Fréttablaðið - 23.07.2005, Page 10
10 23. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Ellefu n‡ hringtorg
eru í Vallahverfi
Fjöldi n‡rra hringtorga eru í hinu n‡ja Vallahverfi í Hafnarfir›i.
Einn íbúanna segist ver›a hálfringla›ur flegar hann ekur um hverfi›.
SKIPULAGSMÁL Sennilega geta fá
hverfi á landinu státað af jafn
mörgum hringtorgum og Valla-
hverfið í Hafnarfirði en í og við
hverfið eru ein ellefu hringtorg.
Dýrleif Ólafsdóttir, sem býr á
Blómvöllum, segist þurfa að
fara um sex hringtorg þegar
hún aki börnum sínum á æfinga-
völlinn, sem þó er stutt frá.
„Maðurinn minn hafði orð á því
að hann hefði orðið ringlaður
um daginn þegar hann þurfti að
fara þessa leið sex sinnum sama
dag en það eru 36 hringtorgs-
ferðir,“ segir Dýrleif.
Helga Stefánsdóttir, verk-
fræðingur á umhverfis- og
tæknisviði Hafnarfjarðarbæjar,
segir hringtorgin góða lausn út
frá umferðaröryggi og eins þyki
flestum þau betri en bið við um-
ferðarljós. Hún segir að nú þeg-
ar hverfið sé í uppbyggingu geti
þetta litið skringilega út en
verði það varla þegar hverfið
verði fullbyggt.
Hún segir að á næsta ári verði
Krísuvíkurbraut framlengd að
Reykjanesbraut, ef allt gangi
eftir, og þá geti íbúar Vallahverfis
sparað sér ófáar hringtorgsbunur
á leið sinni út úr hverfinu. – jse
Skipulagsstofnun gefur grænt ljós á verksmiðju við Mývatn:
Ekki skylt a› meta umhverfisáhrif
ATVINNUMÁL Skipulagsstofnun telur
að framleiðsla á vörubrettum úr
úrgangspappír hafi ekki umtals-
verð áhrif á umhverfið. Hvorki er
gert ráð fyrir frárennsli né loft-
mengun og hefur stofnunin því úr-
skurðað að slík framleiðsla í Mý-
vatnssveit skuli ekki háð mati á
umhverfisáhrifum.
Fyrirtækið Grænar lausnir
hyggst nýta húsakynni og búnað
Kísiliðjunnar við Mývatn til fram-
leiðslunnar. Í gögnum sem það
lagði fram hjá Skipulagsstofnun
kemur fram að ætlunin sé að gróf-
hreinsa pappírsmassa og framleiða
úr honum vörubretti með þekktum
en orkufrekum aðferðum.
Ráðgert er að framleiða allt að
fimm milljónir bretta úr tólf þús-
und tonnum af úrgangspappír á ári
sem fenginn verður að verulegu
leyti af höfuðborgarsvæðinu. Að-
standendur verkefnisins ráðgera
að flytja daglega tvo gáma af hrá-
efni að verksmiðjunni en átta gáma
af vörubrettum frá henni, en áætl-
að er að framleiðslan fari að mest-
um hluta á erlenda markaði.
Áætlaður stofnkostnaður er um
1,8 milljarðar króna og hefur iðn-
aðarráðuneytið gefið Nýsköpunar-
sjóði heimild til fjárfestinga í
fyrirhugaðri verksmiðju. - jh
MJÓLKURVÖRUR Sala á mjólkurvörum
jókst um tvö prósent síðastliðið ár, en
neysla á smjöri hefur meðal annars verið
að sækja í sig veðrið eftir margra ára sam-
drátt í neyslu.
Sala mjólkurafurða eykst:
Meira smjör
eftir mögur ár
LANDBÚNAÐUR Neysla á smjöri
hefur aukist jafnt og þétt á síð-
ustu mánuðum eftir að hafa verið
á undanhaldi árin á undan. Neysla
á drykkjarskyri, rjóma og feitum
ostum hefur einnig aukist, en alls
hefur selst tveimur prósentum
meira af mjólkurvörum en árið
þar á undan.
„Aukning smjörneyslu hefur
verið nokkuð stöðug eftir sam-
drátt sem verið hafði til langs
tíma,“ segir Snorri Sigurðarson,
framkvæmdastjóri Landssam-
bands kúabænda. Hann telur
skýringuna meðal annars þá að
gæði smjörs hafi aukist og veit-
ingahús noti það meira í matseld
en áður.
- ht
OFSAAKSTUR Í LITLU SKYGGNI
Lögreglan á Akureyri stöðvaði í
fyrrinótt tvö bíla á of miklum
hraða í Öxnadal. Þoka var í daln-
um og skyggni ekki nema um
fimmtíu metrar. Voru bílarnir á
118 og 134 kílómetra hraða.
AFTANÁKEYRSLA Á REYKJANES-
BRAUT Fjórir voru fluttir á
sjúkrahús með minniháttar
meiðsl eftir aftanákeyrslu á
Reykjanesbraut í gærmorgun.
Fólksbíll sem ekið var aftan á fór
út af veginum og á skilti. Báðir
bílarnir voru dregnir burtu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HRINGTORG Í VALLAHVERFI Eins og sjá má er hringtorg við nær hver gatnamót í Vallahverfi í Hafnarfirði. Þeir sem búa vestast í hverfinu
geta þurft að þræða níu til ellefu slík til að komast úr hverfinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
K
AR
LS
SO
N
KÍSILIÐJAN Í MÝVATNSSVEIT Kísiliðjan
hætti starfsemi síðastliðinn vetur en
verður hugsanlega nýtt til framleiðslu
á vörubrettum úr pappír.
Tískusýningin Iceland Fashion Week:
Hönnu›ir hættu vi› flátt-
töku vegna vanefnda
ÍSLENSK HÖNNUN Þrír íslenskir
hönnuðir hættu við með skömm-
um fyrirvara að sýna verk sín á
tískusýningunni Iceland Fashion
Week sem haldin var um síðustu
helgi. Hönnuðirnir drógu sig út úr
sýningunni vegna skipulagsleysis
og mikils kostnaðar.
Í febrúar var haldin und-
ankeppni fyrir tískuvikuna og
báru hönnuðurnir Sunna Ásgeirs-
dóttir, Harpa Einarsdóttir og Jón
Sæmundur sigur úr býtum og
stóðu þau í þeirri trú að styrkur
frá Útflutningsráði fylgdi sigrin-
um í febrúar.
„Eins og ég og fleiri skildum
Kolbrúnu þá áttu þeir sem voru
valdir áfram á Iceland Fashion
Week að fá 200 þúsund króna
styrk hver frá Útflutningsráði,“
segir Sunna, en þrímenningarnir
hafa ekkert heyrt í skipuleggj-
anda beggja hátíða, Kolbrúnu Að-
alsteinsdóttur, um efndir vegna
styrksins.
Hermann Ottósson, forstöðu-
maður Útflutningsráðs og stað-
gengill Jóns Ásbergssonar sem er
í leyfi, segir að stofnunin veiti ein-
staklingum ekki styrki. „Það er
andstætt öllum okkar verklags-
reglum. Það er það eina sem kem-
ur til greina í málinu að viðburð-
urinn hafi fengið einhverja að-
stoð, en ég kannast ekki við það,“
segir Hermann. Ekki náðist í Kol-
brúnu Aðalsteinsdóttur. -rsg
TÍSKUSÝNING Eini íslenski aðilinn á sýningunni var Spakmannsspjarir.