Fréttablaðið - 23.07.2005, Qupperneq 25
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
H
i
m
i
n
n
o
g
h
a
f
-
9
0
4
0
3
7
9
agstæð sumarhúsalán
Ertu að byggja, kaupa eða breyta sumarbústað?
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt sumar-
húsalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Lánið
getur numið allt að 60% af verðmæti eignar. Til
framkvæmda er lánað allt að 75% af byggingar-
kostnaði.
Ráðgjafar Frjálsa fjárfestingarbankans veita allar
nánari upplýsingar. Þú getur komið við í Ármúla
13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst
á frjalsi@frjalsi.is.
www.frjalsi.is
5 ár 18.850 19.100 19.560 19.800
10 ár 10.580 10.850 11.350 11.610
15 ár 7.880 8.170 8.710 8.990
* Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Vextir % 4,95% 5,50% 6,50% 7,00%
Dæmi um mán. greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
60%veðsetningarhlutfall
Góðan dag!
Í dag er laugardagur 23. júlí,
204. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 4.05 13.34 23.00
AKUREYRI 3.27 13.19 23.07
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Pallbílar verða æ vinsælli á Íslandi
en þeir eru ekki allir jafn flottir og 100
ára afmælisútgáfan af Ford F 250
Harley Davidson.
Jón Pétursson bílamálari féll kylliflatur
fyrir bílnum. “Það er allt alveg æðislegt við
þennan bíl, hvort sem það er útlitið eða
notagildið. Þetta er sérstök 100 ára af-
mælisútgáfa af Ford og Harley Davidson,
en það er auðvitað bara von á góðu þegar
risarnir leggjast á eitt við að hanna bíl.“
Þrátt fyrir að bíllinn sé bara eins árs er
Jón búinn að dunda ýmislegt við hann,
meðal annars sprauta hann, bæta við
„spoilerum“ og tjúna. „Nú er hann kominn
úr 350 hestöflum í 480.“ segir Jón.
Aðspurður um hvað sé flottast við
bílinn segir hann alla hönnunina flotta.
„Hann er klæddur handsaumuðu leðri að
innan, og er bara óstjórnlega töff. Svo
nýtist hann mér vel, ég nota hann til
dæmis til að flytja mótorhjólið mitt á
milli og svo er ég að byggja í Hafnarfirði
og þar hefur hann komið að góðum
notum.“
Jón hefur verið með bíladellu í
áraraðir og á hvorki meira né minna en
sex bíla. „Corvettan er í uppáhaldi,
svona dæmigerður bíladellubíll og ég er
búinn að vera að gera hann upp síðast-
liðin átta ár. Ég ætla að eiga Corvettuna
þegar hún er tilbúin en annars er ég
alltaf að kaupa og selja bíla.“
edda@frettabladid.is
Risar sameinast í hönnun
bilar@frettabladid.is
Volkswagen-framleiðandinn,
sem selur meðal annars
Volkswagen, Audi, Skoda og
Bentley-bifreiðar,
hefur aldrei
selt jafn
marga bíla og
í júní á þessu
ári. Um 489
þúsund bifreiðar voru afhentar
kaupendum, sem er rúmlega tíu
prósenta aukning. Mest var sölu-
aukningin í Suður-Afríku.
Kim Woo-choong, fyrrum for-
maður Daewoo, hefur verið
ákærður fyrir að falsa reikninga
Daewoo og draga sér milljarða
dollara. Kim hefur verið á flótta í
Evrópu síðastliðin sex ár en sneri
aftur til Suður-Kóreu á dög-
unum.
Lúxusbílarnir Audi A6
2005 og Infiniti M35
2006 fengu hæstu ein-
kunn í árekstrarprófun í Banda-
ríkjunum fyrir skömmu. Mæld
voru áhrif árekstrar á hlið og
framan á bifreiðina. Audi stóð sig
mjög vel í hliðarprófununum og
þykir vernda höfuðið sérlega vel.
Infiniti kom mjög vel út í heild-
ina og hefur afar lága slysatíðni.
Jón er alsæll með pallbílinn sem er af gerðinni Ford F 250
Harley Davidson. Jón heldur á syni sínum Enok Vatnari.
LIGGUR Í LOFTINU
í bilum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA FERÐIR HÚS NÁM MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Það þarf að
nota báðar hendur
við þetta meðal.
Eina til að halda
á skeiðinni og
hina til að halda
fyrir nefið!
Porsche 911 4S Cabrio reynsluekið
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N