Fréttablaðið - 23.07.2005, Qupperneq 27
3LAUGARDAGUR 23. júlí 2005
Sýningarsvæðið við nýja húsið að
Kletthálsi er stórt og vel upplýst. Þar
eru 250 stæði.
Nýtt og stærra
bílaþing
BÍLAÞING HEKLU OPNAR NÝJA
STARFSSTÖÐ Í NÆSTU VIKU.
Í næstu viku opnar Bílaþing Heklu
nýja starfsstöð við Klettháls 11 í
Reykjavík. Við nýtt hús Bílaþings
eru 250 útistæði á góðu og upp-
lýstu sýningarsvæði. Aðstaðan er
öll hin glæsilegasta og fyrir þá sem
leita að notuðum bíl er um að gera
að skoða úrvalið. Þrátt fyrir flutn-
ingana segir Bílaþingið ekki alveg
skilið við Heklusvæðið á Laugavegi.
Þar verða enn þá nokkrir valdir
notaðir bílar til sölu.
Í tilefni opnunarinnar verða góð til-
boð á notuðum bílum og í boði er
100 prósent fjármögnun af völdum
bílum.
Almennar bílaviðgerðir
Modelár 2004 – Skr.d. 09/2003 – Ekinn: 52 þús. km
Ásett verð: 4,4 milj. – Tilboð óskast – S. 821-4626
BENZ C 220 CDI Elegance
Integra oftast
stolið
ACURA INTEGRA COUPE 1999 VAR
OFTAST STOLIÐ Í BANDARÍKJUNUM
Í FYRRA.
Acura Integra Coupe 1999 hlýtur
þann vafasama heiður að vera sú
tegund bíla sem stolið var oftast af
öllum bílum í Bandaríkjunum á
síðasta ári. Ástæðan er talin öflug
vél bílsins.
Einn af hverjum
tvö hundruð
skráðum
Acura Integra
1999 var stolið
í fyrra. Annar á list-
anum var BMW M Roadster 2002
og í þriðja sæti Acura Integra 1998.
Aðrar bifreiðar á topp tíu listanum
eru GMC V2500 19991, Audi S4
2002 og Mercury Marauder 2004.
Hagkvæmasti
smábíllinn
Könnun ADAC staðfestir að KIA
Picanto1.1 LX er hagkvæmasti bíllinn
í Þýskalandi.
Samtökin ADAC stóðu nýlega fyrir reglu-
bundinni könnun á kostnaði við rekstur
bíla. Í könnuninni var reiknaður út
samanlagður rekstrarkostnaður yfir
fjögurra ára tímabil miðað við 15.000
kílómetra akstur á ári. Við útreikninga var
tekið tillit til innkaupsverðs, afskrifta,
endursöluverðs, fastrar þjónustu og við-
halds, eldsneytis, dekkja, hemla, trygg-
inga, skatta og virðisaukaskatts.
Könnunin sýndi að fimm dyra KIA
Picanto 1.1 LX er hagkvæmasti fjögurra
sæta bíll Þýskalands í A-flokki smábíla.
Heildarkostnaður við rekstur bílsins er
353.000 krónur eða aðeins 23 krónur á
kílómetra.
Auk hagkvæmninnar er Picanto
skemmtilegur smábíll í alla staði. Hann
er lipur í akstri, rúmgóður að innan og
ekki skemmir fyrir að hann er ákaflega
umhverfisvænn. Framleiðendur KIA
Picanto stefna að því að selja um 330
þúsund bíla á árinu 2005 í Evrópu og ef-
laust á könnun ADAC eftir að hafa ein-
hver áhrif á söluna.
Sumarið er tíminn þegar bif-
reiðaeigendur vilja gjarnan fá
sér filmur í bílrúðurnar til að
vernda farþega og innrétt-
ingar bílsins gegn sól.
„Filmur eru úr plastefni og mikill
munur á hágæðafilmum og lág-
gæðafilmum. Við notum aðeins
hágæða filmur og kostirnir við
þær eru að þær upplitast ekki og
halda litnum betur,“ segir
Tryggvi Einarsson, verslunar-
stjóri hjá 12 voltum á Malarhöfða
2 í Reykjavík.
