Fréttablaðið - 23.07.2005, Side 28
Vegabréf
Taktu með þér ljósrit af vegabréfinu þínu þegar þú ferð til útlanda, sérstaklega ef þú ert
að ferðast til framandi slóða. Ef vegabréfið týnist eða því er stolið getur verið auðveldara
að losna úr vandræðum með ljósrit við höndina. [ ]
Kringlunni • Sími 533-2290
Nú styttist
í útsölulok.
Nær allur
fatnaður og skór á
50%
afslætti.
Saga Englands í einni borg
Dómkirkjan í York hefur staðið í rúm þúsund ár og er einstaklega falleg og mikilfengleg bygging, troðfull af sögu og leyndardómum.
Þeir sem eiga leið um Bret-
landseyjar ættu ekki að láta
gömlu Jórvík framhjá sér fara.
Jórvík eða York er ein þeirra borga
sem hafa hvað lengsta sögu á Bret-
landseyjum og nær skrásett saga
borgarinnar allt aftur að þeirri tíð
er Rómverjar hertóku Bretland.
Georg VI Englandskóngur sagði
eitt sinn að saga Jórvíkur væri saga
Englands og það eru orð að sönnu. Í
dag er York einstaklega falleg borg
þar sem sögulegar minjar blasa við
hvert sem litið er. Um leið og kom-
ið er út af lestarstöðinni má sjá
múrinn sem umlykur gömlu borg-
ina en eftir honum er hægt að
ganga og fá þannig greinargóða
mynd af borginni. Innan borgar-
múranna eru göturnar steinlagðar,
litlar og þröngar og fullt af spenn-
andi litlum verslunum sem bjóða
upp á óvenjulegan varning og kaffi-
og veitingahúsum sem flest eru í
mjög háum gæðaflokki. Dómkirkj-
an í York er einstaklega mikilfeng-
legt mannvirki og er hiklaust hægt
að mæla með heilum degi í að skoða
hana.
Árnar Ouse og Fosse renna
gegnum borgina og hægt er að fara
í skemmtisiglingu eftir þeim þar
sem leiðsögumaður lætur fróð-
leiksmola fljóta með.
Gott að versla
Í York má finna allar helstu versl-
anakeðjur Bretlandseyja og gera
má góð kaup á útsölum. Frá York er
stutt að fara með lest til helstu
borga Norður-Englands og einnig
má sérstaklega mæla með dagsferð
til strandbæjarins Scarborough.
Íbúar York eru einstaklega
greiðviknir og alúðlegir og stoltir
af borginni sinni. York er háskóla-
bær en á sumrin gætir nokkurs
ferðamannastraums og Bretar
sækja borgina heim í töluverðum
mæli til að kynnast sinni eigin sögu
og menningu.
Hvernig kemst ég þangað?
Hægt er að fljúga með Flugleiðum
og Iceland Express til Lundúna.
Frá Stansted-flugvelli er hægt að
taka lest beint norður í land og lítið
mál er að komast frá Heathrow-
flugvelli til Paddington-lestar-
stöðvarinnar og þaðan til Jórvíkur
en ferðin tekur tvo og hálfan til
þrjá tíma. Einnig er hægt að fljúga
til Glasgow og taka lest frá aðal-
lestarstöðinni þar í borg. Þá er auð-
vitað lítið mál að taka bílaleigubíl
og vera á eigin vegum. Ef ætlunin
er að dvelja í York en ekki skoða
nærsveitir er yfirleitt hægt að
komast flestra sinna ferða gang-
andi.
Fjölmörg skemmtileg og tiltölu-
lega ódýr gistiheimili eru í
nágrenni miðbæjarins en verðið er
reyndar breytilegt eftir árstíma.
Hægt er að líta á heimasíður eins
og www.york-tourism.co.uk eða
www.thisisyork.co.uk.
Börnum þarf ekki að leiðast í
York. Mörg safnanna, til dæmis
víkingasafnið, sinna þeim sérstak-
lega. Þá eru gæsir og endur sem
búa við árnar ákafir brauðþiggj-
endur og á torgunum í York má
finna leiktæki eins og hringekjur
og hoppikastala.
Gamla Jórvík er falleg borg,
þrungin sögu og afþreyingu, og
býður upp á eitthvað fyrir alla.
brynhildurb@frettabladid.is
Jórvík - eitthvað fyrir alla
Í Jórvík þarf að einbeita sér að því að láta sér leiðast, slíkt er
framboðið af söfnum, gönguferðum og veitingastöðum.
Veitingastaðir:
Little Betty’s Café við Stonegate
er svissnesk-jórvískt kaffihús
þar sem má fá alls kyns kökur og
mat sem bráðnar í munni. Það er
alltaf biðröð eftir sætum á kaffi-
húsinu en hún gengur hratt fyrir
sig. Þeir sem geta ekki beðið
kaupa hins vegar eitthvað ótrú-
lega ljúffengt í bakaríinu og fara
niður að ánni og borða það þar.
The Blue Bicycle við Fossgate er
veitingahús sem sérhæfir sig í
fiskréttum og jafnvel kröfuharð-
ir Íslendingar undrast bragð-
gæðin og fallega framreiðsluna.
Staðurinn dregur nafn sitt af
gleðihúsi sem var í kjallaranum
en veggir þar eru enn þá prýddir
myndum af starfsstúlkum auk
þess sem líta má bása þar sem
þær stunduðu iðju sína.
Söfn:
Íslendingum finnst þeir kannski
lítið þurfa að læra um víkinga en
ýmislegt gæti samt komið þeim á
óvart í glæsilegu Víkingasafninu
í Jórvík, þar sem farið er í tíma-
flakk á vögnum gegnum víkinga-
byggðina eins og talið er að hún
hafi verið og fornleifauppgröft-
urinn svo skoðaður í kjölfarið.
Dómkirkjan í York er ein glæsi-
legasta bygging veraldar og þar
er hægt að eyða heilum degi í að
skoða. Einkum er spennandi að
skoða grafhýsin, þar sem til sýn-
is eru fornminjar allt frá tímum
Rómverja og Saxa.
Meðal fjölda annarra safna
má nefna safn tileinkað Ríkharði
þriðja, sem átti einmitt sögu sína
á þessum slóðum, stærsta safn
um sögu lesta og ferðalaga á
Bretlandseyjum og Skyggni-
gáfusafnið þar sem leitast er við
að sanna og afsanna það yfirskil-
vitlega.
Ýmislegt:
York er afar draugarík borg og
boðið er upp á fjölda gönguferða
um draugaslóðir þar sem drauga-
sögur eru raktar. Þá er hægt að
bregða sér á veðreiðarnar á
laugardögum og kynna sér eina
helstu þjóðaríþrótt Breta.
Konunglega Ascot-hlaupið, sem
frægt er fyrir hattaprýði, var til
dæmis haldið í York fyrr í sumar.
Svo er líka skemmtilegt að
sigla eftir ánni og ganga eftir
borgarmúrnum en hægt er að
ganga eftir nánast öllum múrn-
um á þremur klukkutímum og
alls staðar eru skemmtileg lítil
kaffihús þar sem hægt er að æja
ögn áður en göngunni er haldið
áfram.
Clifford’s Tower stóð forðum vörð um borgina og hýsti jafnframt sakamenn en er nú eitt
margra kennileita borgarinnar.
Götulífið í York er blómlegt enda flottar búðir og skemmtileg kaffihús á hverju horni.