarmenn frá Húsa- vík ásamt lækni komu með björg- unarbáti fyrst að manninum um klukkan hálf fjögur þar sem hann lá í flæðarmálinu og veittu þeir honum aðhlynningu. Flytja varð manninn til svæðis þar sem þyrla gæti nálgast og að því loknu var hann hífður upp í þyrlu Landhelg- isgæslunnar sem kom á slysstað klukkan rúmlega fjögur og flutti manninn til Akureyrarflugvallar. Þaðan var síðan maðurinn fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Ekki fengust frekari fregnir af líðan mannsins á Landspítala-há- skólasjúkrahúsi en að sögn manna frá Landsbjörgu var maðurinn talsvert lemstraður þegar komið var að honum. Um fjörutíu björgunarsveitar- menn frá Húsavík, Grenivík og Akureyri tóku þátt í björguninni. -jse Nýjung á Íslandi: Persónuger› debetkort ÞJÓNUSTA Persónugerð debetkort munu standa viðskiptavinum Landsbankans og Íslandsbanka til boða á næstunni. Hægt verður að setja mynd úr eigin safni eða úr myndabanka framan á debetkortin. Fyrsta persónugerða debetkort- ið var afhent Birgittu Haukdal söngkonu í útibúi Íslandsbanka í gær en fyrst í stað geta einungis fé- lagar í XY-klúbbi bankans, sem ætl- aður er unglingum á aldrinum 12 til 15 ára, nýtt sér nýjungina. Þjónust- an hjá Landsbankanum verður í boði fyrir alla viðskiptavini bank- ans án endurgjalds en hún hefur ekki verið tekin í gagnið. - rsg VEÐRIÐ BÍLLINN VIÐ CAFE PARIS Eins og sjá má var leiðin þröng og mikið af fólki á svæðinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P ÁL L BIRGITTA HAUKDAL Birgitta fékk fyrsta persónugerða debetkortið en það var af- hent í gær. Borgaryfirvöld: Fundur me› gæslukonum KJARAMÁL Starfsmenn gæsluvalla héldu fund með borgaryfirvöld- um á miðvikudag og voru málefni þeirra til umræðu á fundi borgar- ráðs í fyrradag. Tuttugu af tutt- ugu og tveimur starfsmönnum gæsluvalla mættu til fundarins. Þar var farið yfir réttarstöðu starfsmanna og rætt um þau störf sem starfsmönnunum stendur til boða. Ákveðið var að halda annan fund með starfsmönnum gæslu- valla 15. ágúst næstkomandi. Starfsmönnum gæsluvalla hefur verið sagt upp störfum frá 1. sept- ember næstkomandi. -hb NOREGUR KYNFRÆÐSLA Í LEIKSKÓLANA For- svarsmenn heilsugæslustöðvar í Osló sem hefur forvarnarstarf í kynferðismálum á sinni könnu hef- ur lagt til að kynfræðsla hefjist strax í leikskólum, þegar börnin eru fimm ára gömul. Siv Gamnes, for- mælandi stöðvarinnar, segir mikil- vægt að upplýsa börnin strax um þessi mál svo þau vaxi ekki úr grasi með ranghugmyndir í kollinum. SLASAÐUR FJALLGÖNGUMAÐUR Maðurinn var fluttur með þyrlu til Akureyrar en þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur síðdegis í gær. Læknir á slysstað segir hann illa lemstraðan en ekki fengust frekari fregnir af líðan hans hjá Landspítalanum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K Nýherji: Hagna›ur eykst VIÐSKIPTI Hagnaður Nýherja á öðr- um ársfjórðungi var 21 milljón króna samanborið við 12 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Tekjur félagsins jukust um 271 milljón króna á öðrum ársfjórð- ungi eða um 25 prósent frá fyrra ári. Tekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins jukust um 20 prósent milli ára. Mesta breytingin í rekstri fé- lagsins er að þjónustutekjur eru að aukast um 54 prósent á milli fjórðunga. Í tilkynningu frá félaginu seg- ir að ágætar horfur séu um af- komu félagsins og áframhaldandi vöxt. -dh ÞÓRÐUR SVERRISSON, FORSTJÓRI NÝ- HERJA Þjónustutekjur félagsins aukast um rúmlega 50 prósent. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.