„Bíllinn hitnar ekki eins mikið
í sól ef filmur eru í rúðunum og
hitinn helst í bílnum ef kalt er úti.
Filmurnar halda sem sagt varm-
anum inni í bílnum. Filmurnar
sem við seljum eru með 98 pró-
sent eða meiri vörn fyrir útfjólu-
bláum geislum. Sólarvörnin
verndar innréttingar bílsins og
þær halda sér betur. Rétt eins og
þegar maður færir stofuhúsgögn
til verður parkettið upplitað með
tímanum. Það sama gildir um bif-
reiðar,“ segir Tryggvi, sem mælir
með filmum og lítur á þær sem
mikilvægt öryggisatriði. „Í öllum
bílrúðunum nema framrúðunni er
perlugler sem molnar í smáa bita
þegar það brotnar, til dæmis í um-
ferðaróhappi. Ef filma er í rúðun-
um helst rúðan saman þegar hún
brotnar og verður eins og þunnt
pappaspjald. Löggjöfin um filmur
segir til um að ekki megi líma
filmur í framrúðuna eða fram-
hliðarrúðuna. Það eru til margir
skyggingartónar í filmum og það
má ekki einu sinni líma glærar
filmur í rúðurnar að framan. Ef
glærar filmur væru settar í fram-
hliðarrúðurnar gæfi það öku-
manni vissulega öryggistilfinn-
ingu því ef eitthvað hendir hann
perlast glerið ekki yfir hann,“
segir Tryggvi en starfsmenn 12
volta fylgja að sjálfsögðu lögum
og reglum og setja ekki filmur
þar sem ekki má.
„Það er mikið af fjölskyldu-
fólki sem fær sér mjög dökkar
filmur í afturrúðurnar, barnanna
vegna. Hlífar í rúðum hylja
stundum ekki alla rúðuna og
getur skinið á milli inn í bílinn og
á börnin. Smábörn eiga erfitt með
að vera með sólgleraugu en þegar
öll rúðan er þakin filmu veitir það
meiri sólarvörn, meira öryggi og
foreldrar finna fyrir meira ör-
yggi með þá staðreynd að ef eitt-
hvað kemur fyrir perlast glerið
úr rúðunni ekki á börnin,“ segir
Tryggvi en filmur geta líka virkað
sem þjófavörn. „Jeppafólk er oft
með mikinn og dýran búnað í
bílnum en með filmunum sjá
þjófar ekki inn og þá eru minni
líkur að tækjunum sé stolið.“
lilja@frettabladid.is
KÖNNUN ADAC Á
REKSTRARKOSTNAÐI BÍLA
1. Kia Picanto 1.1 LX fimm dyra
2. Daihatsu Cuore 1.0 Plus þriggja dyra
3. Daihatsu Cuore 1.0 Plus fimm dyra
4. Suzuki Alto 1.1 Club fimm dyra
5. Hyundai Atos 1.1 fimm dyra
6. Fiat Seicento 1.1 þriggja dyra
7. Citroen C2 1.1 þriggja dyra Advance
8. Daihatsu Cuore 1.0 Top þriggja dyra
9. Citroen C2 1.1 þriggja dyra Style
10. Suzuki Alto 1.1 Comfort
KIA Picanto 1.1. LX er léttur og góður
smábíll. Nú hefur könnun ADAC leitt í ljós
að hann er hagkvæmasti smábíllinn á
markaðnum.
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
SÍ
A
Erum sérhæfð í varahluta- og verkstæðisþjónustu
fyrir eftirtaldar tegundir bifreiða
Mercedes-Benz
Chrysler
Jeep
Mazda
Verkstæði Ræsis er opið frá kl. 7.30–18.00 og varahlutaverslun
frá 8.00–18.00 alla virka daga. Sími 540 5400
Tímapantanir í síma 540 5432 eða á verkst@raesir.is
Varahluta- og verkstæðisþjónusta
Eykur öryggistilfinn-
ingu á vegum úti
Marga skyggingartóna af filmum er hægt að fá hjá 12 voltum en alla innan löglegra
marka.
Tryggvi er mjög hlynntur filmum í bíl-
rúðum og telur þær vera mikið öryggisat-
riði.